Morgunblaðið - 01.02.1987, Side 28

Morgunblaðið - 01.02.1987, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1987 Heggur sá er hlífa skyldi Athugasemd vegna viðtals við Steingrím Hermannsson forsætisráðherra 1 Tímanum eftir Matthías A. Mathiesen Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, hefur hafið kosn- ingabaráttu sína í Reykjaneskjör- dæmi. Hann gerir það með stóru viðtali í Tímanum sl. föstudag þar sem hann á afar óheiðarlegan og ósanngjaman hátt veitist að þingmönnum Reyknesinga fyrir „andvaraleysi gagnvart þróun sjávarútvegs í kjördæminu“, eins og þar segir. Steingrímur segir það vekja undrun sína hve margt þurfi að færa til betri vegar í Reykjanes- kjördæmi. „Mér fínnst ekki hafa verið tekið á þeim vandamálum af nægilegri festu af hálfu þeirra þingmanna, sem kjömir hafa ver- ið til þess að vinna að þessum málum fyrir Reyknesinga," segir Steingrímur í viðtalinu. Hann seg- ir einnig: „Það hafa gerst hér ýmsir atburðir sem komast hefði mátt fyrir ef þessir menn hefðu rétt fram hjálparhönd fyrr. Nú tjúka þessir menn upp þegar enn einn togarinn er að hverfa af Suðurnesjum. Þeir hefðu þurft að grípa til aðgerða miklu fyrr.“ Þá segir Steingrímur ennfremur: „Ef svona hefði hallað undan fæti í sjávarútvegi fyrir vestan er ég hræddur um að okkur þingmönn- um hefði verið best að halda okkur í burtu.“ Ástæðulaust er fyrir mig að láta slíkum ummælum ósvarað og rétt að rifja upp ýmsar staðreynd- ir varðandi þau atriði er Stein- grímur kýs að gera að umræðuefni með þessum hætti. Ætla mætti af viðtalinu við Steingrím að hann hafi lítið kom- ið nálægt stjómmálum og beri hverfandi ábyrgð á því sem gerst hefur. Svo er þó ekki því Steingrímur Hermannsson hefur setið á þingi síðan 1971 og gegnt ýmsum ráðherraembættum m.a. embætti sjávarútvegsráðherra 1980—1983 í ríkisstjóm dr. Gunn- ars Thorodsen. Hann var einn helsti hvatamaður að myndun þeirrar ríkisstjómar. í tilvitnuðum orðum Steingríms er raunar að finna ástæðuna fyrir því að hann hefur yfirgefið sitt fyrra kjördæmi. Hann hefur sem sagt tekið þann kostinn að halda sér burtu frá vandamálum sjáv- arútvegs á Vestfjörðum en þykist nú geta komið sem bjarg- vættur í öðru kjördæmi og leyst þar hvers manns vanda. Skyldi Steingrímur ekki hafa hugleitt að Reyknesingar kynnu að hafa fytgst með því hvað hann hefur verið að gera og hvemig ástand sjávarútvegsmála er víða í Vest- fjarðakjördæmi þegar hann kýs að halda burtu úr sínu gamla kjör- dæmi. Steingrímur er sjálfsagt þegar búinn að gleyma erfiðleikum sjáv- arútvegs á Patreksfírði, Bíldudal og Suðureyri og hraðfrystingar- innar á ísafírði. Það er svo langt síðan Steingrímur Hermannsson gegndi embætti sjávarútvegsráð- herra, 1980—1983. Hann man alls ekkert eftir því að þá á ein- hvetjum mestu aflaárum í sögu landsins var útgerðin rekin með Matthías Á. Mathiesen Skyldi Steingrímur ekki hafa hugleitt að Reyknesingar kynnu að hafa fylgst með því hvað hann hefur verið að gera og hvernig ástand sjávarútvegs- mála er víða í Vest- fjarðakjördæmi þegar hann kýs að halda burtu úr sínu gamla kjördæmi. slíkum halla að hún hefur ekki borið sitt barr síðan. Verðbólgan æddi áfram en skuldir sjávarút- vegsins vom verðtryggðar að fullu. Steingiíinur lætur þess getið að hann hafi hjálpað til við að útvega togara til Suðurnesja. Þeir vom reyndar gamlir og hafa skap- ar stórkostlega örðugleika hjá þeim fyrirtækjum sem þá keyptu vegna endumýjunar. Hraðfrysti- hús Keflavíkur á í miklum fjár- hagslegum vanda út af Bergvík- inni (áður Júlíus Geirmundsson). Það sama er upp á teningnum hjá Útgarði hf. ef Gautur verður seld- ur úr Garðinum. Ekki má svo gleyma þeirri óskammfeilni að Hornafirði var laumað inn í kvóta- regluna fyrir Norðursvæðið þegar Erlingur var seldur þangað af Suðurnesjum og fékk skipið 1750 tonna þorskkvóta í sitt sókn- armark, en hafði aðeins haft 733 tonn í aflamark sitt í Garðinum. Steingrímur Hermannsson virðist hafa gleymt því að sjávar- útvegsráðherra núverandi ríkis- stjórnar er varaformaður Framsóknarflokksins. Sjávarút- vegsráðherra hefur lýst sjónar- miðum framsóknarmanna í sjávarútvegsmálum þannig — að takmarka bæri sókn í þorskstofn- inn með því að fækka togurum á þéttbýlissvæðum suðvestanlands um 30. — Hér að framan hef ég einvörð- ungu staldrað við ummæli Stein- gríms í nefndu viðtali er lúta að stöðu sjávarútvegsmála. Ýmislegt annað er í viðtalinu sem um verð- ur fjallað síðar. Steingrímur Hermannsson hefur reitt höggið hátt en það geigar eins og ljóst má vera af því sem að framan greinir. Hér má því segja að höggvi sá er hlífa skyldi. Höfundur er utanríkisráðherra og 1. þingmaður Reykjaneskjör- dæmis. Frumvarp um framhaldsskólalög: Ríkíð annist allan rekstrarkostnað skóla Kostnaðarauki fyrir ríkissjóð um 160 millj. kr. miðað við verðlag 1985 NEFND sú sem mennta- málaráðherra skipaði til þess að semja frumvarp að lögnm um framhaldsskóla á íslandi hefur nýverið skilað menntamálaráðherra tillög- um sínum. Að sögn Birgis ísleifs Gunnarssonar, for- manns nefndarinnar felur þetta frumvarp í sér ramma- löggjöf sem tekur til allra skóla á framhaldsskólastigi, þar með talið menntaskólar, fjölbrautarskólar, skólar á iðnfræðslustigi og ýmsir sérskólar. „Það er gert ráð fyrir því að allir skólar geti haldið sínum sér- kennum, geti borið sín eigin nöfn, hvort sem það er tengt stað, hefð, eða sérstöku hlutverki,“ sagði Birg- ir Isleifur í samtali við Morgun- blaðið. Hann sagði að gert væri ráð fyrir töluverðu sjálfstæði hvers skóla fyrir sig, bæði hvað það varð- ar að skipuleggja sína kennslu, fjárhagslegt sjálfstæði að ákveðnu marki og jafnframt að skólar gætu viðhaldið bekkjakerfinu ef þeim sýndist svo, þó svo að öllu námi Æfingin var að frumkvæði SVFÍ í texta með mynd frá björgunaræf- ingu i Vestmannaeyjum, sem birtist í Morgunblaðinu á föstudaginn féll niður, að æfingin var haldin að frumkvæði Slysavarnafélags Is- lands. væri skipt upp í ákveðna náms- áfanga. „Það er gert ráð fyrir því að stofnkostnaður hvers skóla greiðist sameiginlega af ríki og viðkomandi sveitarfélagi eða sveitarfélögum, þannig að ríkið borgi 60% en sveit- arfélög 40%,“ sagði Birgir ísleifur. Hann sagði að ríkið myndi greiða allan rekstrarkostnað af skólunum, þar með talinn launakostnað. Hann sagði að fljótt á litið liti út fyrir að kostnaðarauki fyrir ríkið yrði um 160 milljónir króna á ári, miðað við verðlag á árinu 1985. Birgir ísleifur sagði að það væri tími til kominn að löggjöf kæmi fram um framhaldsskólana í heild og benti á fleiri nýmæli í frum- varpinu, eins og það að ráð er fyrir því gert að við hvern skóla skuli starfa skólanefnd, sem sé skipuð skólanefnd sem sé skipuð 3 fulltrú- um, tveimur frá hlutaðeigandi sveitarfélagi og einum tilnefndum af menntamálaráðuneytinu. Skóla- nefndimar fái vald til þess að ákvarða og skipuleggja nám og námsframboð innan skólans, jafn- framt því sem þær ákvarði rekstur Grindavík: Sorpreikningur upp á 5 milljónir kr. Grindavík. KOSTNAÐUR við sorphreinsun í Grindavik er áætlaður 5 milljónir króna árið 1987, eða 3 milljónum meiri en hjá sambærilegum sveitar- félögum, samkvæmt upplýsingum sem Morgnnblaðið hefur aflað sér. Grindavíkurbær er í samstarfi við hin sveitarfélögin á Suðumesj- um um rekstur Sorpeyðingarstöðv- ar Suðurnesja og þarf samkvæmt áætlun frá stöðinni að greiða 15% af heildarkostnaðinum, eða um 4 milljónir króna, fyrir sorphirðingu, sorpbrennslu og fjármagnskostnað. Auk þess þurfa Grindvíkingar að halda úti sérsorphaugum fyrir svo- kallað iðnaðarsorp og kostar það bæjarfélagið um 1 milljón í viðbót. Margítrekað hefur verið reynt að fá stjóm stöðvarinnar til að sjá um að þessi þjónusta taki einnig til iðn- aðarsorpsins, en án árangurs. Nú eru uppi raddir í bæjarstjórninni um að þessum haugum verði lokað enda löngum verið mikið vandamál sakir óþrifnaðar. Ef af því verður þurfa íbúar í Grindavík að sjá um það sjálfir að koma ruslinu niður á athafnasvæði sorpeyðingarstöðvar- innar. Við samanburð á Borgarnesi og Siglufirði, sem eru bæjarfélög af svipaðri stærð og Grindavík, kemur í ljós að sorpreikningur Grindvík- Birgir ísleifur Gunnarsson, formaður nefndar þeirrar sem samdi frumvarpið að lögum um framhaldsskóla. skólans innan þeirra fjárveitinga sem til ráðstöfunar eru. „Það er gert ráð fyrir því að hver skóli verði sjálfstæð rekstrareining og ríkissjóður greiði laun fyrir kennslu, stjórnun og prófdæmingu beint til skólans, en annan rekst- urskostnað greiði ríkið fyrirfram ársfjórðungslega til skólanna, og í því er fólgið þetta aukna fjárhags- lega sjálfstæði hvers skóla fyrir sig,“ sagði Birgir ísleifur. Þá sagði hann að gert væri ráð fyrir því að Samvinnuskólinn og Verzlunarskólinn störfuðu áfram á sama grundvelli og hingað til og opnað væri fyrir þann möguleika að menntamálaráðherra gæti sam- þykkt kostnaðarþátttöku við aðra einkaskóla á framhaldsskólastigi. „Þá eru lögfest, samkvæmt þessu frumvarpi í fyrsta sinn, ákvæði varðandi fullorðinsfræðslu, öldungardeildarstarfsemi og eftir- menntun, en þar er gert ráð fyrir að sú fræðsla verði með svipuðu fyrirkomulagi og verið hefur,“ sagði Birgir Isleifur, „auk þess sem reynt er að tryggja samstarf skól- anna og atvinnulífsins, náttúrlega fyrst og fremst í iðnnáminu. Jafn- framt er lagt til að sett verði á stofn fræðsluráð sjávarútvegs, sem hafí með höndum mótun heildar- stefnu og fræðsluskipulags í sjávarútvegsgreinum. “ Morgunblaðið/Kr. Ben. Sorphaugarnir í Grindavík, sem stendur til að loka vegna óþrifnaðar. inga er 3 milljónum hærri en hjá Suðumesja, en Borgnesingar og þessum bæjarfélögum, þrátt fyrir Siglfirðingar eru einir um sorphirð- samstarfíð um Sorpeyðingarstöð inguna. Kr. Ben.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.