Morgunblaðið - 01.02.1987, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1987
FEBRÚAR
Síöasti skiladagur fyrir einstaklinga meö
sjálfstæðan atvinnurekstur er 15. mars.
Ríkisskattstjóri
Svipti sig
lífi af
óttavið
alnæmið
Róm. AP.
FÓSTRA nokkur á Ítalíu
svipti sig lífi fyrr i vikunni
vegna þess, að hún óttaðist,
að hún hefði sýkst af alnæmi
þegar hún stakk sig á
sprautunál fyrir fimm árum.
Er hún þriðji ítalinn, sem al-
næmisóttinn hrekur í dauð-
ann í þessum mánuði.
í frétt í Rómarblaðinu II Mes-
saggero sagði, að Antonietta
Mattei, 39 ára gömul fóstra og
tveggja bama móðir, hefði stytt
sér aldur í rauðabýtið á þriðju-
dag, nokkrum stundum áður en
hún átti að mæta í alnæmis-
próf. Hafði Mattei um sjö
mánaða skeið fundið fyrir þrótt-
leysi og flökurleika en þau geta
verið einkenni alnæmis eins og
svo ótalmargt annað. Fyrir fímm
árum fann hún á dagheimilinu
óhreina sprautu, sem hún að
sjálfsögðu kastaði til að bömin
meiddu sig ekki á henni, en
varð um leið fyrir því að stinga
sig lítilsháttar. Vegna þess
ímyndaði hún sér, að hún væri
komin með alnæmi og lauk ævi
sinni með því að kasta sér út
um glugga á fjórðu hæð.
Tveir aðrir menn hafa svipt
sig lífí f þessum mánuði vegna
ótta við, að þeir væm sýktir af
alnæmi. 16. janúar skaut 29 ára
gamall maður í Verona konu
sína, tveggja ára gamlan son
og síðan sjálfan sig og í bréfí,
sem hann skildi eftir, kvaðst
hann óttast, að vændiskona
hefði sýkt sig af sjúkdómnum.
Við líkkrufningu kom í ljós, að
hann hafði bara verið með flens-
una. Þá batt 49 ára gamall
trésmiður í Leghom enda á líf
sitt í síðustu viku eftir að hafa
farið í læknisskoðun. Læknamir
sögðu honum reyndar, að hann
væri veill fyrir hjarta, ekki með
alnæmi, en því vildi trésmiður-
inn ekki trúa.
ER
4 WD - SKUTBÍLL
Sá fyrstl frá Japan
með sítengt aldrif,
sem hægt er að læsa.
O Stöðug spyrna á öll hjól.
O Engin skipting milli fram-
og afturhjóla.
O Viðbragð og vinnsla ísérflokki.
O Mikið burðarþol.
O Nýtískulegt og stílhreint útlit.
BLaugavegi 170-172 Simi 695500