Morgunblaðið - 01.02.1987, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1987
Dagskráin sem kórinn flytur er kölluð Hanastél ’87. Á myndinni er hluti kórsins.
Myndarlegar fraukur leggja á ráðin um næsta atriði.
„...ég- syng og dansa
af hjartans lyst“
— litið inn á næturæfingu fyrir nemendamót Verslunarskólans
ÞAÐ er venja nemenda í Verslun-
arskóla Islands að halda árlegan
fagnað hinn fyrsta miðvikudag
febrúarmánaðar ár hvert. Þessi
venja hefur tíðkast í 55 ár, jafn-
an við miklar vinsældir nemenda
skólans enda er nemendamótið
hápunktur félagsstarfsins og
hvergi til sparað til að það megi
vera sem best úr garði gert.
Nemendamótið '87 verður haldið
í Háskólabíói næstkomandi mið-
vikudag. Morgunblaðið leit inn á
æfingu fyrir mótið síðla kvölds
í síðustu viku, en æfingar hafa
að mestu farið fram að nóttu til,
eftir að syfjaðir bíógestir eru
horfnir til síns heima. Það var
margt um manninn í Há-
skólabíói, enda starfa um
hundrað manns að undirbúningi
mótsins.
Sá er siður verslinga að yfir ein-
stökum atriðum sýningarinnar hvíli
mikil leynd. Blaðamaður náði að
leita uppi Berglindi Johansen, for-
mann nemendamótsnefndar, og
spurði hana hvers kyns samkomur
nemendamótin væru.
„Það er komin ákveðin hefð fyrir
því hvemig dagskrá nemendamót-
anna er skipulögð. Formaður
nem.mótsnefndar setur mótið og
síðan er sunginn svokallaður nem-
endamótssöngur. Þá er ávarp
skólastjórans okkar, Þorvarðar
Elíssonar, sunginn skólasöngurinn
og fluttur annáll þar sem venjulega
er gert grín að kennurunum. Ann-
állinn hefur oftast nær verið fluttur
í leikritsformi, en nú verður því
breytt," sagði Berglind. Þrátt fyrir
mikla lævísi tókst blm. ekki að kom-
ast að því í hvetju þessar breytingar
væru fólgnar. Hins vegar sagði
Berglind að það væri opinbert
leyndarmál að annað efni mótsins
væri flutningur kórs sem æft hefði
sérstaklega fyrir mótið á lögum úr
kvikmyndum, jafnt gömlum sem
nýjum, íslenskum sem erlendum.
Æfíngar fyrir rnótið hófust þegar
skólinn tók til starfa í haust, en
hafíst var handa við skipulagningu
sl. sumar. Kórinn hefur lagt nótt
við dag í æfíngar frá áramótum,
undir stjórn Magnúsar Kjartansson-
ar. Það er hljómsveit Magnúsar sér
um flutning tónlistar á mótinu.
Meðlimir kórsins láta sér þó ekki
nægja að þenja raddböndin. Sóley
Jóhannsdóttir hefur undanfamar
vikur æft dansatriði með kórnum,
sem þykir sýna einstæð tilþrif.
Næstur viðmælanda blm. var
Ámi Jón Eggertsson,_ sextán ára
nemi á fyrsta ári í V.I.
Aðspurður sagðist Ámi taka þátt
Nemendur æfðu þekkt lög úr gömlum og nýjum kvíkmyndum. Spurningin er; úr hvaða mynd er þetta
atriði?
í félagslífinu til að kynnast sam-
nemendum sínum á annan hátt en
daglega stritið í skólanum gæfí
möguleika á.
Hvað gerir þú í sýningunni?
„Ég er í kórnum, sem þýðir að
ég syng og dansa af hjartans lyst.
Svo bregð ég mér náttúrulega í
ótal gervi á örskömmum tíma, eins
og aðrir kórmeðlimir."
Gaman?
„Meiriháttar. Eg bókstaflega nýt
þess að flippa út á næturæfingum,
syngja og dansa. Fyrir utan það
að vera einstaklega góður dansari,
þá fæ ég líka tækifæri til að syngja
dúett með Gísla Kjæmested."
Kolbrún Hjálmtýrsdóttir, 18 ára,
tók líka þátt í sýningunni í fyrra.
„Það var svo gaman að ég varð að
fara aftur. Það skemmtilegasta við
þetta allt saman em næturæfíng-
amar. Venjulega er maður kominn
með svo mikinn svefngalsa á þess-
um æfíngum að maður lætur sig
hafa hvað sem er,-og hefur gaman
Ertu orðin stressuð fyrir sýning-
una?
„Já. Ég held að það séu allir
orðnir dálítið stressaðir og verði það
þangað til allt er yfírstaðið og við
vitum hvemig okkur hefur tekist
upp. Það verður þá bara að koma
í ljós ef eitthvað klikkar í þessu hjá
okkur,“ sagði Kolbrún.
Þess er vænst að um 1.000 áhorf-
endur mæti á nemendamótið á
miðvikudaginn, -efnt verður til
aukasýningar næst komandi laug-
Dúettinn Árni Jón Eggertsson
og Gísli Kjærnested horfa
dreymnir á svip á leiðbeiningar
danskennarans.
stendur yfir í hátt á aðra klukku-
stund. Farið er út að borða um
kvöldið og loks er þeyst á dansleik.
Við óskum þeim góðrar skemmt-
unar, en minnum jafnframt á að
það er margsannað að það borgar
sig að ganga hægt um gleðinnar
dyr!
Morgunblaðið/Einar Falur
Berglind Johansen, formaður
nemendamótsnefndar.
Kolbrún Hjálmtýrsdóttir.
af því!“
I hvers konar hlutverki ertu?
„Hlutverkin eru nú öll svipuð
fyrir þá sem eru í kórnum, við
syngjum og dönsum. Mér fínnst
þetta mjög skemmtilegt og lifí fyrir
þetta á meðan á því stendur.
ardag kl.14.00 í Háskólabíói.
Verslingar eiga þá annasaman dag
fyrir höndum; þeir hittast að morgni
(bergja þá gjaman á kakói eða
óáfengu léttvíni, að eigin sögn),
síðan hefst mótið kl. 14.00 og