Morgunblaðið - 01.02.1987, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1987
57
Handavinnupokínn
Grislingur
Jæja, finnst ykkur ekki kom-
inn timi til að dunda við
smáhandavinnu? Ég vona
það, og þess vegna kemur
hér uppskrift að mjúku leik-
fangi fyrir þau allra yngstu.
Gríslingurinn er um 24 senti-
metrar á hæð og 19-20 sm á
breidd. í hann má að sjálfsögðu
nota alls konar afganga. í þennan
notaði ég ljósbleikt glansgalla-
efni, og svo satínfóður í trýnið,
tæmar og innanverö eyrun. Það
má allt eins nota frotté-efni,
fínrifflað flauel, bómullaijersey
eða flónel, svo eitthvað sé nefnt.
Búkurinn klippist tvisvar. Eyr-
un klippast tvisvar úr aðalefninu
og tvisvar úr satíni.
Halinn er 40 sm langur og 2
>/2 sm á breidd. Saumað saman
og snúið við.
Tæmar og trýnið eru teiknuð
upp á t.d. smjörpappír og sniðin
úr satíni. Augu og nasir klippt
út úr svörtu fílti eða álíka efni.
Búkurinn og eyrun klippast
með 1 sm saumfari að auki. Allt
annað eins og sniðin em.
Byijið á andlitinu. Límið augun
og nasimar á með taulími. Trýnið
má líma á og sauma siðan með
fínu sig-sag-spori allt í kring.
Saumið (með ísaumsgami) munn-
inn með kontórsting og einnig
neðsta kantinn af höfðinu. Límið
tærnar á og saumið kantinn einn-
ig með fínu sig-sag-spori.
Saumið saman eymn, hafið
opið að neðan. Snúið þeim við og
kantstingið. Þræðið þau síðan á
framhelming höfuðsins, þar sem
merkt er fyrir eymnum. Saumið
svo búkstykkin saman, og eyran
um leið. Látið vera aðeins op að
neðan. Snúið við og fyllið af troði.
Þræðið halann á neðst að aftan
og saumið síðan fyrir í höndunum.
Þið fáið afbragðs „troð“ í verzl-
uninni Bamarúmum á Skóla-
vörðustíg 22 í Reykjavík, það
kallast ullardúnn, bæði mjúkt,
ódýrt og dijúgt.
Þau ykkar sem hafa áhuga á
að fá snið geta skrifað eftir þeim.
Utanáskriftin er:
Dyngjan
c/o Morgunblaðið,
Aðalstræti 6,
101 Reykjavík.
Með kveðju,
Jómnn.
rokksíðan
. ÁRNI MATTHÍASSON
Sennilega eru það litlar
fréttir að bandaríska
hljómsveitin The
Smithereens sé
væntanleg til landsins.
Það sýna þær
undirtektir sem
fyrirhugaðir
hijómleikar þeirra hafa
fengið. Miðar á fyrri
tónleikana gengu
þegartil þurrðarog
viðbúið er að þegar
þetta birtist sé orðið
svotil uppselt á
tónleika númertvö.
Jim Babjak, Dennis Diken, Mike Mesaros og Pat DiNizio:
The Smithereens.
Ekki er úr vegi að líta
aöeins á feril The
Smithereens, áöur en
lengrá er haldiö.
Upphaf The Smithereens er
rakiö til þess er stofnandi
sveitarinnar og aðalsprauta,
Pat DiNizio, sá kvikmyndina
The Buddy Holly Story. I þeirri
mynd er dregin upp einkar
fögur mynd af frægðarferli
Buddys og Pat ákvaö aö leggja
á hina þyrnum stráöu braut
frægðarinnar. The
Smithereens stofnaöi hann
síðan um 1980, ásamt þeim
Jim Babjak, sem leikur á gítar,
Dennis Diken, sem leikur á
trommur og ýmislegt slagverk,
og Mike Mesaros, sem leikur
á bassagítar.
1980 gáfu þeir út litla plötu
(EP), sem aflaði þeim virðingar
en lítillar frægðar. Næsta
plata, Beauty and Sadness,
var einnig lítil. Kom hún út
1982 og fékk góðar undirtektir
hjá poppskríbentum í
Bandaríkjunum, en ekki eins
góöar hjá plötukaupendum
þarlendum. Ekki bætti úr skák
að fyrirtækið sem gaf plötuna
út hafði ekki peninga tii að láta
pressa fleiri plötur er fyrsta
skammt þraut.
Þessi EP-plata náði
nokkrum vinsældum í
Skandinavíu, og fór sveitin til
Svíþjóðar til að fylgja þeim
vinsældum eftir. Þegar snúið
var aftur frá Svíþjóð, kom í Ijós
að þeir þurftu að byrja
baráttuna upp á nýtt, flestum
gleymdir.
Þaö var ekki fyrr en The
Smithereens komust á
samning hjá Enigma í
Bandaríkjunum og fengu Don
Dixon til liðs við sig að hjólin
fóru að snúast. Tíu daga tók
að taka upp og hljóöblanda
plötuna, Especially for You,
sem óhætt er að telja eina af
plötum ársins 1986 í
| Bandaríkjunum.
Þrátt fyrir skamman
upptökutfma er ekki hægt að
merkja aö platan sé hrá eða
óvönduð. Það er greinilegt að
mögru árunum var ekki eytt í
vitleysu. Enda hermir sagan
að sveitin hafi æft upp ein 200
lög til þess eins aö geta spilað
við öll tækifæri. Þaðan kemur
einnig skýringin á því hve
hljómurinn minnir á árin um j
1960, flestöll voru lögin frá
þeim tíma, lög sveita allt frá
The Kinks til The Yardbirds.
Látum þetta nægja um
fortíðina og víst er aö ef haldið
er rétt á spöðunum, eiga Pat
DiNizio og félagar framtíðina
fyrir sér.
Varla þarf að hvetja menn
til að mæta á tónleikana eins
og viðtökurnar hafa verið, en
þeir sem ekki komast geta þó
altént keypt sér plötuna.
raðauglýsingar
Málfundafélagið Óðinn
heldur almennan félagsfund mlðvikudaginn
4. febrúar kl. 20.30 I Valhöll, kjallara.
Efni fundarin8:
1. Kjör fulltrúa á landsfund.
2. Gestur fundarins er Sólveig Péturs-
dóttir, lögfræðlngur.
3. önnur mál.
Félagar hvattir til að mæta.
Sljómln.
Mosfellssveit
— ræðunámskeið
Sjálfstæðisfélag Mosfelllnga gengst fyrir
némskelðum I ræðumennsku 3.-18. febrúar
(5 kvöld). Kennt verður I tveimur flokkum:
Fyrir byrjendur og þé sem lokið hafa byrj-
endanámskeiði. Leiðbeinandi verður Gisll
Blöndal. Væntanlegir þátttakendur vinsam-
legast skrái sig sem fyrst.
Upplýsingar og innritun f simum 666569
og 666957.
St/ómln.
Fu lltrúaráðið í Reykjavík
Ákvörðun framboðslista
Almennur fundur I fulltrúaróði sjálfstæðisfélaganna I Reykjavik verð-
ur haldinn þríðjudaginn 3. febrúar nk. kl. 20.30 i sjálfsteaðishúsinu
Valhöll, Háaleltisbraut 1.
Dagskrá:
1. Ákvörðun tekln um framboðslista Sjálfstæðlsflokksins i Reykjavik
vegna næstu alþinglskosninga.
2. önnur mál.
Fulltrúaréðsmeölimir eru hvattlr tll að fjölmenna og hafa fulltrúa-
ráðsskirteinin sin meðferðis.
Stjóm fulltwaráðs sjálfstæðlsfólaganna í Reykjavik.