Morgunblaðið - 01.02.1987, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1987
63
Ferskt pasta
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Lengi höfum við ekki
þekkt annað pasta en
hið þurrkaða, sem hef-
ur verið flutt hingað.
En nú er starfandi hér
pastaverksmiðja, sem selur ferskt
pasta, og er það mun betra en
hið þurrkaða. Hið ferska pasta
hefur ekki mikið geymsluþol, og
þurfum við að gæta þess að
geyma það í kæliskáp, en það
má frysta. Þegar það hefur verið
fryst er ágætt að láta það standa
á eldhúsborðinu í 20 mínútur og
bijóta sig aðeins, en sjóða það
síðan frosið í mjög stuttan tíma
í miklu saltvatni. Það á að bull-
sjóða allan tímann. Að sjálfsögðu
er getið um suðutímann á pakkn-
ingunum, en misbrestur er á að
neytandi lesi utan á umbúðir. En
þetta stæði ekki á pökkunum, ef
ekki væri ætlast til að það væri
lesið. Lasagna-plötur á þó ekki
að sjóða, og ef þær hafa verið
frystar, þarf að afþýða þær að
mestu og losa síðan í sundur með
hníf. A íslenska pastanu eru leið-
beiningar að sjálfsögðu á íslensku,
svo að allir ættu að geta lesið
þær. í verslunum er pastað geymt
i kæliborðum en stundum er heit-
um ljóskösturum beint að kæli-
borðunum og getum við sagt
okkur sjálf, að þá hækkar hita-
stigið og varan geymist ekki.
Þetta þyrftu kaupmenn að at-
huga, en það á við um fleiri
matvæli en pastað.
Talið er að þurrkað pasta hafi
orðið til á miðöldum á Sikiley,
þegar eyjan var undir stjórn
araba. Stundum hefur verið talið
að Marco Polo hafi flutt pasta eða
aðferðina við að búa það til frá
Kína um 1400, en það á ekki við
rök að styðjast, þar sem sagnir
eru af þurrkuðu pasta áður en
hann sneri heim þaðan. Sérstakt
hveiti, Durum- hveiti, er notað til
pastagerðar, en það hefur mikið
gluteninnihald og er seigt. Aður
þurfti sérstakt veður til að búa
til pasta og mismunandi veður
fyrir hinar ýmsu gerðir pasta.
Taka þurfti tillit til, hvort vindur
blés af hafi, hvort sólin skein glatt
o.s.frv. En eftir að rafmagn kom
til sögunnar varð allt miklu auð-
veldara, deigið var hnoðað, flatt
út, skorið og mótað í vélum og
sérstök þurrkherbergi notuð til
að þurrka pastað. Þeir sem hafa
ferðast til Italíu hafa rekið sig á
það hversu stór þáttur í ítalskri
matargerð pastað er, enda er fjöl-
breytni í pastavali geysimikil, og
sérstakt hom í stórmörkuðum eða
ljúfmetisbúðir sem versla ein-
göngu með pasta. Á annað
hundrað pastategundir eru nú
framleiddar á Ítalíu, og nýjar teg-
undir koma stöðugt á markaðinn.
Spaghettí með
nautahakki
Handa 4—5
500 g nautahakk
1 msk. matarolía
1 meðalstór laukur
'Msk. salt
'Msk. hvítlaukssalt
1 tsk. papríkuduft
örlítill nýmalaður pipar
*/2lítil dós tómatmauk (puré)
35 g
1 dl vatn
1 pk ferskt spaghetti, u.þ.b.
300 g
1 'Mítri vatn með salti til að
sjóða spaghettíið í.
'/2bikar sýrður ijómi
2 msk rifínn parmesanostur
(eða annar bragðsterkur ostur)
1. Afhýðið laukinn og saxið
smátt.
2. Setjið matarolíuna á pönnu,
hitið vel. Setjið síðan hakkið og
laukinn á pönnuna og brúnið.
3. Minnkið hitann og setjið salt,
hvítlaukssalt, papríkuduft og ný-
malaðan pipar út í.
4. Hrærið tómamaukið út með
vatninu og setjið saman við.
Hrærið vel saman. Setjið lok á
pönnuna og látið sjóða við suðu-
mark í 15 mínútur.
5. Setjið salt og vatn í pott og
látið sjóða. Setjið spaghettíið út
í. Látið bullsjóða í 2 mínútur,
hafið ekki lok á pottinum.
6. Hellið spaghettíinu á sigti
og látið renna af því.
7. Hrærið sýrða ijómann út í
kjötkássuna, setjið á miðjuna á
kringlóttu fati. Setjið spaghettíið
utan með hringnum. Stráið rifn-
um osti yfir spaghettíið.
Athugið: Gott er að bera snittu-
brauð eða annað brauð með þessu.
Núðlur með beikoni,
hakki og gfrænmeti
Handa 4
5 stórar sneiðar beikon
400 g nauta-, kinda- eða
lambahakk
1 tsk. salt
'Msk. pipar
1 tsk. soðkrafsduft eða tening-
ur
2 dl vatn
2 stórar gulrætur
2 selllerístönglar (má sleppa)
1 lítill blaðlaukur
1 meðalstór græn papríka
1 pk núðlur (t.d. papríkunúðl-
ur) 300 g
1. Skerið beikonið smátt, setjið
á pönnu, hafið hægan hita. Sjóðið
á pönnunni í 7 mínútur. Setjið á
disk.
2. Aukið hitann á pönnunni,
steikið hakkið í beikonfeitinni í
nokkrar mínútur. Ef feitin er mjög
lítil má setja 1 msk af matarolíu
á pönnuna.
3. Stráið salti og pipar yfir kjöt-
ið þegar þið hafið steikt það.
4. Hrærið soðkraftsduftið út
með vatninu og setjið út í.
5. Skafið gulræturnar og rífið
gróft, þvoið blaðlaukinn vel og
skerið í sneiðar, skerið selleríið
smátt þversum, takið steinana úr
papríkunni og skerið í sneiðar.
Setjið síðan allt grænmetið á
pönnuna með kjötinu. Setjið beik-
onið saman við. Setjið lok á
pönnuna og látið þetta sjóða við
hægan hita í 15 mínútur.
6. Setjið núðlurnar út í kássuna
á pönnunni, hrærið örlítið saman
við, setjið aftur lok á pönnuna og
látið þetta sjóða í 5 mínútur.
Athugið: Gott er að bera brauð
með þessu.
Núðlur með tún-
fiski og eggjum
Handa 3—4
2 pk. núðlur, u.þ.b. 600 g,
200 g frystar grænar baunir
(nota má dósabaunir),
1 lítil dós túnfiskur í olíu, 200 g,
15 g smjör (1 smápakki),
1 lítill laukur,
2 hvítlauksgeirar,
væn grein fersk steinselja,
3 harðsoðin egg,
'/2snittubrauð.
1. Setjið smjör í pott, sjóðið
baunimar í því í lokuðum potti.
Hafið hægan hita og hristið pott-
inn. Þetta tekur um 10 mínútur.
2. Sjóðið eggin í 10 mínútur,
takið af þeim skumina og skerið
í báta.
3. Setjið túnfiskinn á pönnu.
Afhýðið hvítlaukinn og laukinn
og skerið smátt, setjið með tún-
fiskinum á pönnuna. Hrærið í og
látið sjóða við hægan hita í 5
mínútur.
4. Sjóðið núðlurnar í saltvatni
í 3 mínútur. Hellið þá á sigti og
látið renna af þeim. Setjið síðan
á pönnuna.
5. Setjið grænu baunirnar á
pönnuna. Hrærið lauslega saman.
Hellið á fat.
6. Þvoið steinselju og klippið
yfir. Raðið síðan eggjabátunum
ofan á.
7. Berið heitt snittubrauð með.
Lasagna með
kjöti og osti
Handa 4
1 pk. lasagna, 350 g,
500 g nautahakk,
1 tsk. salt,
‘/stsk. pipar,
1 tsk. ítalskt krydd (italian sea-
soning),
1 egg,
1 dl rasp,
'Apk. ijómaostur án bragðefna,
200 g,
1 stór blaðlaukur (púrra),
200 g smjör,
1 dl hveiti,
'Mítri mjólk,
'Atsk. salt,
Vstsk. rifín múskathneta eða
tilbúið duft,
100 g rifínn óðalsostur,
væn grein fersk steinselja eða
1 msk. þurrkuð.
1. Losið lasagnað í sundur, þá
er það u.þ.b. 1 m að lengd.
2. Smyijið ijómaosti jafnt á
alla plötuna.
3. Setjið kjötið í skál, setjið salt,
pipar, ítalskt krydd, rasp og egg
saman við kjöthakkið. Hnoðið
saman og mótið rúllu jafnlanga
lasagna-plötunni.
4. Kljúfíð blaðlaukinn, þvoið
vel undir rennandi vatni, flettið
síðan blöðunum sundur og leggið
einfalt ofan á lasagnaplötuna.
5. Setjið kjötrúlluna ofan á
blaðlaukinn og rúllið upp. Skerið
síðan í 10—15 sm langa bita.
Raðið bitunum á aflangt djúpt
eldfast fat.
6. Hitið smjörið, hrærið hveitið
út í, setjið síðan mjólkina smám
saman út í og búið til uppbakaðan
jafning. Setjið salt og múskat út
í hann.
7. Rífíð ostinn og setjið út í
jafninginn. Hellið honum síðan
yfír rúllurnar á fatinu.
8. Klippið steinseljuna og strá-
ið jafnt yfír fatið.
9. Hitið bakaraofn í
180—190°C, blástursofn í
160—70°, setjið fatið í miðjan ofn-
inn og bakið í 30 mínútur.
Sameining Austur-Barðastrandarsýslu í einn hrepp:
Atkvæðagreiðsla líklega í mars
Miðhúsum.
Reykhólasveitungar þinguðu
um sameiningu Áustur-Barða-
strandarsýslu í einn hrepp
fimmtudaginn 29. janúar. Fund-
arboðandi var Stefán Skarphéð-
insson sýslumaður á Patreks-
firði. Hann hafði áður haldið
fund í Geiradalshreppi og hélt
síðan fund í Gufudalssveit á
föstudag.
Á fundinn mættu á milli 30 og
40 Reykhólasveitungar og gestur
fundarins var formaður sameining-
arnefndar hreppanna, Grímur
Amórsson á Tindum í Geiradal. Frá
Geiradalsfundinum kom sú uppá-
stunga að ef af sameiningu yrði þá
fengi hinn nýi hreppur Reykhóla-
hreppsnafnið. Sýslumaður reifaði
málið og Grímur gerði grein fyrir
störfum nefndarinnar til þessa.
Margar fyrirspumir komu fram sem
þeir Grímur og Stefán svöruðu eft-
ir bestu getu.
í sýslunni eru nú 387 íbúar og
þar af aðeins 2 í Múlahreppi. Reyk-
hólahreppur er lang ijölmennastur,
með yfir helming íbúa sýslunnar.
Atkvæðagreiðsla um sameiningu
hreppanna verður sennilega í mars,
en það er félagsmálaráðuneytið sem
ákveður tímasetningu.
Sveinn
Kaupskip hf ■
Innflytjendur athugi.ð!
M.s. Combi Alta lestartil íslands í Aveiro, Portúgal, 3.-5. febrúar,
í Rotterdam 10. febrúarog í Esbjerg 12. febrúar.
Næsta lestun: Aveiro i 10. viku
Rotterdam í 10. viku
Esbjerg i 11. viku
Nánari upplýsingar i sima 96-27035
Kaupskip hf.
Strandgötu 53, Akureyri,
sími 27035