Morgunblaðið - 01.02.1987, Side 64

Morgunblaðið - 01.02.1987, Side 64
^STERKT KDRT SUNNUDAGUR 1. FEBRUAR 1987 VERÐ I LAUSASOLU 50 KR. / Morgunblaðið/Ól. K. M. Ræningjarnir tóku til fótanna hlupu norðurfyrir húsið eins og örvalínan sýnir. Á innfelldu myndinni sést niður í Fossvogs- dalinn i þá átt sem ræningjarnir hlupu. Rannsókn ránsins á hádegi í gær: Ræningj aruir ófundnir RÆNINGJARNIR, sem náðu tösku með peningum og ávi- sunum í að andvirði um ein miljón króna af verslunarstjóra Stórmarkaðarins í Kópavogi á föstudagskvöldið, gengu enn lausir, þegar Morgunblaðið spurðist síðast fyrir um rann- sókn málsins um hádegisbilið i gær. Rannsóknarlögregla ríkis- ins sagði þá lítið að frétta af rannsókninni Málsatvik voru þau að eftir lok- un Stórmarkaðarins á fostudags- kvöld ók verslunarstjórinn með peninga og ávísanir, sem komið höfðu inn um daginn, í bankat- ösku í næturhólf Utvegsbankans, Skemmuvegi I, sem er þar skammt frá. Þegar hann kom að hólfínu réðust að honum þrír menn, náðu af honum töskunni og hlupu á brott með hana yfír stórgýtt svæði norðan við ban- kann í átt að Fossvogi. Að sögn Harðar Jóhannessonar hjá Rannsóknarlögreglu ríksins hefur ekki fengist nákvæm lýsing á ræningjunum, hvorki frá versl- unarstjóranum né sjónarvotti sem var að ráninu. Árásarmenninrir voru með eitthvað yfír höfðunum en ekkert nánar var vitað um klæðnað þeirra. Það mun hafa verið venja hjá Stói-markaðnum að flytja peninga á þennan hátt í næturhólf Útvegs- bankans eftir að búðinni hefði verið Iokað. Hörður sagði að það væri sennilega engin tilviljun að ræningjamir völdu þennan stað. Þetta er að mestu iðnaðarhverfi og fólk hefði því fá erindi þangað á þessum tíma og því var þarna engin umferð. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar: Dagsbrún afgreiðir ekki „fleiri erlend leignskip Stjórn- og trúnaðarmannaráðsfundur tekur afstöðu til afgreiðslu leiguskipa á þriðjudag STJÓRN- og trúnaðarmanna- ráðsfundur verkamannafélags- ins Dagsbrúnar á þriðjudaginn kemur mun taka afstöðu til áskorunar Sjómannafélags Reykjavíkur (SFR) um að vinna við erlend leiguskip í höfnum hér verði stöðvuð. Guðmundur J. ~ ^iuðmundsson, formaður Dags- Drúnar, sér þó ýmsa annmarka á því að stöðva vinnu við leiguskip, sem siglt hafi hingað til lands árum saman, en segir það sitt mat, að ekki komi til greina að félagsmenn Dagsbrúnar afgreiði ný erlend leiguskip, en Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eim- - ^kipafélags Islands, segir að Eimskip kanni möguleika á að taka ný skip á leigu eða að Eim- skip hafi samvinnu við erlend skipafélög um siglingar til lands- ins á meðan á verkfallinu stend- ur. „Við störfum í flutningum og við lítum á það sem okkar hlutverk að halda flutningastarfseminni órof- inni meðan við erum ekki hindraðir í því. Þess vegna erum við að leita leiða til þess að halda þessum flutn- ingum áfram og það gerum við annað hvort með leiguskipum eða með samvinnu við erlend skipafé- lög. Erlend skipafélög hafa leitað eftir samvinnu við okkur um það að sigla til íslands. Skipafélög er- lendis eru sífellt að leita sér að nýjum verkefnum og þau hafa augastað á íslandi," sagði Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskipa- félags Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Hörður sagði að fyrirspumir hefðu borist bæði frá Evrópu og Skandinavíu varðandi flutningana og einnig hefði verið leitað eftir slíkri samvinnu áður. Eimskip væri í viðræðum við aðila erlendis um slíka samvinnu. Viðræðumar væru ekki langt á veg komnar, en þessir flutningar gætu hafist með skömm- um fyrirvara. „Það er útilokað að Dagsbrúnar- menn horfí aðgerðarlausir á ný erlend leiguskip annast verkefni þeirra sjómanna, sem nú eru í verk- falli. Þar hlýtur að vera um tvímælalaust verkfallsbrot að ræða. Ummæli Harðar finnast mér nokk- uð djörf og ég er hræddur um að þau eigi ekki eftir að rætast," sagði Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Dagsbrúnar. Hann sagði að nokkru öðm máli gegndi um leigu- skip, sem siglt hafí hingað um árabil, og þess utan hafí skipadeild SÍS ekki lengur bryggjupláss til þess að afgreiða þau skip sem hún er með á leigu. Ekki náðist í Guðmund Hall- varðsson, formann SFR, til þess að fá viðbrögð hans við þessum fyrir- ætlunum Eimskips, en hann hefur opinberlega varað við þeim. Frumvarp um framhaldskólalög: Ríkið sjái um allan rekstr- arkostnað NEFND sú sem skipuð var til þess að semja frumvarp að lögum um framhaldsskóla hefur skilað tillögum sínum til menntamála- ráðherra og er hér um að ræða rammalöggjöf sem tekur til allra framhaldsskóla í landinu, að sögn formanns nefndarinnar Birgis Isleifs Gunnarssonar. Birgir Isleifur sagði í samtali við Morgunblaðið að það fælist m.a. í frumvarpinu að framhaldsskólarnir fengju að halda öllum sínum sér- kennum og fengju að vissu marki aukið íjárhagslegt sjálfstæði. Ríkið myndi sjá um allan rekstrarkostn- að, svo sem launakostnað, stjómun- arkostnað og kostnað af prófdæmingu, en skólanefndir hvers skóla fyrir sig ákvörðuðu í samræmi við fjárveitingar með hvaða hætti nám og námstilhögun yrði í hveijum skóla fyrir sig. Fjár- veitingar sem slíkar yrðu ákveðnar og veittar fyrirfram ársfjórðungs- lega, og það yrðu þær upphæðir sem skólanefndimar hefðu úr að spila. Birgir Isleifur sagði jafnframt að gert væri ráð fyrir því að stofn- kostnaður hvers skóla fyrir sig skiptist þannig á milli ríkissjóðs og sveitarfélags eða sveitarfélaga, að ríkið greiddi 60% en sveitarfélag eða félög 40%. Hann sagði að áætl- að væri að kostnaðarauki fyrir ríkissjóð sem fylgdi þessu frum- varpi væri um 160 milljónir á ári, miðað við verðlag 1985. Sjá viðtal við Birgi ísleif á bls. 28. Blíðan í Reykjavík: Einn mild- astijanúar aldarinnar „ÞESSI janúar, sem nú er að líða, verður sennilega í 3.-5. sæti yfir mildustu janúar- mánuði á öldinni í Reykjavík," sagði Trausti Jónsson veðurfræðingur í gær. Að sögn Trausta er meðalhiti janúarmánaðar í ár um 3 gráð- ur. Árið 1964 var heitara og einnig árið 1947, en 1972 og 1973 var hitastigið mjög svip- að. Hann sagði að janúar í ár væri áberandi hlýasti janúar- mánuður síðan árið 1973 og langt fyrir ofan meðaltal á þessu 14 ára tímabili. Kaldasti janúar aldarinnar var hins veg- ar frostaveturinn mikla árið 1918, en þá var meðalhiti mínus 4,3 gráður. Hvað varðar úrkomu í höfuð- borginni í janúarmánuði hefur oft verið svona snjólétt og þetta ár sker sig því ekki sérstaklega úr að því leyti. Trausti benti á að í fyrra hefði einnig verið svona snjólétt, en snjórinn nú væri þó heldur minni en undan- farin ár. Einu sinni á öldinni hefur janúar í Reykjavík verið snjólaus með öllu, en það var árið 1961.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.