Morgunblaðið - 05.02.1987, Blaðsíða 1
Artek
á réttri leið
Artek hóf að flytja út hugbúnað síðastliðið vor. Þekkt
dreifíngarfyrirtæki hugbúnaðar falast nú eftir þýðandan-
um og önnur vilja samstarf um þróun tækninýjunga.
„Það hvarflar að manni að við séum á réttir leið,“ sagði
Vilhjálmur Þorsteinsson, „hún hlýtur að liggja upp á við.“
Hvar
og hvar
• Erlend Qárfesting
B - 7
• Opinber stjómsýsla
B - 6
• Norsk Data í sókn
B - 9
• Tölvupistill
B - 10
• Lada - mest seldi bíllinn á
íslandi
B - 12
• Khashoggi á kúpunni
B - 8
• Viðhorf breskra og japanskra
fyrirtækja í markaðsmálum
B - 8
vœsiapn/javiNNinjF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987
BLAÐ
B
Flug
Um 37% aukningá bókunum
hjá norðurlandaskrifstofum
Flugleiða næstu 3 mánuði
Hótelskortur í Reykjavík veldur áhyggjum
MIKIL eftirspum er eftir ferðum
með flugvélum Flugleiða hjá
söluskrifstofum Flugleiða á
Norðurlöndum og em bókanir i
ferðir frá Norðurlöndunum til
íslands og eins frá Skandinavíu
til Bandaríkjanna nú á útmánuð-
um meiri heldur en dæmi em
um áður. Að sögn Péturs Eiríks-
sonar, forstöðumanns Stokk-
hólmsskrifstofu Flugleiða, era
þannig bókanir nú í febrúar 40%
meiri heldur en í sama mánuði í
fyrra, 28% meiri í mars og 55%
meiri í apríl. Fjölgun bókana
þessa þijá næstu mánuði miðað
við sama tímabil í fyrra er því
um 37%.
Pétur Eiríksson sagði í samtali
að segja mætti að þessi mikla eftir-
spum kæmi fram hjá öllum
Norðurlandaskrifstofum Flugleiða
og þar af leiðandi miklar annir hjá
þeim öllum. Skýringuna á t.d. þess-
ari miklu aukningu á ferðum
Norðurlandabúa til Islands nú yfír
vetrarmánuðina, sagði Pétur m.a.
vera þá að mjög vel hefði tekist að
selja ísland sem ráðstefnuland og
nefndi hann sem dæmi að til að
mynda nú um næstu helgi mætti
heita að öll hótelherbergi í
Reykjavík væm full vegna ráð-
stefnuhalds af þessu tagi. Aðallega
em það fyrirtæki sem hingað sækja
og þykir nýbreytni í því að halda
stærri fundi sína og ráðstefnur hér
á landi, og sagði Pétur að einkan-
lega hefði þessi nýlunda fengið
góðan hljómgmnn í Svíþjóð.
Pétur sagði, að einnig hefði
gengið mjög vel að selja sæti í Flug-
leiðavélamar sem fljúga vestur til
Bandaríkjanna og sérstaklega hefði
verið mikil eftirspum í Danmörku
eftir ferðum til Orlando en annars
staðar væri einnig mikil eftirspum
eftir ferðum til New York. Pétur
var þá spurður að því hvort þeir
Norðurlandamenn Flugleiða væri á
einhvem hátt famir að finna fyrir
fargjaldalækkun SAS og nokkurra
bandarískra flugfélaga á leiðinni
milli Norðurlanda og Banda-
ríkjanna en hann kvað svo ekki
„Við höfum líka tekið þá stefnu
að lækka okkur til samræmis við
þau fargjöld sem aðrir bjóða á þess-
ari leið enda þótt við verðum að
teljast þriðji aðili í þessu stríði sem
stendur milli SAS og nokkurra
bandarískra flugfélaga. Og við er-
um einmitt um þessar mundir að
undirbúa mikla söluherferð á þess-
um vettvangi. En annars held ég
að enginn viti hvað þessi fargjalda-
lækkun muni þýða til lengri tíma
og ég hef ekki trú á því að þessi
stærri bandarísku flugfélög sem
verið hafa starfandi á þessum
markaði, muni almennt leggja út
mikla lækkun á fargjöldum frá því
sem nú er. Hjá þeim er fyrst og
fremst um það að ræða að bjóða
ákveðin sæti í vélunum á sérstöku
lágu verði og þetta eru þá sæti sem
ella væru tóm. Þetta er í sjálfu sér
alveg hið sama og við erum að
gera,“ segir Pétur.
Pétur segir því horfumar á Norð-
urlandamarkaði Flugleiða harla
góðar um þessar mundir. „Það sem
við hér hjá Norðurlandaskrifstofun-
um höfum helst áhyggjur af er
hótelskorturinn heima í Reykjavík.
Nú þegar eru þannig öll hótel orðin
fullbókuð í maí og eins f september
og það er jafnvel orðið erfítt að fá
hótelbergi yfír vetrarmánuðina. Ég
óttast því að ef ekki kemur veruleg
viðbót við hótelrýmið í Reylqavík
hið fyrsta, þá getum við átt það á
hættu — jafnvel innan 2ja ára —
að verulegt bakslag komi í ferða-
mannastrauminn til Islands, svipað
því og gerðist um miðjan síðasta
áratug og við náðum okkur ekki
almennilega upp úr fyrr en í hitteð-
fyrra, þegar hann fór aftur að vaxa
til muna,“ segir Pétur Eiríksson.
ÞROUN HELSTU GJALDMIÐLA
(JAN. 1985 SETT A 100)
JAN.
1885 TIL jan 1987
JAPANSKT YEN
Gagnv. ÍSL.KR.
1985
Gagnv. D0LWR'**-v
___________,1986
••••..•••••••
60,8
DOLLARINN hefur lftið sem ekkert breyst í verði gagnvart íslensku krónunni frá því í jan-
úar 1985. Hins vegar hafa aðrir gjaldmiðlar, sem hér em sýndir hækkað verulega í verði. Jafnframt
er sýnt hvemig dollarinn hefur lækkað gagnvart nokkmm gjaldmiðlum, mest hefur hann fallið
gagnvart v-þýska markinu. Miðað er við meðalsölugengi, skráð hjá Seðlabankanum og er janúar
1985 = 100. Gengi dollars gagnvart öðram myntum, er reiknað út frá skráningu Seðlabankans.
S0 J.«- v.A*
SAMKVÆMT upplýsingum
Seðlabankans vora um sfðustu
áramót útistandandi 148,6 millj-
ónir króna í happdrættisskulda-
bréfum. Þar af koma 84,5
milljónir króna til innlausnar 1.
apríl nk., en rúmlega 61 milljón
er óverðtryggt fé.
Allir flokkar happdrættisskulda-
bréfa, utan einn - J-flokkur- em
gjaldfallnir. J-flokkurinn kemur til
innlausnar 1. apríl næstkomandi.
Þeir sem eiga happdrættisskulda-
bréf ættu að huga að því að
peningar þeirra em óverðtryggðir
frá gjalddaga. Skuldabréfín em
tryggð miðað við framfærsluvísi-
tölu, utan flokkur frá 1981 sem er
verðtryggður samkvæmt lán-
skjaravísitölu. Eigendur bréfanna
fá ekki greidda vexti, heldur áttu
möguleika á happdrættisvinning-
um. Jón Friðsteinsson, hjá
Seðlabankanum sagði að yfirleitt
væm þessi bréf leyst fljótt út eftir
gjalddaga þannig hefðu 68% af I-
flokki sem var með gjalddaga 1.
desember, verið innleyst á einum
mánuði. Yfírleitt hefðu um 97-98%
af öðmm flokkum verið innleyst.
Sömu sögu er að segja um spari-
skírteini ríkissjóðs. Þau era óverð-
tryggð og vaxtalaus eftir að
lokainnlausnardagur er liðinn. Bæði
spariskírteinin og Happdrættis-
skuldabréfin fímast á tíu ámm eftir
gjalddaga.