Morgunblaðið - 05.02.1987, Side 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKIPri/fflVPIWUllF FIMMTUDAOUR 5. FEBRÚAR; 1987
Erlent
Samið um grund-
völl nýrra
GA TT-viðræðna
Reuter — Genf
NÍUTÍU og tvær helstu við-
skiptaþjóðir heims hafa náð
samkomulagi um grundvöll fyrir
nýrri samningalotu til að finna
leiðir hvemig megi draga úr
veradartollum og auka alþjóða-
viðskipti.
Samningaviðræðumar eiga að
leiða til nýskipunar í starfsemi
GATT - alþjóðasamningsins um
tolla og viðskiptamál og eru taldar
skipta sköpum um þróun alþjóða-
viðskipta í framtíðinni og hvemig
megi koma lagi á skuldamál ríkja
Um Rolls
Royce-hreyfla
oglangflug
Breska sendiráðið hefur beðið
fyrir eftirfarandi frétt frá bresk-
um flugmáiayfirvöldum:
Boeing 757 þotur með Rolls Ro-
yce hreyflum af gerðinni 535 E4
er nýlega orðin eina útgáfan þessar-
ar flugvélar, sem hefur leyfí
bandarískra og breskra flugmála-
stjóma til langflugs. Nú geta þau
flugfélög sem hafa keypt Boeing
757 þotur með Rolls Royce hreyfl-
um flogið yflr hafið að því tilskildu
að einhver varaflugvöllur sé ávalt
inna 2ja tíma flugs. Aðrar útgáfu
vélarinnar mega ekki vera lengra
burtu frá varaflugvelli en nemur 1
klst. flugi.
þriðja heimsins. Samkomulagið
náðist nú í lok janúarmánaðar í
kjölfar strangrar viðræðulotu, sem
haldin var í skugga hatrammra
deilna milli Bandaríkjanna og
Everópubandalagsins, þar sem hinir
fyrmefndu kröfðust tilslakana af
hálfu Evrópubandalagsins vegna
komsölu til Spánar og Portúgal.
Með inngöngu þessara ríkja í Evr-
ópubandalagið tók fyrir komkaup
þeirra frá Bandaríkjunum og því
vildu Bandaríkjamenn ekki una.
Samkomulag hefur nú náðst í þess-
ari deilu. Eftir sem áður er talsverð-
ur skoðanaágreiningur milli þessara
aðila hversu snemma á næstu fjór-
um ámm skuli hefja viðræður um
niðurskurð á styrkjum vegna mat-
vælaframleiðslu, enda er hér um
að ræða mjög pólitískt viðkvæmnis-
mál, einkanlega innan Evrópu-
bandalagsins.
Nýja samningalotan innan Gatt
mun fara fram í Uruguay, eins og
ákveðið var á ráðherrafundi í Punta
del Este í september sl., og mun
ná til 14 sviða í viðskiptum, sem
spanna allt frá verksmiðjufram-
leiddum vamingi og landbúnaðar-
framleiðslu til ýmiss konar
þjónustu, svo sem bankastarfsemi,
ferðamannaþjónustu og trygginga-
starfsemi. Bandaríkjamenn vilja
hefja viðræðumar um landbúnaðar-
þáttinn fyrir alvöru í byrjun árs
1988 en Evrópubandalagið er undir
þrýstingi frá Frökkum um að leggja
ekki út í viðkvæmar viðræður af
þessu tagi svo nærri kosningum þar
í landi en þær em ráðgerðar vorið
1988.
Bandaiikin
á batavegi?
Reuter, Washington.
HELSTU hagtölumælikvarðar
bandarísks efnahafgslífs hækk-
uðum um 2,1% í desember sl. og
er það mesta hækkun þessara
mælikvarða um nærri fjögurra
ára skeið. Desemberhækkunin
er hin mesta frá því i janúar
1983, þegar þessar helstu hagtöl-
ur hækkuðu um 3,1%, og fór hún
fram úr vonum flestra sérfræð-
inga. Viðskiptaráðuneytið
bandariska skýrði einnig frá þvi
að hagtölumeðaltalið hefði
hækkað um 0,9% í nóvember en
þá hafði verið spáð að hækkunin
næmi um 1,2%.
Þessi hagtölumeðaltöl sýndu
aukningu 8 mánuði af 12 árið 1986
en það ár reyndist hagvöxtur í
Bandarikjunum 2,5%. Desember-
hækkunin styrkir þjóðhagsáætlun
Bandaríkjastjómar, þar sem því er
spáð að hagvöxtur í Bandaríkjunum
muni verða 3,2% á árinu 1987. Við-
skiptaráðuneytið bandaríska segir
að 8 af 11 hagtölumeðaltalanna
hafl sýnt aukningu í desembermán-
uði.
SérfrœÖingar okkar aðstoða þig viÖ gerð
útflutningspappíra.
Mistök eru dýr.
skipaafgreiösla jes zimsen hf
HAFNARHÚSINU V/HLIÐINA Á TOLLSTÖÐINNI.
S: 13025 - 20662.
FRAKTÞJÓNUSTA - TOLLSKJÖL -
HRAÐSENDINGAR.
Þjónusta
Þvoið sjálf við Barónsstíg
UNG kona, Sigríður J. Sigurðar-
dóttir opnaði ekki alls fyrir löngu
þvottahús að Barónsstíg 3 í
Reykjavík og getur almenningur
komið þangað með þvott sinn,
þvegið hann og þurrkað. Hægt
er að bíða á staðnum meðan vél-
arnar þvo i notalegu umhverfi
og barnakrókur er á staðnum
ásamt myndbandstæki og sjón-
varpi.
Sigríður sagðist í samtali við við-
skiptablaðið vera með 6 þvottavélar
og tvo þurrkara. Fólk sem kemur
í þvottahúsið og kaupir pening í
vélarnar fyrir 250 krónur. Þvotta-
hús Sigríðar er hið fyrsta sinnar
tegundar hér á landi, þar sem fólk
getur sjálft þvegið þvott sinn en
erlendis þykir þjónusta af þessu
tagi sjálfsögð.
Sigríður var spurð hvort þvotta-
vélaeign hér á landi væri ekki svo
almenn að starfsemi af þessu tagi
væri vafasöm. „Nei, reynslan sýnir
strax að það er þörf fyrir svona
þjónustu og það hefur verið nóg
að gera. Hér búa líka margir ein-
staklingar sem ekki hafa yflr
þvottavél að ráða og svo vilja
þvottavélar bila og þá þykir mörg-
um gott að eiga hér innhlaup,"
svarði hún.
Kaupskip
Um 55% aukning farmgjalda-
tekna Skipadeildar Sambandsins
FARMGJALDATEKJUR Skipa-
deildar Sambandsins námu lið-
lega hálfum öðram milljarði á
siðasta ári. Var það um 55%
aukning frá fyrra ári en þá voru
farmgjaldatekjur félagsins 980
milljónir króna. Flutningar námu
rúmum 500 þúsund lestum en
voru 429 þúsund lestir árið 1985.
Aukningin er langmest á sviði
stykkjavöru og miklar ráðstafanuir
hafa verið gerðar innan fyrirtækis-
ins til að mæta þeirri aukningu,
samkvæmt upplýsingum félagsins.
Nú er siglt vikulega á 11 hafnir í
Englandi, meginlandinu og hinum
Norðurlöndunum. Þá hafa verið
opnaðar vöruafgreiðslur í Keflavík
og á Selfossi og endurbætur gerðar
á vöruafgreiðslum í Hafnarfirði og
á Akureyri. Sömuleiðir hefur öll
aðstaða á Holtabakka verið bætt
verulega, gámavöllur stækkaður og
lyftarar endumýjaðir.
Ómar Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Skipadeildar Sambandsins,
sagði i samtali að þessar endurbæt-
ur og endurskipulagning í starfsemi
félagsins ásamt bættum tækja— og
gámaflota séu meginskýringamar
á stórauknum umsvifum skipadeild-
arinnar á sl. ári. Hann neitaði því
hins vegar ekki að fækkun skipafé-
laga á stykkjavörumarkaðinum um
eitt hefði einnig átt þátt í þvi hversu
félagið hefði aukið hlut sinn á mark-
aðinum en Ómar telur að markaðs-
hlutdeild skipadeildarinnar í
stykkjavöruflutningunum sé á bil-
inu 30 til 40%.
Hjá skipadeild Sambandsins ligg-
ur nú fyrir að fjölga þarf skipum
til að mæta auknum umsvifum.
Ómar segir þó að enn sem komið
er hafi ekki verið teknar neinar
ákvarðanir í því sambandi en félag-
ið hefur verið með á leigu nokkur
skip af mismunandi gerðum og til-
gangurinn með því sé m.a. að kanna
hvaða skipagerð henti félaginu
best. Innan skipadeildarinnar séu
menn því orðnir talsvert nær um
það hvers konar skip menn kjósi
en lokaákvörðun hafí ekki verið
tekin.
Gengi
Öþægilegur sannleikur?
LÍKLEGAST verða hagfræð-
ingar seint sammála um hvert
sé rétt gengi dollarans gagn-
vart öðrum heistu gjaldmiðlum
heimsins. Flestir eru þó sam-
mála um að gengi hans gagn-
vart helstu gjaldmiðlum
Evrópu sé rétt eða nálægt því
að vera rétt.
Gengi dollarans var of hátt fyr-
ir tveimur árum. En frá því í
febrúar 1985 hefur dollarinn
lækkað um 34% samkvæmt við-
skiptavog. Sumir hagfræðingar
telja raunar að viðskiptavogin
sýni of mikið fa.Il, þar sem stór-
hluti utanríkisviðskipta Banda-
ríkjanna er við lönd er nota aðrar
myntir en reiknaðar eru inn í við-
skiptavogina. Gagnvart japanska
yeninu hefur dollarínn lækkað um
42% frá febrúar 1985. Dollarinn
var í kringum 150 yen að meðal-
tali í janúar og það telur leiðara-
höfundur berska tímaritsins The
Economist vera rétt verð.
James Baker, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna hefur stefnt að því
að lækka dollarann til þess að
bæta stöðu bandarískra framleið-
enda. Hann hefur notað hótunina
um frekari lækkun dollarans til
þess að fá viðskiptalönd Banda-
ríkjanna, sérstaklega V- Þýska-
land og Japan til þess að auka
eftirspum innanlands. Bæði þessi
ríki eru útflutningssinnuð. Ger-
hard Stoltenberg, vestur-þýski
íjármálaráðherran hefur lýst því
yfir að dollarinn sé of lágt metinn
á alþjóðlegum gjaldeyrismörkuð-
um. Paul Volcker, bandaríski
seðlabankastjórinn, hefur tekið að
nokkru undir þetta sjónarmið,
með því að lýsa því yfír að dollar-
inn hafí fallið nægilega mikið.
Japanir hafa áhyggjur af lækk-
un dollarans sem þegar hefur
komið illa við japanska útflytend-
ur. Viðskiptajöfnuður Japana á
síðasta ári var hagstæður um
82.7 milljarða dollara - nærri 50%
betri en 1985. Viðskiptajöfnuður
þeirra við Bandaríkin var hag-
stæður, að því talið er um 50
milljarða dollara. Satoshi Sumita,
bankastjóri japanska seðlabank-
ans hefur lýst því yfír að ekki sé
von á því að bankinn lækki vexti.
En þrátt fyrir þetta er almennt
búist við því að japanir fari að
dæmi Vestur- Þjóðveija og seðla-
bankinn lækki dráttarvexti til að
stemma stigum við falli dollarans.
En margir Bandaríkjamenn
hafa einnig áhyggjur af því að
lækkun dollams leiði til verð-
bólgu, hærri langtímavaxta og að
seðlabankinn neyðist til að grípa
til aðhaldsaðgerða í peningamál-
um fyrr en ella. Þeir benda á að
á meðan að olíuverð var lágt hafí
verðfall dollars ekki haft áhrif á
verðlag, en nú eftir að olía hefur
farið hækkandi hafí þetta snúist
við. Stewart Fleming, ritstjóri
Financial Times í Bandarílq'unum,
telur að halli á fjárlögum í Banda-
ríkjunum á þessu ári verði
190-200 milljarðar dollara, eða
mun meiri en fjárlög gera ráð
fyrir. Vandamálið sé því fyrst og
ffernst hallinn á fjárlögunum
Á gjaldeyrismörkuðum búast
menn almennt við að dollarinn
eigi eftir að lækka fremur en
hækka. Lloyd Bentsen, formaður
fjármálanefndar bandaríksu öld-
ungadeildarinnar hefur lýst því
yfír að hann vilji að dollarinn falli
ennfrekar gagnvart yeninu og
fari niður í 120 yen fyrir dollar.