Morgunblaðið - 05.02.1987, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ, VlÐSKlFll/iOVINNUliF FIMMTUDAGUR 5. FEBRUAR 1987
6 B
Opinber stjórnsýsla
Hvað felst í starfsmannastefnu
og starfsmannastfórnun
Umsjón Árni Sigfússon, Bjarni
Ingvarsson og Leifur Eysteinsson
í síðustu viku var fjallað um
starfsmannastefnu ríkisstofnana í
greinarflokknum um opinbera
stjómsýslu. Þar var t.d. bent á ein-
falda leið til að tengja saman hina
ýmsu þætti starfsmannastjómunar
sem em hluti af starfsmannastefnu
stofnunar. Hér á eftir verður fjallað
nánar um starfsmannastjómun og
starfsmannastefnu. Mikilvægt er
að gera sér grein fyrir því að starfs-
mannastefna og virk starfsmanna-
stjómun eru grundvöllur virkrar
stjómunar á öðrum sviðum.
Stjórnun er byggð
á stefnu
Stjómun á fólki á vinnustað er
starfsmannastjómun. í starfs-
mannastjómun felst að hafa áhrif
á einstaka starfsmenn og hópa
þannig að stefnt sé að markmiðum
stofnunar. Starfsmannastjómun er
þannig hluti af stjómun stofnunar.
Allir stjómendur stofnunar stunda
því starfsmannastjómun samhliða
annarri stjómun.
Sumar stofnanir hafa ákveðna
starfsmannastefnu. Starfsmanna-
stjómun er þá byggð á slíkri
starfsmannastefnu. Starfsmanna-
stefna er tengd stefnu stofnunar í
öðrum málaflokkum og er þannig
hluti af heildarstefnu stofnunar.
Innan starfsmannastefnu em
síðan ákveðin markmið. Markmiðin
geta verið almenn eða þröng.
Dæmi um markmið starfsmanna-
stefnu:
MATTU
SJÁAF
TVEIMUR
MÍNÚTUM?
>aö er sá tími sem fer í aö setja upp Scháfer hillurekka. Jafn fljótlegt
er að taka Scháfer hillurekkann niður.
Scháfer hillukerfíd vex með fyrírtækínu
Scháferhillurnarfástí mörgum staerðumog mismunandi
þyngdarþolnar. Scháfer hillukerftð býður upp á ótal
möguleika í útfærslu. Það er t.d.hægtaðbYrjasmáttog bæta síðan
við í takt við vöxt fYrírtækísins.
Stórfyrirtskin velja Scháfer hillukerfí
Það er ekki tilviljun að stór fYrirtæki, sem gæta þurfa ítrustu
hagkvæmni í rekstri velja nánast
undantekningalaust Scháfer hillukerfm.
Viö notum SSI Schöfer hillur hér I ODDA undlr prentliti í dósum,
pappír og ýmislegt fleira.
Að okkar mati er petta afar gott hlllukerfi þvl mjög
einfalt er aö setja hillumar upp. Engar skrúfur
aöeins smellt saman, en binst þó vel. Einfalt að
breyta uppstillingunni ef þess er óskað. Sem sagt
eins og góöir hlutir eiga aö vera; einfaldir en traustir.
Ólafur H. Steingrimsson
Viö hjö Krlstni Guönasyni hf. bifreiöa og varahlutaverslun.
notum eingöngu Schöfer hillukerfi
fyrir alla okkar varahluti. Hefur þaö reynst mjög
vel, ekki síst þegar breytinga er þörf, þar sem ekkl
þarf aö bolta eða skrúfa og gerir þetta allar
tllfœrslur mjög auöveldar.
Slgurður Slgurðsson
Haftð samband og fálð upplýsíngar um möguleika
Scháfer híllukerfísíns. Það gæti
orðíð upphaf að stórendurbættum og
hagkvæmari rekstri.
G.Á.Póturssonhf.
Umboðs- og hoildverslun
SMIÐJUVEGI 30 E-GÖTU,
KÓPAVOGI, SIMI 77 444
1. Að hafa í þjónustu sinni virka
og áhugasama starfsmenn.
2. Að starfsmenn séu vel þjálfaðir.
3. Að starfsmenn séu ánægðir í
starfi.
4. Að starfsmenn sýni ábyrgð og
frumkvæði.
5. Að starfsmenn starfi í samræmi
við markmið stofnunarinnar.
6. Að vinnuaðstaða starfsmanna
sé góð.
7. Að samvinna milli starfsmanna
sé ætíð til fyrirmyndar.
8. Að starfsmenn hafi möguleika á
að þroska sinn persónuleika.
Framkvæmd starfs-
mannastefnu
Starfsmannahald eða starfs-
mannaþjónusta stofnunar sér um
að framkvæma starfsmannastefn-
una. í stórum stofnunum er þörf
fyrir sérstaka deild sem sér um alla
starfsmannaþjónustu. í litlum
stofnunum er hins vegar ekki þörf
á slíku og starfsmannaþjónustan
er þá 'höndum skrifstofustjóra eða
annarra stjómenda stofnunarinnar.
Uppbygging starfs-
mannaþjónustunnar
innan stofnana
Hlutverk starfsmannaþjón-
ustunnar er að aðstoða stjómendur
við að ráða starfsmenn, þróa og
viðhalda þeim mannafla sem er
nauðsynlegur fyrir virkni starfsem-
innar hveiju sinni. Starfsmanna-
þjónusta þarf að taka mið af
sérstökum þörfum hverrar stofnun-
ar. Því er ekki hægt að setja fram
endanlegar reglur um það hvemig
starfsmannaþjónusta skuli vera
heldur eingöngu að koma með hug-
myndir.
Eftirtalin atriði hafa áhrif á upp-
byggingu og hlutverk starfsmanna-
þjónustu:
• Stærð stofnunar.
• Starfsmannastefna stofnunar-
innar.
• Starfsemi stofnunar.
• Hvers konar starfsmenn vinna
hjá stofnuninni.
Dæmi um starfssvið starfs-
mannaþjónustu í stórri stofnun:
• Ráðningar og laun.
• Áætlanagerð og spár.
• Starfslýsingar og frammistöðu-
mat.
• Starfsþjálfun og aðstoð.
Virk starfsmannaþjónusta ætti
að beinast að:
1. Hvatningu starfsmanna.
2. Sjá til þess að réttur maður sé
á réttum stað.
3. Aukinni framleiðni.
4. Bættum starfsanda.
5. Bættum samskiptum og upplýs-
ingaflæði.
6. Aukinni virkni starfsmanna.
7. Afla upplýsinga um starfsmenn
og gera mannaflaspár.
Hlutverk starfsmanna-
þjónustu
„The Institue of Personell Man-
agement“ í Bretlandi telur að
hlutverk starfsmannaþjónustunnar
felist í að:
• Gera spár um mannaflaþróun.
• Safna saman upplýsingum um
starfsmenn og geyma þær.
• Að ráða og velja hæfa starfs-
menn.
• Sjá um þjálfun og undirbúning
fyrir starf.
• Meta viðeigandi greiðslur fyrir
störf.
• Sjá til þess að starfsskilyrðum
sé fullnægt.
• Annast nauðsynleg sam-
skipti við verkalýðsfélög.
• Skipuleggja starfsemina.
• Stuðla að samskiptum yfir-
manna og undirmanna.
Hvert sem hlutverk starfsmanna-
stjómunar er, þá er augljóst að
einhver innan stofnunar verður að
hafa eftirlit og umsjá með nýjum
ráðningum, starfsferli og uppsögn-
um starfsmanna.
Markmið starfsmannaþjón-
ustunnar er að gera þetta á sem
hagkvæmastan hátt hveiju sinni.
Starfsmannstjómun verður
ávallt mikilvæg, jafnvel þó starf-
semi fyrirtækja og stofnana
tæknivæðist sífellt meir. Tækni-
væðingin virðist leiða til þess að
tengsl milli starfsmanna verði sífellt
mikilvægari. Einnig skiptir miklu
að tengsl við almenning og aðrar
stofnanir séu sem best.
Virk starfsmannastjómun byggð
á skynsamri starfsmannastefnu er
stórt skref fram á við í stjómun
ríkisstofnana. Þannig geta stofnan-
ir verið betur í stakk búnar til að
mæta kröfum um bætta þjónustu.
Tengsl milli starfs-
mannastefnu, mark-
miða og starfs-
mannaþjónustu.
Heildarstefna
Starfsmannastefna
Markmið
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
Fræðslu-
fundur
FVH
Fræðslufundur með léttara sniði verður föstu-
daginn 6. febr. nk. kl. 17.00—19.00 að Skipholti
70, 2. h.
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambands íslenskra
samvinnufélaga, mun halda erindi um hlutverk
stjórnandans í stórum fyrirtækjum. Léttar veiting-
ar verða á boðstólum. Stjórnin