Morgunblaðið - 05.02.1987, Qupperneq 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ, vœsrapn/AiviNNUiiF PIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987
Erlent
Khashoggi ákúpunni
TRIAD America, móðurfyrir-
tæki saudi—arabíska kaup-
sýslumannsins, Adnan
Khashog-gi, sem sagði frá í
sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins fyrir ekki alls löngu, hefur
sótt um greiðslustöðvun sam-
kvæmt 11. grein bandaríksu
gjaldþrotalaganna.
Beiðnin um greiðslustöðvun
þykir gefa til kynna að Khasoggi
standi nú frammi fyrir gífurlegum-
fjárhagserfiðleikum í framhaldi af
samdrætti í Saudi Arabíu vegna
verðfalls á olíu. Virðist Khashoggi
því tilneyddur að draga úr há-
stemmdu lífemi sínu en það hefur
ekki síður dregið athyglina að
honum heldur en hlutverk hans
sem milligöngumanns í hinni um-
Bankar
Hagnaður Citicorp
aldrei meiri
Nettó hagnaður Citicorp hefur
aldrei verið meiri en á síðasta ári
og hefur aldrei farið yfir eitt þús-
und milljónir dollara fyrr. Stærsti
banki Bandaríkjanna skilaði 1.060
milljónum dollara í hagnað (um
39.000 milljónir króna.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins munu
ferma til íslands á næstunni
sem hér segir:
AARHUS:
Alla þriðjudaga.
SVENDBORG:
Alla miðvikudaga.
KAUPMANNAHÖFN:
Alla fimmtudaga.
GAUTABORG:
Alla föstudaga.
MOSS:
Alla laugardaga.
LARVIK:
Alla laugardaga.
HULL:
Alla mánudaga.
ANTWERPEN:
Alla þriðjudaga.
ROTTERDAM:
Alla þriðjudaga.
HAMBORG:
Alla miðvikudaga.
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
LINDARGATA 9A
PÓSTH. 1480 • 121 REYKJAVlK
SlMI 28200 TELEX 2101
TÁKN TRAUSTBA FLUTNIÍSJGA
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Miðað við árið 1985 er hagnað-
ur liðins árs 6% hærri, en í arður
af þeirri deild sem annast við-
skipti við almenning hækkaði um
41% á milli ára og nam 462 millj-
ónum dollara (um 18.000 milljónir
króna).
deildu vopnasölu Bandaríkja-
íran.
manna til
Erfíðleikar Triad kunna að
koma bandarískum stjómvöldum
í enn frekari bobba hvað varðar
tengsl þeirra við Khashoggi, því
að árið 1985 ábyrgðist bandaríska
ríkið tæplega 80 milljón dollara lán
til undirfyrirtækis Triad vegna
byggingar orkuvers sem verið er
að reisa í Louisiana og brenna
mun alkahóli. Geti orkuverið ekki
hafíð framleiðslu í vor, eins og
ráðgert er, kann orkumálaráðu-
neytið bandaríska að þurfa að
endurgreiða 90% lánsins til banka
sem fjármagnað hafa þessa fram-
kvæmd.
Aðalkröfuhafamir í bú Triad
em tvö tryggingafélög, Aetna Life
og Travelers Insurance ásamt
nokkmm verktökum og bönkum í
Salt Lake City, en þessir aðilar
hafa fjármagnað byggingu Triad
miðstöðvarinnar í þessari höfuð-
borg Utha—ríkis, 400 milljón
dollara byggingasamstæðu með
skrifstofum, verslunum og hóteli.
Vinna við miðstöðina hefur nú leg-
ið niðri um skeið.
Körfur á Triad America nema
um 150 milljónum dollara. Eignir
þess em metnar á 116,4 milljónir
dollara en skuldbindingar á 51
milljón dollara. Triad reyndi í sum-
ar að friðmælast við lánadrottna
sína með því að freista þess að
selja olíuhreinsunarstöð á Langa-
sandi í Kaliforníu, en þetta fyrir-
tæki hefur verið helsta íjármagns-
uppspretta Triad fram til þessa.
Gott
ár
hjá
Alcan
HAGNAÐUR kanadíska álfyr-
irtækisins Alcan Aluminium á
síðasta ári nam 244 milljónum
dollara (um 9.500 milljónir
íslenskra króna).
Á árinu 1985 var 180 milljón
dollara tap á rekstri Alcan (um
7.000 milljónir króna). Forráða-
menn fyrirtækisins segja að
ástæður betri afkomu séu fyrst
og fremst aukin framleiðni og
hærra verð. Heildarsalan á síðasta
ári nam 5.900 milljónum dollara
(230.000 milljónir króna) og jókst
um 2% á milli ára.
Þess má geta að til greina hef-
ur komið að Alcan verði eignaraðili
að álverksmiðju í Eyjafírði.
Markaðurinn
eftir SIGURÐ SIGURÐARSON
Sláandi munur á viðhorfum
breskra ogjapanskra fyrir-
tækja í markaðsmálum
'•'Ls
mm I
**i..
Hvers vegna hafa Japanir náð
svo góðum árangri í útflutningi sem
raun ber vitni? Talað hefur verið
um .japanska rekstrartækni", ,jap-
anska markaðsfræðslu", japanska
stjómunarhætti", japanskt þetta og
japanskt hitt. Aðdáunin leynir sér
ekki, en eins og gengur og gerist
er skammt í öfundina.
Samkvæmt tímaritinu The Ec-
onomist var viðskiptajöfnuður
Japana miðað við síðustu 12 mán-
uði jákvæður um tæplega 90 millj-
arða Bandaríkjadollara. Á sama
tíma var viðskiptajöfnuður Banda-
ríkjamanna neikvæður um 175
milljarða dollara. Ljóst er að neyt-
endamarkaðurinn í Bandaríkjunum
er gífurlega mikilvægur Japönum,
og er þar að hluta til skýringin á
viðskiptajöfnuðinum í þessum
tveimur löndum.
En skýringamar á velgengni Jap-
ana em ekki einfaldar. Þær eiga
m.a rætur sínar í japanskri menn-
ingu og sögu og eiginleikum þessa
fólks sem um aldanna rás hefur
byggt hinar japönsku eyjar. Þetta
er þó aðeins lítill hluti. I raun og
vem em Japanir ekkert fmmlegri
en aðrar þjóðir. Það sem skilur á
milli Japana í dag og margra ann-
arra þjóða er einfaldlega sú stað-
reynd, að þeir hafa tekið alvarlega
margar kenningar í skipulagningu,
fyrirtækjarekstri, stjómun, mark-
aðsfræðslu o.fl. og sett þær í
framkvæmd. Ekki má gleyma, að
flestar þessara kenninga em ættað-
ar frá Vesturlöndum. Þeir hafa
nýtt sér reynslu Vesturlandabúa í
kenningum og framleiðslu, og mis-
tök Vesturlandabúa hafa verið þeim
dýrmæt leiðsögn. Uppskeran hefur
að sjálfsögðu verið eftir þessu.
Réttlát viðskipti
í stað fijálsra
Fleyg er setning, höfð eftir T.
Fujisawa, einum af stofnendum
Honda-verksmiðjanna, en hann
sagðí: „Japanskir og bandarískir
stjómunarhættir em að 95%’þeir
sömu, en ólikir i öljum mikilvægum
sjónarmiðum." („Japanese and
Ámerican management is 95 per
cent the same and differs in all
important respects.“).
Á undanfömum ámm hefur
gagnrýni Vesturlanda á Japani stig-
magnast og veldur þar mestu, að
Japan hefur verið tiltölulega lokað
fyrir innflutningi frá Vesturlöndum.
Áfleiðing þessa er sú, að fjölmargir
Vesturlandabúar hafa tekið upp rök
Lee Iaccoca, fyrrverandi forstjóra
bandarísku bílaverksmiðjanna Ford
og núverandi forstjóra Chrysler, og
krafíst réttlátra viðskipta („Fair
Trade") í stað fijálsra viðskipta
(„Free Trade“). Ef Japönum á að
leyfast óheftur innflutningur til
Vesturlanda verða þeir að opna hinn
japanska markað fyrir vestrænum
vamingi.
Þeir sem mæla þessu mót, segja
að ótækt sé að meina neytendum
aðgang að ódýrari fram|eiðslu en
fæst innan eigin lands. Á að tolla
innflutning til að styrkja beint eða
óbeint óhagkvæma eða of dýra inn-
anlandsframleiðslu?
Smám saman hafa Japanir áttað
sig á þessari gagnrýni og reynt er
nú með langtímaáætlunum að beina
innanlandsframleiðslunni að hluta
til í þá átt, að framleiða það sem
Vesturlandabúar nauðsynlega
þurfa, en framleiða ekki að marki.
Japanir hafa að auki í æ ríkari
mæli stofnað víða um Vesturlönd
fyrirtæki, sem fyrst og fremst
byggja á japanskri stjóm og jap-
önskum hefðum en á innlendu
vinnuafli. Þetta hefur mælst vel
fyrir. En að sjálfsögðu er þetta
gert til að draga úr eigin útflutn-
ingi, en halda samt eftir stórum
hluta tekna, sem ella hefðu tapast.
Árið 1980 vom t.d. tæplega 250
japönsk fyrirtæki starfandi í Bret-
landi, sölufyrirtæki, flutningafyrir-
tæki, bankar, framleiðslufyrirtæki,
verslunarfyrirtæki, flármagnsfyrir-
tæki, tryggingafyrirtæki o.s.frv.
Síðan þá hefúr þeim fjölgað að
iriiklum mpn. . :
. Fjölmörg erlend fyrirtæki eru í
Bretlandi, en á milli skilur að á
undanfömum árum hafa þau jap-
önsku sýnt meiri kraft og árangur
en önnur. Fjöldi fyrirtækja, breskra,
evrópskra og amerískra, hafa þurft
að lúta í lægra haldi í samkeppn-
inni. Að sjálfsögðu leikur mönnum
hugur á að vita hvað valdi þessari
velgengni.
Bretar ófaglegir
í markaðsfræðslu.
Fyrir tveimur árum var gerð
könnun á starfsemi japanskra fyrir-
tækja í Bretlandi og þau borin
saman við bresk. Þessi könnun
leiddi ýmislegt athyglisvert í ljós.
Margt í niðurstöðum könnunarinnar
á erindi til íslands, enda viðhorf
Breta og íslendinga almennt ekki
ósvipuð.
Könnun þessi hafði m.a. að mark-
miði að varpa ljósi á stefnu Japana
í markaðsmálum. Hver er t.d. mun-
urinn á markaðsfærslu japanskra
og breskra fyrirtækja í Bretlandi?
Og hvað kemur í veg fyrir að bresk
fyrirtæki taki upp árangursríkari
stjómarhætti?
Flestir geta verið sammála um,
að metnaður og kappsemi fyrir-
tækja hljóti fyrst og fremst að
birtast í markaðslegum markmiðum
þeirra. I þessu tilviki var hins vegar
sláandi munur á breskum og jap-
önskum fyrirtækjum. I könnuninni
segir að þegar bresk fyrirtæki fari
inn á nýjan markað gerist það seint
og með lítilli sannfæringu. Tveir
þriðju hinna bresku fyrirtækja
skýrðu gerðir sínar með þessum
orðum: „Þetta urðum við að gera
til að komast af.“ Og sum viður-
kenndu, að þau hefðu raunar aldrei
hugsað allt málið til enda.
Hins vegar höfðu Japanimir mun
klárari og faglegri afstöðu. Meira
en 70% japönsku fyrirtækjanna
kvað markaðsplanið vera hluta af
miklu stærri áætlun, eða grundvall-
að á þeim möguleikum sem breski
rharkaðurinn gat gefíð.
Það vakti furðu, að þegar bresku
fyrirtækin voru komin inn á. mark-
aðinn skorti þau sannfærandi
framhald, á meðan Japanimir
stefndu leynt og ljóst að umtals-
verðri markaðshlutdeild eða jafnvel
að því að verða markaðsráðandi.
Japanir óttast ekki
breska samkeppni
Markaðsgreining („segmenta-
tion“) og markaðsstaðsetning
(„positioning") eru burðarásar
nútíma fyrirtækis. Einkenni slíks
fyrirtækis er að það greinir markað-
inn sundur í tiltölulega líka hópa
neytenda og beinir tilboðum sínum
til þeirra, með mun meiri árangri
en ella. Það var því sláandi, að 47%
bresku fyrirtækjanna (13% þeirra
japönsku) viðurkenndu, að þau
væru ekki viss um helstu markað-
seinkenni hugsanlegra viðskipta-
vina sinna og hveijar þarfír þeirra
væru. Furðuleg var umsögn eins
af markaðsstjórum bresku fyrir-
tælqanna: „Við höfum ekki sundur-
greint markaðinnn. Við höfum alla
tíð verið þeirrar skoðunar að mark-
aðurinn væri breiður, .. . og okkar
framleiðsla höfðar til hans alls.
Hvers vegna ættum við þá að not-
ast við markaðsgreiningu?"
Svipað lét sölustjóri bresks verk-
fræðingafyrirtækis sér um munn
fara: „Við höfum ekki þá skoðun
að markaðurinn sé byggður upp af
einingum. Okkar markaður er öll
heildin."
Staðreyndin er þannig sú, að á
meðan Japanirnir einbeittu sér að
hugsanlegum hópum viðskiptavina,
dreifðust kraftar Bretanna um allan
markaðinn óskiptan.
Það er athyglisvert, að aðeins
20% japönskú, fyrirtækjanna álitu
evrópska framleiðslu, keppa við.
'J