Morgunblaðið - 05.02.1987, Page 9
MORÓt/NÉljýQlÐ, VlDSKIPIT/jaVINNUlÍF 'PIMMTUbÁÖOR 5.' ráBRÚAá':íðé7
B 9
Tölvur
NorskData ístöðugri sókn
NORSKI tölvuframleiðandinn,
Norsk Data, skýrði frá því í síðustu
viku að hagnaður fyrirtœkisins
hefði á árinu 1986 aukist um 29%
og nýjar pantanir erlendis frá
hefðu aukist um 51% á sama tíma-
bili.
Norsk Data framleiðir bæði 16 bita
og 32ja bita millitölvur og forráða-
menn fyrirtækisins segja á því sviði
stefni fyrirtækið í beina samkeppni
við IBM og Digital með það fyrir
augum að hnekkja yfirburðum þess-
ara fyrirtækja á mini— eða millitölvu-
markaðinum. I Reutersfrétt kemur
fram, að hagnaður fyrirtækisins á sl.
ári nam 468 milljónum nkr. eða lið-
lega 2,6 milljörðum íkr. fyrir skatta.
Árið á undan nam hagnaðurinn 364
milljónum nkr. eða um 2 milljörðum
íkr.
Forstjóri fyrirtækisins, Aasmund
Slogedal, skýrði frá því á blaða-
mannafundi að vöxtur fyrirtækisins
á síðasta ári hafi verið sérstaklega ör
í Bretlandi, þar sem pöntunum hafi
fjölgað um meira en 100% en að
auki hefði fyrirtækinu vegnað vel
annarsstaðar í Evrópu.
í fréttabréfí fyrirtækisins kemur
fram að árið 1986 hafí verið fyrirtæk-
inu hagstætt bæði á heimamarkaði
og á helstu mörkuðum erlendis. Á
meðan talið er að tölvumarkaðurinn
í Noregi hafí vaxið um 10% á sl.
ári, tókst Norsk Data að auka veltu
sína um 29% á sama tímabili og var
veltuaukning fyrirtækisins meiri
sína, aðrir (80%) álitu helstu keppi-
nauta sína vera japanska! Um 60%
breáku fyrirtækjanna álitu helstu
keppinauta sína vera japönsk fyrir-
tæki, en 40% bresk fyrirtæki.
Hvað varðar framtíðarsýn höfðu
Japanir mestar áhyggjur af nýrri
framleiðslu og meiri gæðum í fram-
leiðslu keppinautanna, en Bretamir
höfðu mestar áhyggjur af verðsam-
keppni.
Árangur á markaði og hagnaður
veltur á getu fyrirtækisins til að
mæta þörf neytenda að minnsta
kosti jafn vel og keppinautamir.
Sum hinna bresku fyrirtækja vom
framúrskarandi góð, en þau skorti
faglega skipulagningu á markaðs-
staðsetningu („marketing stra-
tegy“) og slíkt er ógnvænlegt. Einn
af bresku markaðsstjómnum sagði:
„Ég veit ekki hvort við höfum sund-
urgreint markaðinn eða þá hvemig
við höfum staðsett okkur í sam-
keppninni, en ég býst við að
auglýsingastofan okkar viti það
betur,... ég held þó að við stöndum
okkur vel vegna þess að við auglýs-
um í nokkmm flottum tímaritum."!!
Hér hefur nú verið stiklað á stóm
í niðurstöðum úr merkilegri könn-
un. Það helsta sem hún leiðir í ljós
er að íhaldssemi í rekstri er ekki
fyrirtækjum til framdráttar. Án
markaðslegra markmiða eiga fyrir-
tæki sér ekki viðreisnar von, það
hlýtur að verða undir í samkeppni
um viðskiptavini, og markaðsstöð-
una þarf í sífellu að endurskoða.
Markaðsgreining („segmentati-
on“) og markaðsstaðsetning („pos-
itioning") skiptir öll fyrirtæki miklu
máli, ekki aðeins þau sem stefna á
neytendamarkaði heldur einnig þau
sem hafa fyrirtæki og stofnanir sem
hugsanlega viðskiptavini.
I upphafí var greint frá frægum
ummælum eins af stofnendum jap-
önsku Honda-verksmiðjanna, þar
sem hann sagði að mikið skilji á
milli sjónarmiða í japönskum og
bandarískum fyrirtækjarekstri, þó
svo að stjómunarhættimir sé hinir
sömu. Hann á meðal annars við
markaðsfræðslu, hvert sé viðhorfíð
til markaðarins, neytenda. Þetta
leiðir hugann til íslands og spyija
má lesendann, hvomm fslensk fyrir-
tæki séu líkari, þeim japönsku eða
þeim bresku, samkvæmt því sem
hér á undan hefur farið.
(Heimildir: IntematíonaJ Managemetn,
July 1985, Japan’s Reluctant Multinati-
onals eftír Malcom Trevor, Sjilfsœvisafpi
Lee Iaccoca o.fl.)
Höfundur er fyrrverandi blaðamaður.
Hann stundar nú n&m 1 markaðsfræðum.
heldur en hjá IBM, Digital, Hewlett
Packard, Wang, Príme og Tandem
til samans. Utan Noreg óx velta
Norsk Data um 46% miðað við árið
1985 og útflutningspantanir um 51%
eins og áður segir. Jók því Norsk
Data markaðshlutdeild sína í Evrópu
um meira en nokkru sinni áður.
Starfsmenn Norsk Data eru nú lið-
lega 800, og þar af bættust um 200
við með kaupum Norska Data á
norska hugbúnaðarhúsinu Infologic
og danska fyrirtækinu Data Inform.
Á árinu 1986 tók Norsk Data einnig
að hasla sér völl á Bandaríkjamark-
aði með samningi við Mycro—Tek
Inc., sem mun annast sölu á tölvubún-
aði Norsk Data fyrir prentiðnaðinn í
Bandaríkjunum.
Nú í janúar setti Norsk Data einn-
ig á markað nýja gerð tölva,
ND—5000 fjölskylduna, sem er ætlað
að auka hlut fyrirtækisins á sviði
samtengjanlegra upplýsingakerfa og
segja forráðamenn fyrirtækisins að
þessu nýja kerfí sé ætlað að keppa
beint við áþekk kerfí frá IBM og
Digital.
yMrfifiinii!
Háar eftirkröfur?
Ertu ekki að greiða meira en þörfkrefur?
LeitaÖu tilboÖa hjá okkur. ■
skipaafgreiösla jes zimsen hf
HAFNARHÚSINU V/HLIÐINA Á TOLLSTÖÐINNI.
S.: 13025 - 14025.
FRAKTÞJÓNUSTA - TOLLSKJÖL -
HRAÐSENDINGAR.
VANTAR ÞIG
FJÁRMAGN
TILFJÁRFESTINGAR í AIYINNUTÆKJUM?
Sé svo, bendum við á góða leið til lausnar -
fjármögnunarleigu (leasing).
Meðal kosta fjármögnunarleigu Glitnís hf. eru:
• 100% fjármögnun til nokkurra ára.
• Viðstaðgreiðumseljandatækiðogkemur
staðgreiðsluafsláttur þér til góða í lægri leigu.
• Enginútborgunvið afhendingu tækis.
• Þægilegar mánaðarlegar leigugreiðslur.
• Óskertir lánamöguleikar hjá þínum
viðskiptabanka.
• Eitt símtal til okkar og á 48 klukkustundum
getur þú leyst fjármögnunarvanda þinn.
Glitnir hf. Nýtt og öflugt fyrirtæki á íslenskum
Qármagnsmaikaði.
Glitnirhf
NEVI-ÐNAÐARBANKINN-SLBPNER
ÁRMÚLI7, 108 REYKJAVlK. SÍMI: 91-681040