Morgunblaðið - 05.02.1987, Síða 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIPn/AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987
I
Tölvur
Örtölvutækni
selur IBM RT
- nýju UNIX-tölvuna sem getur verið
með allt að 16 notendur
ÖRTÖLVUTÆKNI hefur hafið
sölu hér á landi á IBM RT eða IBM
6150 eins og hún heitir í Evrópu.
Þessi vél er sérstök að því ieyti
að hún er Unix—vél og byggir á
svokallaðri Risc—tækni, sem þýð-
ir að við hönnun vélarinnar hefur
skipunum verið fækkað mjög með
það fyrir augum að gera vélina
mun hraðvirkari í allri vinnslu
heldur en veqja er með vélar íif
þessari stærð.
IBM ftT er með 32ja bita ör-
gjörva. Stýrikerfi hennar nefnist
AIX og er samið af IBM á grund-
velli UNIX System V staðalsins, sem
er mjög að riðja sér til rúms um
þessar mundir. Þetta er því fjölnot-
enda— og flölverkakerfi og notkun-
argildi hennar er ekki síst talið vera
innan rannsóknarstofnana, sem þyk-
ir dæmigert UNIX—umhverfi, svo
og hjá verkfræðistofum þar sem t.d.
teiknikerfi á borð við CAD/CAM
verða stöðugt algengari. Einnig hafa
þeir Örtölvutæknimenn augastað á
fiskiðnaðinum, þar sem rætt hefur
verið um UNIX sem framtíðarstaðal-
inn og þar nýtist m.a. sá höfuðkostur
IBM RT að vélin hefur mikla tengi-
möguleika og getur tengst nánast
hvaða vél sem er. Meðal annars er
auðvelt að tengja hana IBM S/3X
kerfunum, sem mega heita ráðandi
innan fiskiðnaðarins hér á landi.
Einnig þykir IBM RT tilvalinn við-
skiptavélbúnaður og henta sérlega
vel hinum smærri og millistórum
fyrirtælq'um sem hafa notað hefð-
bundin PC—búnað og eru í þann
veginn að vaxa út úr honum. Þar
nýtist vel sá eiginleiki vélarinnar að
geta t.d. keyrt hefðbundin AT/DOS
verkefni og geta þannig nýtt hinn
fjölbreytta hugbúnaðsem miðaður
er við þann stýribúnað.
IBM RT hefur fengið geysilega
góðar viðtökur erlendis og miklar
vonir eru bundnar við vélina af hálfu
IBM, að sögn Jóns Vignis Karlsson-
ar hjá IBM á íslandi. Vélin hefur
verið nokkum tíma á markaðinum,
en Jón segir að af hálfu IBM á ís-
landi hafi verið ákveðið að fara
hægt í sakimar í sölu á vélinni þar
til að fullu væri búið að íslenska
vélina. IBM RT er vinnur í 8 bita
umhverfi svo að íslenskan er hér
ekkert vandamál, eins og á sér stað
í vélbúnaði í 7 bita umhverfi. Jón
sagði, að ákveðið hefði verið að Ört-
ölvutækni yrði til að byija með eini
söluaðili þessarar vélar hér á landi,
enda hefði það fyrirtæki mikla
reynslu af að þjónusta ýmiss þau
svið þar sem kostir IBM RT nýttust
hvað best.
Þeir Heimir Sigurðsson og Am-
laugur Guðmundsson hjá Örtölvu-
tækni sögðu í samtali við
Morgunblaðið að þeir litu á söluna
og þjónustuna á IBM RT sem eðli-
legt framhald af starfsemi fyrirtæk-
isins en um leið táknaði hún vissa
áherslubreytingu af hálfu Örtölvu-
tækni, þar sem fyrirtækið væri með
þessu að færa áhersluna í starfsem-
inni úr PC-umhverfinu yfir í fjölnot-
endakerfi. Náin samvinna yrði milli
Örtölvutækni og IBM á íslandi um
markaðssetningu IBM RT, þvf að
þótt Örtölvutækni annaðist söluna
og þjónustuna á vélinni hér á landi
myndi fyrirtækið hafa IBM á íslandi
að bakhjarli hvað varðaði alla kerfis-
setningu og fá aðgang að allri þeirri
þjónustu sem IBM hefur yfir að ráða
erlendis.
Heimir og Amlaugur sögðu að
Örtölvutækni myndi nú leggja
áherslu á að kynna þessa vél hér á
landi fyrir forráðamönnum rann-
sóknarstofnana, fyrir hugbúnaðar-
húsunum sem væru t.d. að vinna að
lausnum fyrir fiskiðnaðinn, á fyrir-
tækjamarkaðinn þar sem menn væru
að leita að hæfilega öflugu flölnot-
endakerfi fyrir hefðbundinn við-
skiptaverkefni og síðast en ekki síst
á tæknimarkaðinn, svo sem verk-
fræðistofur. Heimir benti á, að
reynslan erlendis sýndi að IBM RT
hefði nýst sérlega vel sem tækni-
vinnustöð en sá þáttur er nú í öram
vexti víða erlendis. Þá er vélin ein-
att tengd stærri kerfum en einn
notandi getur þá setið við vélina og
unnið þar sjálfstætt að grafískum
verkefnum vegna þess hversu öflug
vélin er og aðeins notað stærri kerf-
in til að varðveita teikningar sem
fullunnin hefðu verið á RT—vélina.
Á þann hátt mætti létta veralega
álagi af stærri kerfunum í ýmsum
viðameiri verkefnum.
IBM RT er eins og áður íjölnot-
endavél og vélin hefur stöðugt verið
að stækka jafnframt því sem IBM
hefur gert ýmsar aðrar endurbætur
á henni. í byijun gátu notendur ve-
rið 8 í einu en nú getur vélin verið
með 16 notendur og fyrirsjáanlegt
að vélin á enn eftir að stækka. Kerf-
ið er mjög sveigjaniegt og opið og
um leið auðvelt að koma öllu stækk-
unum við, þar sem sjálfur örgjörvinn
er ekki hluti af móðurborðinu heldur
umskiptanlegur. Það er einsýnt að
hér á markaðinum mun IBM RT
einkum keppa við MicroVaxinn frá
DEC og Hewlett Packard 9000 auk
þess sem ætla má að hún muni að
einhveiju leyti teygja sig inn á hefð-
bundinn markað System—kerfana
frá IBM. Verð á vélinni verður mis-
munandi allt eftir því hversu öflugt
kerfi menn telja sig þurfa, en þeir
Heimir og Amlaugur segja að unnt
verði að setja upp nothæf kerfi fyrir
verð sem liggur í kringum 700 þús-
und krónur.
Eitt hugbúnaðarfyrirtæki hefur
þegar gert samning við IBM á ís-
landi um kerfissetningu og hug-
búnaðarþjónustu varðandi IBM RT.
Það er nýstofnað fyrirtæki, Tölvu-
myndir, sem tveir gamalreyndir
hugbúnaðarmenn, þeir Friðrik Sig-
urðsson og Bjarni Júlíusson stofnuðu
í sumar sem leið og mun það fyrir-
tæki fá IBM RT vél um umráða nú
einhvem næstu daga. Þeir félagam-
ir sögðu í samtali að eins og nafn
fyrirtækis þeirra benti til, stefndi
það einkum inn á þennan svokallaða
grafík—markað, jafnframt því að
vera með alhliða þjónustu fyrir
UNIX— og RT—kerfin. Þeir bentu
á að grafísk framsetning á efni
væri sennilega sá þáttur tölvutækn-
innar um þessar mundir, sem væri
í hvað örastum vexti og þörfin fyrir
lausnir á því sviði væri stöðugt að
aukast. Tölvumyndir munu gangast
fyrir námskeiði um UNIX fyrir
starfsmenn IBM á íslandi og Ört-
ölvutækni nú um mánaðamótin
febrúar—mars og í kjölfar þess munu
síðan verða haldin almenn námskeið
fyrir starfsmenn fyrirtækja, sem
hyggjast skipta yfir í UNIX—kerfið.
Tölvupistill
AF EFTIKHERMUM
“IBM-samhæfð tölva". Þetta
fáum við oft að lesa í tölvuauglýs-
ingunum, og auðskýrt er reyndar,
hvað í þessum orðum felst. Hér
er einkum um að ræða ógrynni
tölvutegunda, sem líkja í flestu
eftir IBM-tölvum af ýmsum gerð-
um, ekki síst IBM-PC, sem kom
fyrst á markað snemma á þessum
áratug, og hefur notið fáheyrðra
vinsælda. Þessar samhæfðu tölvur
era raunar ekki allar nákvæmar
spegilmyndir af fyrirmynd sinni,
stundum era þær raunar ekki sam-
hæfðar til fulls, þannig að IBM-
hugbúnaður reynist þeim ósjaldan
ofviða, sumum hveijum. Kaupandi
IBM-Iíkis getur því orðið fyrir dá-
litlum óhöppum, ef hann gaum-
gæfir ekki, hve rækilega samhæfð
vélin sé. En hitt er iíka til, að eft-
irlíkingamar hafi tekið fyrirmynd
sinni fram.
Mörgum hefur orðið starsýnt á,
að IBM hefur látið framleiðslu
slíkra eftirlíkinga því sem næst
afskiptalausa til þessa og ekki
stofnað til teljandi málaferla vegna
brota á einkaleyfisrétti eða höf-
undarrétti. Er þó ekki vafamál, að
IBM hefur misst spón úr aski við
tilkomu allra þessara eftirlíkinga.
En það er orðin viðtekin hefð, að
menn smíði eftirlíkingar. Hvaða
fyrirtæki sem er getur smíðað nýtt
IBM-líki og sett það á markað.
IBM hefur lítið skipt sér af því.
Upp á síðkastið hefur þó heyrst,
að til einhverra tíðinda kunni að
draga. í upphafi árs 1986 fór sala
á PC-hermum fram úr sölu á PC-
tölvum frá IBM. Og annars vegar
mun IBM hafa nokkrar áhyggjur
af mjög lélegum eftirlfkingum,
einkum frá Suðaustur-Asíu, hins
vegar hafa sumar AT-eftirlíkingar
verið svo líkar fyrirmyndum sínum
í útliti, að illa verður á milli greint.
Annars hefur fyrirtækið í nógu að
snúast eftir öll ótíðindin, sem því
bárast í fyrstu viku september-
mánaðar í fyrra. Þá gerðist það í
einni og sömu vikunni, að Amstrad
setti á markað vandaða PC-hermu,
þá alódýrastu sinnar tegundar;
Digital kynnti tölvuna Vaxmate,
sem er PC-herma og á auk þess
beinan aðgang að VAX-tölvunum
stóra, sem Digital framleiðir. Og
loks kom fyrirtækið Compaq með
fyrstu tölvuna, sem miðast við ör-
gjörvann 80386. Skammt stórra
högga á milli þá vikuna.
IBM hefur lækkað verð á PC-
tölvum sínum veralega, ekki síst
eftir að Amstrad-tölvan birtist, og
í tölvunni IBM PC-XT vilja menn
sjá andsvar fyrirtækisins við ódýr-
um AT-hermum annarra fyrir-
tækja. Hitt er mönnum meira
vangaveltuefni, hvemig IBM geti
bragðist við Vaxmate og nýju tölv-
unni frá Compaq án þess að hrasa
um eigið skegg. En PC-eftirlíking-
ar era smíðaðar áfram. Það getur
hver hálfvitinn gert, segja mér
tölvufróðir menn. Efniviðinn má
kaupa fyrir minna en 300 banda-
ríkjadali, ef menn era ekki of
vandlátir, banga síðan saman PC-
hermu heima í eldhúsi á örskots-
stund.
En það má reyna að líkja eftir
fleiri tölvum en IBM. Á það reynir
nú hjá fyrirtækinu Apple, og raun-
ar ekki í fyrsta sinn. Snemma á
áratugnum, eftir að Apple-tölvum-
ar vora famar að seljast sem best
á Bandaríkjamarkaði, freistaðist
fyrirtækið Franklin til þess að setja
á markað eftirlíkingu af Apple,
tölvuna Franklin. Apple brást við
samstundis og af snerpu; stefndi
Franklin fyrir brot á lögum um
einkaleyfi. Og af dæmum má ráða,
að fá fyrirtæki hafi harðsnúnara
lögfræðingaliði á að skipa en ein-
mitt Apple.
Franklin varði óhemju fjár
vegna þessara málaferla, og þar
kom, að fyrirtækið gafst upp og
lýsti sig gjaldþrota. Apple hafði
borið sigur af hólmi í þeirri lotu.
Franklin var þó ekki fullsigrað,
og nokkram áram síðar, raunar
árið 1985, setti fyrirtækið nýja
tölvu á markað. Franklin Ace er
heiti hennar, og hún er sögð ráða
við flestan þann hugbúnað, sem
smíðaður er fyrir Apple-tölvur. Og
að þessu sinni gat Ápple lítið að-
hafst. Þessi eftirlíking var þannig
úr garði gerð, að enginn hluti
hennar gat talist brot á lögum um
einkaleyfí. Og svo er að sjá, að
Apple hafi sætt sig við orðinn hlut
í því tilviki, enda hefur Franklin
Ace enn reynst lítt skæður kep-
pinautur.
En eins og mörgum er e.t.v.
minnisstætt, var Apple flest ofar
í huga en sættir, þegar fyrirtækið
Digital tók að framleiða skjástýri-
kerfi og tók fyrirmynd sína frá
tölvunni Apple Macintosh. Þá tefldi
Apple fram vígsveitum lögfræð-
inga sinna, og svo fór, að Digital
tapaði málinu. Sættir tókust að
hluta utan réttarsala, Apple heim-
ilaði, að skjástýrikerfið yrði notað
í allbreyttri mynd, og áskildi sér
myndarlega upphæð í skaðabætur.
Menn vita ekki, hve há sú upphæð
var. Mjög há, segir kviksagan.
Raunar vita menn ekki heldur, hve
há hún var, upphæðin, sem Apple
greiddi fyrir nafnið Macintosh. Það
reyndist hafa verið valið af nok-
kurri fljótfæmi; á daginn kom, að
til var lítið fyrirtæki í New York,
sem hét Mcintosh Laboratories.
Hér munar einum sérhljóða í riti,
framburður er þó hinn sami, og
fyrirtækið Mcintosh var að vonum
ekki sátt við nafngiftina Macint-
osh.
Og heldur en að breyta nafninu
kaus Apple að greiða þessu fyrir-
tæki veralega upphæð fyrir að fá
að nota nafnið Macintosh. Eina
milljón Bandaríkjadala, segir kvik-
sagan. Sé hún sönn, er hér líklega
um einn dýrasta sérhljóða verald-
arsögunnar að ræða.
Málaferlin gegn Digital mæltust
misvel fyrir. Janúarhefti Byte 1986
vítti Apple fyrir þessi viðbrögð, og
andinn kom yfir Martin Banks hjá
enska tímaritinu Personal Comput-
er World, sem samdi heila drauga-
sögu í blaðið til að lýsa óánægju
sinni með Apple.
Apple-eigendur tóku fréttinni
hins vegar með fögnuði, og varla
gat farið hjá því að menn dáðust
að snilld lögfræðinga Apple. “De
minimis non curat lex“, var ein-
hvem tíma sagt, þ.e. lögin skeyta
ekki um smámuni. En “smámunir"
era teygjanlegt hugtak. Það kom
t.d. fram við málaferlin, að mynd
af öskutunnu á tölvuskjá er alls
ekki smámunir. Og Apple hefur
einkarétt á að bregða mynd af
öskutunnu neðst til hægri á tölv-
uskjá. Þama hlýtur að mega tala
um lögfræðilegt afrek. Geri aðrir
lögfræðingar betur.
En nú reynir aftur á snilld þess-
ara kraftaverkamanna hjá Apple.
Ný Apple- eftirlíking kom á mark-
að í fyiTa, framleidd í Hong Kong
af fyrirtækinu Video Technology,
og öllu ódýrari en Apple- og
Franklin-tölvumar. Laser 128
heitir hún. Að útliti er hún nauð-
alík Apple IIc, en er auk þess með
rauf, sem hægt er að smeygja í
spjaldi með minnisauka eða öðra.
Einnig er hægt að fjölga slíkum
spjöldum með því að tengja til
þess ætlaðan kassa við tölvuna,
þannig að hún verður að nokkra
“opin“ eins og Apple Ile. Við fyrstu
athugun hafa yfirvöld vestra ekki
fundið neitt það við Laser 128, sem
talist geti brot á lögum um einka-
leyfi. Apple mun hins vegar ekki
ætla að láta hlut sinn frekar en
fyrri daginn, og lögfræðingar fyr-
irtækisins era sagðir hafa haft í
ýmsu að snúast og fundjð loks
það, sem þeir leituðu að. í Laser
128 er “BIOS“-kubburinn, (sem
framar öðra ber ábyrgð á sam-
skiptum tölvu og jaðartækja),
eftiriíking og felur í sér brot á lög-
um um einkaleyfi, segja lögfræð-
ingamir hjá Apple.
Og nú bíða menn tíðindanna.
Lögfræðingar Apple era harðsnúið
lið eins og dæmin sanna, og hver
veit nema ný lögfræðileg krafta-
verk verði brátt unnin aftur vestra,
líkt og þegar öskutunnur á töiv-
uskjám vora til umfjöllunar.