Morgunblaðið - 05.02.1987, Qupperneq 12
VIDSKIPn AIVINNUIÍF
12 B
Bílaumboð
P. Samúelsson bregst
við auknum umsvifuni
TOYOTA — Starfsmenn P. Samúelssonar í sýningasal fyrir-
tækisins við Nýbýlaveg sem nú hefur verið endurbættur og á innfelldu
myndinni eru stjómendur fyrirtækisins, Páll Samúelsson, forstjóri,
Bogi Pájsson, framkvæmdastjóri, Hannes Fanger, markaðsstjóri og
Loftur Ágústsson, markaðsfulltrúi.
Talsverðar breytingar urðu á
rekstri P. Samúelssonar og Co.
nú um síðustu áramót en fyrir-
tækið er sem kunnugt er
umboðsaðili Toyota á íslandi.
Felast þessar breytingar m.a. í
skipulagsbreytingum innan fyr-
irtækisins jafnframt þvi sem sala
á notuðum bUum hefur verið
flutt í annað húsnæði og sýning-
araðstaða á nýjum bUum stórlega
endurbætt í höfuðstöðvunum við
Nýbýlaveg. Auk þess hefur fyrir-
tækið verið tölvuvætt.
„Undirrót þessara breytinga eru
* stórvaxandi umsvif fyrirtækisins,"
segir Páll Samúelsson, forstjóri í
samtali. „Stóraukin bflasala á
síðasta ári knúði á um að gerðar
yrðu ýmsar breytingar hér innan
húss hjá okkur en það má segja
að starfsemin hafi verið í býsna
föstum skorðum allt frá því að við
fluttum hingað á Nýbýlaveginn í
kringum 1975. Á sama tíma hefur
starfsemin vaxið stöðugt og starfs-
mönnum fjölgað jafnt og þétt, svo
að það var farið að þrengja að okk-
* ur á ýmsum sviðum. Þessar breyt-
ingar miðast fyrst og fremst við
að gera fyrirtækið betur í stakk
búið að sinna viðskiptavinum sínum
betur en áður en jafnframt að bæta
alla vinnuaðstöðu starfsfólks. Við
ákváðum að byija á söludeildinni
eftir að við fluttum söludeild notuðu
bflanna inn í Skeifuna og höfum
gert verulegar breytingar í tengsl-
um við hana ásamt því að tölvuvæða
fyrirtækið. Nú, við héldum líka upp
á 15 ára afmæli fyrirtækisins á
síðasta ári og það má því segja að
þetta hafi allt farið saman."
Frá og með 1. janúar var skipu-
lagi fyrirtækisins breytt. Það
starfar nú í 2 aðaldeildum og 8
✓---------------------------------
undirdeildum en starfsmenn eru
alls um 50.
Bogi Pálsson tekur við starfi
framkvæmdastjóra og sér um
stefnumörkun og daglegan rekstur
fyrirtækisins. Hannes Strange tók
við starfí markaðsstjóra af Boga
Pálssyni og sér nú um stjórnun
markaðsdeildar. Loftur Ágústsson
tók við starfi Hannesar sem mark-
aðsfulltrúi og sér nú um stjómun
sölumála á landsbyggðinni auk ann-
arra markaðsstarfa. Loftur gengdi
áður starfi sölumanns á notuðum
bflum. Með því skipulagi sem nú
er komið á segja forráðamenn fyrir-
tækisins að heildarstjómun þess
verði samhæfðari og markvissari.
Um áramótin var einnig hafíst
handa um breytingar á húsnæði
fyrirtækisins að Nýbýlavegi 8 í
Kópavogi með það í huga að bæta
þjónustu við viðskiptamenn og að-
stöðu starfsmanna, eins og Páll
nefndi. Byijað var á breytingum á
verkstæði þar sem vinnuaðstaða var
endurskipulögð, svo að nú er unnt
að taka á móti fleiri bflum í einu
til þjónustu og viðgerða. Síðan tók
við umbylting á sýningarsal fyrir-
tækisins og verður hann formlega
opnaður nú um helgina, þar sem
m.a. verður kynntur nýr Toyota
Camry. í framhaldi af þessu verður
síðan hafíst handa um breytingar
á skrifstofuhúsnæði fyrirtækisins
og að því er forráðamenn P. Samú-
elssonar segja hefur það verið
hannað með það fyrir augum að
skapa aðlaðandi umhverfí fyrir
starfsmenn og viðskiptavini fyrir-
tækisins.
Á síðasta ári var einnig tekin
ákvörðun um að auka til muna
tölvuvæðingu fyrirtækisins til að
ná fram meiri hagkvæmni í rekstri.
í því skyni var fest kaup á IBM
' \
S/36 tölvu auk Qölda Victor ein-
menningstölva. Er nú verið að
nettengja allar einmenningstölv-
umar og nokkrar þeirra verða að
auki tengdar sem útstöðvar S/36
kerfísins. í netinu er boðið upp á
hugbúnað eins og ritvinnslu, töflu-
reikni, gagnagrunna, samskiptafor-
rit og tímaskráningarkerfí auk þess
sem senda má tölvupóst innan kerf-
isins.
Samkvæmt upplýsingum for-
ráðamanna fyrirtækisins er nú lögð
mikil áhersla á námskeiðahald inn-
an þess og m.a. fara árlega tveir
starfsmenn til Japan á námskeið til
að kynna sér stjómunar- og vinnu-
aðferðir sem Japanir hvaða getið
sér hvað mest orð fyrir og í tengsl-
um við tölvuvæðinguna innan
fyrirtækisins er nú verið að mennta
og þjálfa starfsmenninga í notkun
tölva til að fjárfestinga fyrirtækis-
ins á því sviði nýtist sem best. Þá
em reglulega haldin námskeið inn-
an fyrirtækisins til að kynna starfs-
fólki allar nýjungar eða breytingar
sem fram koma. Markmiðið með
þessu er að samræma störf allra
starfsmanna og umboðsmanna fyr-
irtækisins.
Umboðsmönnum fyrirtækisins
hefur verið fjölgað undanfarið. Nú
em starfandi sjö söluumboð og 18
þjónustuumboð víðsvegar um landið
og lögð er áhersla á breitt vömrúr-
val, að sögn forráðamanna þess -
og þá ekki aðeins í því skyni að
almenningur eigi kost á sem flest-
um stærðum og gerðum bfla heldur
einnig á þjónustu við atvinnurekst-
urinn. Á því sviði nefna forráða-
menn fyrirtækisins Toyota—vöm-
lyftarana sem fengið hafa góðar
viðtökur hér á landi. Þá er vara-
hlutaþjónusta fyrirtækisins að
þeirra sögn orðin mjög víðtæk með
lagerhaldi allra þjónustuumboð-
anna auk þess lagers sem fyrirtækið
er með sjálft. Sé varahlutur hins
vegar ekki til hér á landi hefur fyrir-
tækið aðgang að fullkomnu inn-
kaupakerfí innan Evrópu og getur
þá útvegað þá í flestum tilfellum
með stuttum fyrirvara.
Bílar
Lada mest seldi bíllinn
1986á íslandi
ENSKU SKJALASKÁPARNIR
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SÍMI 651000.
Salan meira en fjórfaldaðist á milli ára
LADA var mest seldi bilinn hér
á landi á síðasta ári, alls voru
fluttar inn 2520 bílar af þessari
tegund. Toyota var í öðru sæti
og Subaru í því þriðja. Af ein-
stökum gerðum var mest flutt
inn af Subaru 1800 og þar á eft-
ir var Lada Samara, en byijað
var að flytja hana inn í júní.
Miklar sveiflur em í innflutningi
bifreiða milli ára. Á liðnu ári vom
fluttir inn 13.352 nýir fólksbflar,
eða 136% meira en árið á undan
þegar fluttir vom inn 5655 nýir
fólksbflar. Af þeim bifreiðum sem
mest em seldar hér á landi, jókst
innflutningur á Lada mest á milli
ára - rúmlega fjórfaldaðist. Hlut-
deild Lödu í innflutningi jókst úr
10,2% árið 1985 í 19% 1986.
Umboðsaðili Lada á íslandi em
Bifreiðar- og landbúnaðarvélar.
Gísli Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins sagði að alltaf
hefðu verið miklar sveiflur í bif-
reiðainnflutningi. „Ríkið hefur
fremur aukið á sveifluna, bæði
dregið úr og aukið innflutning,"
sagði Gísli og átti þar t.d. við þegar
opinber gjöld em ýmist lækkuð eða
hækkuð.
En miklar sveiflur hafa óneitan-
lega áhrif á rekstur bifreiðainnflyt-
enda. Gflsi benti á að erfitt væri
að þjálfa starfsfólk til þess að
mæta auknum umsvifum. Þannig
hefur starfsfólki Bifreiða og land-
búnaðarvéla fjölgað um 60-70% á
meðan salan hefur fjórfaldast. Gísli
sagði að einnig hefði fyrirtækið
þjónustusamning við íjögur bif-
reiðaverkstæði á höfuðborgarsvæð-
inu, fjölmargra úti á landi, sem
þjóna eigendum Lödubfla. „þetta
ætti að vera þægilegra fyrir við-
skiptavini okkar, þar sem styttra
er í þjónustu, þannig er t.d. verk-
stæði í Hafnarfirði og annað í
Kópavogi. Þetta hefur einnig leitt
til þess að starfsmönnum okkar
hefur ekki fjölgað eins og annars
hefði orðið."
Gísli sagði að aukinni sölu hefði
fyrst og fremst verið mætt með
aukinni vinnu starfsfólks, sem hefði
lagt mikið á sig og án þess hefði
ekki verið hægt að anna eftirspum-
inni. Þá hefði einnig skipt miklu
góð samvinna við sovétmenn og
einnig skipafélagsins sem annast
flutninga á bílunum til landsins.
Þetta hefði allt hjálpast að og hefði
ásamt hagstæðu verði gert keift
að auka söluna jafnmikið og raun
varð á. Verð á Lödu hefur, að sögn
Gísla, staðið í stað. Samningur er
gerður við Sovétmenn í upphafí
hvers árs, um lámarksfjölda og
verð. Verðið er í dollurum, sem
hefur lítið eða ekkert breyst gagn-
vart íslensku krónunni.
Gísli býst ekki við að salan verði
jafnmikil á þessu ári og 1986. En
að sem af er hefur hún verið góð.
janúar voru seldir 265 bflar og á
milli 200-300 pantanir liggja fyrir.
INNFLUTNINGUR Á NÝJUM
BÍLUM TIL ÍSLANDS - 1986
Mest seldu bílarnir
1. Lada Fjöldi 2520
2. Toyota 1399
3. Subaru 1285
4. Mitsubishi 1112
5. Mazda 833
6. Daihatsu 822
7. Ford 665
8. Skoda 581
9. Volvo 506
10. G.M. 470
11. Volkswagen 454
12. Nissan 445
Helstu einstöku bílategundir 1. Subaru 1800 861
2. Lada Samara (fri i/6 86) 810
3. ToyotaCorolla 624
4. Daihatsu Charade 622
5. Mazda 323 587
6. Lada 2104 517
7. ToyotaTercel 465
8. LadaSport2121 457
9. Mitsubishi Lancer 420
10. Lada2107 376