Morgunblaðið - 01.03.1987, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MARZ 1987
Þetta mál ekki
rætt við okknr
- segir fiskimálastjóri um hugsanlegt eft-
irlit Fiskifélagsins með gámafiski
„ÞETTA mál hefur ekki verið rætt við okkur en þess ber að geta
að Fiskifélagi íslands ber lagnleg skylda til að annast allt bók-
hald fyrir sjávarútveginn," sagði Þorsteinn Gíslason, fiskimála-
stjóri, er leitað var álits hans á hugmynd Matthíasar Bjarnasonar
viðskiptaráðherra að Fiskifélaginu verði falið að hafa eftirlit með
útflutningi á gámafiski.
Þorsteinn sagði að þetta mál
hefði ekkert verið rætt hjá Fiskifé-
laginu en sagði að Fiskifélagið
gerði allt sem því væri falið að
gera og það teldi sig hafa tök á.
Hann sagði að Fiskifélagið sæktist
ekki eftir að taka að sér stjórnun
útflutningsins, en benti á að leyfi
fiskiskipa til veiða mætti nota til
að ganga eftir að skýrslur bærust
fljótt og vel.
Almennt um ísfiskútflutninginn
sagði fiskimálastjóri: „Hingað til
hefur framboð og eftirspurn
stjórnað þessum útflutningi. Það
er ekkert nýtt að verðið lækki með
þessum hætti, það er nánast ár-
visst. Þetta verður til þess að áhugi
manna á að selja fiskinn með þess-
um hætti minnkar og markaðurinn
jafnar sig. Þannig stjórnar þetta
sér sjálft.“
Opinber heim-
sókn forsætisráð-
herra hefst í kvöld
OPINBER heimsókn Steingríms
Hermannssonar, forsætisráð-
herra, og konu hans frú Eddu
Guðmundsdóttur til Sovétríkj-
anna hefst í kvöld, sunnudags-
kvöld, og dvelja þau fram á
þriðjudag í Moskvu.
Steingrímur hittir Nikolai Ryzh-
kov, forsætisráðherra, og væntan-
lega einnig Mikhail Gorbachev,
aðalritara. Með í för forsætisráð-
herrahjónanna til Sovétríkjanna
verða Guðmundur Benediktsson,
ráðuneytisstjóri, og kona hans
Kristín Claessen, Pétur Thor-
steinsson, sendiherra, og kona
hans, Oddný Thorsteinsson, Helga
Jónsdóttir, aðstoðarmaður ráð-
herra, auk Gunnars Flóvens,
framkvæmdastjóra Síldarútvegs-
nefndar, og konu hans Sigrúnar
Flóvens.
Forsætisráðherrahjónin halda
síðan beint frá Sovétríkjunum í
Keppt um
meistaratitla
í dansi og
hárskurði
KEPPT verður um íslands-
meistaratitla á tveimur stöðum
í borginni í dag. Á Broadway
verður háð keppni í hárskurði
og hársnyrtingu á vegum Sam-
bands hárgTeiðslu- og hárskera-
meistara. í Laugardalshöllinni
heldur Dansráð Islands keppni
í samkvæmisdönsum.
Keppnin á Broadway hefst kl.
10.00. Fyrri hluti danskeppninnar
hefst kl. 14.00 og munu þá yngri
flokkar sýna listir sínar. Um kvöld-
ið keppa eldri flokkarnir og verður
húsið opnað kl. 19.00.
Hugvekja
hefst á ný
SÉRA Jón Ragnarsson sókn-
arprestur í Bolungarvík hefur
tekið að sér að rita Hugvekju
í sunnudagsblað Morgun-
blaðsins næstu mánuði.
Séra Jón er fæddur 27. febrú-
ar 1953 í Vík í Mýrdal. Hann
varð stúdent frá MT 1973 og
cand theol. frá Háskóla fslands
1981.
31. maí 1982 var hann vígður
farprestur en skipaður sóknar-
prestur í Bolungarvik 1. maí
Í983.
Fyrsta hugvekja séra Jóns
birtist á bls. 9 í dag.
Ekið á stúlku:
Morgunblaðið/Bjarni
Bolludagnrinn á morgun
opinbera heimsókn til Danmerkur,
sem hefst að morgni 4. mars. Þau
eru væntanleg til íslands aftur
þann 6. mars.
Sjálfsagt verða einhveijir foreldrar flengdir
fram úr rúminu á mánudagsmorgun þegar bollu-
dagurinn gengur í garð. Siður þessi mun eiga
rót að rekja til þeirra hirtinga og písla er menn
lögðu fyrrum á sig á föstunni, til að minnast
þjáningar frelsarans. Þeir siðir eru fjarri
nútimamönnum og flengingarnar orðnar gaman-
mál.
Óskráð lög bolludagsins gera ráð fyrir að sá sem
flengdur er í rúminu launi greiðann með ijómaboll-
um. Ef marka má viðbúnað bakara ætla fleiri en
þeir árrisulu að gæða sér á bollum, eins og þessir
piltar sem tóku forskot á sæluna fyrir ljósmyndara
blaðsins.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins haldinn 5.-8. mars:
Kosningayfirlýsing
samþykkt á fundinum
Yfir 1.000 fulltrúar hafa skráð sigtil fundarsetu
LANDSFUNDUR Sjálfstæðisflokksins fer fram í Laugardals-
höllinni í Reykjavík dagana 5.-8. mars næstkomandi. Að sögn
Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks-
ins, hafa yfir 1.000 fulltrúar tilkynnt sig, og reiknar hann
með að um 1.150 fulltrúar muni eiga rétt til fundarsetu.
Landsfundurinn verður settur í
Laugardalshöllinni klukkan 17.30,
fimmtudaginn 5. mars. Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur í klukkustund
fyrir upphaf fundarins. Setningar-
fundurinn hefst síðan með því að
Léttsveit Ríkisútvarpsins leikur.
Þá syngur Kristinn Sigmundsson
óperusöngvari. Síðan flytur Þor-
steinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, setningarræðu. Á
fimmtudagskvöldið verða sérstak-
ir fundir ungra landsfundarfull-
trúa og kvenna á landsfundinum.
Fundurinn hefst klukkan 9,
föstudaginn 6. mars, með því að
ráðherrar flokksins sitja fyrir svör-
um. Eftir hádegið verða umræður
um starfsemi flokksins og lögð
fram drög að stjómmálaályktun.
Síðdegis he§ast störf hjá nefndum
landsfundarins, sem eru 15 tals-
ins. Á föstudagskvöldið verður
síðan opið hús í Valhöll.
Nefndastörf halda áfram á
laugardagsmorguninn. Fulltrúar
kjördæmanna koma saman til
funda í hádeginu og síðan hefjast
almennar umræður og afgreiðsla
mála. Fundurinn byijar að morgni
sunnudagsins 8. mars með áfram-
haldi umræðna og afgreiðslu mála.
Búist er við að stjómmálaályktun
fundarins, sem jafnframt verður
kosningayfirlýsing Sjálfstæðis-
flokksins, verði afgreidd eftir
hádegið. Síðan fara fram kosning-
ar formanns, varaformanns og
átta manna í miðstjóm flokksins.
Búist er við að fundinum ljúki um
klukkan 17 á sunnudag.
Á sunnudagskvöldið verður
síðan lokahóf í Laugardalshöllinni.
o
Ökumaður, láttu í þér heyra
- er áskorun lögreglunnar
INNLENT
„VIÐ verðum að höfða til sam-
visku ökumannsins og hvetja
hann til að gefa sig fram,“ sagði
lögreglumaður í Reykjavík i
gær, en þá var enn ófundinn
ökumaður sem hvarf af vett-
vangi eftir að hafa ekið á stúlku.
Á föstudagskvöld var ekið á
stúlku á gatnamótum Laugavegs
og Snorrabrautar. Hún er illa fót-
brotin og með slitin ljðbönd í hné,
auk minni meiðsla. Ökumaðurinn
nain ekki staðar eftir slysið heldur
ók á brott, en að sögn lögreglu er
útilokað að hann hafi ekki orðið var
við það sem gerðist. Talið er að
bíllinn hafí verið japanskrar gerðar,
grár að lit. Ökumaðurinn er hvattur
til að hafa samband við slysarann-
sóknardeild lögreglunnar hið fyrsta.
Lokahóf landsfundar Sjálf stæðisflokksins:
Eldhús Broadway
sett upp í búnings-
klefum Hallarinnar
LOKAHÓF landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins verður haldið
að kvöldi sunnudagsins 8. mars,
síðasta dags landsfundarins.
Lokahófið verður að þessu
sinni haldið í Laugardalshöll-
inni og að sögn Kjartans
Gunnarssonar, framkvæmda-
stjóra Sjálfstæðisflokksins,
gefst öllum landsfundarfulltrú-
um kostur á að mæta þannig
að búist er við að yfir 1.000
manns komi í hófið.
Veitingahúsið Broadway sér
um veisluna, og mun eldhús veit-
ingastaðarins verða flutt í Höllina
af þessu tilefni og sett upp í bún-
ingsklefum íþróttafólksins. 120
þjónar munu framreiða matinn.
Hljómsveit Ingimars Eydal á
Akureyri leikur í hófinu og syngja
nokkrir þekktir dægurlagasöngv-
arar með hljómsveitinni. Að sögn
Kjartans verður ýmislegt til
skemmtunar, meðal annars Páll
Jóhannesson, _ óperusöngvari úr
Eyjafírði, og Ómar Ragnarsson.