Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987 B 13 LeoTindemans, utanríkisráðherra Belgíu: Traustar varnir og við- ræður til slökunar Loftvarnakerfi Atlantshafsbandalagsins, NADGE, er mikilvægur liður í vörnum aðildarríkja þess. Myndin var tekin í einni ratsjárstöðinni í Danmörku. Tvær heimsstyrjaldir kenndu Evrópuþjóðunum þá dapurlegu lexiu, að í hlutleysi er ekkert hald, ekkert öryggi. Vegna þess ákváðu Belgiumenn að standa að vörnum lands sins innan bandalags, sem byggðist á samstöðu vestrænna ríkja. Með þetta í huga gerðust Belgíu- menn ásamt Prökkum, Bretum, Hollendingum og Luxemborgurum að- ilar að Brussel-samningnum þann 17. mars árið 1948 en hann var undanfari Atlantshafssáttmálans, sem undirritað- ur var 4. apríl árið 1949. Avallt síðan hafa Belgíumenn tekið fullan þátt í vamarsamstarfinu innan Atlantshafsbandalagsins. Aðildin að því er sá homsteinn, sem öryggismála- steftia okkar byggist á, og við höfum alla tíð haft í heiðri grundvallarmark- mið bandalagsins, að koma í veg fyrir stríð og tryggja frið, frelsi og sjálf- stæði. Landfræðileg lega Belgíu, sem markað hefur sögu þjóðarinnar á um- liðnum öldum, takmarkaðar auðlindir og síðast en ekki sist lýðræðislegar hugsjónir og virðing okkar fyrir mann- legri reisn hafa valdið því, að við getum ekki skilið á milli öiyggis okkar og annarra aðildarríkja Atiantshafsbanda- lagsins. Nú sem fyrr nýtur þessi skilningur mikils stuðnings á þingi og meðal þjóðarinnar allrar. Þessi ákvörðun var eðlilegt framhald af utanríkisstefnu Belgíumanna eftir síðari heimsstyijöld en þá gerðust þeir aðilar að Sameinuðu þjóðunum, að Benelux-sambandinu, Evrópuráðinu og siðast en ekki síst að Evrópubandalag- Leo Tindemans, utanrfkisráöherra Beigfu. inu. Innan þessara samtaka vilja Belgiumenn leggja sitt lóð á vogarskál- amar og hafa með því sín áhrif fá alþjóðlegum vettvangi. Belgíumenn líta svo á, að hagsmun- um þjóðarinnar sé best borgið með alþjóðlegu samstarfí, hvort sem er með samvinnu ríkjanna við Norður-Atiants- haf eða Evrópuríkjanna. Það hefur þó ekki hindrað okkar í að reyna að ger- ast milligöngumenn og bera sáttarorð á milli í von um, að með því megi koma í veg fyrir átök. Með aðildinni að Atiantshafsbanda- laginu var endi bundinn á óháða, belgiska öiyggismálastefnu. Nú er ör- yggi okkar samofið vamarhagsmunum bandalagsins alls og liður í heildar- stefnu þess, sem mótuð er í samvinnu og með samþykki allra aðildarríkjanna. Á hinum erfiðu kaldastríðsdögum og æ síðan hafa allar ríkisstjómir í Belgíu talið það andsætt meginstefn- unni um samstöðu og ekki í þágu okkar sjálfra að láta aðra bera fyrir okkur byrðamar. Birtist það ekki aðeins í óeiginlegu framlagi okkar, vilja okkar til að taka þátt í sameiginlegum vöm- um, heldur einnig í áhuga okkar á að axla byiðamar á við aðra. Þá ber að sjálfsögðu að hafa í huga og taka til- lit til mannafla og efnahagslegrar getu þjóðarinnar. Belgískar ríkisstjómir hafa ávallt verið þeirrar skoðunar, að framlag okkar til sameiginlegra vama heimilaði okkur að taka fullan þátt í ákvörðunum bandalagsins, hvort sem um væri að ræða hemaðarleg eða pólitísk málefni. Það höfum við einnig gert og teljum okkur hafa haft heillavænleg og bæt- andi áhrif á starfsaðferðimar og ákvarðanatökuna í þessum málaflokk- um. Árið 1967 gaf Atiantshafsbandalag- ið út skýrslu, sem Pierre Harmel, þáverandi utanríkisráðherra Belgíu, tók saman. Var þar lagt til, að pólitísk samvinna og samráð innan bandalags- ins yrðu nánari og minnt á, að eitt meginverkefnið að þessu leyti væri að „treysta og bæta samskiptin og stuðla með því að lausn þeirra pólitfsku ágreiningsmála," sem skildu að austur og vestur. í skýrslunni er annars vegar lögð áhersla á, að Atlantshafsbandalagsrík- in séu einhuga og hviki hvergi í vamarsamstarfínu og hins vegar, að þeim beri að fagna alvarlegri umræðu, sem leitt geti til slökunar, takmörkun- ar á vígbúnaði og afvopnunar. Þessi hugmynd var endurvakin með Washington-yfiriýsingunni í maí 1984, en árið áður höfðu Belgíumenn hvatt til þess í „Tindemansályktuninni", að slík allsheijarúttekt á samslriptum austurs og vesturs færi fram. Was- hington-yfiriýsingin sem samþykkt var af aðildarþjóðunum 16, staðfesti meg- inkenningu Harmel-skýrslunnar frá 1967 og styrkti einhuga afetöðu Ati- antshafsbandalagsríkjanna. Að lokum má segja, að til að tryggja öryggi aðildarríkja Atlantshafebanda- lagsins sé nauðsynlegt að hafa tvö langtímamarkmið í hugæ Annars veg- ar að tryggja nægilegar vamir og láta í ljós pólitískan vilja til að beita þeim ef þörf krefúr, hins vegar að vera reiðu- búnir til viðræðna og samvinnu við austantjaldsríkin. Þessi öryggissjónar- mið eru ríkur þáttur í utanríkisstefnu Belgíumanna. Takmarkanir á vígbún- aði og afvopnun er einnig mikilvægt atriði í þessari stefnu, sem hefur það að markmiði, að jaftiræði sé með báð- um aðilum og vígbúnaður í lágmarki. Hvað sem liðið hefur ólíkum sam- steypusljómum hefur meginstefna belgískra ríkisstjóma ávallt verið sú sama- Á árum kalda stríðsins jafnt sem á tíma slökunarstefnunnar hafa þær unnið að því að efla Atlantshafebanda- lagið, vamarsamtök, sem hvila á tveimur meginstoðum, Norður- Ameríku og Evrópu, og vilja nota hvert tækifæri til að eiga árangursríkt sam- starf við ríki Austur-Evrópu. takmörkun vígbúnaðar eða afvopnun séu virtir í einu og öllu af samnings- aðilum; að ftreka samhug, einingu og samstöðu bandalagsþjóðanna, þegar við erum að ganga til erfiðra samninga við ríkin í austri. Enginn efast um, að við séum staðfastur þátttakandi í bandalaginu. Augljóslega höfum við sérstöðu inn- an þess, þvf til staðfestingar nægir að benda á legu okkar í herfræðilegu ljósi og söguleg tengsl okkar við Evrópu. Mér finnst ánægjulegt, að þessi fundur í Reykjavík minnir enn einu sinni á þá staðreynd, að NATO nær ekki aðeins til meginlandsrílqa í Evrópu heldur einnig til þjóða við Norður-Atlantshaf. Kanadamenn og íslendingar hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta á norðurslóðum — Atlantshafsbandalagið er ekki aðeins vettvangur, þar sem þjóðir geta látið að sér kveða í viðræðum austurs og vesturs, heldur geta þær einnig minnt bandamenn sfna á hið sérstaka hlutverk, sem þær gegna hver og ein innan NATO, bæði með vísan til herfræðilegra þátta og sam- stöðu innan bandalagsins. Ríkisstjóm Kanada hefur eins og kunnugt er nýlega gefíð út hvíta bók um vamarstefnu Kanada og heitir hún Challenge and Commitment (Áskorun og skuldbinding). Þar eru lagðar meginlfnur í kanadískri vam- armálastefnu fram á næstu öld, sem byggðar eru á mikilli vinnu innan stjómkerfis okkar og samráði við bandamenn okkar f NATO. Tillög- umar, sem kjrnntar eru í bókinni, bera því glöggt vitni, að Kanada- menn vilja auka vamir sínar vera- lega. Meðal hins mikilvægasta í þessari hvítu bók er, að Kanadmenn lýsa yfir vilja sínum til að halda áfram að leggja sitt af mörkum til að veija Evrópu. Tillagan um þetta efni, sem gerir ráð fyrir, að fallið verði frá áformum um að senda liðsauka til Norður-Noregs en honum þess f stað beint til suðurhluta Þýskalands, tek- ur mið af þeirri staðreynd, að um langan aldur hefur það í raun verið okkur um megn að flytja menn, tæki og vistir til Noregs. Þá byggist tillag- an einnig á viðleitni til að auka styrk þess liðsafla, sem kemur frá Kanada, og vilja til að fjölga mönnum lítillega í honum. Við viljum gjaman taka tillit til þess, að bandamenn okkar hafa áhyggjur af stöðunni á norður- væng NATO, á hinn bóginn teljum við skipta meira bæði fyrir Kanada og bandalagið, að við mótum mark- vissa langtíma-stefnu, sem við skuldbindum okkur til að fram- kvæma. í hvítu bókinni er einnig tekið á öðrum mikilvægum málum: að við þurfum flota sem getur athafnað sig á þremur höfum; vömum Norður- Ameríku (þ.á m. lofthelgi); að bæta þurfi aðstöðu varaliðsins. Eins og af þessu sést reynum við að ná yfir vítt svið. Á sama tíma eram við að glíma við rikissjóðshalla, sem er hlut- fallslega 1,5 meiri en hallinn á flárlögum Bandaríkjanna, við eram einnig að endumýja tækjabúnað her- afla okkar, sem er óskaplega dýrt og óárennilegt. Og þetta gerist í sama mund og kanadískir sérfræð- ingar í hermálum era að kanna nýjar hættur sem að okkur steðja frá heim- skautinu og Kyrrahafi og hlut Kanada í geimvömum Norður- Ameríku. Við tökum á þessum vandamálum og víðtækum skuldbindingum okkar á Atlantshafi og í Evrópu í hvítu bókinni. Fyrir sérhveija ríkisstjóm er það gífurlega ábyrgðarmikið verk að samræma þá herfræðilegu, pólitfsku og flárhagslegu þætti sem tengjast matinu á öryggishagsmun- unum og móta úr þeim eina heild. Ábyrgðin minnkar sfður en svo við að línur era lagðar fyrir næstu kyn- slóð. Ríkissijóm Kanada er sannfærð um að nauðsynlegt er að vinna þetta verk og unnt er að inna það af hendi. Við eram þess fullvissir, að þetta starf mun leggja granninn að vamarstefnu, sem eykur gildi fram- lags Kanada til sameiginlegra vama Vesturlanda og þar með til heims- friðar og öryggis. Jacques F. Poos, utanríkisráðherra Luxemborgar: Oryggi Luxemborgar ekki tryggt án NA TO Luxemborg var eitt af stofnríkj- um Atlantshafsbandalagsins eins og ísland. Hlutleysisstefnan, sem Luxem- borg hafði fylgt frá árinu 1867, veitti landi mínu enga vemd, þeg- ar á reyndi, og var blekking eins og best kom f ljós í heimsstyijöld- unum tveimur — þá var ráðist inn f Luxemborg. í sfðari heimsstyij- öldinni bjó þjóð mfn við langt hernám nasista og reynslan af þvf var sú, að hún ákvað að segja skilið við hlutleysi og leita nýrra leiða til að treysta sjálfstæði sitt og yfirráð yfir eigin landi. Vilji þjóðarinnar stóð til þess að verða þátttakandi f samtökum, sem tiyggðu aðilum sínum gagnkvæmt öryggi og sameiginlegar vamir, er væra nægilega öflugar og virkar til að halda óvini í skefjum. Þess vegna hikuðu stjómvöld í Luxemborg ekki, þegar þeim var boðið að taka þátt í samningaviðræðunum, sem leiddu til þess að Atlantshafssáttmálinn var undirritaður. Nú á tímum er víðtæk pólitfsk samstaða um aðildina að NATO í Luxemborg. Jákvætt viðhorf al- mennings til bandalagsins á rætur að relq'a til þess, að Luxemborgarar átta sig á þeirri staðreynd, að banda- lagið hefur verið homsteinn friðar í Evrópu í tæp fjöratíu ár og erfítt er að benda á nokkra aðra leið til að tryggja öryggi Luxemborgar en að- ildina að NATO. Þótt Luxemborg og ísland séu smæstu aðildarríki Atlantshafs- bandalagsins gegna þau hvort um sig mikilvægu hlutverki f vamarsam- Jacques F. Poos, utanrfkisráSherra Luxemborgar. starfi þjóðanna og leggja þar fram skerf í samræmi við það, sem af þeim má vænta. Að því er hlut Lux- emborgar varðar ber mest á því, að við leggjum bandalaginu til sveit fót- gönguliða. Með þessum hætti stað- festir ríkisstjóm Luxemborgar í verki hug sinn til vamarsamstarfsins inn- an bandalagsins. Áður en Luxemborg varð eitt af stofnríkjum Atlantshafsbandalagsins tók landið þátt f að stofna Vestur- Evrópusambandið. Innan vébanda þess starfa nú Benelux-löndin, Frakkland, Sambandslýðveldið Þýskaland, ítalfa og Bretland. Sam- kvæmt stofnskrá bandalagsins frá 1948 skuldbinda þátttökuríkin sig til að mynda sameiginlegt vamarkerfi og efla tengsl sfn í efnahags- og menningarmálum. Nú situr fulltrúi Luxemborgar í forsæti innan þessara samtaka, þegar þar fara fram við- kvæmar umræður um hlutverk þeirra. Aðildarþjóðimar vilja blása nýju lífi í Vestur-Evrópusambandið og ríkisstjómir þeirra taka mið af þeirri sannfæringu, að um raun- veralegan evrópskan samruna verði ekki að ræða nema tekið sé tillit til Öryggishagsmuna Evrópu. Þeim er hins vegar ljóst, að þróunin á þessu sviði hlýtur að taka mið af samstöðu ríkjanna við Atlantshaf og miða að því að styrkja evrópska stoð Atlants- hafsbandalagsins. Nú er meiri þörf á samstöðu og samstarfi innan Atlantshafsbanda- lagsins en nokkra sinni fyrr, þegar bandalagsþjóðimar þurfa að taka ákvarðanir, sem hafa mikil áhrif á öiyggishagsmuni þeirra. Nægir þar að neftia það sem tengist fundi þeirra Reagans forseta og Gorbachevs aðal- ritara í Reykjavík f október 1986, en þar var farið inn á áður óþekktar brautir f afvopnunarmálum. Ég læt í ljós þá von, að utanríkisráðherrar Atlantshafsríkjanna leggi sitt af mörkum til að draga úr vígbúnaði og til að bæta sambúð austurs og vesturs, þegar þeir hittast nú í Reylq'avík. Gerist það hefur banda- lagið enn einu sinni lagt skerf sinn til friðarmála, en varðveisla friðar er æðsta markmið Luxemborgar eins og íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.