Morgunblaðið - 16.07.1987, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987
B 11
VEITINGAHUS OG SKEMMTISTAÐIR MEÐ
VÍNVEITINGALEYFIÁ LANDSBYGGÐINNI
Hér birtist listi yfir veitingahús
með vínveitingaleyfi og skemmti-
staði utan Reykjavíkur og ná-
grennis. Tiltekinn er opnunartími
og „matreiðslumeistari", sem er
það nafn sem allir yfirmenn eld-
húsanna eru nefndir, meistarar
eðurei.
REYKJANES
BLÁA LÓNIÐ
Veitingasalur gistiheimilisins við Bláa lón-
iöeropinnfrá kl. 11.30 - 13.30og frá
kl. 18.00 - 21.30, en kaffiveitingar eru
einnig í boði og kaffihlaðborð á laugar-
dögum og sunnudögum. Matreiðslu-
meistari er Björn Guðmundsson og
síminn 92-8650.
KEFLAVÍK
Veitingastaðurinn Glóðin erviö Hafnar-
götu 62. Hann er opinn á virkum dögum
frá klukkan 11-21 og lengur um helgar.
Matreiðslumaður er Gunnar Friðriksson.
Glaumberg
Glaumberg er dansstaður um helgar með
lifandi tónlist og diskótek. Þar er hægt
að fá mat fyrir hópa hvort sem er í miðri
viku eða um helgar. Matreiöslumaöur
er Daði Kristjánsson.
Sjávargull
í sama húsi og Glaumberg er matsölu-
staðurinn Sjávargull. Hann er opinn
fimmtudaga til sunnudaga frá 6.30 til
23.30. Eldhúsiö lokar 22.30. Siminn á
báðum stöðunum er 92-14040.
SUOURLAND
HVERAGERÐI
Hótel Örk
Veitingasalurinn er opin fyrir matargesti
daglega frá kl. 12.00 -14.30 og frá kl.
18.00 - 22.00, er eldhúsinu lokar, en
kaffiveitingar eru á milli matmálstíma. Á
sunnudögum er svokallað „brunch" að
bandariskum sið frá kl. 12.00 -14.30,
en að því loknu, kl. 15.00 er kaffihlað-
borð. Matreiðslumeistari hússins er
Björn Erlendsson og siminn, 99-4700.
SELFOSS
Hótel Selfoss
í hótelinu er kaffiterían opin alla daga frá
kl. 08.00 - 22.00, en opið er fyrir matar-
gesti iveitingasal á fimmtudögum,
föstudögum, laugardögum og sunnu-
dögum frá kl. 18.00 - 22.00. Kaffihlaö-
borð á sunnudögum. Matreiöslumeistari
er Valgarð Guðmundsson og siminn
99-25000.
jnghóll
i Inghóli er opiö á föstudags-, laugar-
dags-og sunnudagskvöldum frá kl. 18.00
- 22.00 í eldhúsi, en staðurinn er opin
til kl. 03.00 á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Lifandi tónlist og diskótek.
Matreiðslumeistari er Stefán Einarsson
og síminn 99-1356.
Stjarnan:
SpennusögurI
undir svefninn
■■ Jóhann Sigurðarson |
00 leikari les stuttar ]
“ spennusögur fyrir l
hlustendur Stjömunnar um mið- !
nætti á þriðjudögum. Jóhann sagði
í samtali við Morgunblaðið að
hann hefði valið stuttar og spenn-
andi sögur, stundum léttar hroll-
vekjur, sem yrðu á dagskrá að
minnsta kosti vikulega á næst-
unni. Margar af sögunum em úr
tímariti sem Alfred Hitchcock
valdi sögur í og gaf út. Sögur
Sigurðar em eftir hina ýmsu höf-
unda t.d. Edgar Allan Poe, Knut
Hamsun og Þórberg Þórðarson.
Sagan sem Jóhann les í kvöld
heitin „Sá hlær best...“ og er eft-
ir Larry Powell.
ÞINGVELLIR
Hótel Valhöll
i Valhöll er opið alla daga frá kl. 12.00
- 14.30 og 18.00 - 22.30 fyrir matar-
gesti, en kaffiveitingar eru einnig allan
daginn. Matreiðslumeistari er Jón Þór
Einarsson og síminn, 99-2622.
VESTMANNAEYJAR
Gestgjafinn
í Gestgjafanum er opinn daglega mat-
sölustaður, sem að kvöldi breytist í „krá",
frá kl. 07.00 - 23.30 á virkum dögum,
til kl. 01.00 á fimmtudögum og sunnu-
dögum og kl. 03.00 á föstudögum og
laugardögum. Siminn er 98-2577.
Skansinn
Skemmtistaðurinn Skansinn er opinn á
föstudags- og laugardagskvöldum, frá
kl. 19.30 - 22.00 fyrir matargesti. Húsið
lokarsvo 03.00. Siminn er 98-2577.
Skútinn
í Skútanum er opið um helgar í eldhúsinu
frá kl. 10.00 - 22.00, en á virkum dögum
frá kl. 09.00 - 22.00. Matreiöslumeistari
er Ingi Erlingsson og siminn 98-1420.
AUSTURLAND AUSTFIRÐIR
EGILSSTAÐIR
Samkvæmispáfinn
Veitingahúsið Samkvæmispáfinn við
Lagarfell er opið alla daga frá kl. 10.00
- 23.30 og á föstudögum og laugardög-
um til kl. 01.00, en eldhúsiö er opið frá
kl. 11.00 -14.00 og frá kl. 18.00 - 21.00
alla daga. Kaffiveitingar eru einnig í boði.
Matreiðslumeistari hússins er Gunnar
Björgvinsson og siminn 97-1622.
Hótel Valaskjálf
Veitingasalurinn i Valaskjálf er opin fyrir
mat alla daga frá kl. 11.00 -14.00 og
frá kl. 18.00 - 22.00. Matreiðslumeistari
er Kristinn Vagnsson.
Eddu hótel Eiðum
Veitingasalurinn á Eiðum er opin alla
daga frá kl. 07.30 - 23.30 og eldhúsiö
fyrir mat frá kl. 12.00- 14.00og 19.00
- 21.00. Matreiðslumeistari er Elínborg
Kristinsdóttir. síminn er 97-3803.
Eddu hótel Hallormsstað
Veitingasalurinn er opinn daglega frá kl.
08.00 - 23.00 og eldhúsið frá kl. 12.00
- 14.00og 18.30 -21.30, nema á laugar-
dögum þegar opið er frá kl. 18.00 -
22.00. Matreiðslumeistari er Óðinn Ey-
mundsson.
HÖFN í HORNAFIRÐI
Hótel Höfn
Á hótelinu eru tveir veitingastaðir, annars
vegar kaffiterian, sem er opin daglega
frá kl. 10.00-23.00. Eniveitingasal
hótelsins er eldhúsiö opið frá kl. 19.00
- 21.00 alla daga. Síminn er 97-81240.
Matreiðslumeistari er Árni Stefán Árna-
son.
Eddu hótel
í veitingasal Edduhótelsins á Höfn er
opiö i sumar frá kl. 12.00 -14.00 og frá
kl. 19.00 - 22.00. Matreiöslumeistari
hússins er Sigurbjörg Stefánsdóttir og
eiminn 97-81470.
SEYÐISFJÖRÐUR
Hótel Snæfell
Veitingasalurinn á Snæfelli er opinn dag-
legafyrirmatfrákl. 12.00- 14.00ogfrá
kl. 19.00 - 22.00, en staðurinn er opinn
til kl. 01.00 um helgar. Matreiðslumeist-
ari er Garðar Rúnar Sigurgeirsson.
Siminner 97-2460.
NORDURLAND EYSTRA
AKUREYRI
Bautinn
i Bautanum er opið alla daga vikunnar
frá kl. 09.00 - 23.30. Síminn er 96-21818.
Fiðlarinn
Hjá Fiðlaranum er opið eldhús frá kl.
11.00 - 23.00 alla daga vikunnar. Mat-
reiöslumeistari er Zófanías Árnason og
siminn 96-27100.
Hótel Akureyri
Veitingasalur hótelsins er opin alla daga
fyrir matargesti frá kl. 11.30 -14.00 og
frá kl. 18.00 - 22.00. Matreiðslumeistari
hússins er Ari Garöar Georgsson. Siminn
j er 96-22525.
; HótelKEA
i Veitingasalur hótelsins er opin alla daga
frá kl. 11.30 -14.00 og frá kl. 18.00 -
i 22.00, en þá lokareldhúsiö. í boði eru
I sérréttarseölar og dagsseölar. Mat-
reiðslumeistari er Kristján Elis Jónasson
ogsiminn 96-22200.
Sjallinn
Veitingahúsið Sjallinn opnar fyrir matar-
gesti á föstudagskvöldum frá kl. 20.00
- 22.30 og á laugardagskvöldum frá kl.
19.00 - 22.30, en matreiðslumeistari
hússins er Ari Garöar Georgsson. Sjallinn
ersvoopin til kl. 03.00 um helgarog
leikurhljómsveit Ingimars Eydal fyrir
dansi, auk þess sem diskótek er. Síminn
er 96-22970.
Kjallarinn
Kjallarinn er krá í kjallara Sjallans, sem
er opin frá kl. 18.00, á virkum dögum til
kl. 01.00 og á föstudags- og laugardags-
kvöldum til kl. 03.00. Léttir réttir og lifandi
tónlist stundum. Síminn er 96-22970.
Laxdalshús
i Laxdalshúsi við Hafnarstræti 11 er opið
á föstudögum og laugardögum frá kl.
14.00 - 23.00 og á sunnudögum eru
kaffiveitingarfrá kl. 14.00 18.00. Her-
mann Huijbens er matreiðslumeistari
hússins, en hann sérhæfir sig i fiskréttum
og verður nú um helgina sérstaklega
boðið upp á hlýra og svo karlloðnu steikta
íkvenloðnusafa. Þáereinnig matreiddur
marhnútur. Á laugardag leikur hljóm-
sveitinTass, jass i garðinum frá 17.30
-19.30.
VESTFIRDIR
ÍSAFJÖRÐUR
Hótel ísafjörður
Veitingasalur hótelsins er opin fyrir mat
frá kl. 11.30 - 13.30 og frá 19.00 - 21.00
og eru kaffiveitingar á milli matmálstima.
Um helgareropiðfrákl. 18.30. Mat-
reiöslumeistarar eru Eirikur Finnsson og
Ásgeir Jónsson.
NORÐURLAND VESTRA
LAUGABAKKI
Hótel Edda Morgunverður er framreidd-
urfrá 8-10og hádegisverðurfrá 12-2.
Frá 7-9 er kvöldveröur en hægt er að fá
vin með matnum. Allan daginn er svo
hægt að fá kaffi og kökur. Matreiðslu-
maður er Pétur Hermannsson. Síminn
er 95-1904.
HÚNAVELLIR
Hótel Edda
á morgnana er boðið upp á hlaöborö
og hádegisverður er frá 12-14. Kvöld-
verðurerfrá 7-1 Oog hægt eraðfá létt
vin með mat. Matreiðslumaður er Elmar
Kristjánsson og síminn 95-4370.
BLÖNDUÓS
Hótel Blönduós
Þar er hægt að fá morgunverð frá klukk-
an 7-10.30 og hádegismat frá 11.30 til
14. Kvöldveröurerfrá 18.30 til 21. Kaffi
og kökur fást allan daginn en matstaður-
inn lokar klukkan 23.30. Bessi Þorsteins-
son er matreiðslumeistari á Hótel
Blönduós og síminn er 95-4126.
HVAMMSTANGI
Vertshúsið
Þar er opið allan daginn frá klukkan 8-23.
Hádegisverður er framreiddur frá klukkan
12-2 og kvöldverður frá klukkan 7-9 en
þess á milli má fá alls konar smárétti
eins og hamborgara og kjúklinga. Mat-
reiöslumaður er Ingvar Jakobsson og
siminn er 95-1717. SAUÐÁRKRÓKUR
Hótel Mælifell
Morgunverður er borinn fram milli klukk-
an 7 og 10 og hádegisverður eftir það
til klukkan 13.30. Kvöldmat er hægt að
fá frá klukkan 17 fram til 20.30. Auk
þess er hægt að fá smárétti allan daginn
úr eldhúsinu. Vínveitingar eru á kvöldin
til klukkan 23.30. Siminn er 95-5265.
T ómas Guömundsson er matreiðslu-
meistari staðarins.
Sælkerahúsið
í Sælkerahúsinu er opið frá 11.30 til 15
ogfrá 17-24. MatreiðslumeistarierTóm-
as Guðmundsson. Síminn er 95-5900.
SIGLUFJÖRÐUR
Hótel Höfn
Þar er grillið opið allan daginn en morg-
unverðurer framreiddurfrá 7.30-10.30.
Hádegisverður er milli kl. 12 og 1 og
kvöldverður frá kl. 7-8. Um helgar er
barinn venjulega opinn til 23.30. Mat-
reiðslumenn eru Erla Finnsdóttirog
Jóhann Halldórsson.
VESTURLAND
Hótel Búðir
Þar er opiö frá 8-23.30. Hádegismatur
erfrá 12-14 og kvöldmatur frá 7-10.
Hægt er að fá kaffi um miöjan daginn
og smárétti á kvöldin. Matreiðslumenn
eru Hafþór Ólafsson og Gunnar Jónsson.
Síminn er 93-56700.
Hótel Stykkishólmur
Hótelið býður upp á smurt brauð, kaffi
og kökur allan daginn auk morgun- há-
degis- og kvöldverðar. Opið er til klukkan
23.30. Yfirmatreiðslumenn eru Sumarliði
! Ásgeirsson og Egill Ragnarsson. Síminn
á hótelinu er 93-81330.
AKRANES
Hótel Akranes
j Veitingasalur hótelsins er opin frá kl.
08.00 - 20.30 og eru kaffiveitingar einnig
í boði. Matreiðslumeistari er Þór Ragn-
j arsson og síminn 93-2020
i3áran
Báran nefnist skemmtistaður i kráarstil
sem er i Hótel Akranesi. Þar er opið frá
kl. 18.00 - 23.30 á virkum dögum, lil kl.
I 01.00 á fimmmtudögum og kl. 03.00 á
föstudags-og laugardagskvöldum. Lif-
j andi tónlist og diskótek.
Stillholtt
Veitingahúsið Stillhollt er opið daglega
frá kl. 09.00 - 23.30, en fyrir matargesti
frá kl. 11.00 - 22.00. Matreiðslumeistar-
j ar eru Egill Egilsson og Sigurvin Gunnars-
i sonogsiminn, 93-2778.
BORGARNES
Hótel Borgarnes
Morgunveröur er framreiddur klukkan
7.30ogstendurtil 10. Frá 12-14er
hádegisverðurog frá 7-10 kvöldverður.
Allan daginn er svo hægt að fá smá-
refti. Opiðervirka daga til klukkan 23.30
og á föstudögum og laugardögum til
klukkan 2.30. Matreiðslumenn eru Har-
aldur Hreggviðsson og Ingigerður
Jónsdóttir. Síminn er 93-71119.
mitunce.
Maurice,
morðsaga og
hrollvekja
Eftir vinsældir myndarinnar Her-
bergi með útsýni hafa þeir félagar
Ismail Merchant og James Ivory,
sem gert hafa saman kvikmyndir
í aldarfjórðung, verið að drukkna
í tilboðum og handritum frá Holly-
wood. Merchant neitar þó að þeir
séu undir sérstökum þrýstingi.
„Fólk er í gegnum árin orðið vant
góðum hlutum frá okkur allt frá
því að við gerðum Shakespeare
Wallah (1965),“ segir hann. „Ég
held að þeir sem fytgst hafa með
verkum okkar hafi alltaf verið
ánægðir með þau.“
Nýjasta myndin þeirra er
Maurice, byggð á sjálfsævisögu-
legri skáldsögu E.M. Forsters,
sem fjallar um baráttu ungs
manns við kynvillu sína og víktorí-
anskt siðgæði uppúr aldamótum.
Framtíðarverkefni þeirra Merc-
hant og Ivorys eru m.a. An
Innocent Millionaire, sem Tom
Cruise mun jafnvel leika í, og The
Deceivers. Eins og fyrri myndir
félaganna verða þessar fjármagn-
aðar af óháðum aðilum vegna
þess að risaverin „munu alltaf
letja þig í að gera eitthvað öðruví-
si,“ eins og Merchant kemst að
orði.
Loksins fær Kim Basinger al-
mennilegt hlutverk ef marka má
fréttir vestra. Hún hefur leikið
meira en nóg af „drusluhlutverk-
um“ eins og í 9 1/2 Weeks, No
Mercy og Blind Date. í nýju mynd
inni hans Robert Bentons, sem
heitir Nadine, fær Basinger loks-
ins að vera klár, sterk og fyndin.
Benton segist hafa verið hálfn
aður með handritið þegar hann
hitti Basinger og „það var eins
og persónan hefði gengið inn um
dymar. Eftir tíu sekúndur vissi
ég að hún ætti að fara með hlut-
verkið". Hann hengdi upp ljós-
mynd af Kim á vegginn hjá sér
og sneri handritinu úr því að vera
alvarlegt drama í kóm-
ískan „þriller".
Myndin gerist í Texas á sjötta
áratugnum. Nadine og maðurinn
hennar (Jeff Bridges) eru sökuð
um morð og Nadine reynir að
finna raunverulega morðingjann.
Clive Barker er hinn breski
Stephen King. í metsölu-hroll
vekjunum hans hefur Satan
sjálfur tekið sér bólfestu í úthverf-
um London. Nú hefur Barker
snúið sér að öðru. Hann er orðinn
þreyttur á að láta aðra gera mynd-
ir eftir handritunum hans og hefur
leikstýrt myndinni Hellraiser, sem
hann segir að sé „gáfulega gerð
og stílfærð hryllingsmynd. Það
er ekki ein af þessum myndum
sem í er hóað 12 fallegustu ung-
mennum Kalifomíu og þau drep-
in.“ _ „i
Nadine.