Morgunblaðið - 21.08.1987, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 21.08.1987, Qupperneq 1
64 SIÐUR B 186. tbl. 75. árg. FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Frelsun gíslanna 1 Líbanon: Bandaríkjamenn neita boði Irana New York, Washington, Jerúsalem, Reuter. BANDARÍKIN höfnuðu í gærkvöldi boði Rafsanjanis, talsmanns íranska þingsins, um að Iranir beiti áhrifum sínum á Iransholla skæruliðahópa í Líbanon til þess að gefa erlendum gislum frelsi. í staðinn vill Rafsanjani að skæruliðar shíta, sem sitja í fangels- um í Kuwait og ísrael verði látnir lausir. Talið er að þetta tilboð Rafsanjanis sé tilkomið vegna þrýstings frá Sýrlendingum. Rafsanjani sagði að íranir hefðu töluvert vald yfir skæruliðahópun- um í Líbanon, en hann sagði að því yrði ekki beitt nema Bandaríkja- menn legðu eitthvað fram á móti. Hann krafðist þess að látin yrðu af hendi vopn og fjármunir, sem Iranskeisari átti í Bandaríkjunum fyrir byltinguna í landinu 1979. Bandaríkjamenn höfnuðu tilboði írana algerlega í gær. Talsmaður utanríkisráðuneytisins, Phyllis Oakley, sagði að tilboðið sannaði að íranir hefðu áhrif meðal mann- ræningja í Líbanon, en að svar Bandaríkjanna við því væri: „Engir samningar, engin vopn til íran, enginn þrýstingur á Israel eða Kuwait að sleppa föngum.“ Hún sagði að íranir skyldu beita þrýst- ingi sínum í Líbanon án skilyrða. Talið er að þrýstingur Sýrlend- inga, sem eru bandamenn Irana, ráði nokkru um tilboð Rafsanjanis. Að sögn bandarískra embættis- manna hafa Sýrlendingar að Bretland: Stjórnin selur 470 milljarða hlut í BP Lundúnum, Reuter. Efnahagsráðgjafar bresku stjórnarinnar skýrðu frá því í gær að ríkisstjórn Margrétar Thatcher hygðist nú selja hlut hins opinbera í olíufélaginu Brit- ish Petroleum eða BP. Þetta verður stærsta hlutabréfaútboð í Bretlandi og jafnvel í allri sögu hlutabréfaviðskipta, verðmæti bréfanna er sjö og hálfur millj- arður punda eða rúmir 472 milljarðar íslenskra króna. Frá því árið 1977 hefur hið opin- bera smám saman minnkað hlut sinn í fyrirtækinu úr 68,4 hundraðs- hlutum í 31,5 af hundraði. Sá hlutur verður nú allur seldur og auk þess verða til sölu ný hlutabréf að verð- mæti um 90 milljarðar króna. Að sögn ráðgjafa stjómarinnar verður fimmtungur hlutafjárins boðinn er- lendum aðilum, og þeir hafa margir Margrét Thatcher hvetjir sýnt kaupunum áhuga. BP er eitt af fimm fyrirtækj- um, sem eiga stærsta mark- aðshlutdeild í Evrópu og held- ur 127.000 starfsmenn. Fyr- irtækið hefur bein eða óbein ítök í 1.900 dótturfyrirtækjum í 70 lönd- um, þar á meðal hér á landi. Sala fyrirtækisins er liður í einka- væðingarherferð stjórnar íhalds- flokksins, sem hefur heldur betur tekið til hendinni við sölu breskra ríkisfyrirtækja. Gasstöðvar ríkisins, póst- og símaþjónustan og ríkisjám- brautirnar hafa þegar verið seld á almennum markaði. undanförnu lagt hart að írönum að beita sér fyrir frelsun gíslanna eftir að hafa átt viðræður við sendimann Bandaríkjastjómar, Vernon Walt- ers, í síðasta mánuði. Marlin Fitzwater, talsmaður Hvíta hússins, sagði að hann hefði það eftir heimildarmönnum sínum að Sýrlendingar hefðu átt viðræður við Irani um það að Glass yrði sleppt. Hann sagðist ekki draga í efa framburð Glass um að hann hefði flúið af eigin rammleik, en sagði að hann hefði fyrir því heim- ildir að sýrlenskur þtýstingur á að honum yrði sleppt hefði verið svo sterkur að þess hefði varla verið langt að bíða. Viðleitni Sýrlendinga til þess að miðla málum í deilunni um gíslana hefur borið þann ávöxt að Banda- ríkjamenn hafa nú ákveðið að senda sendiherra sinn, William Eagleton, aftur til Damaskus. Eagleton var kallaður heim fyrir níu mánuðum er snurða hljóp á þráðinn í sam- skiptum ríkjanna vegna meintrar aðildar Sýrlendinga að tilraun til þess að koma sprengju um borð í ísraelska flugvél í London. Að sögn talsmanns utanríkisráðuneytisins kemur einnig við sögu barátta Sýr- lendinga við alþjóðlega hryðju- verkamenn á borð við Abu Nidal. Hætta störfum fremur en láta undan Hvítur öryggisvörður stendur á verði yfir svörtum kolanámu- verkamönnum í Suður-Afríku, sem bíða þess að vera fluttir heim frá Waal Reef-gullnámunni vestur af Jóhannesarborg. 2000 vinnufélagar verkamannanna, sem hafa verið í verkfalli í tólf daga, kusu að taka fremur við síðastu launagreiðslu sinni og hætta störfum heldur en að samþykkja kröfur námaeigendanna um að þeir sneru aftur til vinnu. 6000 námaverkamönnum hefur nú verið sagt upp störfum á svipaðan hátt í S-Afríku. Chad: Líbýumenn bíða ósignr við Aouzou N’djamena, Reuter. STJÓRNVÖLD í Mið-Afríkurík- inu Chad sögðu í gær að hersveit- ir þeirra hefðu hrundið öflugri árás Líbýumanna á landa- Bandaríkin: Sjávarútvegsráðherra hættir - óvíst um áhrif á hvalveiðimálið Frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyili, fréttaritara Morgunblaðsins í Bandaríkjunum. Dr. Anthony J. Calio sjávarútvegsráðherra Bandarikjanna sagði af sér síðastliðinn þriðjudag. Hann hefur fyrir hönd Bandaríkjanna fundað með Halldóri Ásgrimssyni sjávarútvegsráðherra um hval- veiðar íslendinga. Viðræðunum er ólokið og á meðan verða engir hvalir veiddir. Heimildir í Washington telja að Dr. Calio verði áfram fulltrúi Bandaríkjanna í Alþjóða hvalveiðiráðinu. Dr. Anthony J. Calio stjómaði frá 7. október 1985 þeirri deild viðskiptaráðuneytisins í Washing- ton sem hefur umsjón með nýtingu og vemdun auðlinda í hafi og lofti (National Oceanic and Atmospheric Administration (NOAA)). Frá 1981 var Dr. Calio aðstoðarmaður Johns Byme yfirmanns NOAA. Áður hafði hann um 18 ára skeið gegnt ýmsum stjómunarstöðum hjá bandarísku gehnferðastofnuninni. Nýi viðskiptaráðherrann, C. William Verity, hefur enn ekki út- nefnt eftirmann Dr. Calio, en núverandi aðstoðarmaður sjávarút- vegsráðherrans heitir J. Curtis Mack II. Malcolm Baldrige fyrrum viðskiptaráðherra, sem lést af slys- fömm í síðasta mánuði, og Dr. Calio áttu mjög gott samstarf. Heimildarmenn í Washington telja að Dr. Calio, sem er á sextugs- aldri, hafi viljað nota tækifærið og breyta til úr því að nýr maður er tekinn við viðskiptaráðuneytinu. Talsmenn hvalavinasamtaka em á báðum áttum hvort þessi breyting verði til góðs eða ills. Aðrir benda á að eftirmaður Dr. Calio gæti hugsanlega sýnt enn meiri hörku í hvalveiðimálinu. Dr. Calio hverfur frá störfum í viðskiptaráðuneytinu 12. septem- ber næstkomandi og hefur verið ráðinn til ráðgjafafyrirtækisins Planning Research Corporation í Washington. Kunnugir telja að Dr. Calio verði fenginn til að gegna áfram starfi fulltrúa Banda- ríkjanna hjá Alþjóða hvalveiðiráð- inu, en þar hefur hann verið eindreginn talsmaður hvalavemd- arstefnu. mærabæinn Aouzou í norður- hluta landsins. Að sögn herráðs Chad féllu 290 Líbýumenn í fyrstu hrinu harðra bardaga og fimm líbýskar flugvélar voru skotnar niður. Líklegt er talið að mannfall Líbýumanna nemi nokkrum hundruðum, en aðeins fimmtán úr liði Chad féllu. Líbýumenn hertóku bæinn fýrir 14 ámm en Chadbúar náðu honum aftur á sitt vald þann áttunda þessa mánaðar. Chad tók 39 fanga, þar á meðal foringja innrásarliðsins. í tilkynn- ingu frá sendiráði Chad í París sagði að innrásarliðið hefði flúið í „al- gjörri ringulreið" og að svæðið væri í tryggum höndum hers Chad. Gaddafi Llbýuleiðtogi varaði I gær Bandaríkjamenn og Frakka við því að veita Chadbúum lið í stríði landanna og sagði að liðveisla þeirra gæti orsakað „óútreiknanlega og hættulega þróun.“ Frakkar hafa 1200 manna her í Chad, sem er fyrmm nýlenda þeirra, og Banda- ríkjamenn sjá landinu fyrir vopnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.