Morgunblaðið - 21.08.1987, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.08.1987, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 t Ástkær faðir okkar, EINAR SVEINSSON, Melteigi 19, Keflavík, lést í sjúkrahúsi Keflavíkur aðfaranótt 20. ágúst. Börn hins látna. t Móðurbróðir minn, SIGHVATUR GÍSLASON, Vík-Mýrdal, andaðist á Ljósheimum, Selfossi, miðvikudaginn 19. ágúst. F.h. systkina og annarra vandamanna, Jónína Böðvarsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, BÁRA JÓNSDÓTTIR, Hólmagrund 1, Sauöárkróki, sem lést sunnudaginn 16. ágúst veröur jarðsungin frá Sauðár- krókskirkju laugardaginn 22. ágúst kl. 14.00. Lára Angantýsdóttir, Sigurgeir Angantýsson, Anton Angantýsson, Sigrún Angantýsdóttir, Birkir Angantýsson, María Angantýsdóttir, Matthías Angantýsson, Sigurlaug Angantýsdóttir og Gunnar Haraldsson, Dóra Þorsteinsdóttir, Halla S. Jónasdóttir, Jón Dalmann Pétursson, Hafdfs Guðnadóttir, Benedikt Agnarsson, ömmubörnin. t Eiginmaður minn og faðir okkar, RÖGNVALDUR RÖGNVALDSSON, vélstjóri, Urðarbakka 12, Reykjavík, er lést í Borgarspítalanum 18. ágúst verður jarðsunginn frá Ás- kirkju mánudaginn 24. ágúst kl. 15.00. Guðlaug Magnúsdóttir, Ragnheiður Rögnvaldsdóttir, Guðný Rögnvaldsdóttir, Matta Rósa Rögnvaldsdóttir, Sigrfður Rögnvaldsdóttir, t Dóttir mín, GUÐRÚN ELÍSABET ÁGÚSTSDÓTTIR, Aðalstræti 25; ísaflrði, verður jarðsungin frá Hnífsdalskapellu laugardaginn 22. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlega bent á líknarstofnanir. Fyrir hönd aðstandenda, Ágúst Pótursson. t Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÍÐAR RÓSANTSDÓTTUR, Úthll'ð 11. Marteinn Guðjónsson, Sigurrós Guðjónsdóttir, Guðjón St. Marteinsson, Valur Marteinsson, Guðrún Hjartardóttir, Eyjólfur Guöjónsson, Hjörtur Marteinsson, Anna Eyjólfsdóttir. t Alúðarþakkir til allra þeirra einstaklinga og félagasamtaka sem heiðruðu minningu ÞORGERÐAR EINARSDÓTTUR, Faxabraut 12, Keflavfk, við andlát hennar og útför. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilanna Hlévangs og Garðvangs fyrir góða umönnun. Sigríður Einarsdóttir og aðrir vandamenn. Aðalbjörg Þórðar- dóttir—Minning Fædd 10. apríl 1913 Dáin 17. ágúst 1987 í dag kveðjum við föðursystur okkar, Aðalbjörgu Þórðardóttur, sem andaðist í Borgarspítalanum 17. þ.m. Aðalbjörg hafði átt við nokkur veikindi að stríða að undan- förnu en samt kom andlát hennar að óvörum. Aðalbjörg fæddist 10. apríl 1913 í Reykjavík, dóttir hjónanna Þórðar Þórðarsonar kaupmanns og konu hans, Þórnýjar Þórðardóttur. Hún ólst upp í hjarta Reykjavíkur, við Grettisgötu og Laugaveg, þar sem faðir hennar rak verslun. Þau hjón áttu 7 böm sem nú em öll látin. Við bróðurbörn Aðalbjargar, böm Jóns Þórðarsonar, eigum ljúfar endurminningar um Öllu frænku. Hún fylgdi okkur systkinum frá bernsku og fram á fullorðinsár og síðan börnum okkar og barnabörn- um. Hún var miðpunktur allra fjölskyldufagnaða. Hún var óað- skiljanlejgur hluti af fjölskyldum okkar. A hveiju aðfangadagskvöldi í áratugi kom hún til okkar og í okkar augum vom engin jól án hennar. Sem börn nutum við þess að heimsækja Öllu á heimili hennar sem alla tíð bar vott um snyrti- mennsku og smekkvísi. Stundum fengum við að dvelja næturlangt og þá voru gjarnan matreiddar kótelettur í hádegismat daginn eftir og síðan farið í gönguferð eða þrjú- bió. Alla starfaði m.a. um árabil á barnaleikvellinum við Hringbraut. Þangað komu mörg bama okkar og köllu völlinn „011u-róló“. Þar vom þau og öll börnin í hverfinu umlukin þeirri ástúð og hlýju sem Minning: Pétur Pétursson Fæddur 25. ágúst 1960 Dáinn 12. ágúst 1987 Þú, Guðs míns líf, ég loka augum mínum í líknar mildum fóðurörmum þínum og hvíli sætt þótt hverfi sólin bjarta ég halla mér að þínu fóðurhjarta. M. Joch. Enginn vafi er, að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Það var hringt til mín einn morgun- inn og mér tilkynnt að Pétur væri dáinn, hann Pétur litli eins og við kölluðum hann oftast. Hann var í okkar augum eins og lítið blóm, blátt blóm, sem við nefnum Gleym mér ei. Við hjónin kynntumst foreldmm hans, Birnu Björnsdóttur og Pétri Pálssyni, þegar hann var um 6 ára aldur. Pétur var sólargeisli okkar allra, aðeins viðkvæmt blóin, sem manni fannst alltaf þyrfti svolítið að hlúa að. 1983 var hann gestur okkar í sumarbústaðnum og við eigum eftir hann smá grein í gesta- bókinni sem mun alltaf minnaokkur á hann. Guðs blessun fylgi Pétri á æðri stigum. Við hjónin og fjölskyldur okkar vottum foreldrum hans, systur og systursyni innilegar samúðarkveðj- ur. Ágústa Sigurðardóttir + Innilegt þakklæti færum við öllum sem sýndu okkur vinsemd og hlýhug vegna fráfalls elskulegs eiginmanns, sonar, föður og tengdaföður, JÓNS S. GUÐNASONAR arkitekts, Sigrid Lödemel Guðnason, Ragnhildur Á. Jónsdóttir, Maria Kristín Jónsdóttir, Guðbjörn Jónsson, Rúnar Jónsson, Guðlaugur Bergmundsson. t Alúðarþakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jaröarför eiginmanns míns, föður, tengda- föður og afa, HERMANNS ÖSTERBY, sem andáðist 1. ágúst 1987. Ólöf Österby, Sigrid Österby, Ásbjörn Österby, Leif Österby, Eva Österby, tengdabörn og barnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för konu minnar, móður, dóttur, og stjúpdóttur, GUÐLAUGAR RAGNHILDAR ÚLFARSDÓTTUR, Seljabraut 38, Reykjavík, Hinrik Sigurjónsson, Úlfar Hinriksson, Rut Hinriksdóttir, Hrefna Svava Þorsteinsdóttir, Eyjólfur Arthúrsson. Lokað Lokað í dag, föstudaginn 21. ágúst, frá hádegi vegna jarðarfarar PÉTURS PÉTURSSONAR. HÁTÆKNI HF. einkenndi Öllu alla tíð. Þökkum samfylgdina. Agnar, Erla, Þórný, Jónína og Magnús Þór. Pétur P. er farinn. Hann sagði nú reyndar sjálfur í eitt af fyrstu skiptunum sém við hittumst að hann yrði ekki gamall maður. Ekki var það tekið alvarlega en kannski vissi hann það. Ef til vill hafði hann líka rétt fyrir sér þegar hann talaði um fyrri líf, geimferðir að nætur- lagi og önnur dulræn fyrirbrigði en hann hafði mikinn áhuga á öllu yfirnáttúrulegu og hafði gaman af að segja frá reynslu sinni. Þótt Pétur næði ekki 27 ára aldri mátti hann reyna margt. Hann var með þeirri ógæfu fæddur að geta ekki tekið þátt í lífsbaráttunni til jafns við aðra, en um leið of þrosk- aður til að geta lifað áhyggjulausu lífi barnsins. Þetta fann Pétur vel og var lífið honum því ekki auðvelt stundum. Pétur dvaldi í Tjaldanesi síðustu árin sín og vann jafnfrarnt með okkur við ræktunarstörf, einkum á sumrin. Virtist hann hafa ánægju af þeim störfum og leysti þau verk- efni sem honum voru falin af samviskusemi og trúnaði. Nú er Pétur farinn í sína síðustu geimferð, þá sem hann á ekki aftur- kvæmt úr. Við hér söknum hans öll. Megi Guð fara um hann mildum höndum. Við þökkum Pétri kynnin og alla þá einlægni sem hann sýndi okkur og vottum foreldrum hans og systur samúð okkar. Heimilisfólkið að Hreggstöðum, Mosfellsdal. Hótel Saga Simi 12013 Blóm og skreytingar við öll tœkifœri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.