Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 1
fftmgantlifftfeUk
VIKAN 28. ÁGÚST TIL 3. SEPTEMBER
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
BLAÐ
Efni fyrir unga og aldna
þessa vikuna
Á síðum þessa blaðs í dag gefur að líta mun meiri umfjöllun um barnaefni en oft áður.
Sem fyrr er fjallað um barnaefni í útvarpi og sjónvarpi, þar sem af nógu er að taka, sér-
staklega um helgar á sjónvarpsstöðvunum, en þar að auki má geta þess að núna er verið
að lesa barnasöguna ítölsku um Gosa í Morgunstund barnanna, í þýðingu sem er sú
fyrsta óstytta á íslensku um spýtustrákinn. En það er ekki bara í fjölmiðlunum sem barna-
efni ber á góma, það ræður ríkjum í myndbandaumfjöllun blaðsins í dag og að nokkru leyti
í kvikmyndaumfjöllun. Þar eru teiknimyndir í meirihluta, eins og reyndar gerist hjá Sjón-
varpinu og Stöð 2, sem nú hefur fastráðið leikara til að lesa inn á teiknimyndir vetrarins
og ætlar að láta „Afa garnla" sjá um að kynna barnaefnið á laugardögum, en í hlutverki afa
er Örn Árnason leikari.
Það er ekki bara fyrir þá allra yngstu sem myndir eru sýndar, unglingarnir fá einnig
sitt. Þessa vikuna hefjast í Sjónvarpinu framhaldsþættir sem ætlaðir eru unglingum. Ber
þar að nefna ástralska myndaflokkinn Súrt og sætt sem segir af nokkrum unglingum sem
stofna rokkhljómsveit og reyna að koma sér á framfæri.
Af kvikmyndum þessa vikuna má nefna að helgarmyndir Sjónvarpsins eru Lárentíusar-
nótt fræg kvikmynd þeirra ítölsku Tavini bræðra um hörmungar í kjölfar síðari heimstyrjald-
arinnar. Hún verður sýnd á föstudagskvöld, en á laugardagskvöld er það myndin
Laumuskór bresk bíómynd um ungan mann sem vill verða einkaspæjari. Stöð 2 sýnir á
föstudagskvöld kvikmyndirnar Dóttir Rutar, Leiðin tii frelsis og loks Carny. Á laugardags-
kvöld verður síðari mynd Coppola um Guðföðurinn sýnd með Al Pacino og Robert
DeNiro m.a. í aðalhlutverkum, auk myndarinnar Fyrsti mánudagur í október. Af öðrum
kvikmyndum Stöðvar 2 í vikunni má nefna síðari hluta Ike, gamanmyndina Micky og
Maude og myndina Gróft handbragð með David Niven í hópi leikara.
Afmæli Akureyrar kemur mikið við sögu um afmælishelgina, í Ríkisútvarpinu á Akur-
eyri, Rás 2, á Hljóðbylgjunni og í Sjónvarpinu.
í lokin má svo geta þess að Sjónvarpið hefur ákveðið að endursýna þættina um Ríki
ísbjarnarins á laugardagssíðdegi. Er þetta gert vegna fjölda áskorana og hefjast sýning-
ar þegar lokið er endursýningum á Nærmyndum af Nicaragua.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2—14
Útvarpsdagskrá bls. 2—14
Spurt & svarað bls. 14
Veitingahús bls. 7/9/11
Skemmtistaðir bls. 9
Kvikmyndaumfjöllun bls. 9/12/15
Bíóin í borginni bls. 5
Myndbönd bls. 13
Guðað á skjáinn bls. 2
Hvað er að gerast? bls. 15/16