Morgunblaðið - 27.09.1987, Blaðsíða 1
112 SÍÐUR B/C
218. tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
William Casey
Casey á banabeði:
Fullkunnugl
um greiðslur
til kontra
Wanhington, Reuter.
BANDARÍSKA vikuritið U.S.
News and World Report greindi
frá því í gær að William Casey
heitinn, yfirmaður bandarísku
leyniþjónustunnar CIA, hefði á
dánarbeði viðurkennt að haf a vit-
að að greiðslur írana fyrir
bandarisk vopn runnu i vasa
skæruliða í Nicaragua.
Þetta kemur fram í væntanlegri
bók Bobs Woodward um „Leynistríð
CIA, 1981-1987“. Einnig segir, að
CIA hafi haft ýmsa þjóðarleiðtoga á
launaskrá, þ. á m. Bashir Gemayel
forseta Líbanons, sem féll fyrir hendi
morðingja. Að auki hafi leyniþjónust-
an upplýsingar um að Moammar
Gaddafy Líbýuleiðtogi klæðist gjarn-
an kvenmannsfötum.
Leitir í Landmannalaugum
Morgunblaðið/RAX
Friðarumleitanir í Persaflóastríðinu:
Baghdad, Washington, Bahrain, Reuter.
ÞOTUR úr flugher íraka réðust
í gær á tvö olíuskip á Persaflóa.
Árásir þessar voru gerðar fáein-
um klukkustundum eftir að
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
fól Javier Perez de Cuellar,
framkvæmdastjóra samtakanna,
að reyna á ný að stilla til friðar
með Irönum og írökum. Banda-
ríkjamenn hafa sökkt írönsku
herskipi sem þeir náðu á sitt
vald á mánudag eftir að þyrlur
höfðu tvívegis gert árásir á það.
í tilkynningu íraka sagði að or-
ustuþotur úr flugher þeirra hefðu
ráðist á tvö skip skammt undan
strönd íran. Af orðalagi mátti ráða
að annað skotmarkið hefði verið
risaolíuskip. Undanfarinn mánuð
hafa írakar tilkynnt um 26 árásir
á olíuskip á Persaflóa en þær höfðu
legið niðri um nokkurt skeið.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hefur ákveðið að veita Javier Perez
de Cuellar umboð á ný til að freista
þess að koma á vopnahléi í Persa-
flóastríðinu, sem staðið hefur í sjö
ár. Fyrr í mánuðinum átti de Cuell-
ar fundi með ráðamönnum ríkjanna
tveggja en þeir reyndust árangurs-
lausir. George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði á
blaðamannafundi að hann teldi eng-
ar líkur á því að íranir féllust á
vopnahlé. „Eg tel að saman þurfi
að fara vilji og þolinmæði en hún
er af skomum skammti," sagði
Shultz. Þrátt fyrir þetta samþykkti
Bandaríkjastjóm að áfram yrði
unnið að því á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna að fá ríkin tvö til að fall-
Noregur:
Sovétmenn
eyðileggja
veiðarfæri
Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara i
Moreunblaðsins.
SOVESK her- og kaupskip hafa
eyðilagt umtalsverðan fjölda.
veiðarfæra norskra sjómanna að
undanförnu. Hafa sjómenn sem
stunda veiðar undan eyjunni
Senja i Norður-Noregi orðið fyr-
ir miklum skakkaföllum.
Sovésku herskipin hafa fylgst.
með flotaæfingum Atlantshafs-
bandalagsins, sem fram fara á
þessum slóðum, og ganga undir
kenniheitinu „Ocean Safari". Að
sögn norskra sjómanna hafa sov-
éskir kafbátar einnig eyðilagt
veiðarfæri þeirra. „Við höfum hróp-
að aðvörunarorð til Sovétmannanna
og bent þeim á að veiðarfærin séu
úti, en þeir láta það sem vind um
eyru þjóta,“ segir Per Ole Benja-
minsen, sem hefur misst veiðarfæri
að verðmæti tugþúsunda norskra
króna í hyldýpi hafsins. Litlar líkur
eru á því að norsku sjómennimir
fái tjónið bætt þar sem þeir hafa
verið við veiðar á alþjóðlegu haf-
svæði.
Öryggisráð SÞ veitir
de Cuellar umboð á ný
Raffhdad. Wanhinolon. Bahrain. Reuter. ^
ast á vopnahlé. Bandaríkjamenn og
Bretar hafa hvatt til þess að gripið
verði til refsiaðgerða og vopnasölu-
banns gegn írönum þar eð þeir
hafa neitað að virða ályktun Örygg-
isráðsins um tafarlaust vopnahlé.
Ástralía:
Sovéskur
njósnavagn
Canberra, Reuter.
ÁSTRALSKUR vamarmálasér-
fræðingur hefur sakað Sovét-
menn um að nota sendiferðabif-
reið búna fullkomnum
rafeindabúnaði til njósna um
starfsemi ríkisstofnana í Ástralíu.
Sérfi-æðingurinn, Desmond Ball,
birti þessar ásakanir í tímaritinu
Pacifíc Defence Reporter. Hann seg-
ir Sovétmenn ítrekað hafa lagt
bifreiðinni fyrir utan vamarmála- og
utanríkisráðuneytin, skrifstofu for-
sætisráðherrans og aðalstöðvar
áströlsku leyniþjónustunnar. Sendi-
ferðabifreiðin er að hans sögn hluti
af umfangsmiklu háþróuðu njósna-
kerfi Sovétmanna.
George Bush í Póllandi:
Horfur góðar þrátt
fyrir fyrri vandamál
Varsjá, Reuter.
GEORGE Bush, varaforseti
Bandaríkjanna, kom í opinbera
heimsókn til Varsjár í gær.
Sagði hann við komuna að
Bandaríkjamenn vildu hjálpa
Pólveijum að ná þjóðarsátt, en
þeir leituðust ekki við að skipta
sér af pólskum innanríkismál-
um. Kvað hann horfur góðar í
Póllandi þrátt fyrir vandamál
undanfarinna ára.
Bush las stutta yfirlýsingu á
flugvellinum í Varsjá og vísaði
þar til tregra samskipta ríkjanna
frá því að verkamannasamtökin
Samstaða voru kveðin niður með
herlögum árið 1981. „Ég er hing-
að kominn í þeirri von að koma
megi á traustu sambandi milli
stjóma okkar,“ sagði Bush.
Bush er háttsettasti embættis-
maður frá Bandaríkjunum, sem
komið hefur til Póllands í tíu ár.
Heimsókn hans er talin bera batn-
andi samskiptum Bandaríkja-
manna og Pólveija á undanfömu
ári vitni. Hann verður fjóra daga
í Póllandi og mun meðal annars
hitta Lech Walesa, leiðtoga ólög-
legu samtakanna Samstöðu.
Bush er talinn líklegastur til
að hreppa útnefningu Repúblik-
anaflokksins til forsetaframboðs
í kosningunum 1988. Litið er á
ferðalag hans sem hluta af kosn-
ingabaráttunni og segja stjóm-
málaskýrendur að varaforsetinn
vilji sýna fram á að hann sé hæf-
ur stjómmálamaður á alþjóðleg-
um vettvangi.