Morgunblaðið - 27.09.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987
Ók á ljósastaur
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Bifreið var ekið á ljósastaur á Elliðavogi á móts við Kleppsspítalann í fyrrinótt. Okumaður var
fluttur á slysadeild en reyndist ekki alvarlega slasaður. Þá urðu tveir árekstrar vegna þess að ekki
var gengið nægilega vel frá bifreiðum þannig að þær runnu sjálfar af stað og rákust á aðra bíla.
Landsfundur Borgaraflokksins:
Ekki lögð áhersla
á samstarf við NATO
LIÐLEGA hundrað manns voru á
landsfundi Borgaraflokksins í
gær þegar ályktanir voru af-
greiddar en fjallað var um hina
ýmsu þætti þjóðmála. Eitt af þeim
viðkvæmu deilumálum sem um
er fjallað á fundinum er þátttaka
íslands í Atlantshafsbandalaginu.
í áliti um alþjóða- og öryggismál
er sagt að Island eigi samstöðu
með öðrum vestrænum þjóðum
vegna menningar og sögu þjóðar-
innar og mikilvægt sé að taka
þátt í samvinnu þjóðanna og norr-
ænni samvinnu. Ekki er tekið
Launahækkun um 7,24% 1. október:
Raungengi krónunnar
hækkar um rúmlega 6%
- miðað við launakostnað í helstu viðskiptalöndunum
ÚTREIKNINGAR Seðlabankans
sýna að almenn launahækkun
um 7,24% 1. október þýði 6,2%
hækkun á raungengi krónunnar
milli 3. og 4. ársfjórðungs þessa
árs miðað við launakostnað á
einingu landsframleiðslu. Hefðu
launin hinsvegar hækkað um
1,5% þann 1. október þýddi það
0,5% hækkun á raungengi. Þess-
ar tölur endurspegla stöðu
útflutningsatvinnuveganna og
framleiðslukostnað hér miðað
við helstu viðskiptalöndin.
Þessir útreikningar Seðlabank-
Reykjavík:
Bylgjan sæk-
ir um lóð
ÍSLENSKA útvarpsfélagið hf.,
Bylgjan, hefur sótt um lóð í
Sigtúnsreit til borgarráðs.
Borgarráð vísaði umsókninni til
skrifstofusljóra borgarverk-
fræðings.
í bréfí félagsins kemur fram að
það rekur starfsemi sína í 300
fermetra leiguhúsnæði. Heimild sé
fyrir að reka aðra útvarpsstöð en
engin leið sé að reka starfsemi
stöðvanna í núverandi húsnæði.
Verið er að koma af stað inn-
lendri útvarpsleikritun, vinna að
gerð skemmtiþátta og undirbúa
fræðsludagskrá. Stöðin greiðir
10% af auglýsingatekjum sínum
til Menningarsjóðs útvarpsstöðva
og hefur sótt um verulegar upp-
hæðir til sjóðsins til viðameiri
þáttagerðar.
Þá segin „Með nýrri stöð félags-
ins mun ýmislegt í starfseminni
eflast og þá verður ekki undan því
vikist að skapa starfsfólki stöðv-
anna viðunandi vinnustað. Nú
vinna að jafnaði 25—30 manns hjá
Bylgjunni og ljóst er að með til-
komu nýrrar stöðvar mun starfs-
mannafjöldi aukast. Við viljum
leggja nokkuð meira í dagskrár-
gerð og fréttaþjónustu, en það
verður engan veginn gert við nú-
verandi aðstæður."
ans eru miðaðir við launakostnað
í 15 helstu viðskiptalöndum ís-
lands. Einnig er reiknað út raun-
gengi miðað við framfærsluvísitölu
viðskiptalandanna, svokallaðar af-
stæðar verðvísitölur.
Útreikningar á raungengi miðað
við verðlagsþróunina sýnir að það
hefur hækkað jafnt og þétt síðan
1983 þegar það var mælt 89,4
(miðað við 100 árið 1980). Árið
1984 mældist raungengið 94, árið
1985 mældist það 92,7 og árið
1986 mældist gengið 95,4. Á þessu
ári er gert ráð fyrir að raungengið
mælist 103,7 miðað við 7,24%
launahækkun en 103,5 ef laun
hefðu hækkað um 1,5%.
Mun meiri sveiflur koma síðan í
ljós milli ársfjórðunga á þessu ári.
Þannig mælist raungengið 98,9 á
fyrsta ársfjórðungi, 100,9 á öðrum
ársljórðungi og 105,6 á þriðja árs-
fjórðungi. Á fjórða ársfjórðungi er
gert ráð fyrir raungengi 109,5 mið-
að við fyrri forsendur en 108,6
miðað við þær seinni.
Sveiflur á raungengi miðað við
launakostnað hafa verið mun stærri
samkvæmt þessum útreikningum.
Þannig mældist það 84,8 árið 1983,
84,5 árið 1984, 85,8 árið 1985,
86,9 árið 1986 og síðan er gert ráð
fyrir að gengið verði 102,6 á þessu
ári miðað við 7,24% launahækkun,
en 101,1 miðað við 1,5% hækkun.
Ef ársfjórðungar eru bomir sam-
an mældist raungengið 96,9 á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs, 101
á öðrum ársfjórðungi, 103 á þeim
þriðja en síðan er gert ráð fyrir að
raungengið verði 109,4 miðað við
7,24% launahækkun en 103,5 mið-
að við 1,5% launahækkun.
Bretland:
Ýsaná
80 krónur
FISKVERÐ á ferksfiskmörk-
uðunum í Bretlandi hélzt enn
hátt í líðandi viku. Meðalverð
fyrir fisk úr gámum var yfir
vikuna 74,84 krónur á kíló. Á
fimmtudag seldi Hafnarey SU
í Hull og fékk að meðaltali
73,38 krónur á hvert kíló.
Hafnareyin seldi alls 85 lest-
ir, mest þorsk. Heildarverð fyrir
aflann var 6,2 milljónir króna.
Mest af aflanum var þorskur,
sem fór að meðaltali á 75,17
krónur hvert kíló. í vikunni voru
alls seldar 376 lestir úr gámum
fyrir 28,2 milljónir króna. Með-
alverð var 74,84. 187 lestir af
þorski fóru að meðaltali á 72,70,
83 lestir af ýsu á 80,70 og 62
lestir af kola á 79,00 krónur.
Aðrar tegundir seldust á lægra
verði og var mun minna af þeim.
sfram að mikilvægt sé að taka
þátt í Atlantshafsbandalaginu en
hinsvegar að það sé eðlilegt að
endurskoða með reglulegu milli-
bili varnarsamninginn við Banda-
rikin.
Reiknað var með að afgreiðslu
nefndarálita lyki um miðjan dag og
færi þá fram kosning formanns,
varaformanns og annarra embættis-
manna flokksins. Talsverð smölun
hefur átt sér stað til kosninga á
fundinum sem meðal annars sést á
því að fjöldi fundarmanna við af-
greiðslu mála hefur verið á annað
hundrað en liðlega fimm hundruð
hafa skráð sig til þátttöku í kosning-
um.
Ekki er reiknað með miklum átök-
um þar sem það sé mál manna að
Albert Guðmundsson hafí í raun
ákveðið varaformannsefni með því
að gefa út yfírlýsingu um hvern
hann styddi.
Húsgagnasmið-
ir funda hjá
sáttasemjara
ÁRANGURSLAUS sáttafundur í
kjaradeilu húsgagnasmiða og við-
semjenda þeirra stóð til klukkan
3 aðfaranótt laugardags.
Nýr fundur var boðaður klukkan
16 í gær.
Birgir ísleifur Gunnarsson mennta-
málaráðherra:
Ráðuneytið vissi ekki
af útsendingnm á ensku
„ÞETTA mál hefur ekki borist1
menntamálaráðuneytinu og ég
er nú að heyra af því í fyrsta
sinn,“ sagði Birgir ísleifur Gunn-
arsson, menntamálaráðherra,
þegar Morgunblaðið spurði hann
álits á því að hin kristilega út-
varpsstöð, Alfa, hefði undanfarið
sent út þátt á ensku með banda-
ríska predikaranum Jimmy
Swaggart á fimmtudagskvöldum.
„Það er mín eindregna skoðun
að útvarps- og sjónvarpsstöðvar
eigi að útvarpa og sjónvarpa á
íslensku. Þetta eru stöðvar fyrir
íslendinga á íslenskri grundu,"
sagði menntamálaráðherra. Taldi
hann að athuga þyrfti sérstaklega
þessar útsendingar Alfa, en ekkert
væri hægt að segja til um hver við-
brögð ráðuneytisins yrðu fyrr en
fram hefði farið lögfræðileg skoðun
á málinu.
Fundað um fisk-
verð á mánudag
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs-
ins hefur enn ekki komizt að
niðurstöðu um það, hvort verð á
helztu bolfisktegundum verði
áfram fijálst eftir fyrsta október
næstkomandi. Næsti fundur
verður á mánudag og er þá
ákvörðunar að vænta.
Náist ekki um það samkomulag
í Verðlagsráði, að gefa fískverð
áfram frjálst er líklegast, að
ákvörðun um verð verði vísað til
yfimefndar. Samkvæmt lögum þarf
fullt samkomulag í Verðlagsráði til
að fískverð megi gefa ftjálst og
yfímefndinni er óheimilt að ákveða
það.
Kvikmyndahátíð
í dag og mánudag
„UNDIR fargi laganna" (Down
by law), mynd Bandaríkjamanns-
in Jim Jarmush, verður sýnd í
fyrsta skipti á kvikmyndahátið-
inni i dag og verður á öllum
sýningum i A-sal, klukkan 15.00,
17.00, 19.00, 21.00 og 23.00. Það
skal tekið fram að myndin verður
aðeins sýnd í dag.
I B—sal verður „Sagan um virkið
28 þúsund kindur úr
riðuveikihjörðum urðaðar
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
grafa allar þær kindur sem
skoraar verða í haust vegna
aðgerða til að útrýma riðu-
veiki. Eru þetta alls um 28
þúsund kindur eða hátt i 600
tonn af kjöti.
Ákveðið var að urða kjötið
vegna þess að bændur gerðu þá
kröfu að það yrði ekki sett á
almennan neyslumarkað, sem
einungis yrði til að auka birgða-
vandann. Um tíma var ætlunin
að nota kjötið í loðdýrafóður en
frá því var horfíð að ráði dýra-
lækna. Töldu þeir að hætta gæti
verið á hringsmiti út frá kjötinu
og þótti ekki forsvaranlegt að
taka þá áhættu vegna þess að
niðurskurðurinn er Iiður í átaki
til útrýmingar riðuveiki úr
landinu.
Riðuveikihjörðunum verður
slátrað í sláturhúsum og ekkert
hirt nema gæran af þeim. Það
sem skinnaiðnaðurinn borgar
fyrir gærumar fer langt í að
borga sláturkostnaðinn sem um
hefur samist við sláturleyfis-
hafana.
Súsan“ á dagskrá klukkan 15.00,
„Ár hinnar kyrru sólar" klukkan
17.00, „Matador" klukkan 19.00
og 21.00 og „Eureka" klukkan
23.00.
í C-sal fímm myndir sýndar í
dag, „Fangin fegurð" klukkan
15.00, „Tarot" klukkan 17.00,
„Hasarmynd" (Comic Magazine)
klukkan 19.10, „Teresa" klukkan
21.30 og „matador" klukkan 23.15.
Á morgun, mánudag, verða fjór-
ar myndir sýndar í A—sal. Klukkan
15.00 „Fangin fegurð," klukkan
17.00, mynd japanska leikstjórans
Kurosawa „RAN“, klukkan 20.15
„Eureka og að lokum „Komið og
sjáið" klukkan 22.30.
í B—sal verða þijár myndir sýnd-
ar í dag. Klukkan 15.00 og 19.00
„Nautabaninn," klukkan 17.00
„Græni geislinn," og klukkan 21.00
og 23.00 verður sýnd mynd banda-
rísku söngkonunnar Lori Anderson
„Heimili hinna hugrökku."
Dagskráin í C—sal hefst klukkan
15.00 á heimildarmyndinni um gerð
RAN, „A.K.“ Indverska myndin
„Genesis" verður sýnd klukkan
17.00 og 21.00 og „Yndislegur elsk-
hugi“ klukkan 19.00 og 23.00.