Morgunblaðið - 27.09.1987, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987
Á Eurocard
gullkortíð?
„ÞAÐ er fráleitt, að Kreditkort
s.f. (Eurocard) sé að ganga á
rétt Visa með því að gefa út
gullkort og nota það nafn. Sann-
leikurinn er sá, að Eurocard
gullkortið ber heitið gullkort
erlendis. Samsvarandi kort hjá
Visa heitir hins vegar „premium
card“ erlendis, þannig að Visa
Island hefur engan einkarétt til
að nota orðið gullkort. Visa er
ekki bara að taka upp heitið
gullkort frá okkur, heldur reyn-
ir það einnig að koma í veg
fyrir það, að við getum notað
það.“
Þannig komst Hallgrímur Jóns-
son, einn af stjómarmönnum
Kreditkorta sf. að orði á frétta-
mannafundi þar sem hann
og aðrir forráðamenn Kreditkorta
s.f. vísuðu kröfu Visa til heitisins
gullkort alfarið á bug, en sú krafa
var rökstudd með því, að heitið
„Gullkort" hefði verið lögvemdað
og skrásett sem sérstakt vöm-
merki Visa.
Sjóvá stækk-
ar við sig
á Suðurlands-
brautinni
SJÓVÁ hefur fest kaup á tveim-
ur hæðum í húsi, sem verið er
að byggja við hlið Sjóváhússins
við Suðurlandsbraut. Ekki hef-
ur þó verið hætt við að flytja
starfsemina í nýtt hús félagsins
í nýja miðbænum.
Einar Sveinsson framkvæmda-
stjóri Sjóvátryggingafélagsins
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að fest hefðu verið kaup á þessu
viðbótarhúsnæði til þess að leysa
aðkallandi þörf fyrirtækisins. Með
þessu móti yrði tímaálag vegna
byggingar nýja hússins einnig Iétt-
ara.
Að sögn Einars eru teikningar
nýja hússins langt komnar og
byggingarleyfi fengið. Einnig er
búið að grafa fyrir lóðinni og girða
hana. Hið nýja hús verður 6 hæð-
ir og nálægt 3.500 fermetmm að
stærð. Áætlaður byggingartími er
tvö ár.
Eurocard gullkortið.
í bréfi, sem forráðamenn Kred-
itkorta sf. hafa ritað Visa, segir
m. a., að við könnun á máli þessu
hafí komið í ljós, að Vömmerkja-
skrárritara var afhent tilkynning
frá Visa um skráningu vömmerk-
isins 26. ágúst si., en vömmerkið
hefði ekki enn verið auglýst og
engin afstaða tekin til skráningar
þess, enda ekki liðinn tími sá, sem
lögum samkvæmt er gefínn til
athugasemda. Kerditkort myndi
gera athugasemdir við skráningu
vömmerkisins, þegar frestur til
þess jn’ði veittur og þá yrði þess
krafizt, að skráningu þess yrði
hafnað.
Ástæðan fyrir þessu væri sú,
að með þessari umsókn hefði Visa
leitazt við á ótilhlýðilegan hátt að
eigna sér heitið „Gullkort", sem
notað hefði verið á ensku af Euroc-
ard, þegar Visa aftur á móti hefði
notað heitið „Premium Card“.
Samkvæmt lögum er reglan sú,
að þegar vömmerkjaskrá telur
merki vera birtingarhæft, er merk-
ið sent út til birtingar í Vöm-
merkja- og einkaleyfatíðindum.
Unnt er að koma fram með rök-
studd andmæli gegn skráningu
merkisins innan tveggja mánaða
frá birtingardegi auglýsingarinn-
ar. Tveimur mánuðum eftir birt-
ingu, er merkið fyrst skráð og þá
því aðeins, að fram komin and-
mæli hafa ekki verið tekin til
greina. _____
INNLENT
Bílaborg vígði nýtt hús
NÝTT og glæsilegt aðsetur Bíla-
borgar, eins stærsta bifreiða- og
vélafyrirtækis landsins, var tekið
formlega í notkun á föstudag.
Þetta er gert á fimmtánda af-
mælisári Bílaborgar. í nýja
húsinu, sem er að Fosshálsi 1,
verður öll starfsemi fyrirtækis-
ins þ.á.m. söludeUdir og véla-
verkstæði, sem skiptist í
vinnuvélaverkstæði, vörubíla-
verkstæði, bílaréttingaverk-
stæði, nýsmíða-verkstæði og
fullkomna smurstöð. Auk þess
eru í húsinu skrifstofur, sýning-
arsalir, varahlutaverslanir og
annað það sem heyrir undir
rekstur fyrirtækisins. Hjá BUa-
borg starfa nú um 70 manns.
Nýja húsið er milli sjö og átta
þúsund fermetrar, en á gamla
staðnum var fyrirtækið á 2.600
Morgu nblaðið/KG A
Fjölmargir heimsóttu Bílaborg við vigsluna á föstudaginn. -
NUVERANDI
VEGUR
AlafosS&^
Reykjavegur á brú
yfir Vesturlandsveg
Nýr vegarspotti á samþykktu
aðalskipulagi Mosfellsbæjar
VESTURLANDSVEGUR
Vesturiandsvegur
' . á brú yfir- v
^ÁIafossveg
I MOSFELLSBÆ
Aðalskipulag Mosfellsbæjar:
Yesturlandsvegfur færður
AÐALSKIPULAG Mosfells-
bæjar frá 1983 gerir ráð fyrir
að Vesturlandsvegur frá Lan-
gatanga að Varmá verði
færður tU suðurs og austurs frá
þvi sem nú er. Einnig er stefnt
að því að Reylgavegur fari á
brú yfir Vesturlandsveg og að
Vesturiandsvegur fari á brú
yfir Alafossveg
Páll Guðjónsson bæjarstjóri
sagði í samtaii við Morgunblaðið
að þar sem umræddur vegakafli
tilheyrði þjóðvegi númer 1 gæti
bæjarstjóm Mosfellsbæjar ekki
ákveðið hvenær hafist yrði handa
við þessar breytingar heldur væri
það undir Alþingi og Vegagerð
ríkisins komið. Páll sagði enn-
fremur að forsendur skipulags
hefðu að því leyti breyst að gert
hefði verið ráð fyrir að flutnings-
geta Vesturlandsvegar væri næg
til aldamóta. I ljósi þeirrar gífur-
legu aukningar sem orðið hefði í
bílaeign landsmanna á undanföm-
um árum væri vafasamt að sú
áætlun stæðist. Endurskoðun
skipulagsins hefst næstu mánuði
Þá kvaðst Páll fagna fyrir-
hugaðri ijöldagöngu Mosfellinga
til að vekja athygli á því ófremdar-
ástandi sem ríkti í umferðarmál-
um þeirra. Páll kvaðst telja að
grípa yrði til ráðstafana þegar í
stað, ekki væri unnt að bíða eftir
framkvæmd aðalskipulags
Gangan hefst klukkan 16 og
verður gengið frá tveimur stöðum
samtímis, annars vegar frá mót-
um Vesturlandsvegar og Hlíðat-
úns og hins vegar frá mótum
Vesturlandsvegar og Þingvalla-
vegar. Gengið verður að Hlégarði,
þar sem haldinn verður stuttur
útifundur. Þar verður lesin upp
ályktun til samþykktar og afhent
þingmönnum kjördæmisins.
Leitað á 150 þús-
und fermílna svæði
„VIÐ LIFUM enn í voninni um að
Nordfjord finnist," sagði Ágúst
Guðjónsson, útgerðarmaður í Se-
attle í Bandaríkjunum í samtali
við Morgunblaðið á föstudags-
kvöld, en þá hafði skips hans,
Nordfjord, verið saknað síðan
snemma á laugardagsmorgun,
þegar landhelgisgæslunni í Alaska
á afmælinu
fermetra gólffleti. Þetta er því um
þreföldun húsnæðis. Hafist var
handa um byggingu hússins að
Fosshálsi á árinu 1980.
Bflaborg var stofnuð 26. nóvem-
ber 1971 og voru stofnendur þeir
Þórir Jensen, _ Kristinn Breiðfjörð
og Sigurður Ármann Magnússon,
sem er nýlátinn. Fyrstu Mazda-
bflamir, sem voru 24 talsins, komu
til landsins 8. maí 1972 en þá var
fyrirtækið í þijátíu fermetra hús-
næði við Hverfísgötu 76. Það árið
voru seldir 187 bflar. Alls hafa nú
verið fluttir inn 12.000 bflar á 15
árum.
Árið 1975 flutti Bflaborg í 1.000
fermetra leiguhúsnæði í Borgartúni
29, og þar var ennfremur fyrsta
verkstæði fyrirtækisins. Þaðan lá
leiðin að Smiðshöfða árið 1977 og
þar starfaði fyrirtækið þangað til í
maí sl.
í tilefni afmælisins og vígslu
nýja hússins sóttu fulltrúar 15 er-
lendra fyrirtækja Bflaborg heim.
Komu þeir m.a. frá Japan, Holl-
andi, Danmörku og víðar og á meðal
þeirra eru forstjóri Evrópudeildarr
Mazda og forstjóri hollensku DAF
bflaverksmiðj anna.
barst neyðarkall frá skipinu. Það
var við veiðar undan strönd Al-
aska. Skipstjóri á skipinu er
Guðjón Roy Guðjónsson, sonur
Ágústs. Annar íslendingur er með
skipinu, Grétar Halldórsson frá
Vestmannaeyjum. í leitinni að
Nordfjord hefur um 150.000
fermílna svæði verið kannað.
Að sögn landhelgisgæslunnar í
Juneau, Alaska, var það skömmu
eftir klukkan tvö aðfaranótt laugar-
dagsins 19. september, að neyðar-
kallið „Mayday, mayday, this is
Nordfjord" barst og var C130-vél frá
landhelgisgæslunni þegar send af
stað til leitar. Síðan hefur leit staðið
yfir og hafa 2-3 C-130 vélar frá
bandarísku landhelgisgæslunni auk
kanadískrar P3-vélar tekið þátt í
henni. Síðastliðinn mánudag fundu
vélamar eitthvert brak á leitarslóð-
unum en alls óvíst er hvort er úr
Nordfjord.
„Við erum að reyna að átta okkur
á því hvað hafi getað gerst," sagði
Ágúst Guðjónsson. „Það er helst eins
og skipið hafí verið keyrt í kaf. Ég
var í talsambandi við Guðjón á föstu-
dagskvöldinu og þá var veður frekar
slæmt, um 30 mflna vindur. Það er
þó mjög ólíklegt að veðrið hafí vald-
ið þessu. Nordfjord er frekar stórt
skip og þolir mikil veður. Við höfum
stundum lent í allt að 100 mílna vindi
án þess að það hafí sakað." Sagði
Ágúst að ef skipið hefði skyndilega
fyllst af vatni væri það útbúið mjög
öflugum dælum og einnig hefðu ver-
ið til staðar mjög góð slökkvitæki
ef eldur blossaði upp. Björgunarbún-
aður væri einnig mjög fullkominn og
sjálfvirkur. „Við lifum enn í voninni
meðan þeir hafa ekki fundið björgun-
arbátinn en hann hefði undir öllum
kringumstæðum átt að koma upp á
yfírborðið. Landhelgisgæslan leitar
enn og mun væntanlega gera það
þangað til eitthvað fínnst. Þetta eru
auðvitað erfíðir tímar fyrir okkur
héma en við höfum fengið mikið af
hughreystandi símtölum frá íslandi
sem við emm þakklát fyrir." Ágúst
Guðjónsson hefur stundað útgerð frá
Seattle í 25 ár.
Fimm manns em í áhöfn skipsins
sem saknað er, Guðjón Roy Guðjóns-
son, 30 ára, Grétar Halldórsson, 35
ára, Marty Mercer, 30 ára, Chris
Boss, 22 ára, og Bill Schmelfudt 47
ára.
AP
Nordfjord, skip Ágústs Guðjónssonar útgerðarmanns í Seattle, en
þess hefur verið saknað síðan á laugardag. Tveir íslendingar eru í
áhöfn skipsins. __________________|