Morgunblaðið - 27.09.1987, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987
9
15. sd. e. Trin.
Mt. 6; 24.-34.
Hvers vegna eykst lyfjaneyzla
okkar Islendinga svo ört? Við
hljótum að leita eftir orsök og
síðan að verða að horfast í augu
við afleiðingarnar. Það er þekkt
erlendis frá, að aukinni velmeg-
un fylgi aukin lyfjaneyzla og
læknismeðhöndlun, einkum
hvað varðar taugalækningar og
sálgæzlu. Ef þetta er rétt, að
samband sé þarna í milli, virðist
mér að áhyggjumar og kvíðinn
séu orsökin.
Allt í kringum okkur er fólk
fullt af kvíða. Áhyggjurnar
næstum speglast í andliti þess
og fasi. Það er vafalaust mest
áhyggjur um afkomu, húsbygg-
ingu, bílakaup, utanlandsferð,
of mikla fjárfestingu sem lagt
var út í og víxlarnir gefa engin
grið og það er í hættu sem áður
var aflað. Eða eru það áhyggjur
um heimilislífið, kólnandi ást
milli maka, bömin, sem em að
eldast og vaxa frá foreldrum,
stundum með átökum og stund-
um með þögn. Eða em það
áhyggjur varðandi einmanaleika
eða of margbrotin samskipti við
aðra þar sem óheilindi og ótrún-
aður fylgja í kjölfarið. Ef til vill
em það áhyggjur um heilsuna
og mataræði, útlit eða eitthvað
annað. Áhyggjumar virðast alls
staðar geta smogið að, annars
vegar varðandi það sem er liðið
og þar verður engu um breytt
og hinsvegar varðandi þann tíma
sem kemur, en um hann fáum
við heldur engu ráðið.
Þessar áhyggjur hafa áreið-
anlega alltaf fylgt manninum,
en hvers vegna ætli þessar
áhyggjur séu þyngri í velferðar-
þjóðfélagi. Getur verið að það
séu áhyggjur sem varða óheiðar-
leika og tvöfeldni, áhyggjur sem
varða of miklar eignir og ávöxt-
un þeirra, áhyggjur sem varða
of mikla skipulagningu sem
kalla á mikinn hraða og alltaf
tímaleysi, áhyggjur varðandi
ferðalög, sem em farin til
hvíldar en viðkomandi kemur
svo oft þreyttari úr og síðan í
framhaldi áhyggjur af heilsunni,
að hvílast ekki, vakna oft, stund-
um í svitakófi og síðan þessir
margvíslegustu verkir? Höfuð-
verkur og þyngsli, eymsli í
vöðvum og stingir hér og þar.
Auðvitað er leitað til lækna og
ráð þeirra er svo oft lyfjagjöf.
I fjallræðunni segir Jesús aft-
ur og aftur að við eigum ekki
að hafa áhyggjur. Hann segir:
„Verið ekki áhyggjufull um líf
yðar, hvað þér eigið að eta og
hvað þér eigið að drekka, ekki
heldur um líkama yðar, hveiju
þér eigið að klæðast.“ Og hann
bendir okkur til fugla himinsins
og lilja vallarins. Hvert er hann
að beina svari sínu? Til vinnunn-
ar. Ræktu starf þitt vel hvert
sem það er og leggðu þig allan
fram um að gera þitt bezta og
þá hverfa áhyggjumar á braut
og samvizkubitið, sem fylgir því
að hafa ekki gert sitt bezta.
Jesús segir ennfremur: „Verið
ekki áhyggjufullir um morgun-
daginn, því að morgundagurinn
mun hafa sínar áhyggjur; hverj-
um degi nægir sín þjáning.“
Þessi orð tala til þeirra sem sorg-
in og þjáningin hefur mætt, oft
svo skyndilega og óvægið. Þau
segja: Líttu aðeins til dagsins
sem er að líða. Lifðu hann, og
reyndu að sættast við sjálfan
þig og hlutskipti þitt. Reyndu
eins og þú getur að hugsa ekki
lengra, ekki til næstu daga, því
það getur svo margt breyzt,
þjáningin getur jafnvel leitt til
góðs og sorgin getur fengið svo
ótrúleg smyrsl. Og þegar þján-
ingin er þyngst, þá er það
sannarlega nægjanleg byrði eins
dags. Nóttin á að koma með
svefn og hvfld og nýr morgunn
með nýjan dag og ný fyrirheit.
Fyrirheitið er í þessum orðum
Jesú: „Leitið fyrst ríkis hans og
réttlætis og þá mun allt þetta
veitast yður að auki."
Að leita fyrst ríkis hans er
að finna sjálfan sig sem sköpun
Guðs, finna til ábyrgðar gagn-
vart því sem rétt er, vera
talsmaður sannleikans í hverju
máli, taka þátt í lífsbaráttunni,
gleðinni og sorginni með öðrum.
Finna samhljóm og hrynjandi
sköpunarinnar í því sem hendir,
jafnt hvort það er þungbært og
veldur sársauka eða það sem
gleður. Og á þeirri stundu sem
þetta verður hverfa áhyggjumar
á braut.
Þetta gæti verið raunveruleg
lækning svo margskonar verkja
sem við annars reynum að lækna
með lyfjum. Andleg vanlíðan og
áhyggjuefni koma fram á líkama
okkar og ég hygg að engin lyf
geti læknað þau veikindi, aðeins
frestað áhrifum þeirra um sinn.
Og þegar áhrifin koma fram á
ný er oft leitað eftir sterkari
lyfjum, sem enn veita frest eða
leitað til annarra ráða eins og
t.d. að skipta um umhverfi,
skipta um starf, skipta um
maka, skipta um allt sem hægt
er. En hvetju breytir það? Veld-
ur það ekki aðeins enn meiri
sársauka og er tilefni aukinna
áhyggna?
„Leitið fyrst ríkis hans og
réttlætis.“ Leitaðu í einlægni á
hans fund. Bið þú hanr. í bæn
að leysa úr vandamálum þínum.
Treystu á úrlausn hans. Og sé
það eitthvað í fortíð þinni sem
þú kemst ekki frá, talaðu þá um
það í bæn þinni og bið þú um
fyrirgefningu, bið þú um end-
urnýjun og nýjan dag með
morgni og kveldi — „og þá mun
allt þetta veitast yður að auki“.
Gengi: 25. sept. 1987: Kjarabréf 2,309 - Tekjubréf 1,257 - Markbréf 1,158 - Fjölþjóðabréf 1,060
ÞAÐ SKILAR HAGNAÐI AÐ ÞIGGJA RÁÐ SÉRFRÆÐINGA
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS
ÞÚ GETUR TREYST ÞEIM FYRIR SPARIFÉ ÞÍNU:
ÞÚ FÆRÐ EINKARÁÐGJAFA ÞÉR TIL AÐSTOÐAR
Ráðgjafar Fjárfestingarfélagsins eru þrautreyndir á verðbréfa-
markaðinum.Þeir gæta þess að þú fáir hámarks ávöxtun af sparifé þínu.
Upphæðin skiptir ekki höfuðmáli. Þú getur fjárfest í mörgum tegund-
um verðbréfa og byrjað smátt eða stórt. Allt eftir því hvað fjárhagur þinn
leyfir.
Sérfræðingar okkar aðstoða þig við að finna hentugustu leiðina til að
spara og hagnast í fjármálum þínum Það margborgar sig fyrir þig að
koma og ræða við okkur á verðbréfamarkaðinum í Hafnarstræti 7 eða
í Kringlunni.
Við, ráðgjafar Fjárfestingarfélagsins, bjóðum ykkur velkomin.
HVAÐ KEMUR SÉR VEL FYRIR ÞIG?
Þú færð svarið þegar þú kemur og ræðir við ráðgjafa okkar. Þér til
glöggvunar koma nokkur dæmi um leiðir til úrlausnar.
Kjarabréf eru einföld og þægileg til ávöxtunar og söfnunar á sparifé. Þú
getur byrjað með rúmar 1000 krónur til kaupa á Kjarabréfum.
Tekjubréf eru hagstæð þegar þú vilt fá greiddar reglulega tekjur af
sparifé þínu.
Markbréf eru fjárfesting í viðskiptakröfum og skuldabréfum - aðallega
til skamms tíma.
Fjölþjóðabréf þegar þú vilt fjárfesta í innlendum og erlendum hluta-
bréfum.
Fjármálareikningurinn er sérlega hagstæður þegar þú ætlar að ávaxta
stærri fjárhæðir með fjölþættum verðbréfaviðskiptum. Þjónustuþættir
eru fleiri s.s. innheimtu-, tekju- og sparnaðarþjónusta.
Anna Heiðdal Kolbrún Kolbeinsdóttir Pétur Kristinsson
FJARFESTINGARFEIAGIÐ
Hafnarstræti 7 101 Reykjavík S (91) 28566
Kringlunni 123 Reykjavík S 689700
Rósa E. Helgadóttir Valur Blomsterberg
Sípisvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa
ÖSA'SIA