Morgunblaðið - 27.09.1987, Side 27

Morgunblaðið - 27.09.1987, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987 27 Jónas og- Magnús Torfi Ólafsson spjalla saman eftir vígslu Skeiðarár- brúar þegar hringvegurinn var opnaður á mínum ferli sem brúarsmiður. Annar dó þegar pallar sem hann stóð á fóru í ána. Fallið var ekki hátt en hann hefur líklega rotast. Við náðum honum fljótlega úr ánni en það var samt of seint. Mörgum árum seinna drukknaði maður þeg- ar gúmmíbát hvolfdi undir honum. Það gerðist þegar verið var að byggja Borgarfjarðarbrúna. Onnur slys sem menn í mínum flokki hafa orðið fyrir hafa fæst verið alvarleg, en ég sjálfur hef þó verið fremur óheppinn að þessu leyti. Eg datt einu sinni í Ölfusá en þá kom sér að ég hafði lært að synda í sjónum heima við Vatnsleysuströnd og ég gat bjargað mér á sundi þó ég væri í galla og stórum stígvélum, ég losn- aði reyndar fljótlega við þau. Ég brotnaði einnig einu sinni illa á fæti og er með spelkur alltaf síðan. Það varð sprenging inni í skúr sem við vorum að vinna í, kviknaði í kósengasi, og ég kastaðist út á sveli og brotnaði mjög illa um hné- lið hægri fótar. Mennimir tveir sem með mér voru í skúmum brenndust illa, ég slapp við það. Tímakaupið í brúarvinnu hefur verið heldur lágt alla tíð en við höfum hins vegar alltaf unnið lang- an vinnutíma og þannig fengið allgóð laun. Hitt er svo annað að ef menn em á annað borð komnir í þetta þá er eins og eitthvað dragi þá í þetta aftur, líkt og sagt er að gerist með sjómenn. Þegar líða tek- ur að vori fara menn að ókyrrast og vilja komast út á land, út í nátt- urðum við að hugsa um okkur sjálf- ir hvað allt snerti nema mat. Við þvoðum af okkur og gripum til ýmissa ráða til að leysa þau mál. Oft vomm við svo lengi í hverri sveit að fólkið í kring var farið að líta á okkur sem heimamenn og veitti okkur ýmsa aðstoð t.d. við þvotta. Ráðskonumar vom með þvottabretti sem við fengum lánuð og reyndum að nudda úr fötunum á þeim. Við vomm yfirleitt tveir í tjaldi og það var olíuvél í hvetju tjaldi. Við höfðum það þannig að þegar við vomm búnir að vinna þá hituðum við vatn í fötu til að þvo okkur og gættum þess þá að báðir gætu þvegið sér um andlit áður farið yrði að þvo hinn hluta líkam- ans. Eins var það ef menn þurftu að þvo, þá vom nærfötin sett í fötu, og soðin og síðan vom önnur fata- plögg þvegin á eftir. Eitt skorti okkur aldrei og það var vatn. Það var alltaf mjög nálægt tjaldbúðun- um, en samt kom oft fyrir að það væri metingur um hver ætti að sækja vatnið út í ána. Um þetta stóðu oft miklar deilur enda verða menn alls staðar að hafa eitthvað til að þrasa um. Til alvarlegra ágreiningsmála eða slagsmála kom hins vegar sjaldan. Það var oft erfitt fyrir okkur tjaldbúanna að kveðja þegar við höfðum verið lengi á sama stað og oft vom okkur haldin kaffisamsæti í restina. Fyrir kom að okkur væm haldin samsæti í samkomuhúsunum t.d. í Öræfunum, enda byggðum við Unnið við brúargerð á Hvítá við Iðu í Árnessýslu að breikka veginn upp í Hvalfjörð. Við vomm búnir að gera þetta fínt og gera góð ræsi og fleira. En svo komu Ameríkanar og mddu öllu burtu sem við höfðum gert, þá þurftu þeir enn breiðari veg. Brýrn- ar hafa raunar verið að smá breikka eftir því sem árin hafa liðið. Áður en ég bytjaði sögðu reglur að brýr skyldu vera a.m.k. þrír metrar. Stuttu seinna var því breytt í 3,30 m. og nú em þær allt uppí 6 metr- ar á breidd. Menn vom alltaf að spara og rauði þráðurinn gegnum öll þessi ár hefur verið að gera ekki meira en bráðnauðsynlegt hef- ur þótt. Lífshættir brúarvinnumanna Skúraþyrping við Fossá í Hvalfirði (L- Við í brúarvinnuflokkunum sótt- um skemmtanir í þeim sveitum þar sem við dvöidum í það og það skipt- ið og það var oft gaman. Eitt og annað gerðum við okkur líka til skemmtunnar í tjaldbúðunum. Við spiluðum á kvöldin og tefldum og svo vorum við í útileikjum svo sem fótbolta og þess háttar. Það var helst að það væri hráslagalegt í tjöldunum á haustin þegar fór að kólna og rigna. Fyrst þegar ég byij- aði í brúarvinnunni mynduðu menn með sér matarfélag, þá var keypt hráefni og kostnaði deilt niður en laun ráðskonu borgaði vegagerðin. Þetta breyttist um 1960, þá komu svokallaðir fæðispeningar. Það gekk alltaf vel að fá ráðskonur, það voru allar vitlausar í að komast í slíkt. Þetta þótti ágæt vinna þó launin væru lengi vel ekki góð, það er breytt núna.“ Ég spurði Jónas hvort þeim færi ekki að fækka þeim ám sem óbrúað- ar væru á landinu. Jú, hann kvað svo vera, en hins vegar þyrfti stöð- ugt að vera að endurnýja brýr, þær gömlu svöruðu ekki kröfum tímans og yrðu því að víkja fyrir nýjum brúm og svo væri hitt að oft þyrfti að brúa árnar á fleirum en einum stað. „Ég hef stundum byggt margar býr yfir sömu ána,“ sagði Jónas. „Við brúargerð finnst okkur alltaf undirstöðurnar skipta mestu máli, hvernig gengur að komast upp úr vatni eins og við köllum það. Það þykir gott að byggja á klöpp. Sé byggt á eyrum þarf að reka niður staura og grafa fyrir stöplum. Þá er meiri hætta á að grafi smám saman undan brúnum. Nú eru löngu komin tæki til að reka stauranna almennilega niður og dælur til að nota á meðan og því hefur aðstaðan ti! að vinna við þetta gjörbreyst. Brúarvinna er ekki hættulaust starf. Ég hef misst tvo starfsmenn Jónas Gíslason ásamt konu, börnum, tengdadóttur og barnabörnum fyrir utan húsið við Marbakkabraut. Myndin er tekin fyrir nokkrum árum. Efst stenda Þorgerður og Jónas, þá Þorleifur, Gísli og kona hans Aðalbjörg með son þeirra Eirík. Fyrir neðan standa f.v. Björg með fyrsta barnabarnið, Gerði, tvíburarnir Flosi og Elín og Ivar. A myndina vantar Magnús, mann Bjargar. Nýja brúin yf ir Síká í Hrútafirði, gamla brúin fyrir neðan þá nýju Upplýst tjaldborg á rökkvaðri ágústnótt úruna. Yfir vetrartímann höfum við lengst af unnið hér fyrir sunnan hjá Vegaverðinni, mest við bygg- ingar, við að smíða vegavinnuskúra og fleira . Eftir að við Þorgerður giftum okkur bjuggum við í Reykjavík í þrjú ár en svo fluttum við til Kópa- vogs. Ég sótti um lóð í Reykjavík en fékk ekki. Kunningi minn kom mér þá í samband við Finnboga Rút sem var oddviti hérna þá og hann útvegaðí okkur lóð. Þá hét þetta Kársnesbraut 10 e, seinna varð þetta Kársnesbraut 30 og nú er þetta Marbakkabraut 19. Ég bytjaði strax að steypa upp kjallar- ann en varð að hætta áður en ég gat lokið við það verk, ég hafði ekki ineira timbur, það var skammt- að þá. Við fluttum svo hingað j mars 1953 og þá var húsið hálfkar- að. Þó ég væri girtur maður og kom- inn með fjöldskyldu þá lifði ég eigi að síður hálfgerðri piparsveinsti’- veru talsverðan hluta af árinu. Lifði í karlasamfélagi en auðvitað fylgdi ég ekki félögum mínum í sama mæli og verið hafði áður en ég gifti mig. Ef farið var á skemmtanir fór ég þó alltaf með _en hafði svona hægara um mig. I brúarvinnunni þar margar bryr og vorum þar mörg sumur. Við byggðum fyrstu brúna þar árið 1954 en þá síðustu árið 196'i, þegar við brúuðum Jök- ulsá á Breiðumerkursandi. Seirn.a var Skeiðará brúuð og þá var hring- vegurinn opnaður. Við sögðum stundum að við hefðum oftlega orð- ið að seinka för okkar um einn dag til að geta komið á alla þá bæi sem við áttum heimboð á. þetta er svona nærri því satt. Hitt er hins vegar gullsatt að okkur var alls staðar mjög vel tekið og fólk var mjög glatt þegar við komum til að byggja brýr yfir ár sem kannski höfðu ver- ið fólki farartálmi frá alda öðli. Maður fann það vel á þessum ferðum hve það var lengi vel mikill munur á sveitabrag í hinum ýmsu sveitum landsins, nú finnst mér þetta hins vegar allt saman orðið eins. Oxaríjörðurinn var sérstaklega myndarleg sveit og ég man að mér þótti það merkilegt hve vel búnar húsgögnum stofurnar á bæjunum þar voru á árunum í kringum stríð. Maður kom í margar fínar stofur í þeirri sveit. Afkoma hefur vafalaust verið þar góð, enda er Öxarfjörðuv-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.