Morgunblaðið - 27.09.1987, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.09.1987, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987 ,y4Jlir brúar- smiðir vilja byggja hengibrýr44 inn góð sveit og rekinn þar myndarlegur búskapur. Kosningabrýr Maður varð ekki mikið var við pólitík í sveitunum hér áður fyrr og voru þó margar af brúarfram- kvæmdunum runnar undan rifjum alþingsimanna sem vildu láta að sér kveða fyrir kosningar. Stundum kom fyrir að við vorum sendir til að byggja „kosningabrýr". Það var hart barist um atkvæðin á þeim árum. Ég minnist þess að einu sinni vorum við sendir upp í Borgarfjörð til að byggja eina slíka og um sama leyti fór annar flokkur að byggja aðra kosningabrú. Við lukum við okkar brú en þeir kláruðu aldrei nema einn stöpul fyrir kosningamar en hættu svo. Þeirri brúarsmíð lauk ekki fyrr en tveimur árum seinna. Onnur „kosningabrúin" var yfir Þverá í Þverárhlíð hin var yfir Grímsá í Lundarreykjadal. Nú stjómast framkvæmdir í vegamál- um miklu meira af langtímaáætlun- um en þá var og því margt breytt í þessu sem öðru.“ Ég spurði Jónas hvaða brú hann teldi glæsilegasta á landinu. Hann hló lágt og sagði: „Það var alltaf draumur minn að byggja hengi- brýr. Allir brúarsmiðir vilja byggja hengibrýr." Ég spurði af hveiju allir brúar- smiði ælu með sér þann draum? Jónas á góðri stund „Þær em fallegastar," svaraði Jónas. Sjálfur hefur Jónas byggt hengi- brúna yfir Jökulsá á Breiðamerk- ursandi og lauk við að byggja iðubrúna. Einnig var hann með í að byggja hengibrýrnar yfir Jökulsá á Fjöllkum og Ölfusá, undir stjóm Sigurðar Bjömssonar. Sigurður byggði bogabrúna yfir Hvítá í Borg- arfírði. „Sú brú er alveg sér á parti,“ sagði Jónas. „Óskaplega glæsileg brú, Sigurður byggði hana árið 1928. Sú brú er enn ágæt fyrir litla bíla en það þarf að gera við hana, fína hana til. Ég lét þess getið að það væri bagalegt hve illa sæist milli brúar- endanna vegna bogans. Tekið til hendinni við uppþvott í matarskúrnum Hvíldarstund hjá ráðskonunum. F.v. Þorgerður kona Jónasar Gísla- sonar og Guðríður systir hans sem enn er ráðskona hjá bróður sínum „Menn töldu það engann galla á þeim ámm,“ segir Jónas og glottir. „Þá var svo lítið af bílum að menn töldu slíkt ekki skipta neinu máli.“ Jónas segir mér að viðhaldi brúa sé þann veg háttað núna að vega- gerðarmenn gera aðvart ef þeir verða varir við að brýr séu bilaðar eða þarfnist endurbyggingar. Þá fara verkfræðingar á staðinn og meta aðstæður og finna nýtt brúar- stæði. Síðan þarf að koma fram- kvæmdum inn á vegaáætlun og allt tekur þetta sinn tíma. Það var lengi landlæg viss tortryggni hjá almenn- ingi gagnvart ákvörðunum verk- fræðinga. Jónas kvaðst. ekki geta neitað því að hann hefði oft fundið inná þetta viðhorf í sveitum. „En,“ bætti hann við, „þó mönnum hafi líkað staðsetning brúa misjafnlega þá var gaman að því hve allir voru ánægðir að fá brýrnar og okkur þakklátir fyrir þær þó náttúrlega væri brúarvinnan aðeins okkar at- vinna og lifibrauð. En vissulega er miklu meira gaman að vinna við eitthvað sem annað fólk gleðst yfir að fá gert. Mér hefur því líkað þetta lífsstarf vel og er ánægður með að hafa getað verið svona mikið úti í náttúmnni. Ég hefði alórei unað mér að hrærast í borgarlífínu allan ársins hring.“ TEXTI* GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR VOLVO EIGENDUR! VETUR FRAMUNDAN!! Til að forðast vonlaust einvígi við íslenskan vetrarmorgun bjóðum við vetrarskoðun. Verðkr. 4440, U m/ssk. Skiptum um olfu og síu ef óskað er. Verðkr. 1450,-m/efni. Ath!! Varahlutir eru ekki inni í verði á vetrarskoðun. Munið 5% staðgreiðsluafsláttinn! Vilver sf. SMIÐJUVEGI60, SÍMI46350. VIÐURKENND V0LV0 WÓNUSTA! MALVERKA- sýning á málverkum eftir Sigurð Kristjánsson, listmálara, í Eden Hveragerði, dagana 23. sept — 6. okt. LÆRIÐ ERLENDIS í FRAMHALDSSKÓLANUM QUEEN MARGARET í EDINBORG, SKOTLANDI Veitum gráður i: Neytendamálum, almannatengslum, næringar- fræði, matvælafræði, vinnusálfræði, sjúkraþjálfun, hjúkrunarfræði og talkennslu. Veitum prófskírteini í: Leiklist, upplýsingafræði og hótelrekstri og framreiðslu. KomiD í heimsókn til J. G. Durcan á Uótel Lofleióum milli kl. 7 og 21 nk. fimmtudag ogjhsludag, I. og 2. októher 19X7.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.