Morgunblaðið - 27.09.1987, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987
37
Jackson, Wyoming.
Frá Old Faithful-hverasvæðinu.
morgunverð gengum við niður i
þjónustumiðstöðina til þess að
leita upplýsinga og var okkur ráð-
lagt að fara til Jackson, sem liggur
syðst í garðinu, í 50 mílna fjar-
lægð. Viðgerðarmaður staðarins
bauðst til þess að draga bílinn
smáspöl og vita hvort hann hrykki
ekki í gang og það dugði. Við vor-
um ekki sein á okkur, stukkum inn
í bíl og ókum af stað suður á bóg-
inn.
Við komum til Jackson um há-
degi og það fyrsta sem við sáum
var verkstaeði. Við vorum svo feg-
in að fá geymi að við létum okkur
fátt um finnast þó að hann kostaði
70 dollara. Að viðgerðinni lokinni
fengum við okkur göngutúr um
bæinn. Þetta reyndist vera einn af
þeim bæjum sem dubbaðir eru upp
til þess að draga að ferðafólk, en
bærinn hefur verið gerður upp
sem gamaldags kúrekabær. Við
fórum í ökuferð í gömlum hest-
vagni eða póstvagni, en ég gat ekki
annaö en vorkennt hestunum því
að biðröðin var löng og hitinn
mikill. Strákarnir voru yfir sig
hrifnir. Þeim fannst þeir vera
komnir í bíómynd með John
Wayne. Þarna var líka hægt að
láta taka af sér myndir upp á
gamla mátann, ýmist sem gleði-
kona, byssubófi eða bara sem
venjuleg 19. aldar fjölskylda. Öll
húsin eru bjálkahús og framhlið-
arnar merktar sem fangelsi, leik-
hús, krár eða gamaldags verslanir.
Rétt fyrir utan bæinn var þyrping
af gömlum indíánatjöldum en
fyrir framan þau lágu ýmiss kon-
ar handunnar vörur, svo sem ofin
teppi, leðurmottur saumaðar sam-
an á skrautlegan hátt, veski og
margt fleira. Allt var þetta
óhemju dýrt og ekki fyrir neina
meðaljóna að kaupa þennan varn-
ing. Á leiðinni til baka var
stansað við Jackson Lake og
gúmmíbáturinn dreginn fram. Á
meðan karlpeningurinn reri út á
úfið vatnið sat ég í fjörunni og
virti fyrir mér Teton-fjöllin sem
teygðust 13.766 fet upp i háloftin
og eru meðal yngstu fjalla megin-
lands N-Ameríku.
Við komum aftur á tjaldstæði
fyrir rökkur og fannst notalegt
þegar vinalegt starfsfólkið vildi
vita hvernig hefði gengið að fá
nýjan geymi.
Gamli góði Geysir
Það var erfitt að hafa sig af stað
á fimmtudagsmorgni frá þessum
notalega stað og klukkan var að
verða eitt þegar við ókum inn í
Yellowstone Park. Það er um ýms-
ar leiðir að velja þegar komið er
inn í þjóðgarðinn. Við létum kylfu
ráða kasti að þessu sinni og tókum
leiðina í vestur. Eftir u.þ.b. hálf-
The Grand Tetons.
tíma keyrslu komum við að miklu
hverasvæði sem kallast Old Faith-
fui Geyser, eftir stærsta hvernum
sem gýs samviskusamlega á
klukkutíma fresti í 115—180 feta
hæð, en gosið varir í 4 mínútur.
Skógarnir viku hér fyrir hverun-
um, sem náðu yfir nokkuð stórt
svæði, en inn á milli þeirra stikl-
uðu elgir, hreindýr og vísundar.
Við gengum um svæðið í rúman
klukkutíma, en göngubrýr eða
gangbrautir liggja á milli hver-
anna. Mjög ströng fyrirmæli eru
um að fólk stigi ekki út af gang-
brautunum og eru verðir á hverju
strái til þess að fylgjast með fólk-
inu. Við hvern hver er spjald þar
sem á standa jarðfræðilegar upp-
lýsingar auk nafns hversins.
Glæsilegt hótel er á staðnum, Old
Faithful Inn, upphaflega opnað
1904 en síðan þá hafa verið byggð-
ar við tvær álmur.
Yellowstone
Þegar líða tók á dag vorum við
búin að fá okkur fullsödd af hver-
um af ýmsum stærðum og gerðum
en af skógum, fjöllum og vötnum
fengum við aldrei nóg. Við ókum
upp og niður fjöll og firnindi og
þéttir skógar voru á báða bóga.
Einstöku sinnum kom graslendi í
ljós en á því voru oftast hjarðir
vísunda. Næst viðkomustaður var
Madison Museum, en þar voru
myndir og upplýsingar um Yell-
owstone-þjóðgarðinn. Hann
fannst árið 1869 og sett voru lög
um þjóðgarð 1872, fyrsti og fræg-
asti þjóðgarður heims er sagt.
Norðarlega í garðinum liggja upp-
sprettur ánna Missouri og Snake
River og fellur sú fyrrnefnda í
Atlantshafið en sú síðarnefnda í
Kyrrahafið. Hér eru yfir 200
fuglategundir auk allra algengra
skógardýra.
Við vildum ekki fara of hratt í
gegnum garðinn en hvergi var
leyfilegt að tjalda. Ekki þorðum
við að brjóta lögin og eiga það á
hættu að lenda í bjarndýrs-
hrömmum svo áfram var ekið
hægt og sígandi. Hrikalegir
jarðskjálftar hafa tíðum ógnað
fólki á þessum slóðum og ekki er
langt síðan fjöldi manns fórst hér
vegna jarðhræringa. Það fór því
um okkur hrollur þegar við litum
niður hrikaleg gilin og upp brattar
hlíðarnar. Þegar við fórum að
nálgast Montana fundum við
tjaldstæði hátt uppi í fjöllunum á
stað sem kallast Eisenhower
Falls. Við ókum um þéttsetið
svæðið og fundum loks autt stæði
þar sem við tjölduðum. Við höfð-
um ekki fyrr hreiðrað um okkur,
en fólk sem átti húsvagn skammt
frá kom heim og tilkynnti okkur
að þetta svæði tilheyrði þeim.
Þetta voru elskuleg hjón og þau
hlógu bara að mistökunum og
báðu okkur fyrir alla muni að vera
kyrr. Litlu seinna kom vörðurinn
og tók okkur tali. Hann var gam-
ansamur, enda hafði hann verið
kennari í 30 ár. Hann sagði að
mörk milli tjaldstæða væru óljós
og loforð um að breyta þessu væri
gefið á hverju ári, en aldrei gerð-
ist neitt. Vörðurinn bauð okkur á
litskyggnusýningu með öðrum
íbúum tjaldstæðisins. Hann hélt
fróðlegan fyrirlestur um jarð-
fræðilega sögu staðarins og sýndi
myndir af hverum og öðrum nátt-
úrufyrirbærum á sérstöku svæði
skammt frá tjaldstæðinu sem
merkt var sem hringleikahús, en
er í raun bara nokkrir trébekkir
og sýningartjald. Þarna var hægt
að sýna kvikmyndir, en Banda-
ríkjamenn virðast ekki geta farið í
útilegu án þess að fá að sjá bíó-
myndir og þess vegna eru þessi
hringleikahús á öllum meiriháttar
tjaldstæðum þar sem ekki er hægt
að komast í samband við sjónvarp.
Þar sem við vorum ólöglega
staðsett var ekki um annað að
ræða en að hafa sig upp í býtið
morguninn eftir. Fyrsti spölurinn
þennan dag varð þó aðeins ein
míla. Bak við verslun staðarins er
mikill foss, Tower Falls, og göngu-
braut hlykkjast niður gil niður að
ánni sem fossinn fellur í, en fall-
hæð hans er hálf míla. Við geng-
um niður gilið, en neðst niðri var
það mjög þröngt og loftið rakt og
kalt. Það var leikur einn að kom-
ast niður en öllu erfiðara að
klöngrast upp aftur. Vörðurinn
fróði hafði sagt okkur kvöldið áð-
ur að fyrir nokkrum dögum hefðu
hjón mætt bjarnarhúnum á þess-
ari slóð svo að við vorum við öllu
búin. Enginn kom þó björninn en
mjög lítil kvikindi, sem ég kann
ekki að nefna, skutust til og frá.
Tjaldraunir
Það var ekki sársaukalaust að yf-
irgefa þennan fallega þjóðgarð en
fjárhagurinn var naumur og
áfangastaðurinn í nokkur þúsund ,
kílómetra fjarlægð. Við sprettum
því úr spori og brunuðum inn í
Montana. Paradísardalur varð
fyrsti dvalarstaður okkar í þessu
fyiki og hér fundum við tjaldstæði
merkt upphafsstöfunum K.O.A.
Upphafsstafirnir tákna félag
tjaldstæðaeigenda, en þetta er e.k.
hringur sem hefur ákveðinn gæða-
stimpil enda eru tjaldstæðin frek-
ar dýr, flest með gufubaði og góðri
sundlaug. Sólin hafði leyft sér að
fara í frí um stundarsakir og þeg-
ar fór að rigna var lítið annað
hægt aö gera en að fara í sund.
Sundlaugin var heit og góð, enda
nálægt hverasvæði. Um kvöldið
þegar stytti upp bjuggum við til
myndarlegan varðeld og héldum
honum lifandi fram undir mið-
nætti. Þegar við lögðumst til
svefns drundu þrumur miklar í
háloftunum. Skömmu síðar sáum
við loga bera við tjaldið, en það
hafði lifnað aftur í glæðunum.
Davíð skreið út og barði niður eld-
inn en það var annar aðili sem sá
um að gera um betur því að
skömmu síðar skall úrhellisrign-
ing á tjaldið. Við reyndum að
sofna en Hjótlega urðum við vör
við að loftið fór að leka. Efst á
tjaldinu er flatur þríhyrningur og
þar myndaðist pollur, sem síðan
þrýsti sér í gegnum sauma tjalds-
ins. Davíð datt í hug að rífa í
sundur stóran plastpoka og setja á
milli tjaldhimins og tjalds. Þetta
tók töluverðan tíma en að lokum
var pokinn kominn á réttan stað
og var þá aftur lagst til svefns.
Ekki höfðum við legið lengi er
annar drengjanna tilkynnti að
hann yrði að pissa, þó að lífið lægi
við og þegar hann hafði lokið því
brölti var loks hægt að fara að
sofa. Flestir sofnuðu fljótt; ég fór
að hugsa um ungan Ástralíubúa
sem ekið hafði verið á á veginum
utan við tjaldsvæðið og hann skil-
inn eftir í sárum sínum. Þessi ungi
maður hafði svo dáið þarna á veg-
inum en seinna var reistur þar lít-
ill kross til minningar um atburð-
inn sennilega öðrum til viðvörun-
ar. Davíð dreymdi að tjaldið hefði
allt rifnað í sundur svo ekki voru
hugsanir okkar of bjartar þessa *
nótt.
Það var heldur ógeðslegt að
taka saman næsta morgun og sem
betur fór gerðist það afar sjaldan
að við þyrftum að taka saman við
slíkar aðstæður.
Old Faithful Gcyser.
Yellowstone Park.