Morgunblaðið - 27.09.1987, Side 39

Morgunblaðið - 27.09.1987, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987 39 sjálfsvorkunn ofan í svefnpokann sinn. Við þetta allt bættust svo þungar drunur frá matsalnum. Stöfuðu þær frá karlkyns fugla- skoðara sem hafði hrotið það hátt og frekjulega að félagar hans sáu sér þann kostinn vænstan að bera hann út úr svefnsalnum með koju og öllu saman. Maðurinn rumskaði ekki meðan á flutningnum stóð, en vaknaði furðu lostinn næsta morg- un á miðju gólfi matsalarins. Hvað er það nú? Þúfutittlingoir? Allir voru ánægðir með Vest- mannaeyjar og þá fugla sem þar fyrirfundust. Síðan var haldið upp á land aftur og tók ferðin til Mý- vatns samtals þtjá daga. Ætlunin var að fara norður Sprengisand en hann var því miður lokaður og var því hin venjulega norðurleið farin með viðdvölum á hinum ýmsu stöð- um. Eina nóttina gistum við á Selfossi og þar var aðstaða öll og þjónusta alveg sérstaklega hrós- verð, mættu margir taka sér hana til fyrirmyndar. En þetta var góð ferð norður því ráðherrafrúin end- ursagði allar sögur Gabriel García Márguez og nýi kokkurinn sem var eini áheyrandinn varð rangeygður af sælu. Loksins eitthvað annað en fuglar. Það var ekki amalegt að sýna útlendingunum Þingvöll, Gullfoss og Geysi í dásamlegu sumarveðri. Þeir næstum táruðust af hrifningu yfir fegurð landsins. En fuglaskoð- arar eru engir venjulegir ferðamenn og kom það best í ljós við Geysi. Þegar þeir höfðu horft nægju sína á Strokk leika listir sínar, þá tóku þeir vitanlega upp sjónaukann sinn og fóru að skima eftir fuglum. Kona nokkur sem var stödd þarna með öðrum ferðahópi skaust inn í runna við hliðina á gossvæðinu til að létta af sér, og þar sem hún sit- ur á hækjum sínum og á sér einskis ills von, kemur hún allt í einu auga á flokk manna sem starir á hana gegnum sjónauka. Hún stökk á fætur að harmkvælum og buxurnar á hælunum, en mínir menn héldu áfram að kíkja á fuglinn sinn og höfðu ekki hugmynd um hvað gerst hafði. Alla ferðina var sífellt verið að Leikkonan heimtaði að skera brauðið úti i náttúrufegurðinni. (Á Amarstapa). Þau sáu einhvern fugl, sögðu ekki orð, bara andvörpuðu. Stundum fleygðu menn sér á jörðina. miklu meira en það. Hann lét opna fyrir okkur verslun á staðnum eftir lokunartíma svo við gætum gert nauðsynleg innkaup og lánaði okk- ur síðan Volvóinn sinn óbeðinn. Við vorum famar að hugsa alvarlega um að fá húsið hans lánað líka. En úr því maðurinn var svona elskuleg- ur þá gengum við á lagið og vældum vel og lengi um vöðvabólgu og þess háttar sem fylgir því að sofa í svefn- poka. Þá lét hann okkur allar þrjár hafa sængur og kodda eins og al- vöru hótelgesti. Ef allir menn væru nú svona. Þetta urðu því notalegar nætur á Laugum þrátt fyrir ein- kennilegt eldhús. Vatn og lamba- kjöt, takk! Einn daginn fórum „við fuglarn- ir“ með í skoðunarferð kringum Mývatn til að skoða fuglalífið. Nýi kokkurinn lét tilleiðast og horfði eitt andartak í sjónauka leiðsögu- mannsins. — Hvaða önd er þetta? — Þetta er ekki önd, sagði leið- sögumaðurinn þurrlega, þetta er himbrimi. — Nú jæja þá, en hvaða him- brimi er þetta? spurði nýi kokkurinn aftur og beindi sjónaukanum í allt aðra átt. — Þetta er ekki himbrimi, þetta er húsönd, ansaði hann þreytulega. Það var eftirtektarvert að sjá hvemig fólkið smám saman gerði sér grein fyrir auðæfum landsins. Við höfðum reynt að fá það til að drekka ferska vatnið okkar með matnum, en það alltaf hunsað það. Kannski skiljanlegt, því í Þýska- landi drekkur fólk sjaldan vatnið úr krananum, til þess er það of mengað. En svo sást blikið í augum þess þegar það horfði á tandur- hreinar ámar og vötnin, friðarsvip- urinn á andlitinu þegar það dró að sér ferskt loftið og göngulagið létta þegar tiifinningin um frelsi og víðáttu gagntók það. Svo fóru allir að þamba vatn. Fóru að suða í okkur að fá nú lambakjöt í matinn. ífýlu Við yfirgáfum Norðurland og héldum til Snæfellsness með sífelld- Þýski fararstjórinn Hans Grube og íslenski leiðsögumaðurinn Arni Gráir fyrir járnum, tilbúnir að leggja í Þórsshanann. Waag við Kröflu. stöðva rútuna á hinum ólíklegustu stöðum, því þá hafði sést fugl. Þetta reyndi á Kristján bílstjóra sem varð að hemla fyrirvaralaust, stundum á slæmum vegum. En hann tók því með jafnaðargeði eins og öllu öðru, stundi bara og sagði: „Hvað er það nú? Þúfutittlingur’" Hann beið hinn rólegasti meðan fólkið þaut út um alla móa að skoða, stundum fékk hann sér kríu — teinréttur í sæti sínu. Ámi leiðsögumaður sá alls staðar fugla og var það ómetanlegt fyrir fólkið. Hann kunni líka skil á öllum villtum blómum og jurtum, og það var ekki ósjaldan sem menn fleygðu sér á magann til að skoða lítið friggjargras betur. Manni ofbauð þessi náttúruskoðun í fyrstu, en smámsaman fæddist ný_ tilfinning fýrir landinu. Náttúra íslands er ekki eingöngu fjöll, fossar, jöklar og vötn, heldur líka lítill þúfutittl- ingur og fríggjargras. Hugstæð varð setningin sem leiðsögumaður- inn hafði sagt í upphafi ferðarinnar: Allir náttúruunnendur em gott fólk. Hótelstjórinn á Laugnm Við höfðum gist eina nótt á Laug- um í Suður-Þingeyjarsýslu eins og venjulegir hótelgestir, en ætluðum síðan að gista fjórar næstu nætur á öðmm stað. Ur því varð þó ekk- ert, fólkinu hafði litist svo vel á sig á Laugum að það vildi vera þar áfram. Hótelstjórinn, Óskar Ágústsson, hafði nú ekki átt von á 30 farfuglum en gat þó komið okk- ur öllum fyrir, flestum í svefnpoka- plássi. En eitt var þó vandamálið — eldhús var ekkert til. Að vísu fyrir hótelið sjálft og ákveðinn ijölda farfugla en ekki fyrir þijátíu manna hóp sem þurfti eigin aðstöðu. En hótelstjórinn virtist hafa ráð undir rifi hveiju. „Við búum bara til eldhús,“ sagði hann og stormaði með okkur mat- seljurnar út í íþróttahús þar skammt frá, upp á efstu hæð og opnaði þar fyrir okkur gluggalaust herbergi undir súð. Þar inni vom tveir vaskar og borð. Búið. Ein- hveijir ljósmyndaáhugamenn höfðu notað þetta fyrir framköllunar- herbergi. Hér skyldi cldað fyrir rúmlega þijátíu manns í nokkra daga. Leikkonan sagði að hjarta sitt myndi bresta. En Óskar _ hótelstjóri var hinn hressasti. „í fyrramálið verða komnar hér tvær hellur, fleiri vinnu- borð og þar að auki matsalur fyrir þijátíu manns. Matinn getið þið geymt í kælinum hjá mér út á hót- eli og svo getið þið fengið eitthvað af pottum." Hann stóð við allt saman og um fuglastoppum. Reyndar þurfti líka að stoppa á Akureyri til að gera matarinnkaup, en það var það versta sem hægt var að lenda í því í hvert skipti sem ráðherrafrúin sá verðið á matvörunum, þá rak hún upp þvílíkt angistarvein að öll starf- semi lagðist niður í viðkomandi verslun. Oft spurði hún mig að því hvemig við færum að því að lifa í þessu landi, og ég sagði henni auð- vitað eins og satt var að við lifðum ekki, bara ynnum. I Stykkishólmi var eiginlega komið að stóru stundinni, því þaðan skyldi haldið til Flateyjar til að skoða þórshanann. Sumir úr hópn- um sögðust eingöngu hafa komið til þess ama en ekki veit maður nú hvort það sé allur sannleikurinn. En þvílík vonbrigði þegar þau sáu ekki blessaðan fuglinn. Hann var á friðuðu svæði á eynni og leiðsögu- maðurinn gat ekki brotið reglur með því að leyfa þeim þar inn. Menn vom því súrir, sumir í al- gjörri fylu og vildu hvorki kaffi né brauð meðan þeir vom að jafna sig. Við kokkamir gátum þó mýkt skapið með alíslenskri kjötsúpu um kvöldið. Algjör friður og himnesk ró ríkti yfir borðhaldinu og flestir borðuðu þar til þeir urðu rauðir og þrútnir í framan. Engar tvær kríur eru eins Á leiðinni að okkar síðasta við- komustað, Arnarstapa á Snæfells- nesi, kom leiðsögumaðurinn auga á haföm. Hvers konar amaraugu maðurinn hefur er erfitt að skilja ■ því ekkert sást nema gijót og enda- laust úfið hraunið. En þetta bætti nú heldur betur upp þórshanann. Fólkið læddist út úr rútunni eins og skæmliðar úr launsátri, alvopn- aðir sjónaukum og hvíslaðist á meðan það skoðaði. Þetta var greinilega hátíðleg stund. Lands- lagið var hrikalegt og þögult og einkennileg dulúð lá í loftinu. Sum- ir urðu allt í einu voðalega syfjaðir í þessu andrúmslofti, læddust upp í rútu og sváfu af sér haföminn. Fólkið átti ekki orð yfir nátt- úmfegurðina þama undir Jökli. Og fuglamergðina. Og fólkið. Þau sögðust alls staðar hafa mætt hlýju og vingjamleika hjá íslendingum. Þeim fannst þeir að vísu vera frem- ur fámálir og hafa þann einkenni- lega sið að horfa alltaf í suður og austur þegar talað væri til þeirra, en einlægt fas þeirra og framkoma hafði töfrað það upp úr skónum. Einnig höfðu þau margsinnis orð á því hversu falleg íslensku bömin væm — vel skapað höfuðlagið, and- litin björt og augun skýr. En á Arnarstapa, þessum fallega . stað, urðu þáttaskil í lífi sumra. Þegar ritan var að fæða ungana sína þarna í hömmnum, þá blossaði upp einhver forvitni í sálartetrinu. Krían var þama líka í algleymingi, frek og árásargjörn þegar einhver nálgaðist umráðasvæði hennar. Árni leiðsögumaður sagði með festu: „Engar tvær kríur em eins“ og gekk inn á svæðið til að sýna hin margvíslegu viðbrögð fuglsins og sanna orð sín. Sumar stungu sér strax á hann, aðrar sveimuðu garg- Þeim fannst íslensku börnin svo falleg. Erla á Arnarstapa með hundinn sinn. andi í kring en höfðu ekki kjarkinn, og svo vom nokkrar sem aldrei hættu sér nálægt. Rétt eins og mennimir. Leiðsögumaðurinn kom til baka með hendur á höfði og sagði rólega: „Verst hvað þær skíta á mann." Á því augnabliki kristnað- ist nýi kokkurinn. Ferðin var á enda og þau skiluðu mér aftur að hlaðinu heima. Ég kvaddi vinkonur mínar með söknuði og allt þetta góða fólk sem hafði opnað augu mín fyrir auðæfum landsins, þessum litlu vemm sem svífa allan sólarhringinn um loftin blá og krefjast einskis nema friðar og ómengaðs lands. Náttúmunnendur em gott fólk. Þeir aumkuðust yfir nýja kokkinn, gerðu hann að meðlim þýska fugla- vemdunarsambandsins og gáfu honum svo sjónauka að skilnaði. Fjárans vesen að hafa ekki séð haföminn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.