Morgunblaðið - 27.09.1987, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 27.09.1987, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987 H Faðir vorrar dramatísku listar Sagt frá Signrði Péturssyni sýslumanni og skáldi í flestum bókmenntasöguritum íslenskum sem út hafa komið fer ekki hátt nafn Sigurðar Péturssonar, skálds og sýslu- manns, sem þó má telja „faðir vorrar dramatísku listar“ eins og Guðmundur Kamban nefndi hann í Lesbókargrein 1969. Sigurður Pétursson samdi fyrstu íslensku leikritin sem það nafn bera með réttu og orti auk þess mikil af tækifærisljóðum og vísum. Því til viðbótar má nefna rímnabálk hans Stellurímur sem hann orti til að hæða tilgerð rímna samtírnamanna hans. Sigurður þótti um margt undarlegur og sérvitur maður og hér á eftir fer stutt æfiágrip, auk þess sem gerð verður stuttlega grein fyrir leikritum hans, Hrólfi og Narfa. oíV'&uau ru 7 > V 17i)é: / 7jf / 7 " ^cu: fini Ctil hþax duwtm, tö'Jb t / á :«tt" 'W ■.\ 1 y M I r,tsl JigríóíU'':£~^ fizv-. * ... .dm 'ílncu fiamrii \ &ut> f+JA&lÍf&á' ’ Jfofowutfr ■ /%L-i jfy,, 7Uí ' j —. • , -'LV . . . . , , ■ ,■ c€feðre/ <£»£*. - . /. Jí/ft0rcru& ,jf‘- Af/i JillU. ■* ; rsm£s< jÉniur m ■ I;. 'f' . C . Leikendaskráin frá frumsýningunni á Slaður og trúgirni frá 5. desember 1796. Sigurður Pétursson fæddist 26. apríl 1759 og átti til auð- ugra að telja, kominn af embætt- ismönnum í báðar ættir. Faðir hans, Pétur Þorsteinsson. sýslumaður, tók hann með sér til Kaupmannhafnar 9 vetra gamlan 1768, honum til lækninga. Virðist því sem Sigurður hafi snemma ver- ið heilsuveill. 1774 var Sigurður sendur utan á ný, nú til náms í Hróarskelduskóla. Þar sat hann til 1779, er hann tók þaðan stúdents- próf með fyrstu einkunn, laudabili caractere, tvítugur að aldri. Hann hóf að því loknu nám við Hafnar- háskóla, hvar hann fékk Garðsvist af því hann var íslendingur. Við háskólann lagði hann stund á mál- fræði og lög. Prófum lauk hann í heimspeki 1780, málfræði 1782 og lögfræði 1788, öltum með laudabili caractere. Ekki var hann þó allan þennan tíma í Höfn, því um vetr- artíma var hann bamakennari hjá Joakim Castienschiold hershöfð- ingja, föður þess Castienschiolds er síðar varð stiptamtmaður á íslandi 1810—1819. Um veru sína þar orti Sigurður: „Nú er eg hólpinn, nú hef eg frið, nú er eg garpur mesti, aðalinn dingla eg aftan við einsog tagl á hesti." í Höfn kynntist Sigurður Geir Vídalín 1780, og tókst með þeim ævilöng vinátta. Einnig kynntist hann norska skáldinu Johan Her- man Wessel (1742—1785). Þeim varð vel til vina og er sagt að Wess- el hafi þótt einkar vænt um Sigurð. Reyndar segir Jón Sigurðsson svo frá um þeirra skipti: „Þegar Sigurður var í Kaup- mannahöfn, var þar samtíða honum norskur maður sem Wessel hét, og þótti fyrirtaks-skáld meðal Dana um þær mundir; hann kaus helzt að lifa einsog fuglar lopts- ins, og hafði ekki gaman af öðru enn að horfa á hvað sem fram fór, hlæja að heimskunni og totta pyttluna ... það er almennt mál, að Wessel hafi einkum þókt vænt um Sigurð, og lagt hendur í höfuð honum, einsog til að leggja yfír hann anda sinn ... “ Wessel hefur að líkum haft nokk- ur áhrif á Sigurð og hans ljóðagerð. Skemmtilegt dæmi um það er graf- skrift Wessels eftir sjálfan sig: Han aad og drak, var aldrig glad, hans Stevlehæle gik han skieve; han ingen Ting bestille gad, tilsidst han gad ei heller leve.“ Og til samanburðar vísa eftir Sigurð ort af svipuðu tilefni: „Hans sál á himni að flestra von hann át og drakk og svaf og svo dó hann“ Sem er í góðu samræmi við það sem Jón segir um Sigurð: „Sigurður Pétursson var einn af þeim skáldum, sem tók það sem næst honum lá; hann lifði til þess að lifa, og síðan að deyja einsog aðrir góðir menn; fara síðan í himnaríki — ef svo vildi til takast! — Hann vildi hafa gaman af ver- öldinni, og horfa á leik hennar meðan hann mátti, og leggjast svo fyrir þegar hann „gat ekki leng- ur“.“ í Kaupmannhöfn slasaðist Sig- urður á fæti og þau meiðsli áttu eftir að há honum aha tíð síðan. Að öðru leyti er lítið vitað um líf hans þar en frásagnir samtíma- manna herma þó að hann hafi verið „stakur siðprýðis og bóknámsmað- ur“. Einn kennara hans í Kaup- mannahöfn, Abraham KaD, sagði um Sigurð 1789 að „meiri dánu- mann en hann er geta menn hvorki hugsað sér né óskað“. Geir lauk prófi 1789 og hélt þá Hólavallarskóli um 1800. til íslands, hvar hann varð dóm- kirkjuprestur í Rekjavík. Sigurður varð eftir ytra, en ári síðar frétti hann að sýslumannsembætti Kjós- arsýslu væri að losna og fékk veitingu sýslunnar sem sýslumaður, en Gullbringusýslu sem héraðs- dómari. Heilsu Sigurðar hrakaði á þessum árum, enda hafði hann vandasamt starf fyrir höndum og við fótameinið bættust innvortis kvillar. Svo fór að hann sótti um lausn frá embætti og fékk hana 1803. Um það segir Espólín í árbók- um sínum: „ ... Sigurdr Pétrsson í Nesi var opt vanheill sagdr, ok hafdi eigi lengi mátt atstanda sýslumar, enda verit lítt vid þat felldr, því hann var léttlátr, ok meir gefinn fyrir gaman enn standa fyrir vand- fæmi ok vítum, ok því var honum eigi við Ólaf stiptamtmann, ok lét stundum §úka í kveðlíngum, ok vard þá enn vandstadnara." Það er í góðu samræmi við skap- gerð Sigurðar að hann henti einnig gaman að fótameini sínu. Hann orti: Þó að eg fótinn missi minn, mín ei ijenar kæti, hoppað get eg í himininn haltur á öðrum fæti. Sigurður bjó víða eftir að hann flutti8t til íslands alkominn. Til vin- ar síns Geirs biskups fluttist hann 1803 og bjó hjá honum til 1823 að Geir lést. Upp frá því bjó Sigurður hjá ekkju Geirs þar til hann lést 1827. Þá var mjög af honum dreg- ið sökum sjúkleika eða lífsleiða og segir Ami Helgason í æfisögu Sig- urðar sem prentuð er framan við ritsafn hans, að veikleiki hans farið í „vöxt með árunum, svo það mátti heita sem Sigurður væri dáinn áður en hann dó“. Málfræðingurinn kunni og Islandsvinurinn Rasmus Rask þekkti til Sigurðar, þó ekki eins vel og Ámi, og í bréfi til Bjama Thorsteinssonar segir Rask: „Sýslu- maður S. Pétursson er ekki nærri því eins vesæll; hann er eiginlega ekki sjúkur, það er einsslags af- skiptaleysi eða indolentia, sem honum er uppáfallin; hann er ann- ars hlýr og viðfelldinn og heldur en ekki satýrískur." Þessi orð segja sitt um hve aðgerðarleysið og fóta- meinið hefur haft mikil áhrif á Sigurð, sem var mikill gleðimaður í æsku og hafði yndi af að hitta menn og ræða við. Espólín segir um Sigurð látinn að hann hafi verið „innfallaskáld mikit, ok jafnan í Nesi, ok gjördi sér allt jafnlétt, átti hann hvorki konu né böm svo menn viti“. Aðrar lýsingar á Sigurði eru mjög á sömu lund. í Sýslumannsævum segir að hann hafi verið „undarleg- ur, kómískur, satírískur í tali og skáldskap, þótti því nokkuð kersk- inn í tilsvórum sínurn". í íslenskum æviskrám Páls Eggerts Ólasonar segir að Sigurður hafi verið: „ ... Iipur gáfumaður og vel að sér, skáld Eina myndin sem vitað er um af Sigurði er myndin sem prentuð er framan við ritsafn hans sem út kom 1844—1846. Við hana má bæta lýsingu Arna Helgasonar: Sigurður var „meðalmaður á hæð og eftir því þéttvaxinn; hann var sterkari en hæðinni samsvaraði, snar og lipur í öllum hreifingum, ennið hátt og augun fögur og blíðleg. Geir Vídalín aldavinur Sigurðar sem síðar varð biskup. gott, fyndinn í tali, en nokkuð und- arlegur." Slaður og- trúgirni Fyrsta leikrit Sigurðar heitir í handriti hans Slaður og trúgirni, comædia í 3ur flokkum. Fyrst var það prentað í sýnisbók Rasmusar Rask undir nafninu Auðunn lög- réttumaður 1819, ^n í útgáfu Áma Helgasonar á verkum Sigurðar 1846 bar leikurinn heitið Hrólfur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.