Morgunblaðið - 27.09.1987, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987
Reykjavík á dögutn Sigurðar Péturssonar.
HjoSjrWíTÍí
&tgtirSar Uetursfimar
©pffumanné t &jóear fpjlu 09 S)iv
aöébo'mara i -ffiuUbríugu jtjflu
frá 1789 til 1803-
^oftar t fú'pu 56 fF.
K c y £ j a v í f 18 4 4.
‘Prentub ó fofinaö *CgtI® Dónífonnr,
«f ?>rcmara ^elgn tfelgafyni.
Titilsíða á fyrstu útgáfu á verkum Sigurðar Péturssonar, en Jón
Sigurðsson taldi þessa útgáfu móðgun við minningu skáldsins, enda
væri hún uppfull af villum og ónákvæmni. Þess má geta að fyrsta
bindi ritsafnsins er talin önnur bókin sem prentuð var í Reykjavík.
og hefur gengið undir því nafni
síðan. Leikurinn var fyrst leikinn
1796 og leiðbeindi Sigurður leik-
endum sjálfur.
Leiksýningin var í tengslum vil
svokallaða Herranótt í Hólavallar-
skóla, sem áður var Skálholtsskóli.
í Skálholtsskóla Leikurinn hefst
með því að Hrólfur kemur að norð-
an á heimili Auðuns lögréttumanns
og berst mikið á. Auðunn er ein-
feldningur hinn mesti og trúir eins
og nýju neti öllu sem Hrólfur lýgur
að honum. Svo fer að hann kaupir
af Hrólfi fyrir mikið fé als kyns
glingur og drasl, og lætur gæðing
sinn fyrir afsláttarhross Hrólfs.
Þegar þessi viðskipti eru um garð
gengin hverfur þorparinn á brott
og sést ekki síðan. Lýkur þannig
fyrsta þætti. Svo líst Auðuni vel á
Hrólf að honum finnst hann fysileg-
ur sem tengdasonur, þvert ofan í
vilja dóttur sinnar, Önnu, sem ann
fátækum bóndasyni sem Andrés
heitir.
En allt fer vel að lokum, upp
kemst um Hrólf og elskendurnir
ná saman.
Lárus Sigurbjörnsson hefur leitt
að því rök að uppbygging leiksins
bendi einmitt til þess að Sigurður
hafi ekki haft neina erlenda fyrir-
mynd er hann reit leikinn, enda
má greina af eiginhandarhandriti
hans hvernig leikurinn hefur mótast
þátt fyrir þátt.
Narfi, eður sá narr-
aktugi biðill
Næsti leikur Sigurðar heitir í eig-
inhandarafriti hans Narfi, eður sá
narraktugi biðill, gleðispil í þremur
flokkum. Mikið hafa menn deilt um
það hve mikill hluti Narfa sé feng-
inn að láni. Lárus Sigurbjömsson
telur það víst að leikurinn sé skrif-
aður undir áhrifum frá Ludvig
Holberg (1684—1754), sem er upp-
hafsmaður leikritunar á Norður-
löndum, og Steingrímur J.
Þorsteinsson er sama sinnis, en
Guðmundur Kamban var ekki sam-
mála því. í eftirriti Jóns Péturssonar
af Narfa er leikurinn kallaður
íslenski narrinn með dönsku ósniði
og er þar vísað til „danska narrans
með frönsku ósniði“, þ.e. Jean de
France eftir Holberg. Þar segir og
að gleðispilið hafi verið „fyrsta sinni
spilað í Reykjavíkurskóla þann 28da
jan. 1799“. Arni Helgason segir svo
frá þessari frumsýningu í bréfi árið
1861:
„Frá [Herranóttinni] segi eg eptir
því, sem gekk til um árið 1798
(líklega misminnir Árna hvað
varðar ártalið, því sýningin var
1799, aths. Á.M.), því þá var eg
Udenlandsminister [í Herranótt-
inni]. Sigurður gamli Pétursson
skapaði allt þetta og samdi handa
okkur þá komediu Narfa, er leikin
var undir eins, í hvörri eg mátti
agera Dalsted og fékk hrós hjá
amtmanni Vibe, fyrir hvað vel mér
hefði tekist, sagðist hafa hugsað,
að Dalsted þessi væri gamli Jak-
obæus í Keflavík ...
Af þessu má glöggt sjá að per-
sónur leiksins voru sóttar í menn
sem skáldið og skólapiltar þekktu.
Má þar nefna Dalsted kaupmann
sem ráða má að sé sniðinn eftir
kaupmanni úr Keflavík, og Narfa,
sem virðist vera gerður að hluta til
af feðgum sem skólapiltar þekktu
vel til, þeim Jóni skjallara og Jóni
sora syni hans. Jón skjallari fékk
viðurnefni sitt „af því hann skrum-
aði mikið um dugnað sinn og
vitsmuni, og hrærði íslenzku og
dönsku saman í tali sínu“, segir
Árni Helgason, en Jón sori var óvin-
sæll sökum þess að hann „lá í
eyrunum" á prórektor. Svo fór með
Jón sora að hann var hýddur á
Reykjavíkurtjöm með útbleyttri
skjóðu, og lagði hann af komur
sínar í skólann.
Þetta bendir til þess að uppruni
Narfa sé ekki síður íslenskur en
danskur, og að leikritið hafi verið
ætlað til þess að henda gaman að
þeim sem skólamenn áttu sökótt
við, samhliða því að gera gys að
þeim sem lágu flatir fyrir því sem
danskt var.
Narfa svipar í mörgu til Hrólfs,
leikurinn fer fram á heimili lög-
réttumanns, komumaður lýgur á sig
alls kyns ávirðingum og að lokum
trúlofast bóndadóttirin fátækum
dyggðamanni.
Lögréttumaðurinn heitir Gutt-
ormur og á hann dóttur sem Nikulás
vinnumaður á bænum ann hugást-
um. Narfi er assistant hjá Dalsted
kaupmanni, og vill helst ekki annað
mál tala en dönsku, og leggur sig
allan fram um að vera sem dansk-
astur, til þess að ganga í augun á
íslenskri alþýðu. Á einum stað seg-
ir hann:
„NARFI: ... ben og dauð skraver
jeg int ekki íslansk, thi jag vil
vera danskur frá hvirfill til ilja
(bendir á sig), fra bröst til botn
og allt um kring."
Þetta minnir óneitanlega á þau
orð sem Árni Helgason lét falla um
danska ósniðið:
„Það var haldið á sínum stöðum
ósómi, að tala íslenzku, þótt
íslenzkir menn væru; það hét
næstum hið sama að vera íslenzk-
ur og að vera villu dýr.“
Nikulás er hetja leiksins og Sig-
urður lætur hann eflaust tala fyrir
sinn munn:
„NIKULÁS: Því mér sýnist allt
hans [Narfa] athæfi og lífemis-
máti vera furðanlega gikkslegur;
að apa eftir framandi þjóðum í
málfæri og limaburði og gera það
skammarlega illa, öllum heilvita
mönnum til athláturs, en blygðast
við sinn eigin uppruna og móður-
mál, þann kalla ég snáp, er slíkt
gerir.“
Hér er komið dæmi um máhreins-
un rúmum hundrað árum áður en
fyrsta tölublað Fjölnis kom út.
Allt hátterni Narfa er með ráðn-
um hug því_ snáparnir eru víða.
„NARFI: Eg verð að láta svo, að
einfalt fólk hafi nokkuð álit fyrir
mér, og þó ég ætli að skrifa Ingv-
ari böðli til, þá á það að vera á
hádönsku; þá er ég haldinn lærður
maður, höfðingi, ríkismaður, kall-
ast herra, veleðla, hávís, velæru-
verðugur, hálærður, bæði
velbyrðugur og — borinheit; þetta
kallast praxus, — og landssiður
er landsæra."
Þessi sýning á Narfa var söguleg
í fleira en einum skilningi. Ekki
einatt var þetta fyrsta „alvöru“
íslenska leikritið sem sett var á
svið, heldur var þetta í síðasta sinn
sem Herranótt var haldin í skólan-
um þar til hún var endurreist löngu
síðar í nokkuð breyttri mynd. Til
siðs var að valinn var konungur
Herranætur og ráherrar sem störf-
uðu með honum. Það kemur og
fram að Árni Helgason var Uden-
lansminister þessa Herranótt, en
ekki er þess getið hver var konung-
ur. Konungur tók þá upp nýmæli
og segir Árni svo frá:
„[Hátíðin endaði] svo, að sá krýndi
kóngur lagði niður völdin, þakkaði
sínum Magnater sæmd þá, sem
þeir hefðu gert sér með því að
velja sig til kóngs, en sagðist nú
ekki vilja vera meiri en þeir, held-
ur bara í samfélagi við þá, og
eptir megni með þeim efla ríkisins
heillir. Það hneixlaði að svona var
að farið vissa menn héldu að hér
stæði til revolution, eins og þá var
á ferð í Paris."
Þetta varð til þess að Geir biskup
lagði bann við því að Herranótt
yrði aftur haldin. í bréfi frá honum
til Ólafs Stefánssonar stiptamt-
manns segir hann að hann hafi lesið
„conseptið" af því sem fram fór og
þar hafi hann ekkert orð fundið
„sigtandi til að lasta monarchiska
Regering, eður til að uppvekja
óleyfileg Friheds Principia", en þó
hafí honum þótt nauðsyn á að
banna Herranæturhald til að það
gæti ekki orðið nokkrum til „hneixl-
is“.
Þrátt fyrir þetta bréf, sem dag-
sett er 25. nóvember 1799, er þó
talið líklegt að Narfi hafi verið sýnd-
ur aftur þetta ár og oft upp frá því.
Þetta umstang varð til þess að
Sigurður lagði af leikritaritun, enda
hefur hann ekki viljað styggja vin
sinn Geir Vídalín, og það hve Geir
gerði lítið úr þessu máli hefur sjálf-
sagt einnig stafað af vináttu þeirra
Sigurðar.
Að lokum er ekki hægt annað
en að geta þess að enn er ekki til
sómasamleg heildarútgáfa á verk-
um Sigurðar Péturssonar. Eina
útgáfa sem til er á ljóðmælum hans
er frá árinu 1844—46 og er hún
morandi í villum og alskyns óná-
kvæmni. Leikrit Sigurðar eru og í
þeirri útgáfu en voru aftur gefin út
í Leikritasafni Menningarsjóðs, 1.
hefti, 1950. Vissulega er kominn
til þess tími að ijr verði bætt.
Texti: Árni Matthíasson
Heimildir:
Ársrít Hins Islenska fmðafélags í Kaupmanna-
hSfn, Kaupmannahöfn 1927-1928.
Bjöm Magnússon Ólsen - Minningarrít um
Rasmus Krístján Rask — Reykjavík 1888
Blanda III, Reykjarík 1923.
Guðmundur Kamban - Faðir vorrar dramatísku
listar - Lesbók Morgunblaðsins 24. júní 1969
íslands Árbækr i sögu-formi af Jón Espólin,
Kaupmannahöfn 1854.
íslenskar æviskrár fri landnámsöld tH ársloka
1940, tínt hefur saman Páll Eggert Ólason,
Reykjavík 1951
J.H. Wessels Samlede Digte — Kjebeham 1878
Klemens Jónsson, Saga Reykja vikur, Reykjavík
1944.
Lárus Sigurbjömsson - Upphaf leiklistar i
Reykjavík í Pættir úr sögv Reykjavikur -
Reykjavík 1934
Lims Sigurbjömsson ■ Fyrstu leikrítaskild
íslands — Leikhúsmál 1960
Leikrít Sigurðar Péturssonar Hrólfur og Narfi
— Leikrítasafn Menningarsjóðs Reykjavík
1950
Ijóðmæli og leikrít Sigurðar Péturssonar -
Reykjavík 1844—46
Nýfélagsrít, sjöunda ár, Kaupmannahöfn 1848.
Safn ti! sögu tslands og íslenskra bókmennta
að fomu og nýju, Kaupmannahöfn og
Reykjavik 1907-1915
Steingrímur J. Þorsteinsson - Upphaf leikritun-
ar á Islandi — Reykjavíkl943
Itajum klukkan
giymur Emestffaningway
Mál o g menning:
Þekktar
skáldsögnr
í endur- "
útgáfu
MÁL og menning hefur endurút-
gefið bækurnar Hverjum klukk-
an glymur eftir Ernest
Hemingway og Myndin af Dorian
Gray eftir Oscar Wilde.
Hveijum klukkan glymur eftir
Ernest Hemingway er þriðja útgáfa
bókarinnar á íslensku. Sagan gerist
í borgarastyijöldinni á Spáni þar
sem Hemingway barðist sjálfur með
lýðveldissinnum gegn fasistum.
í frétt frá útgefanda segir að
söguhetja bókarinnar sé ungur*
Bandaríkjamaður sem fær það
verkefni að sprengja brú. Sagan
fylgir honum gegnum þrjá sólar-
hringa og æsilega atburðarás þar
sem hættur leynast við hvert fót-
mál og bregða skugga yfir mannleg
samskipti.
Islensk þýðing Stefáns Bjarman
kom fyrst út árið 1951. Guðjón
Ketilsson sá um gerð kápu í þess-
ari þriðju útgáfu. Prentstofa G.
Benediktssonar annaðist prentun.
Bókin er 426 bls. að stærð.
Myndin af Dorian Gray eftir
Oscar Wilde var fyrst prentuð í
Lundúnum árið 1890. í frétt frá
útgefanda segir að bókin hafi sam-
stundis vakið miklar deilur og
hneykslan. í bókinni íjallar höfund-
ur um efni sem þekkt er úr
bókmenntasögunni: ungan mann
sem lætur sál sína í skiptum fyrir
eilífa æsku.
Bókin kom út í íslensku árið
1949 í þýðingu Sigurðar Einarsson-
ar og er þetta endurskoðuð útgáfa.
Kápumynd gerði Robert Guille-
mette en prentun annaðist Prent-
stofa G. Benediktssonar. Bókin er
216 bls. að stærð.
Höföar til
„fólks í öllum
starfsgreinum!