Morgunblaðið - 27.09.1987, Page 43

Morgunblaðið - 27.09.1987, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987 43 A VIT FORTÍÐAR Erlendar bœkur Jóhanna Kristjónsdóttir Robert Godard: Past Caring Útg. Corgi Books 1987 Þetta mun vera fvrsta skáldsaga Roberts Godaids en ekki er á henni neinn viðvaningsbragur. Hún er skrifuð af mikilli frásagnargleði og ritleikni. Það sem mætti að henni finna er, að höfundur hefur eigin- lega full mörg „plott“ í henni. Svo að það tekur eftir því langan tíma að greiða úr öllum flækjunum. Martin er ungur sagnfræðingur og hefur verið kennari. Það kom eitthvað leiðinlegt fyrir hann - og ekki skýrt í bili, hvað það var. Svo að hann hrökklaðist úr kennslunni og missti frá sér Helenu Couch- man, eiginkonu sína og unga dóttur. En þegar neyðin er stærst, eins og þar stendur, skrifar honum gamall vinur, Alec, staddur á eynni Ma- deira. Alec býður honum að vitja sín á blómaeynni og kynnir hann þar fyrir Leo nokkrum Sellick væn- um manni, að því er bezt verður séð. Leo hafði keypt hús brezks manns, Edwin Stratford, að honum látnum. Seinna fann Sellick dagbók hans og fyllist forvitni á Stratford og örlögum hans. Þar sem Martin er sagnfræðingur er upplagt að láta viðfangsefnið í hendur honum. Edwin Stratford hafði um alda- mótin tekið þátt í Búastríðinu og þar var mikið vinfengi með honum og Gerald nokkrum Couchman. Atburðir í stríðinu verða til að Ed- win á erfítt með að líta Gerald réttu auga. En þegar Edwin kemur heim, ákveður hann að hella sér út í stjómmál og hann er kosinn á þing og nokkrum árum síðar verður hann innanríkisráðherra Frjálslynda flokksins. Það verður ekki betur séð en framtíðin blasi við honum hin bjartasta. Hann kynnist ungri súffragettu Elizabeth Latimer og eftir nokkrar umþenkingar ákveða þau að eigast. í stjómmálum eru blikur þó á lofti. Makk bak við tjöld- in, vegna ágreinings Neðri málstof- unnar og Lávarðadeildarinnar, deilur um það, hvort ganga eigi að kröfum súffragetta um kosninga- rétt handa kvenfólki. Og fleira og fleira. Stratford er óvenju heiðar- legur maður og tvöfeldni eitur í hans beinum. Hann fellir sig ekki við þann leik sem starfsbræður hans em sýnilega að leika og ástin til Elizabethar verður svo til að hann tekur næsta auðvelda ákvörð- un, að segja af sér. En sem hann hefur nú gert þetta, bregður svo við, að unnusta hans afneitar honum og ber honum á brýn, að hann hafi svikizt að sér. Þegar Stratford ætlar að halda áfram þáttöku í stjómmálum, er búið að skella á nefíð á honum þar líka. Hann botnar hvorki upp né niður í hvað er að gerast. Miður sín og hálfsturlaður ámm saman. Berst í heimssstyijöldinni fyrri og að henni lokinni er honum boðið að verða ræðismaður Breta á Madeira. Hann hefur enn á tilfínningunni, að einhveijir séu að beijast gegn •Sh*kaofD»phneduMauri«;...3«aieofo!d mádeecis tnd pretent wiuHans, murdcr»«nd steuthing, icmoree and iwribuöon worthy ofthepaslmiatrerahersdf iHtnMEb Kápumynd sér, en engu að síður tekur hann boðinu og flytur til Madeira. Þá hefur hann fyrir æði stundu frétt að Elizabeth fyrrnm unnusta hans og heittelskuð hefur gifzt Gerald fomvini hans. Eitthvað er gmggugt viðþað. A Madeira setur hann svo saman dagbók sína og Sellick vill nú, að eigin sögn láta Martin grafa upp, hvemig í málinu liggur. Og Martin fer síðan á stúfana. Það em liðnir áratugir, síðan þetta gerðist. En það líður ekki á löngu, unz ein- hveijir fara að reyna að setja fótinn fyrir Martin. Og hvernig getur stað- ið á þessum áhuga/kvíða eftir öll þessi ár. Það er ástæðulaust að rekja þráðinn, enda verður hann býsna flókinn. En þetta er snjöll bók og ber með sér, að höfundur hefur les- ið sér vel til um þann tíma sem Edwin Stratford var uppi á. IBMPC og samhæfðar tölvur Loksins er þessi glæsilega bók um PC- tölvur og helstu forrit fyrir PC-tölvur tilbúin til sölu hjá Tölvufræðslunni. Pantanasími er687590 r^TÖLVUFRÆÐSLAN Borgartúni 28 FJÁRMÖGNUNARLEIGA FÉFANGS HF ÞÝÐIR NÝJA LEIÐ FYRIR ÞIG OG BETRI NÝTTNGU EIGIN FJÁRMUNA Þegar þú þarft að endurnýja bifreiðina, kaupa tæki eða búnað en vilt ekki taka fé úr rekstrinuin eða ganga á eigið sparifé, þá er um að gera að fara nýjar leiðir. Þú lætur Féfang hf fjármagna kaupin fyrir þig. Það eina sem þú þarft að gera er að greiða leigugjald einu sinni í mánuði eða ársfjórðungslega. Leigutíminn er þrjú til sjö ár. TAKMARKAÐ REKSTRARFfi ÞARF F.KKl AÐ HAMLA KAUPUNUM Tæki eða búnað er hægt að leigja þó svo að rekstrarfé sé takmarkað, því binding á fjármagni er engin. Þú þarft ekki að binda dýrmætt lausafé í dýrum tækjum og nýtir þannig betur eigið fjármagn. Þú getur valið hag- stæðustu tækin óháð eigin fjármögnun og getur strax farið að afla tekna með nýja tækinu. KOMDU OG KYNNTIJ ÞÉR MÖOULBIKANA Komdu í heimsókn til okkar á skrifstofuna og kynntu þér möguleikana og hvernig við förum að. Við komum með tillögu og sýnum þér hvemig samningum er háttað. HAFNARSTRÆTI 7 - 101 REYKJAVÍK, S. 28566

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.