Morgunblaðið - 27.09.1987, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 27.09.1987, Qupperneq 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987 rokk§íðan ARNI MATTHlASSON The Smiths voru alla tfð umdalld hljómsvalt akkl sfður an vinsæl. ÞaA varður þvf sjónarsviptlr að þalm f braskum rokkhalml. Mick Jagger og poppið Grafskrift the Smiths Fátt hefur vakið meiri athygli f breska poppheiminum en ákvörð- un söngvara hljómsveitarinnar The Smiths, Steven Morrissey, að leysa hana upp í kjölfar þess að Johnny Marr, gítarleikari hljómsveitarinnar, sagði skilið við hana í sfðasta mánuði. Það kom mönnum mjög á óvart þegar Marr hætti í hljómsveitinni, enda hafði ekki borið mikið á spennu milli hans og Morrissey. Eftir að Marr fór sína leið lét Morr- issey líklega með það aö Smiths héldu áfram með nýjan gítarleik- ara. Þeir sem gerst þekktu til hljómsveitarinnar töldu það þó ólíklegt enda var Marr alla tíð meira en bara gítarleikari, hann samdi alla tónlistina sem sveitin tók upp og var ekki minni hluti af Smiths en Morissey. Ákvörðunin um að leggja niður hljómsveitina lá því í loftinu löngu áður en hún varð opinber. Það fór því svo að síðasta hljóð- versplata Smiths hjá útgáfufyrir- tækinu Rough Trade, platan Strangeways Here We Come, varð grafskrift hennar. Á Strangeways má heyra að Smiths voru komnir í einskonar sjálfheldu. Sú stöðuga framför sem heyra má á þremur hljóðvers- plötum sveitarinnar, fyrstu plöt- unni, The Smiths, og síðan Meat is Murder og The Queen is Dead, er víðs fjarri á Strangeways, og tónlistin er ekki vel lifandi. Moriss- ey semur textana líkt sem fyrr, en nú skortir nokkuð á að hann nái að gera eins góða texta og oftast áður. Hann hefur að vísu alltaf átt það til að vera nær óþolandi til- gerðarlegur, en hefur forðað sér frá því með miskunnarlausu sjálfs- háði og beittum athugasemdum um lífið og tilveruna. A Strange- ways eru stöku textar venju fremur þreytandi og nokkuö vantar á að Morissey sé sannfærandi. Þó eru á Strangeways framúr- skarandi lög eins og Smiths einir gátu sett saman, lög eins og Un- happy Birthday og I Started Something that I Couldn’t Finish, hvar lög Marr og beittir textar Morissey eru í jafnvægi svo að úr verða eftirminnileg og áhrifamikil lög. Bestu lög plötunnar, I Won’t Share You og Last Night I Dreamt the Somebody Loved Me, skipa sér í hóp þess besta sem hljóm- sveitin hefur gert og það þýðir um leið að þau eru í hópi þess besta sem nokkur bresk rokksveit hefur gert. Lifendur og dauðir Nú er komin hin versta tíð fyrir plötukaupendur og hin besta um leið. Besta því nú streyma a mark- að plötur hinna merkustu sveita og söngvara; versta því hamingjan kostar sitt. Hór á eftir verður að- eins tæpt á kostum og göllum þess sem þrjár merkar sveitir hafa ný- lega sent frá sór. JethroTull Það er næsta sjaldgæft að hljómsveit hangi lengur saman en Vimm sex ár og enn sjaldgæfara að mönnum takist að vera skap- andi lengur en það. Það hefur lan Anderson þó tekist með hljómsveit sinni Jethro Tull. Meat Loaf Tilkynnt var fyrir stuttu að bandaríski söngvarinn Meat Loaf væri væntan- legur til landsins og að hann héldi hér tónleika í Reiðhöllinni 11. október. Meat Loaf, eða Marvin Lee Aday, kannast flestir rokkáhugamenn við, enda var plata hans Bat Out of Hell, mest selda erlenda plata á íslandi í manna minnum. lí i - ■ i í þau nítján ár sem Jethro Tull hefur starfað hefur sveitin sent frá sér tuttugu plötur og nú nýlega kom út tuttugasta og fyrsta plata sveitar- innar, Crest of a Knave. Allan þennan tíma hefur lan Anderson verið potturinn og pannan í Jethro Tull en aðrir hljómsveitarmenn hafa verið margir. Einn hefur þó staðið við hlið Andersons í gegnum árin, gítarleikarinn Martin Barre. Það er lan Andersonsem semur alla tónlist og texta sem fyrr og það er gaman að sjá og heyra að hann er langt frá því að vera staðnaður. The Crest of a Knave er það besta sem komið hefur frá Jethro Tull lengi. Stundarbrjálæði Það vakti biendnar tilfinningar tónlistaráhugamanna þegar frótt- ist að David Gilmour og Nick Mason hygðust haida áfram sam- starfi undir nafni Pink Floyd þótt Roger Waters, aðalsprauta hljóm- sveitarinnar hefði sagt skilið við hana. Afurð samstarfs Gilmours, sem semur nær allt, og Masons hlaut hið lýsandi nafn A Momentary Lapse of Reason, sem útleggst stundar- brjálæði á íslensku, og margir hafa kallaö plötuna verstu sólóplötu Gilmour til þessa. Ekki er það alveg út í hött, því á plötunni örlar ekki á neinu nýju og reyndar er hvergi að finna á henni heila, hvaö þá frum- lega, hugsun. Einna helst er hún líkt og „extended remix”, eða endur- hjóðblandaðar helstu plötur Pink Floyd fram að því að Waters hætti. Það fer ekki milli mála að undir leið- sögn Gilmour og aðstoðarmanns hans Nick Mason hefur hljómsveitin tekið sín síðustu andvörp og ekki er viðkunnanlegt að þau andvörp skyldu hafa verið hljóðrituð. Hvað þá gefin út. New Order Plata frá New Order telst alitaf til tiðinda, enda hefur sveitin verið í fremstu röð framsækinna rokk- sveita f Bretlandi síðan hún var stofnuð árið 1980. Frá sveitinni hafa komið margar stórar plötur og tólftommur, en nýj- asta stóra platan er einmitt safn þeirra laga sem gefin hafa verið út á tólftommum með einuu nýju lagi. Þeir sem þekkja hljómsveitina finna sjálfsagt fátt eitt nýtt á plöt- unni, en fyrir hina er þetta fyrirtaks kynning og um leiö yfirlit yfir þróun New Order úr þunglamalegri tónlist Joy Division yfir í taktfasta danstón- list sem þó er langt frá annarri danstónlist á markaðnum hvað varð- ar innihald og fágun. Það er ekki mikill tilgangur í því að fara að telja upp bestu lög, lögin eru hvert öðru betra, en þó má geta nýja lagsins True Faith, sem er með því besta sem sem sveitin hefur sent frá sér. Ólíkt the Smiths hefur enginn viljað gefa út afdráttarlausa yfir- lýsingu um að Rolling Stones sóu ekki lengur til sem hljómsveit þó það hafi iengí leglA í loftinu. Lfkiega er of mikið í húfi ti« að Rolling Stones geti endanlega slitið samstarfinu; hljómsveitin á eftir að gera a.m.k. flmm hljómplötur fyrir CBS skv. samnlngi. í kjölfar umræðna um að sveitin sé hætt sendi Mick Jagger ný- lega frá sér plötu undir eigin nafni og Keith Ríchards undirrítaði samning við Virgin útgáfufélagið um útgáfu á stórri plötu. Að vfsu hefur Jagger gefið út plötur án Rolling Stones áður en Keith Richard ekkf. Jagger hefur alltaf staðið nær popptónlistinni en Richard sem sækir mikið í rythmablúsinn og það er kannski skýring aö hluta á því hversvegna hann hefur gert plötur einn, tóniist Rollínng Stone hefur sennilega ekki verið nógu nálægt popptónlist að hans mati. Hvað sem segja má um það þá var næsta plata Jagger á undan Primitye Cooi, She’a the Boss, hálf misheppnuð, hún náði ekki s verða poppplata hvað þá rokkplata. Við gert Primitive Cool leitaði Jagger til Dave Stewart, með anarra, sem gert hefur garðinn frægan sem betri helmingur Eurhyth- mics. Stewart semur þrjú log með Jagger og útsetur einnig, þau þrjú iög sem eru hvað poppuðust á plötunni og þar af leiðandi líkle- gust til vinsælda, enda framúrskarandi sem slík. Jagger ert þó ekki bara að leika popptónlist á plötunni, hann sýnir líka það að hann kann að leika rokktónlist. Það er þó ekki á kostnaö heildarsvips á plötunni sem en mun betrl og heilsteyptari en She’s the Boss. Héfsti gallinn er kannski það hve allt yfirbragð plötunnar er elétt og fágað, einhverjar gárur hefðu gert það að verkum að platan yrði meira en bara poppplata. Nr. Flytjandi — titill venjul. verð alslverð 1. MichaelJackson-Bad 799 719 2. PetShop Boys—Actually 749 674 3. TerenceTrent D'Arby—Intro. 749 674 4. Pink Floyd - A Momentary Lapse of Reason 749 674 5. Cock Robin - After Here Through Midland 749 674 6. Mick Jagger - Primitive Cool 749 674 7. Housemartins-The People that grinned... 749 674 8. Deacon Blue - Raintown 749 674 9. Madonna - Who's That Girl 749 674 10. Cars-Doortodoor 749 674 11. Loverboy—Wildside 749 674 12. Jethro Tull - Crest For A Knave 749 674 13. DADA-DADA 599 539 14. Hooters - One way home 749 674 15. Jesus and Mary chain - Darklands 749 674 16. Fra Lippo Lippi - Light and shade 749 674 17. Ryuichi Sakamoto - Neo Geo 749 674 18. Stuðmenn - Á gaesaveiðum 799 719 19. Ecoandthe Bunnymen 749 674 20. Puplic Image LTD - Happy? 749 674 Já þær eru ódýrari hjá okkur!! Munið tilboð vikunnar Terence Trent D’Arby kr. >49,- kr. 599,- MteVtmrhf Austurstræti, Glæsibæ, Rauðarárstig, Strandgötu og Hagkaup Kringl- , i unni. Póstkröfusimi 11620 og 28316 (simsvari), ;s €» /s

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.