Morgunblaðið - 27.09.1987, Side 51

Morgunblaðið - 27.09.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987 51 vortis blaefiingar hefjist, blóðtapp- ar myndist, hjartsláttur raskist og ígerðar verði vart. Dr. Rogers seg- ir að ekki verði hægt að segja til um fyrir víst hvernig aðgerðin hafi heppnast fyrr en eftir nokkrar vik- ur. Til þess að uppskurðurinn mætti takast þurfti að framkvæma nokkrar vandasamar aðgerðir. Blóð drengjanna var síað úr líköm- um þeirra og hjartslátturinn var stöðvaður til að afstýra heilablæð- ingum. Til þess að koma í veg fyrir að heilinn og önnur líffæri hættu starfsemi á meðan vegna skorts á súrefni, sem berst með blóði, og næringarefna var hægt á allri líkamsstarfsemi með því að lækka líkamshita drengjanna niður í tutt- ugu mælistig á selsíuskvarða. Heilar barna undir átján ára aldri þola mikla þenslu og eru því ótrú- lega fljótir að jafna sig eftir hita- breytingar. Læknarnir reiknuðu þó út að þeir hefðu aöeins eina klukkustund til þess aö skilja tvíburana að og ganga frá skurðum á höfðum þeirra eftir að blóð hefði verið tæmt úr þeim og hjörtu þeirra stöðvuð ef koma ætti í veg fyrir að þeir yrðu fyrir óbætanlegu tjóni. Aðalbláæð heilans samvaxin Heilartvíburana störfuðu óháðir hver öðrum, en aðalbláæð heilans, sem dælir blóði til hjartans, var þeim sameiginleg. Carson lagði höfuðið í bleyti til að komast að því hvernig græða mætti æðarnar eftir að tvíburarnir hefðu verið skildir að. Æðar í heila er öðru vísi samsettar en æðar annars staðar í líkamanum og var því ekki hægt að nota æð úr til dæmis fæti til ígræðingar. Loksins barst tillaga frá samstarfsmanni: því ekki að nota hluta af gollurshúsinu, pokan- um, sem liggur tvöfaldur utan um hjartað og rætur stóru æðanna. „Þetta var stórkostleg hugmynd," sagði Carson. „Við þurftum hvort sem er að opna brjóstholið og því lá beint við að nota hluta af gollurs- húsinu til ígræðingar." Klukkustund milli lífs og dauða Aðgerðin hófst þegar klukkan var stundarfjórðung gengin í átta að morgni laugardagsins eins og ráðgert var. Klukkan níu að kvöldi höfðu læknarnir skilið höfuð drengjanna að. „Nú hefjumst við handa fyrir alvöru," sagði Carson þegar höfuðkúpurnar losnuðu í sundur. En aðgerðin var erfiðari en búist hafði verið við. Sameigin- lega æðin og vefirnir umhverfis hana voru margsnúnir eins og tappatogari og torveldaði það að- skilnað bræðranna. Klukkan ellefu var hringrás blóðsins stöðvuð, öllu blóði dælt úr bræðrunum og hjörtu þeirra hættu að slá: úrslitastundin var runnin upp. Tuttugu mínútur yfir ellefu var skorið á síðasta þráð- inn, sem hélt tvíburunum saman, og skurðarborðunum var ýtt í sundur. „Augnablikið var mjög áhrifamikið," sagði Rogers. „Eng- inn kom upp orði og allir göptu af undrun." En kapphlaupinu við tímann var ekki lokið. Hvort barnið vilt þú skoða fyrst Þegar hjörtu drengjanna höfðu veriö fengin til að slá á ný með rafmagnslosti og blóði, sem hitað hafði verið upp í þartilgerðum tækjum, var dælt inn í æðar þeirra, blasti nýtt vandamál við. Inni í heilum tvíburanna höfðu hafist miklar blæðingar. [ aðgerðinni voru notaðir um þrjátíu lítrar af blóði, margfalt það magn, sem venjulega rennur um æðar barna. Læknarnir höfðu áhyggjur af að heilarnir myndu bólgna of mikið upp og ákváðu af því að koma síðar fyrir plötum úr títaníum, sem sérsmíð- aðar voru til að falla að hauskúpum síamstvíburanna. Að auki reyndist ekki vera nægt höfuðleður til að loka fyrir skurðina á hnakka beggja og þurfti því að búa um Benjamin með öðrum ráðum. Þegar læknarnir og aðstoðar- menn þeirra stigu út úr skurðstof- unni kvað við dynjandi lófatak á spítalaganginum. Rogers gekk að Theresu: „Hvort barnið vilt þú skoða fyrst," spurði hann. Móðir- inn var orðlaus. „Áætlun okkar um uppskurðinn stóðst nákvæmlega og hann gekk betur en við höfðum þorað að ,vona,“ sagði Carson þegar þol- rauninni var lokið. „Líf tvíburanna er nú á valdi Guðs.“ Heimildir: The New York Times, Newsweek, Time og DerSpiegel. SÍAMSTVÍBURAR SKILDIR AÐ Tvíburarnir voru fastir saman á hnakka Sameiginlegar æðar skildar í sundur Síamstvíburar: Sjö mánaða gamlir, Patrick og Benjamin Binder frá Ulm í Vestur-Þýskalandi. Sjúkrahús: Barnadeild Hopkins-sjúkrahússins. Aðgerð: Um 70 læknar, hjúkrunarkonurog aðstoð- armenn voru 22 klukkustundir að skilja tvíburana að. i einni af hverjum 2 til 2,5 milljónum fæóinga fæðast siamstvíburar, sem samvaxnir eru á höfði. Aðeins helmingur aðskildra tvibura lifir af. Heimild: Johns Hopkins sjúkrahúsið Löngu áður en hugtak- ið þekktist höfðu síamstvíburar komist á blað með furðuverkum sköpunarinnar. Fyrsta krufning, sem vitað er til að gerð hafi verið á síamstvíburum, átti sér stað árið 1533 í Santo Domingo í Nýja heimin- um. Prestur nokkur hafði hug á að vita hvort tvær sálir eða ein léti fyrir berast í slíkri veru. Þegar presturinn komst að því að í tvíburunum voru tvö líffæri þeirrar gerðar, sem hann taldi andann hafa aðsetur í, dró hann þá ályktun að sálirnar hlytu einnig að vera tvær. Fyrir nokkrum áratugum þótti fylgja því talsverð áhætta að skilja síamstvíbura að og veigruðu læknar sér við því að gera slíka aðgerð. Margir þeirra, sem hlutu sömu örlög og Benjamin og Þatrick Binder, voru dæmdir til þess að búa alla tíð í sama líkama og ósjaldan fram á gamals aldur. Utan marka velsæm- is og siðareglna Tvíburasystumar Daisy og Vio- Við annan mann í líkama Síamstvíburarnir Chang og Eng: annar drakk ótæpilega, en hinn bindindismaður. let Hilton, sem voru samvaxnar á mjöðunum, lifðu í sextíu ár. Þær sungu, dönsuðu og blósu í saxo- fóna og komu fram á fjölleikasýn- ingum. Þær fóru ekki varhluta af rætnisfullum rægitungum og árið 1934 var þeim slegið upp á forsíð- um slúðurblaða í New York er Violet var neitað um leyfi til að giftast. Ástæðan var sú að giftur síamstvíburi stangaðist á við öll mörk velsæmis og siðalögmála. Mál systranna var kveikjan að rit- gerð um „Kynlíf síamstvíbura". Þar komst læknir einn að þeirri niðurstöðu að annar tvíburinn „fái vissa ánægju og fullnægingu" af kynmökum hins. Þær giftust að lokum báöar, en þurftu að berjast fyrir því í réttarsölum að fá hjú- skaparleyfi. Daisy og Violet létust árið 1969 af Hong Kong inflúensu. Eldri urðu bræðurnir Chang og Eng, sem síamstvíburar geta þakkað viðurnefnið. Þeir fæddust í Síam, sem nú er Thailand, árið 1811 og á dánardægrinu höfðu þeir verið samvaxnir í 63 ár. Móð- ir Changs og Engs, sem var reyndar að hálfu kínversk og faðir þeirra Kínverji í báðar ættir, seldi þá skipstjóra bandarísks kaup- skips þegar þeir voru sextán ára. Förinni var heitið til Banda- ríkjanna þar sem þeir voru hafðir til sýnis i fjölleikahúsi Phineasar Taylor Barnum, „konungi loddar- anna". Þeir Chang og Eng, sem á íslensku útleggst vinstri og hægri, auðguðust af sýningunum hjá P.T. Barnum í New York, en ekki urðu þeir hamingjusamari við það. Eftir því sem aldurinn færð- ist yfir síamstvíburana kom betur í Ijós hversu ólíkir þeir voru. Chang var veiðimaður af ástríðu og reykti og drakk. Eng var aftur á móti stakur bindindismaður og var fátt honum síður að skapi en skotæfingarnar, sem leiddu til þeirrar ógæfu að hann missti heyrn á öðru eyra. Eng undi sór best að tafli, en Chang þyrsti í að fara út á lífið og skvetta úr klaufunum. Chang varð oft og tíðum ofurölvi og hefur væntan- lega einnig svifið á Eng, sem þurfti aftur á móti að múta bróöur sínum til að sitja kyrr meöan hann tefldi. Ástir ósamlyndra hjóna Bræðurnir kvæntust árið 1843 og settust að í Norður-Karolínu- fylki, en konur þeirra, sem báðar voru prestsdætur, hötuðust. Svo fór að síamstvíburarnir áttu sér tvo samastaði og gistu á víxl þrjár nætur hjá hvorum vegna skaphita eiginkvennanna. Þetta fyrirkomu- lag virðist hafa haft einhverja kosti. Alténd eignuðust bræðurnir 22 börn og hefðu ugglaust getað bætt einhverju við ritgerðina um „Kynlíf síamstvíbura". Ýmislegt má læra af lífi Changs og Engs, sem oft flugust á og stefndu meira að segja hverjum öðrum fyrir rétt. Greinilegt er að ásköpuð kvöð tveggja manna til að lifa í sama líkama getur dregið dilk á eftir sér og raskað sálarlíf- inu. En saman skyldu þeir lifa og er þess getið að læknirinn nafn- togaði Rudolf Virchow, sem rannsakaði þá í Berlín árið 1870, réði frá því að þeir yrðu skildir að og sagði það of áhættusamlegt. Aldarfjórðungur leið þar til tókst að skilja síamstvíbura að með góðum árangri. Árið 1839 var gerður uppskurður á þrettán ára systrum frá Bengal í París. Stúlkurnar Maria-Rosalina og Badika-Doodika voru samvaxnar á brjósti. Upp frá því hafa skurðlæknar reynt flóknari aðgerðir. En þrátt fyrir aukna þekkingu læknavísind- anna hafa ýmis vandamál sprottið upp, bæði læknisfræðileg og sið- ferðisleg. Síamstvíburar eru reyndar mjög sjaldgæfir. Af hverj- um 100 þúsund börnum, sem fæðast lifandi, er að finna eina samvaxna tvíbura. Engu að síður hafa læknar ætíð rekist á vanda- mál, sem ekki þekktust áður, og jafnvel þurft að taka ákvörðun um það hvort fórna ætti lífi annars tvíburans. Ástæðan er sú að oft eru sameiginleg líffæri í síamství- burum og má þar nefna hjarta, lifur eða maga. Eftir aðgerð eru lífslikur tvíburanna ekki þær sömu og ósjaldan eru þeir krypplingar eftir að hafa verið skildir að. Læknum hefur þó tekist að skilja síamstvíbura að með góðum árangri. Árið 1974 voru systurnar Alta og Clara Rodriguez, sem voru samvaxnar frá bringubeini og niður að mjaðmagrind, skildar að og tók aðgerðin tíu klukku- stundir. En aðrir eiga sér ekki lækningar von. Yvette og Yvonne McCarther hafa verið samvaxnar á höfði frá því að þær fæddust fyrir 36 árum. Talið var að ekki væri hægt að skera þær upp. Systurnar öfluðu sér viðurværis með því að syngja gospel tónlist víða um Bandaríkin og eru sáttar við sitt hlutskipti. Á þessu ári ákváðu þær að hefja nám í há- skóla í Kaliforníu. Ekki er jafn fátítt að síamství- burar fæðist og ætla mætti. Síamstvíburar fæddust fyrir rúmri viku í Hamilton á Nýjasjá- landi og voru skildir að um síðustu helgi. Nokkrum klukku- stundum eftir að síamstvíburarn- ir í Hamilton komu í heiminn létust samvaxnir tvíburar frá Salomóns-eyjum í Suður-Kyrra- hafi í Auckland á Nýja-Sjálandi. Þeir voru sjö daga gamlir og sam- vaxnir frá brjósti niður að nafla, en höfðu aðeins eitt hjarta. Móð- ir ein í Suður-Afríku fæddi fyrir níu mánuðum tvíbura, sem sam- vaxnir eru á höfði. Yfirvöld sjúkrahúss í Soweto hafa nú ákveðið að skera eigi dætur hennar upp og skilja þær að.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.