Morgunblaðið - 27.09.1987, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987
4
t
Móðir okkar,
ANNA SIGURJÓNSDÓTTIR,
Borðeyri,
lést í fjórðungssjúkrahúsinu Akranesi fimmtudaginn 24. september.
Börn hinnar látnu.
t
Móðir okkar,
ÁSLAUG EYJÓLFSDÓTTIR,
Laekjarhvammi,
Laugardal,
lést þann 15. sept. sl.á sjúkrahúsi suðurlands.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Gunnar Eyjólfsson,
Björgólfur Eyjólfsson.
Eiginmaður minn, t faðir okkar, sonur og tengdasonur,
ALEXANDER H. BRIDDE
bakarameistari,
Kleifarási 9,
verður jarðsunginn þriöjudaginn 29. september kl. 13.30 frá Ár-
bæjarkirkju. Marfa Karlsdóttir,
Hrafnhildur Bridde, Hermann Bridde, Karl Jóhann Bridde, Anna Ármannsdóttir,
Kristin Bridde, Karl Jóhann Karlsson, Kristin Sighvatsdóttir.
*
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GYÐA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Síðumúlaveggjum,
Hvítársiðu,
lést í sjúkrahúsi Akraness 18. september.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Guðmundur Þorgrímsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Útför mágkonu minnar, föðursystur og frænku,
OLEVIU THORARENSEN,
Hafnarstræti 104,
ferfram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 29. september kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gunnlaug Thorarensen.
Legsteinar
MARGAR GERÐIR
Mmom/Gmít
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
LEGSTEENAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681 960
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val legsteina.
l
i
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMvlUÆGI 48 SiMI 76877
Minning:
Eva Júlíusdóttir
frá Hrappsey
Ég er ekki vanur að skrifa um
þá sem eru mér kærir og komnir
yfir móðuna miklu.
Mér finnst eins og skrif sem þessi
segi svo lítið, þó vildi ég senda
nokkur fátækleg orð um systur
mína, Evu Júlíusdóttur, sem lést
sunnudaginn 13. september. Hún
var eina systir okkar sjö bræðra.
Evu systur minnist ég sem mjög
lífsglaðrar konu þrátt fyrir hart
lífshlaup enda með stórt heimili.
En hún hafði vilja og skap til að
standast allar þær kröfur sem stórt
heimili gerir svo það megi vel dafna
og hún stóðst sitt lífsins próf með
sóma og reisn.
Hún og Amar heitinn, eigin-
maður hennar, voru höfðingjar þótt
þau skörtuðu ekki vafasömum med-
alíum því til sönnunar. Þau vom
höfðingjar heim að sækja og þægi-
legt að vera í návist þeirra. Mann
sinn missti hún 1971. Hún vann
við ýmis störf eftir það.
Framundan virtust vera rólegir
dagar, dagar sem hún átti að eiga
fyrir sjálfa sig, þegar hún varð
bráðkvödd.
Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið
og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjðrtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(T.G.)
Ég þakka samfylgdina sem
gjaman hefði mátt vera lengri.
Aðstandendum og vinum sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Gunnar bróðir
Þegar upp koma þær stundir að
einhver yfirgefur þetta jarðríki
verður maður lamaður og hissa
þótt maður viti það, að þetta eigi
eftir að koma fyrir okkur öll, sökn-
uðurinn verður það mikill að maður
þarf nokkra daga til að trúa því
að ættingi eða félagi sé horfinn.
Fer maður þá yfir ævina og minn-
ingar sem maður hefur átt með
þeim sem maður er að missa og
rifjar upp það góða. Hitt lætur
maður vera því í mannlegum sam-
skiptum er það það góða í lífinu sem
hefur tilgang. Svona er lífið og við
breytum því lítið.
13. september lést tengdamóðir
mín, Eva Júlíusdóttir. Lokið er
starfsamri ævi dugnaðarkonu. Hún
var fædd 18. janúar 1920 í Fagurey
í Breiðafirði. Fluttist þaðan á öðru
ári í Hrappsey. Foreldrar Evu voru
Júlíus Sigurðsson og Guðrún Marta
Skúladóttir. Eva var næstyngst af
sjö systkinum og eftir lifa Friðjón
Júlíusson og Gunnar Júlíusson. Ung
fer hún suður að vinna, vann við
ýmis störf, þar á meðal á Hótel
Heklu, þar sem hún kynntist verð-
andi manni sínum, Arnari Jónssyni,
en foreldrar hans voru Jón Jónsson
matsveinn og Friðlín Þórðardóttir.
t
Sonur minn, bróðir og mágur,
REYNIR VIGGÓSON,
andaöist 25. sept. að heimili sínu í New York.
Margrét Sfmonardóttir
börn og tengdabörn.
t
Móðursystir mín og frænka,
RÓSA KRISTBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR,
Norðurbrún 1,
andaðist í Borgarspítalanum 21. september. Jarðarförin fer fram
frá Fossvogskirkju, mánudaginn 28. september kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hreinn Edilonsson,
Rósa Steinþórsdóttir.
t
Eiginkona mín,
JAKOBÍNA HELGA JAKOBSDÓTTIR,
Austurgötu 6,
Stykkishólmi,
lést í sjúkrahúsi Stykkishólms að morgni 24. september.
Gestur Sólbjartsson.
t
Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
MAGNÚSAR INGÓLFSSONAR,
Ferjubakka 8.
Sérstakar þakkir til Heklu hf.
Sigurbjörg Guðvarðardóttir,
Málfríður Magnúsdóttir, Unnsteinn Hjörleifsson,
Ingólfur Magnússon, Ástríður Hartmannsdóttir,
Magnea Magnúsdóttir
og barnabörn.
Lokað
Lokað á þriðjudaginn vegna jarðarfarar ALEXANDERS
H. BRIDDE, bakarameistara.
Miðbæjarbakarí.
Eva og Arnar gengu í hjónaband
6. janúar 1947. Arnar var í lögregl-
unni og vegna starfs síns bjuggu
þau á Ólafsfirði um tíma og á
Isafirði um tólf ára skeið, þar sem
þau áttu sín flest börn. Þau fluttu
til Reykjavíkur 1960. Arnar starf-
aði í Íögreglunni þar til hann lést
1. janúar 1971, þá 45 ára. Eva og
Arnar áttu átta böm, þau Júlíus,
Klöru Margréti, Haföldu Breiðfjörð,
Örn, Friðlín, Jón Hauk, Gunnar
Ingólf og Smára. Heimilið var því
mannmargt. Meðan þau bjuggu á
ísafirði réðu þau til sín konu, Sig-
rúnu Guðmundsdóttur. Hún átti að
vera í mánaðartíma við að aðstoða
við heimilisstörf, en þessi mánuður
varð 26 ár og litu allir á hana sem
eina úr fjölskyldunni. Hún lést árið
1978. Með heimilinu rak Eva sitt
eigið fyrirtæki en seldi stuttu eftir
að Arnar dó. Síðustu árin bjó hún
í Hveragerði. Þar komu barnaböm-
in oft. Þar var nóg pláss fyrir alla.
Hún minnkaði við sig húsnæði fyrir
ári og keypti litla skemmtilega íbúð
í Reykjavík.
Með vinarkveðju,
Ragnar G.D. Hermannsson
og fjölskyldan Kaldaseli 2.
Sunnudaginn 13. september sl.
lést í Reykjavík Eva Júlíusdóttir,
aðeins 67 ára að aldri. Evu frænku
kynntist ég fyrst þegar ég kom til
hennar í sveitina 1956. Þótt bam-
margt væri þar fyrir gat hún alltaf
fundið rými fyrir einn í viðbót á
heimili sínu og naut ég þar góðs
af, einnig systur mínar. Heimili
hennar stóð okkur systkinum ávallt
opið og má segja með sanni að þar
hafi verið okkar annað heimiíi í
bemsku.
Eva giftist Amari Jónssyni 1947.
Eignuðust þau átta böm sem öll
eru á lífi. Þau bjuggu á Ólafsfirði
og Isafirði áður en þau fluttust al-
farin til Reykjavíkur 1961, en tíu
árum síðar missti hún eiginmann
sinn sem varð bráðkvaddur á heim-
ili þeirra hjóna.
Um tíma fluttist Eva til Hvera-
gerðis og starfaði þar m.a. við
aðhlynningu sjúkra.
Svo virðist sem hún hafi verið
burt kölluð í þann mund er hún gat
farið að lifa þægilegu, áhyggjulausu
lífi, búin að skila mikilli starfsævi
þótt ævin væri ekki löng og búin
að skila sínu uþpeldishlutverki. En
þá — einmitt þá — deyr hún.
Ég man vart eftir Evu frænku
öðm vísi en sístarfandi. Kona, sem
vildi ekki að neinn ætti nokkuð inni
hjá sér, enda bað hún aldrei nokk-
um um neitt sér til handa, það
hefði ekki farið saman við hennar
skapgerð.
Eva og Amar em í huga okkar
klettar í úfnum sjó, sem stóðust
marga ágjöfina. Við minnumst
þeirra með þökk og virðingu og
sendum bömum, bamabömum,
bræðmm og vinum hennar okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Þröstur, Sigrún og Harpa.
Höfóar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
'T'TT™
_1