Morgunblaðið - 27.09.1987, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987
53
Kveðjuorð:
Sveinn Jóhanns-
son Varmalæk
Fæddur 7. júní 1929
Dáinn 17. september 1987
Hetjulegri baráttu er lokið.
Sveinn Jóhannsson á Varmalæk í
Skagafirði varð að lúta ógnarvaldi
hins lævísa sjúkdóms, sem virðist
leggja æ fleiri að velli. í Skagafirði
hefur ský dregið fyrir sólu og tóma-
rúm orðið á Varmalæk, sem ekki
verður fyllt.
Margar kærar minningar leita á
hugann frá ellefu ára samveru í
Lýtingsstaðahreppi, þegar Sveins á
Varmalæk er minnst. Hann var
óvenju sterkur persónuleiki og var
enginn í vafa um, hver hefði for-
ystuhlutverkið, þar sem hann fór.
Hann var hlýr heimilisfaðir og
bjuggu hann og kona hans, Herdís
Bjömsdóttir frá Stóru-Ökrum í
Blönduhlíð, í einstaklega farsælu
hjónabandi, þar sem aldrei bar
skugga á, þótt annir væm í mestan
máta og viðfangsefnin erfið. Sveinn
var ástúðlegur sonur öldmðum for-
eldmm, Jóhanni Magnússyni frá
Gilhaga og Lovísu Sveinsdóttur frá
Mælifellsá, sem bjuggu á ævikvöldi
í skjóli hinnar samhentu flölskyldu
á þjóðkunnu risnuheimili. Þá má
minnast hans úr snarpri orðræðu á
opinbemm vettvangi og fyrir besta
ráðgjöf og framsýni í málum sveit-
arinnar, og er þá einkum hugsað
til fyrstu hússtjómar félagsheimilis-
ins Árgarðs og ferðanefndarstarfa.
Ekki skal gleymt að nefna Svein
sem hinn ljúfa og glaða félaga á
góðri stundu heima og heiman, og
átti hann auðvelt með að kasta fram
stöku eins og hann átti kyn til.
Þrátt fyrir geysilegt annríki þeirra
hjónanna, og raunar allra á Varma-
læk, vom þau Sveinn og Hebba
ásamt Bimi syni þeirra trúfastir
kirkjukórsfélagar og áttu virkan
þátt í farsæælu kór- og safnaðar-
starfi.
Þá er ótalinn stór þáttur í minn-
ingageymdinni og hann ekki sá
veigaminnsti. Það em hestaferðim-
ar með útlendinga yfír Kjöl, sem
Sveinn stóð fyrir um árabil. Þar var
hann sannarlega í essinu sínu, hinn
fæddi foringi og kunni það sem
þurfti til að skapa öryggi ferðalang-
anna, oft við erfiðar aðstæður,
ánægju og lífsnautn. Af glöggu
innsæi valdi hann rétta hestinn
handa hveijum og einum, þótt fólk-
ið væri honum auðvitað ókunnugt.
Það er ekki hægt að lýsa hugljómun
hestamanna á Qallaferð fýrir þeim,
sem eigi hafa reynt, og alls ekki á
slíkri ferð með Svein á Varmalæk
í fararbroddi. Þar verður þakklæti
samferðarmannanna efst í huga.
Er skýr myndin af þeim Ragnari
Stefánssyni á Akureyri, vini Sveins,
sem oftast fór með, á hestbaki í
birtu miðnætursólar og við jöklasýn
eða í skála á Hveravöllum eða í
Hvítámesi, þegar ró færðist yfír
eftir dagsins önn.
Gott er líka að eiga raunvemleg-
ar myndir um góða daga á filmu
og hefur sjónvarpsmyndin Yfir Kjöl,
þar sem Sveinn gegnir hlutveki,
glatt marga hér í Danmörku og líka
hestamenn í Þýskalandi og Sviss.
Hugsa íslandshestavinir þar heim
í Varmalæk að útför Sveins í þakk-
læti og virðingu.
Þessi sorgardægur finnum við,
hve heimilið á Varmalæk hefur
misst mikils. Þetta óvenjulega
heimili, sem veitti sveitungum, vin-
um og framandi langferðafólki af
svo mikilli rausn. Þar áttu þau öll
hlut að máli systkinin með foreldr-
um sínum, en þau em Lovísa, Bjöm,
Jóhann Pétur, Gísli, Sigríður og
Ólafur. Það þurfti að taka til hendi
Birkir Njáls-
son — Kveðjuorð
Fæddur 16. aprU 1955
Dáinn 9. september 1987
Og þvi varð allt svo hljótt við helfregn þína
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið
og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(T.G.)
Hann Biggi bróðir okkar er dá-
inn. Þvílíkt reiðarslag að verða að
horfast í augu við að þessi duli,
viðkvæmi og góði drengur er horf-
inn, og hve örstutt bilið er á milli
lífs og dauða.
Hve grandalaus við emm alltaf
og notum tímann ekki nógu vel af
því að okkur finnst hann nægur og
daglegt amstur situr í fyrirrúmi.
Síðan stöndum við eins og flestir
frammi fyrir því einn dag að tíminn
og tækifærin em horfin og ekkert
getur bætt það nema minningamar
um allar þær góðu stundir sem við
áttum saman.
Minningar og hugsanir leita
stanslaust á, minningar um þennan
litla bróður sem var langyngstur
okkar systkina. Þennan dreng sem
var alltaf jafn tryggur og alls
trausts verður, sem hægt var að
tala við um allt milli himins og jarð-
ar í fullu trausti og þeirri vissu að
allt var vel geymt og að þeim trún-
aði yrði aldrei bmgðist.
Við gleðjumst yfir því að draum-
urinn sem hann átti sfðan hann var
lítill drengur gat hann látið rætast,
að læra flug og fljúga um loftin
blá. Þó það yrði ekki hans atvinna,
þá veitti það honum margar
ánægjustundir.
Einnig leita á hugann orðin sem
spámaðurinn hafði um leyndardóma
dauðans; „Hvað er að hætta að
draga andann annað en að frelsa
hann frá friðlausum öldum lífsins,
svo að hann geti risið upp í mætti
sínum og ófjötraður leitað á fund
guðs síns.“ Við vonum að þau orð
séu sönn. Guð geymi þig elsku
Bigga.
----------Gréta og Jón- Víðir
við búskapinn, verslunina, gróður-
húsin, hestaútgerðina og svo þurfti
að annast um gestina og tala við
þá. Systkinin bera þess vitni, hve
vel þeim leið þar öllum í eindrægni
og gleði.
Sjaldan hefur orðið eins tómlegt
hér í útlandinu og þegar lát Sveins
fréttist. Þá er sárt að vera fjarri
góðum grönnum. Guðs blessun fýlgi
fjölskyldunni á Varmalæk og stafí
birtu á allar góðu minningamar.
Guðrún L. Asgeirsdóttir,
Jónshúsi,
Kaupmannahöf n.
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjóm blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins i Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3
erindi og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er
birtur. Meginregla er sú, að
minningargreinar birtist undir
fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það Iögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Blómostofa
Fnöfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
0pi6 öll kvöld
tll kl. 22,- eínnig um helgar.
Skreytlngar við öll tilefni.
Gjafavörur.
VELLÍÐAN
Nudd sem dregur úr spennu
og slakar á strekktum vöðvum
Þegar streita eða
strekktir og spenntir vöð-
var hrjá þig er gott að eiga
góða að, umhyggjusaman
maka eða náinn vin/vin-
konu með góðar hendur,
til að hjálpa þér að „slappa
af“. Hér fer á eftir þrenns-
konar nudd, sem gott er
að læra og kenna öðnun.
Nuddið tekur ekki langan
tíma og það stórbætir líðan
þína, bæði iíkamlega og
andlega.
1. Liggðu á maganum með
kinnina á þunnum kodda og
handleggina afslappaða niður
með hliðunum. Nuddarinn
stendur við höfðagaflinn og
smyr sig vel um lófana með
góðu kremi áður en hann/hún
nuddar þig með báðum lófum
frá hnakka niður með herða-
blöðunum við hrygginn og út
til hliðanna beggja vegna með
jöfnum og mjúkum strokum.
Nuddið er endurtekið nokkrum
sinnum eftir þörfum.
2. Nuddarinn leggur aðra hönd-
ina ofan á hina til að fá meira
átak. Nuddað er frá hnakka,
niður eftir herðablaði og út að
handarkrika með jöfnum en
stuttum strokum fram og til
baka. Endurtekið nokkrum
sinnum og nuddað til beggja
hliða.
3. Allir fingur eru notaðir til
að nudda hnakka og axlavöðva
með léttum hringlaga strokum.
Nuddið í þá átt sem örvamar
á myndinni sýna.
„Fegrunardrykkur“
Eftir nuddið er ekkert á
móti því að fá sér þennan
drykk, sem er bæði hollur og
bætandi fyrir útlitið. Og „feg-
runardrykkinn" má drekka oft
á dag, ekki sízt þegar verið er
í megrun. Drykkurinn er nefni-
lega saðsamur auk þess sem
hann er ríkur af vítamínum og
söltum og góður fyrir húðina.
(Olían sem notuð er gerir húð-
ina unglega og mjúka.) Blandið
vel saman 2 sentilítrum af epla-
ediki, 2 sl af jurtaolíu, 2 sl af
hunangi og dálitlu af appelsínu-
eða sítrónusafa. Þéssi drykkur
er ef til vill ekki sérlega bragð-
góður í byijun, en hugsaðu
bara um hvað hann gerir þér
gottí
«
t
Mófiir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir,
EVA JÚLÍUSDÓTTIR
frá Hrappsey,
Þangbakka 8, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 28. september
kl. 15.00.
Júlíus Arnarsson,
Klara M. Arnarsdóttir,
Hafalda B. Arnarsdóttir,
Örn Arnarsson,
Friðlin Arnarsdóttir,
Jón H. Arnarsson,
Gunnar I. Arnarsson,
Smári Arnarsson,
Gunnar J. Júlíusson,
Friðjón I. Júlíusson,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.