Morgunblaðið - 27.09.1987, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987
55
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / SUNDFÉLÖG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Litið inn á æfingu hjá Ármanni,
Ægi og Sundfélagi Hafnarfjarðar
Sundfélög á höfuðborgarsvæð-:
inu hafa átt undir högg að
sækja undanfarin ár vegna mikils
krafts í félögum úti á landi t.d. á
^■1 Bolungarvík, Þor-
Andrés lákshöfn og Akra-
Pétursson nesi. En það er þó
skrifar nokkur hópur sem
heldur uppi nafni
sundíþróttarinnar á höfuðborgar-
svæðinu. Eftir því sem unglingasíð-
an kemst næst þá eru sunddeildir
starfandi hjá KR, Armanni, Ægi,
Breiðablik og Sundfélagi Hafnar-
ijarðar.
Unglingasíðan leit inn á æfingu hjá
þremur þessara félaga: Ármanni,
Ægi og Sundfélagi Hafnarfjarðar.
Hjá Ægi, sem var um langt árabil
sterkasta sundfélag landsins, æfa
nú um 30 manns. Flest þeirra eru
á aldrinum 13—19 ára og æfa þau
a.m.k. sex sinnum í viku. Þau sem
blaðamaður hitti í Laugardalnum,
Ragnar, Ingibjörg, Þórunn, Karl,
Bima og Ama vom að fara að
hlaupa en það er besta aðferðin til
að komast í úthald í byijun tíma-
bils. Spumingunni hvers vegna
landsbyggðin hefði skotið höfuð-
borgarsvæðinu aftur fyrir sig
svömðu þau greiðlega. Þau töldu
að samheldnin væri meiri á minni
stöðunum úti á landi, einnig kæmi
til öflugur stuðningur bæjarfélag-
anna við sundfélögin og þar að
auki að foreldramir styddu svo vel
við bakið á bömunum. Ekki vildi
blaðamaðurinn tmfla æfinguna of
mikið þannig að við þökkuðum pent
fyrir okkur og héldum af svæðinu.
Alltaf ssft með Ármanni
Skömmu síðar kom hópurinn frá
Armanni á æfingu. Blaðamaður
ræddi stuttlega við Viðar Magnús-
son 17 ára og Berglindi Libungan
13 ára. Viðar hefur æft sund í 2
ár en Berglind einungis í 6 mán-
uði. Þau sögðust alltaf hafa æft
með Ármanni en þyrftu því miður
að viðurkenna að Ægir væri líkleg-
ast með betra lið en Ármann. En
alltaf væri mikill metnaður að reyna
að sigra Ægi.
Kraftur f Sundfélagl
HafnarQaröar
Það var mikið um að vera í Sund-
höll Hafnarfjarðar þegar blaðamað-
ur mætti á staðinn. Þar var þá eldri
hópur Sundfélagsins að mæta á
æfíngu. Töluverður áhugi er á sundi
í Hafnarfirði og æfa um 70 krakk-
ar reglulega með Sundfélagi
Hafnarfjarðar.
Félagið er 47 ára gamalt og stend-
ur því á gömlum grunni. Við
ræddum við tvo af krökkunum: þau
Valgerði Guðjónsdóttur og Kristin
Magnússon um starfsemina og sund
almennt. Kristinn hefur æft sund í
átta ár. „Ég byrjaði á körfuboltan-
um en þar sem ég bý hér við hliðina
á Sundhöllinni þá var auðveldara
j að fara hingað að æfa en að fara
j alla leið niður í bæ.“ Svo mælti
Kristinn en hvað sagði Valgerður:
„Ég man nú ekki alveg af hveiju
ég byijaði að æfa sund en þetta
er góður félagsskapur og maður
hefur þá eitthvað að gera.“
Fyrlr mót er æft átta
slnnum íviku
Það er ótrúlegt hvað sundfólk legg-
ur á sig í sambandi við æfíngar.
Þau æfa nú fímm sinnum í viku
en það getur farið upp í átta sinnum
þegar æft er fyrir mót. Fæstir halda
þetta út mjög lengi og er flest sund-
fólk ungt að árum. Kristinn er nú
orðinn 20 ára en það sem heldur
honum við efnið er að hann er í
landsliðinu og það eflir áhugann.
Valgerður segist ennþá njóta þess
að æfa en veit ekki hve lengi hún
heldur það út að æfa svona mikið.
Eldri hópurinn í skemmtilegri stellingu í Sundhöllinni í Hafnarfirði.
...
Ægiskrakkamir Ragnar Guðmundsson þjálfari, Ingibjörg Sveinbjömsdóttir, Þómnn Guðmundsdóttir, Karl Pálmason,
Bima L. Birgisdóttir og Ama Þórey Sveinbjömsdóttir.
Hópurinn hjá Armanni í Laugardalslauginni.
Viðar Magnússon og Berglind Libung-
an æfa bæði með Ármanni. Viðar, sem
er 17 ára, hefur æft sund í tvö ár,^
en Berglind, 13 ára, hefur aðeins æft
í sex mánuði. Þau em metnaðarfull
og stefna lengra í íþróttinni.