Morgunblaðið - 27.09.1987, Síða 56
SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1987
VEIÖÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Morgunblaðið/RAX
Karl og kerling í Þórsmörk
Útlit fyrir tap
hjájárnblendi-
verksmiðjunni
Verð á kísiljárni er heldur hækkandi
ÚTLIT er fyrir að einhver halli
verði á rekstri íslenska járn-
blendifélagsins á Grundartanga
á þessu ári, að sögn Jóns Sigurðs-
sonar framkvæmdastjóra. Rekst-
urinn hefur skilað hagnaði flesta
mánuði ársins en þó ekki nægu
til að vinna upp tapið sem varð
vegna rekstrarstöðvunar verk-
smiðjunnar í sumar. Rekstraraf-
koman verður þrátt fyrir þetta
mun betri en á síðasta ári þegar
um 200 milljóna króna tap varð
á rekstrinum.
Jón segir að reksturinn hafi ver-
ið í jafnvægi um mitt ár, eða þar
til ákveðið var að stöðva verksmiðj-
Reykjavík:
Þrír pilt-
ar réðust
að tveim-
ur konum
ÞRÍR unglingspiltar réðust^ að
tveimur konum i bíl við Ála-
granda í Reykjavík á föstudags-
kvöldið. Piltarnir skemmdu
bUinn talsvert með barsmíðum
en konurnar sakaði ekki. PUt-
arnir höfðu ekki fundist á
laugardagsmorguninn.
Talsverð ölvun var í miðborg
Reykjavíkur á föstudagskvöld og
aðfaranótt laugardags, en að sögn
lögreglu var þar um „venjulegt"
föstudagskvöld að ræða og engin
stór vandræði hlutust af. Þó voru
rúður brotnar á Hótel Borg, Póst-
húsinu við Austurstræti og ljós-
myndavöruverslun í sömu götu.
una í 5 til 6 vikur í júlí og ágúst
vegna sumarleyfa starfsfólks,
markaðsaðstæðna og viðhalds.
Hagnaður væri á rekstrinum frá
mánuði til mánaðar, en ekki væri
útlit fyrir að það dygði til að vinna
upp tapið.
Verð á kísiljámi hefur farið
hækkandi, en er þó enn lágt, að
sögn Jóns. Hann segir að verksmiðj-
umar hafi dregið úr framleiðslu og
eftirspumin auk þess aukist lítil-
lega, þannig að aðstæður væm til
verðhækkunar. Verðhækkun hefði
orðið á Evrópumarkaði. Þá hefði
orðið 20—25% hækkun í þeim mark-
aðslöndum sem greiddu í dollumm,
en fall dollarans gagnvart norsku
krónunni gerði það að verkum að
hækkun afurðaverðsins hefði ekki
skilað fyrirtækinu auknum tekjum.
Tiltölulega litlar birgðir em nú
af kísiljámi í heiminum. Sem dæmi
um þetta nefndi Jón að um helgina
kæmi skip frá Japan og tæki nán-
ast allar birgðir íslenska jámblendi-
félagsins.
Kostnaðarauki vegna launahækkana um 1,5% fyrir fiskvinnsluna:
Efasemdir um áframhald
verðhækkana erlendis
FORSVARSMENN fiskvinnsl-
unnar segja að 7,24% launahækk-
un um næstu mánaðamót hafi í
för með sér verulegan kostnað-
arauka fyrir atvinnugreinina,
allt að 1,5%. Einnig sjáist ýmis
teikn um að ekki verði um áfram-
haldandi verðhækkanir á erlend-
um mörkuðum að ræða, sem
^Jiefur gert fiskvinnslunni kleift
að standa undir verðlagshækk-
unum þrátt fyrir fast gengi.
Sigurður Markússon fram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar
Sambandsins sagði við Morgun-
blaðið að ætla mætti að þessi
launahækkun hefði í för með sér
um 1,5% kostnaðarhækkun fyrir
* 'Tískvinnsluna og auk þess kæmi
þessi hækkun jnn í afleiddar at-
vinnugreinar. „í þessu fasta gengi
kemur vinnslan til með að lenda í
meiri klemmu en hún er í þegar,
því verðbólgan er á verulegu skriði.
Ég varð því mjög undrandi að heyra
að búið væri að reikna út að sjávar-
útvegurinn gæti tekið á sig þessar
hækkanir. Eg tel að fískvinnslan
geti það ekki nema eitthvað annað
komi til á móti og ég er ekki viss
um að við getum átt von á áfram-
haldandi verðhækkunum erlendis,"
sagði Sigurður Markússon.
Brynjólfur Bjamason forstjóri
Granda hf. tók í sama streng og
sagði við Morgunblaðið að þessi
launahækkun, eins og aðrar inn-
lendar kostnaðarhækkanir, kæmi
mjög illa við þessa atvinnugrein.
Erlendar tekjur hefðu ekkert breyst
og launahækkunin þýddi einfald-
lega að rekstrarskilyrðin versnuðu.
„Það er að vísu ekki hægt að segja
að Bandaríkjamarkaður sé farinn
að dala en við sjáum teikn um að
þar sé ekki alltaf á vísan að róa,
að verðið hækki stöðugt og eftir-
spumin aukist," sagði Brynjólfur.
Sigurður Markússori sagðist að-
spurður ekki vilja að taka undir
gengisfellingu á þessu stigi máls-
ins. „En það er ekki endalaust
hægt að vinna þannig að verðbólga
í landinu sé miklu meiri en breyting
á erlendum gjaldmiðlum. Það eina
sem gæti gert það kleyft að stand-
ast slíkt er að verð hækki erlendis
og ef verðhækkanir stöðvast ráðum
við ekki lengur við málið, svo ein-
falt er það,“ sagði Sigurður.
Hartdeilt
umtré
TVEIR menn, sem búa á höf-
uðborgarsvæðinu, deila nú
um tré í garði annars þeirra.
Garðeigandinn vill láta tré
sitt standa óáreitt, en ná-
granni hans heldur þvi fram
að tréð valdi honum óþæg-
indum, meðal annars vegna
þess að fuglar himinsins setj-
ist i greinar þess og driti á
bifreið hans.
Mennimir hafa verið ná-
grannar í nokkur ár. Á þeim
tíma hefur annar þeirra horft
með hryllingi á vöxt trésins í
garði hins. Nú er svo komið að
greinar þess ná yfir innkeyrslu
mannsins. Hann á nýja bifreið,
sem honum er ákafiega annt
um og bónar hann hana oft og
mikið. Hann hefur hins vegar
kvartað við lögregluna yfir því,
að laufblöð falli af trénu á bif-
reiðina og þar að auki setjist
fuglar í tréð og driti á ný-
þvegna bifreiðina. Þess vegna
krefst hann þess að greinar
þær, sem ná yfir bifreiðina,
verði sagaðar af. Þessu vill
garðeigandinn ekki una og
gæti komið til málaferla vegna
þessa.
Síldarvertíðin hefst 8. október:
Hver bátur fær
að veiða 800 tonn
SÍLDARVERTÍÐIN hefst að
þessu sinni 8. október, nokkrum
dögum fyrr en á síðustu vertíð.
Um 90 bátar hafa fengið leyfi
til veiðanna.
Að sögn Jóns B. Jónassonar
skrifstofustjóra í sjávarútvegsráðu-
neytinu er þetta svipaður fjöldi báta
og stundað hefur veiðamar. Hver
bátur hefur leyfí til að veiða 800
tonn, þannig að heildarkvótinn er
72 þúsund tonn. Á síðustu síldar-
vertíð vom veidd um 65 þúsund
tonn.