Morgunblaðið - 18.12.1987, Blaðsíða 1
136 SIÐUR B/C
<3
11
STOFNAÐ 1913
288. tbl. 75. árg.
FOSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsíns
Heimamarkaður Evrópubandalagsins:
Svíar vilja afnema
viðskiptahindranir
Stokkh&lmi, Reuter.
SÆNSKA ríkisstjórnin tilkynnti í gær að hún hygðist leitast við að
afnema viðskiptahindranir milli Svíþjóðar og Evrópubandalagsins
(EB) og komast inn á heimamarkað bandalagsins, sem áformað er
að koma á fót árið 1992. í skjalfestri stefnuyfirlýsingu sem ríkis-
stjórnin hefur samþykkt og lagt fyrir þingið segir að stjórnin hyggist
ná þessu fram með tvíhliða viðræðum við EB og í gegnum Fríversl-
unarbandalag Evrópu (EFTA).
„Við munum vinna að því að
komið verði á fót sameiginlegum
markaði ríkja Vestur-Evrópu, sem
Hráolía lækk-
ar enn í verði
London, New York, Reuter.
HRÁOLÍA féll f verði i gær og var
fatið selt á 15,15 dollara í London.
Ijekkunin nam einum dollar frá
þvi á miðvikudag.
Sýnt þykir að aðgerðir samtaka
olíuframleiðsluríkja (OPEC) muni
ekki duga til að halda uppi olfuverði
en á mánudag ákváðu ríkin að verðið
skyldi vera 18 dollarar á fatið.
Lækkun olfuverðs dugði þó ekki
til þess að styrkja stöðu dollarans og
féll hann gagnvart helstu gjaldmiðl-
um bæði á flármálamörkuðum í
Evrópu og Bandaríkjunum. í New
York var gengi dollarans skráð á
125,85 jen er viðskiptum lauk þar í
gær og hafði gengi gagnvart jeninu
ekki verið lægra frá lokum síðari
heimsstyijaldarinnar.
Reuter
Karpov
nægir
jafntefli
Anatolíj Karpov bar sigurorð
af heimsmeistaranum Garry
Kasparov í 23. einvfgisskák
þeirra, sem telfd var í gær eft-
ir að hún hafði farið f bið á
miðvikudag. Einungis ein skák
er nú ótefld og verður Kasparov
að sigra f henni ætli hann að
halda heimsmeistaratitlinum.
Myndin sýnir Karpov og eigin-
konu hans, Natösju, koma út
úr Lope de Vega-leikhúsinu í
Sevilla á Spáni þar sem ein-
vfgið fer fram.
Sjá skákskýringu á bls. 50.
nái yfír öll 18 lönd EFTA og Evr-
ópubandalagsins," segir meðal
annars í yfírlýsingunni. Anita Grad-
in utanríkisviðskiptaráðherra sagði
í gær að ríkisstjómin hefði hins
vegar ekki hvikað frá þeirri afstöðu
að aðild Svía að bandalaginu væri
ósamrýmanleg hlutleysisstefnu
þeirra.
„Við emm reiðubúin að ræða
fíjálsan flutning vöm, þjónustu,
vinnuafls og fjármagns. Ef þetta
þýðir að við þurfum að opna fyrir
sænska vinnumarkaðinn og afnema
höft á fjármagnsflutningi sættum
við okkur við það,“ sagði talsmaður
ríkisstjómarinnar á fundi með
fréttamönnum.
Haldið með ólympíueldinn til Calgary
Brian Mulroney, forsætisráðherra Kanada, eiginkona hans og sonur fylgdust með því í gær er
með ólympíueldinn frá þinghúsinu í Ottawa áleiðis til Calgary þar sem vetrarólympíuleikamir
í febrúar á næsta ári. Aldin íþróttakempa, John Gmber að nafni, hélt á kyndlinum fyrsta spölinn,
til hægri er Otto Jelinek, íþróttamálaráðherra í stjóm Mulroneys.
Reuter
haldið var
fara fram
, en lengst
Gustav Husak lætur af embætti leiðtoga tékkneskra kommúnista:
Eftirmaðurinn tæpast talinn
boða róttækar breytingar
Vín, Moskvu, Reuter.
GUSTAV Husak, leiðtogi tékk-
neska kommúnistaflokksins,
tilkynnti á miðstjómarfundi í
Prag í gær að hann hefði ákveð-
ið að segja af sér. Husak mun
áfram gegna embætti forseta
Forstjóri
Elkem seg-
ir af sér
Osló, NTB.
KASPAR Kielland, forstjóri
norska stórfyrirtækisins Elkem,
tilkynnti í gær að hann hefði
ákveðið að segja af sér. Fyrir-
tækið á hlut i íslenska járnblendi-
félaginu en afsögn Kiellands má
rekja til tapreksturs Elkem á
síðasta ári og i ár.
Kielland skýrði frá ákvörðun
sinni á stjómarfundi Elkem í gær
en þess var farið á leit við hann
að hann gegndi áfram starfí for-
stjóra þar til eftirmaður hans hefur
verið skipaður. Aðspurður vildi
Kielland ekki tjá sig um hvort hann
gæti hugsað sér annað starf innan
fyrirtækisins. „Ég vil einungis gera
það sem þjónar hagsmunum El-
kem,“ sagði hann.
Elkem hefur átt í erfiðleikum á
undanfömum tveimur ámm vegna
erfiðra markaðsaðstæðna fyrir
framleiðsluvömr fyrirtækisins auk
þess það hefur staðið í miklum fjár-
festingum bæði í Noregi og erlend-
is.
landsins. Milos Jakes, ritari mið-
stjórnarinnar, hefur verið skip-
aður eftirmaður Husaks en ekki
er búist við róttækum breyting-
unm í Tékkóslóvakiu 1 kjölfar
þessa. MíkhaU S. Gorbatejov Sov-
étleiðtogi fagnaði kjöri Jakes í
gær og hvatti hann til að vinna
að endurbótum á sviði félags- og
efnahagsmála í anda umbóta-
stefnunnar, sem Gorbatsjov
hefur boðað í Sovétríkjunum og
ríkjum austan járntjaldsins. Jak-
es lýst yfir þvi í gær að hann
hygðist gera einmitt þetta.
Ceteka, hin opinbera fréttastofa
Tékkóslóvakíu, skýrði frá því að
miðstjóm flokksins hefði fallist á
afsögn Husaks en lét þess ekki
getið hvaða ástæður hann hefði
nefnt fyrir ákvörðun sinni. Hann
er 74 ára gamall og þykir bera ald-
urinn nokkuð vel. Vestrænir stjóm-
arerindrekar kváðust efast um að
afsögn Husaks mætti rekja til
þverrandi heilsu hans en hins vegar
sögðu heimildarmenn Reuters-
fréttastofunnar í röðum tékkneskra
andófsmanna að heilsu Husaks
hefði hrakað að undanfömu.
Husak, sem hafði ríkt í 18 ár,
lagðist í fyrstu gegn umbótastefnu
Gorbatsjovs en lýsti sig síðan fylgj-
andi henni er Gorbatsjov sótti
Tékkóslóvakíu heim í apríl á síðasta
ári. Segja erlendir sendimenn að
Husak geti engu að síður ekki fellt
sig við steftiu Sovétleiðtogans og
greinilegt hafí verið að Gorbatsjov
hafi þótt miða hægt í umbótaátt.
Ólíklegt er þó talið að Kremlveijar
hafí beinlínis þvingað Husak til að
segja af sér.
Jakes, eftirmaður Husaks, er sér-
fræðingur í efnahagsmálum og
þykir það benda til að honum sé
ætlað að endurskipuleggja staðnað
efnahagslíf landsins og koma á
pólitískum umbótum. Jakes , sem
er 65 ára að aldri, tók virkan þátt
í hreinsunum sem sigldu í kjölfar
innrásar Sovétmanna í Tékkóslóv-
akíu árið 1968 en þá var um 70.000
manns vikið úr tékkneska komm-
únistaflokknum. Erlendir stjómar-
erindrekar segja að Jakes geti
engan veginn verið talinn talsmaður
fíjálslyndis og því muni valdaskipt-
in tæpast hafa verulegar breytingar
í för með sér. „Svo virðist sem að
í Jakes hafí stríðandi fylkingar inn-
an kommúnistaflokksins, hug-
myndafræðingar og talsmenn
eftiahagsumbóta, fundið málamiðl-
un í deilu þeirra um breytingar á
stjómkerfinu, sem staðnaði fyrir
20 árum,“ sagði einn þeirra.
Bandaríkin:
Bush studdi sölu
vopna til Irans
Washinjfton, Reuter.
GEORGE Bush, varaforseti
Bandaríkjanna, studdi þá við-
leitni bandariskra embættis-
manna að fá gisla í Líbanon
keypta lausa með því að selja
írönum vopn. Kemur þetta fram
í skjölum, sem birt voru í gær
en hafa verið i vörslu þingnefnd-
ar sem rannsakað hefur vopna-
söluhneykslið.
í skjölunum kemur fram að Bush
hafí lýst því yfír að „reyna beri"
að fá gísla í höndum öfgamanna í
Líbanon leysta úr haldi með þessum
hætti. Bush hefur ekki viljað láta
uppi hvaða afstöðu hann tók í
vopnasölumálinu af ótta við að það
skaði möguleika hans í forsetakosn-
ingunum á næsta ári, en hann hefur
gefíð kost á sér til þess embættis
fyrir Repúblikanaflokkinn.
Almennt er litið svo á að upplýs-
ingar þessar muni koma til með að
skaða Bush og hafa raunar keppi-
nautar hans um forsetaembættið
gagnrýnt hann fyrir að skýra ekki
frá afstöðu sinni í málinu.
í skjölunum kemur ennfremur
fram að þeir George Shultz utanrík-
isráðherra og Caspar Weinberger,
fyrrum vamarmálaráðherra, voru
andvígir leynilegri sölu vopna til
írans.