Morgunblaðið - 18.12.1987, Blaðsíða 84
84
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
~ X
HAFNARFIARÐARJARIINN
EINARS SAGA ÞORGILSSONAR
Ásgeir Jakobsson
HAFNARFJARÐARJARLINN er ævisaga Einars Þorgilssonar
og segir frá foreldrum Einars og æsku hans í þurrabúð í
Garðahverfi, og síðan frá Einari sem formanni og útvegs-
bónda á árabátatímanum, kútteraútgerðarmanni á kúttera-
tímanum og útgerðarmanni fyrsta íslenzka togarans.
HAFNARFJARÐARJARLINN er 100 ára útgerdarsaga Einars
Þorgilssonar og þess fyrirtækis, sem lifði eftir hans dag og
er elzta starfandi útgerð í landinu, rekin samfellt í heila öld
og byrjuð önnur öldin.
HAFNARFJARÐARJARLINN er 86 ára saga verzlunar
Einars Þorgilssonar, sem er elzta starfandi einkaverzlun í
landinu, og þar er saga frumbýlingsáranna í alinnlendri
verzlun.
HAFNARFJARÐARJARLINN er 100 ára Hafnarfjardarsaga.
Einar Þorgilsson var einn af „feðrum" bæjarins, ásamt því
að vera stór atvinnurekandi var hann hreppstjóri Garða-
hrepps þegar hreppnum var skipt. Einar varð sem bæjar-
fulltrúi í flestum þeim nefndum bæjarins, sem lögðu
grunninn að bænum. Einar var 1. þingmaður Gullbringu-
og Kjósarsýslu um skeið, og flutti fyrstur manna frumvarp
um Hafnarfjörð sem sér kjördæmi.
HAFNARFJARÐARJARLINN er Cootssaga, fyrsta íslenzka
togarans, sögð eftir heimildum, sem ekki voru áður
kunnar.
HAFNARFJARÐARJARLINN er almenn sjávarútvegssaga í <
100 ár, sögð um leið og einkasaga Einars Þorgilssonar.
SKUGGSJÁ
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Bruce til United
MANCHESTER United lceypti
í gær varnarmanninn sterka
Steve Bruce, fyrirliða Nor-
wich, á 825.000 sterlings-
pund.
Um miðjan dag virtist ekkert
ætla að verða af kaupunum
— Alex Ferguson, stjóri United,
gaf þá út yfirlýsingu þess efnis
að verðið sem Nor-
FráBob wich setti upp,
Hennessy 900.000 pund,
lEnglandi væri of hátt. „Við
höfum verið
dregnir á asnaeyrunum varðandi
þessi kaup. Við erum hættir við
Bruce og leitum nú á önnur mið,“
sagði Ferguson. Skömmu síðar
gáfu félögin svo út yfirlýsingu þar
sem tilkynnt var að United hefði
keypt leikmanninn. Formenn fé-
laganna héldu fund í gær og
komust að samkomulagi um verð-
ið — 825.000 pund.
Norwich keypti í fyrradag Robert
Fleck frá Rangers og eftir það
var nánast talið formsatriði að
gengið yrði frá kaupum United á
Bruce. Svo var þó ekki — það var
ekki fyrr en eftir skyndifund
formannanna að niðurstaða
fékkst.
Stave Bruce.
>
Q
u
JOGGINGSKÓR
- fyrir konur og karla. Háþróuð bandarísk
gœðavara fyrir þá sem gera miklar kröfur.
AB-M 500 (fyrir karla).
Léttir og mjúkir.
„Good Year* sóli, Converse gœði.
AB-W 500 (fyrir konur).
Gerðir fyrir nettari fœtur,
að öðru leyti eins og AB-M 500.
FÁST í VERSLUN OKKAR
ÁRMÚLA 32. SÍMI: 39910.
Deman tar
eilífðarskart
Gull og demantar
Kjartan Ásmundsson, gullsmiður,
Aðalstræti 7. Sími 11290.
GOLF
Jólamót
í Grafar-
holti
w
Asunnudaginn, 20. desember,
verður haldið golfmót í Graf-
arholti, svokallað Jólamót. Tíð hefur
verið það góð að undanfömu að
kylfingar hafa getað stundað íþrótt
sína næstum sem að sumri væri.
Leikið hefur verið að Korpúlfsstöð-
um, en til hátíðabrigða er ætlunin
að leika Jólamótið í Grafarholti.
Leikin verður 12 holp punktakeppni
með fullri forgjöf. Þar sem aðeins
er bjart í um það bil 3 klukkustund-
ir, þá verður ræst út frá öllum
teigum samtímis kl. 11.30. Tak-
marka verður fjölda þátttakenda
við liðalega 50 manns. Golfmót
hefur ekki áður verið haldið hjá GR
í desembermánuði í nærri 50 ár,
og aldrei í slíkri blíðu sem nú er.
KNATTSPYRNA
Maradona
frábær
- erArgentína
vann Vestur-
Þýskaland
ARGENTÍNA sigraði Vestur-
Þýskaland í vináttuleik í knatt-
spyrnu í Buenos Aires á
miðvikudagskvöldið, 1:0. Þessi
lið láku einmitttil úrslita í
síðustu heimsmeistarakeppni
og þá sigraði Argentína 3:2.
Diego Maradona lék frábærlega
í leiknum og lagði upp markið,
sem Jorge Burruchaga skoraði á
55. mín. Hann skoraði einnig sigur-
markið í úrslitaleik HM í fyrra.
Maradona fékk knöttinn úti á
vinstri kanti, lék á Wolfgang Rolff,
komst síðan inn í teiginn og lék
þijá aðra vamarmenn grátt, áður
en hann gaf knöttinn á félaga sinn
sem skoraði undir Bodo Illgner,
hinn unga markvörð frá Köln.
Argentínumenn voru mun betri
þegar á heildina er litið. Þeir fóru
illa með nokkur góð færi í seinni
hálfleiknum, en fyrri hálfleikur var
tiltölulega jafn. Þá fékk Júrgen
Klinsmann gullið tækifæri til að
koma Vestur-Þjóðveijum yfir en
hann skallaði í stöng eftir hom-
spymu. Þýska liðið var skipað
ungum leikmönnum — fyrirliðinn
Lothar Mattheus var sá eini sem
eftir var úr liðin sem lék úrslitaleik
HM. „Við emm með ungt lið sem
á framtíðina fyrir sér,“ sagði Júrgen
Klinsmann, framheijinn knái frá
Stuttgart. Þetta var hans annar
landsleikur — hann var einnig með
í leiknum gegn Brasilíu síðastliðinn
laugardag.