Morgunblaðið - 18.12.1987, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 18.12.1987, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987 79 Kveðja: Jórunn Jónsdóttir Elskuleg amma mín er borin til moldar í dag. Að leiðárlokum vil ég þakka henni fyrir alla gleðina og hamingjuna sem hún veitti fjöl- skyldu okkar á langri ævi sinni. Jórunn Jónsdóttir var fædd 19. október 1885 á Hjalla í Ölfusi og var því 102 ára þegar hún lést. Megi algóður Guð taka vel á móti henni og hafa hana sér við hlið. Bibí Minninff: Rósa Sigfússon fv. hjúkrunarkona Fædd 8. ágúst 1900 Dáin 13. nóvember 1987 Frænka mín Rósa Sigfússon, fyrrv. hjúkrunarkona, lést á Drop- laugarstöðum hinn 13. nóvember sl. Utför hennar hefur farið fram í kyrrþey, að hennar eigin ósk. Rósa var fædd að Útskálum í Gerðahreppi 8. ágúst 1900. Foreldr- ar hennar voru Bjami Jónsson, kennari og síðast meðhjálpari við Dómkirkjuna í Reykjavík og Rósa Lúðvíksdóttir Kemp. Eignuðust þau hjón þrjár dætur, Jórunni og Vilborgu, sem báðar eru nú látnar og Rósu, sem var þeirra yngst. Þegar Bjami var kennari á Álfta- nesi hér syðra og þau bjuggu að Landakoti þar í sveit, andaðist eig- inkona hans, Rósa, og var þá illa komið fyrir einstæðum föður með þijár ungar dætur, að halda heim- ili. Flosnaði heimilið upp, eins og oft vildi verða í þá daga, en fyrir góða vináttu Bjama og Jóhannesar Sigfússonar, er þá var kennari við Flensborgarskóla í Hafnarfirði, tóku hann og kona hans, Cathinka Zimsen, yngstu dótturina, Rósu í fóstur, en þeim hjónum hafði ekki orðið bama auðið. Ólst því Rósa upp hjá þessum ágætishjónum, en skömmu síðar gerðist Jóhannes kennari við Menntaskólann í Reykjavík og síðar yfirkennari þar, sem þau bjuggu þá í íbúð í skólan- um og höfðu oft nemendur í „kosti", eins og það var kallað þá. Kynntist því Rósa fljótt skólalíf- inu og gekk reyndar í skólann og lauk prófi úr 2. bekk 1914, þá nokkru yngri en sambekkingar. Hugur hennar stóð þó ætíð að hjúkmnar- og mannúðarstörfum, enda hóf hún nám í hjúkmnarfræð- um síðar í Danmörku og lauk prófí frá Righospitalet í Kaupmannahöfn 1927. Framhaldsnám stundaði hún við Blegdamshospital í _ Kaup- mannahöfn og Háskólann í Árósum, sem hún lauk 1940. Hún varð inn- lyksa í Danmörku yfir stríðsárin og stundaði ungbamahjúkmn í Svend- borg á Fjóni, þau árin. Að stríði loknu kom hún heim og gerðist hjúkmnarkona við Laug- amesskóla í Reykjavík 1945—1958, Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur 1958— 59, skóla ísaks Jónssonar 1959— 60, en þá varð hún að hætta störfum vegna sjúkleika í fótum. Hún gegndi ýmsum trúnaðarstörf- um fyrir Hjúkmnarfélag íslands. Hún var fulltrúi félagsins hjá SSN (samvinna hjúkmnarkvenna á Norðurlöndum) 1948—1952 og hjá BSRB 1945-1950. Ég undirritaður átti því láni að fagna, að kynnast frænku minni mjög náið, fyrst og fremst vegna þess, hve samband hennar og syst- ur, þ.e. móður minnar, Vilborgar, var traust og innilegt alla tíð. Var ég og mitt fólk tíðir gestir á heim- ili hennar og Cáthinku, þeirrar ágætu sómakonu, meðan hennar naut við og síðan á heimili Rósu og fósturbróður hennar, Ólafs Dav- íðssonar, er þau héldu á Klappar- stígnum, þar til Ólafur lést. Rósa var einn af þeim sjaldgæfu persónuleikum, sem alltaf var gef- andi, en ekki þiggjandi, í öðm formi en því, að þiggja þakklæti þeirra, er henni hafði tekist að hjálpa eða aðstoða á einhvem hátt. Löngu eft- ir að hún varð að hætta störfum sem fastráðin hjúkmnarkona, vegna sjúkdóms síns, sem hafði oft í för með sér miklar kvalir, sat hún yfir sjúklingum heilu nætumar og aldrei var spurt um laun. Eftirtektarvert er, hve fyrrver- andi nemendur í Laugamesskóla, og nú em orðið fullorðið fólk, minnast Rósu með miklum hlýleika, er hún berst í tal og oftsinnis hef ég verið beðinn fyrir bestu kveðjur til hennar, er þetta fólk vissi um skyldleika minn við hana, svo lif- andi stóð hún fyrir hugskotssjónum þeirra frá bamaskólaárunum. Og kannski engin furða. Rósa var allt fram á síðustu stundu hrókur alls fagnaðar, full af kæti og glensi og þakklæti, er litið var til hennar, þótt hún gæti ekki undir það síðasta stigið úr rúmi. Aldrei heyrði ég hana kvarta yfír kjömm sínum þó oft mætti sjá að hún leið miklar kvalir. Endurminningar mínar um Rósu frænku, allt frá bamæsku, em bað- aðar sólargeislum og er söknuður minn mikill, eins og vafalaust allra, er til hennar þekktu. Blessuð sé minning hennar. H(jörtur Hjartarson tEV.EF^IvAR uó8Súð^sSAB Nýsending affötum LAUGAVEGI 101 SIMI17419 Nú getur þú eignast tónleikamyndina WOOOSTOCK á ipbndl Árið 1969 voru haldnir útitón- leikar í Woodstock í Banda- ríkjunum. Þessirtónleikar, sem slógu öll aðsóknarmet, eru enn ífersku minni þeirra sem voru upp á sitt besta á þessum tíma. Woodstock er ekki aðeins stór- kostlegur tónlistarviðburður, heldur einnig einstök heimild- armynd um þá ástar- og tónlist- arbylgju, sem gagntók ungt fólk um víða veröld á sjöunda áratugnum. 3ja klst. skemmtun. Verð kr. 2.500,- Póstkröfuþjónusta. ÚTSÖLUSTAÐIR: Tefli hf.y ÁRMÚLA 36, SÍMI 686250. Myndbandaþjónustan, (Ríkisútvarpið - sjónvarp), LAUGAVEG1176. Stereo t WOODST9CK Japis, KRINGLUNNI OG BRAUTARHOLTI. Studeo, KEFLAVÍK.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.