Morgunblaðið - 18.12.1987, Page 78

Morgunblaðið - 18.12.1987, Page 78
78 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987 Minning: Hafsteinn Einarsson byggingameistari Fæddur 4. júlí 1932 Dáinn 11. desember 1987 . Mig langar til að minnast kærs bróður og vinar með fáeinum orðum þótt orð séu lítils megnug við dyr dauðans. Hafsteinn eða Steini, eins og hann var oftast kallaður, var næst- elstur í hópi systkina, en eitt dó bam að aldri. Fyrstu hjúskaparár foreldra okkar bjuggu þau á Hellis- sandi og þar varð þeim 5 bama auðið, en síðan fluttu þau til Ytri- Njarðvíkur og bjuggu þar til dauðadags. Þar fæddumst við 3 yngri systkinin og er ég elstur þeirra. Tfminn í kringum jólin hefur alltaf skipað veglegan sess í okkar fjölskyldu og ætíð tengdur gleði, fæðingu bama og skyldum atburð- um. Þess vegna kom þessi hörmu- lega fregn um dauða bróður míns eins og þmma úr heiðskíru lofti svona rétt fyrir jólin. Þegar ég ók suður í Njarðvík eftir að hafa feng- ið dánarfregnina fannst mér að sú leið væri sú lengsta ökuleið sem ég hef farið. Atburðir úr lífi okkar beggja sem vomm svo nátengdir liðu eins og myndir fyrir sjónum mínum. Ótal spumingar hrúggðust upp í huga mér, sem ekki fannst svar við. Hvers vegna, hvers vegna? Steini var einstaklega ljúfur drengur, hreinskilinn, gæddur næmri réttarkennd og góður félagi í leik og starfi. Snemma beindist hugur hans að verklegum greinum og réðst hann til náms í trésmíði sem hann lauk sem meistari. Ekki var það nóg fyrir hann heldur tók hann líka múraragreinina og lauk ’ henni einnig sem meistari í faginu. Hann vann svo alla ævi í þessum iðngreinum, þá aðallega sem múrarameistari. Fyrir rúmum 32 árum gekk Steini að eiga eftirlif- andi konu sína, Valgerði Jónsdótt- ur, og eignuðust þau fimm böm. Yngstur þeirra er Þorsteinn, fæddur 29. október 1971 en fyrir áttu þau Hafdísi f. 21. nóvember 1968, Hörð f. 24. október 1959, Björgvin Ómar fæddan 29. mars 1958 og Katrínu Jónu f. 3. september 1955. Gerða bjó manni sínum gott og hlýlegt heimili og þau hjónin voru mjög samhent í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Þau ferðuðust . mikið innanlands og tóku oftast öll bömin með. Steina þótti ákaflega vænt um landið og hafði oft á orði að fyrr skyldi hann skoða landið allt með ijölskyldu sinni en ferðast til útlanda. Hann hafði næmt auga fyrir fegurð landsins og sóttist því eftir útivist í fallegu umhverfi. Hann var mikill veiðimaður og sjaldan var veiðistöngin langt und- an á ferðalagi. Oft voru konan og bömin með í þessum veiðiferðum og var oft tekið til þess hvað Steini var natinn við að kenna þeim hand- brögðin, jafnvel þó það væri gert á rándýrum veiðitímanum. Slík var umhyggja hans fyrir sínum. Steini var mikill gleðimaður og hreif fólk % með sér á góðri stund með söng sínum og sögum. Við Steini vorum ákaflega góðir vinir og áttum margt sameiginlegt bæði til orðs og æðis. Það var gott að koma til þeirra hjóna enda var gestrisnin og hlýjan ávallt í fyrir- rúmi. Við áttum ótal margar samverustundir og umræðuefnin vom mörg og vandamálin oft brotin til mergjar. Allt þetta er mér dýr- mæt minning um góðan dreng. Elsku Gerða, böm, tengdaböm og tengdafólk. Ég bið um styrk ykkur til handa í harmi ykkar. Guð blessi ykkur öll og minningu hans er við kveðjum nú í hinsta sinn. „Þú skalt ekki hryggjast þegar þú skilur við vin þinn, því að það sem þér þykir vænst um í fari hans getur orðið þér ljósara í íjarveru hans, eins og ijallgöngumaður sér ijaliið best af sléttunni." (Kahlil Gibran.) Sólmundur Þann 11. þessa mánaðar lést Hafsteinn Einarsson í Sjúkrahúsi Keflavíkur. Við fráfall hans langar mig að færa honum hinstu kveðju mína og þakkir fyrir þær ótal sam- verustundir sem við áttum saman. En þær em í fyrstu minningabrot frá bemskunni en vegna 13 ára aldursmunar okkar bræðra varð hann strax í mínum huga stóri, sterki og glaðværi bróðirinn sem gat nánast alla hluti. Hann fór ungur að sjá fyrir sér eða fljótlega eftir að skyldunámi lauk. Með dugnaði sínum og áræðni réðst hann komungur í að kaupa sér vömbíl sem hann ók á Vömbíla- stöð Keflavíkur um nokkurra ára skeið. A þeim ámm vom boddíin svokölluð sett á palla vörubflana og notuð til mannflutninga og þannig fóm ungmennin í hópum á dans- leiki út um nágrannabyggðir. Ég var stoltur drenghnokki af bróður sem átti slíkan grip fyrir utan hús- vegginn á æskuheimili mínu. Steini, en það var hann oftast kallaður, var hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi og tók hann þá iðulega lagið með sinni góðu söng- rödd eða hann sagði skemmtilega frá gamanmálum. En árin líða og Steini eignast sitt fyrsta heimili að Holtsgötu 42 í Njarðvík með eftirlif- andi eiginkonu sinni, Valgerði Jónsdóttur úr Grindavík. Þar eign- ast þau þijú eldri bömin sín Katrínu, Ómar og Hörð, en Hafdísi og Þorstein eftir að þau fluttu að Borgarvegi 46 í einbýlishús, sem þau byggðu. Steini fór snemma í Iðnskóla Keflavíkur og lærði trésmíðar sem hann vann við í nokkur ár en lærði þá múrverk. Hann varð meistari í báðum þessum iðngreinum. Upp úr því starfar Steini að sjálfstæðum atvinnurekstri, fyrst einn en seinni ár með Herði syni sínum. Hann var vandvirkur og laginn fagmaður og ber handbragð hans í ijölmörgum mannvirkjum honum gott vitni. Snemma fór Steini að stunda laxveiði og gekk þá í Stangveiðifé- lag Keflavíkur. Þar naut hann sín vel úti í náttúrunni og í góðra vina hópi. Þær vur líka góðar sögumar sem hann sagði af viðureign sinni við iaxinn eins og góðum veiði- manni sæmir. Eftir að ég eignaðist mína fjöl- skyldu varð samband okkar meira en áður því sameiginlegt áhugamál lá saman er við keyptum sumarbú- staðarland ásamt fleirum austur í Biskupstungum. Þar reistum við fljótlega sinn bústaðinn hvor. Með íjölskyldum okkar tókst mikil vin- átta vegna tíðra samverustunda á stað sem ríkti friður og nægur tími. Hann bar hag íjölskyldunnar fyrir brjósti og af ósérhlífni vann hann að velferð hennar. Við systkini hans nutum sam- vista við hann því hann lét sig ekki vanta ef boðið var til samfunda. Foreldrum okkar reyndist hann vel því tíðar heimsóknir þeirra hjóna á vetrarkvöldum til að taka í spil eða rabba voru þeim til hlökkunarefni. Ég lýk þessum fátæklegu skrif- um til minningar um kæran bróður og vin. Við hjónin og bömin okkar þökkum af öllu hjarta fyrir allar góðu samverustundimar. Gerða mín, ég bið guð að styrkja þig og bömin þín í þessum sára astvinamissi. Líkn þeim sem lifir. Gef látnum frið og ró. Sæmundur Einarsson Elskulegur mágur minn er dáinn. Mitt í jólaundirbúningi og á tíma eftirvæntinga kemur dauðafregnin. Harmurinn og sársaukinn smýgur í gegn um merg og bein. Hver er meiningin með þessu og hvers vegna þurfti hann að deyja svona rétt fyr- ir jólin, nú þegar gleðihátíð er í vændum. Allt í einu er kapphlaupið við tímann og jarðnesk gæði orðið minna mikilvægt. Við neyðumst til þess að staldra við og hugsa. Steini var sá maður sem kunni að meta hin raunverulegu gæði þessa lífs. Hann þurfti hvorki á ferð- um utanlands að halda né gull og græna skóga til þess að vera ánægð- ur og gleðjast. Hann átti einstaka konu að lífsförunaut og fimm mann- vænleg börn, sem hann unni umfram allt og lifði fyrir. Hann átti einnig sumarbústað að Amarhóli í Bisk- upstungum og þar var hann í essinu sínu. Það er kannski helst minningar þaðan sem ég kem til að setja í sam- bandi við Steina. Hann var næstelst- ur 7 systkina er náðu fullorðinsaldri, en auk hans byggðu 5 þeirra sumar- bústaði á sama stað. Það var hátíð í bæ í hvert sinn er allir voru saman komnir á svæðinu. Á fögrum sumar- dögum eða nóttum var safnast saman við Ieiki eða spjallað og sung- ið, en söngur var Steina afar hugleikinn. Dagamir fyrir austan liðu hver af öðmm við húsbygging- ar, kerbyggingar, tijáplöntun, gróðurrækt og hvað eina sem til- heyrir sumarbústaðalífi. Alltaf voru allir boðnir og búnir til að rétta fram hjálparhönd þegar með þurfti og mörg voru handtökin hans Steina í sameigninni. Frændsystkinin kynnt- ust vel og tengdust sterkum vináttu- böndum frá unga aldri. Steini var ætíð vinsæll frændi smáfólksins, hann átti hjartalag af gulli og því taka bömin fljótt eftir. Steini gekk að eiga eftirlifandi konu sína, Valgerði Jónsdóttur, þann 19. október 1955. Bróðir hans, • ^ Hótel Saga Sfmi 1 2013 Blóm og skreytingar við öll tœkifœri ■ Systir okkar og mágkona, f CARLA CODLING, fœdd Morthens, lést 7. desember á sjúkrahúsi Asker í Noregi. Jarðarförin hefur farið fram. Fyrir hönd ættingja. Kristinn Morthens, Emanúel Morthens, Þorbjörg Morthens, Haukur Morthens, Ragnheiður Morthens, Húbert Morthens, Auður Magnúsdóttir. Trausti, giftist einnig þann sama dag, skírðir vom fmmburðir beggja bræðranna og foreldrar þeirra héldu upp á silfurbrúðkaupið. Þá var mik- ið um dýrðir á Sunnuhvoli, en svo hét æskuheimili þeirra. Það kom á daginn að Steini var sérlega heppinn í vali á lífsfömnaut sínum. Gerða hefur ætíð verið hon- um góð og trygglynd kona. Þau byggðu sér heimili í Njarðvík og, bömin ólust upp við mikla ástúð og umhyggju. Fyrir mig persónulega hafa Steini og Gerða haft töluvert mikla þýð- ingu. Þegar ég yfirgaf mitt bemsku- heimili og föðurland, Noreg, og settist að hér við hlið mannsins míns, þá var þetta skref út í óvissuna. Hvemig átti ég að aðlagast nýju umhverfi? Þá var gott að eiga góða fjölskyldu að og Steini og Gerða til- heyrðu henni. Móttökumar vom stórkostlegar, þrátt fyrir vissa erfið- leika með málið, en augun og umföðmun sögðu sitt. Upp frá þeirri stundu hefur heimili þeirra ætíð staðið mér opið og ég hef átt þar margar ánægjustundir. Steini var sívinnandi og samviskusamur í öllu er hann tók sér fyrir hendur. Hann var mikill fjölskyldumaður og ávallt sat hún í fyrirrúmi. Ef til vill getum við nú um jólin dregið lærdóm af slíku. Hann kenndi okkur hversu mikilvægt það er að fjölskyldan standi saman, hvað sem á dynur. Ég þakka honum fyrir allt sem hann var mér, bróður sínum og bömum okkar. Hvfl í friði. Elsku Gerða, böm, bamabörn og tengdabörn. Ég votta ykkur öllum okkar dýpstu samúð, einnig systkin- um hans og öðrum ættingjum. „Því að hvað er það að deyja ann- að en standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið. Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns?“ (Kahlil Gibran). Astrid Hafsteinn Einarsson var fæddur 4. júlí 1932 á Hellissandi, sonur þeirra merkishjóna Einars Og- mundssonar vélstjóra og Sigríðar Hafliðadóttur. Einar faðir hans var sonur Ögmundar Andréssonar og Sólveigar Guðmundsdóttur, er bjuggu að Hellu í Beruvík, en móð- ir hans Sigríður var dóttir Hafliða Þorsteinssonar og Steinunnar Kristjánsdóttur, er lengst af bjuggu að Bergsholti í Staðarsveit. Haf- steinn var næstelstur í átta systkina hópi. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum á Hellissandi til ársins 1939 er fjölskyldan fluttist til Ytri- Njarðvíkur. Eins og þá var venja þurftu elstu systkinin strax að létta undir með foreldrum sínum, var Hafsteinn mjög duglegur og kapp- samur sem unglingur. Hann ólst upp í foreldrahúsum til fullorðins- ára og tók því meiri þátt í störfum hinna fullorðnu sem þrek hans og þroski uxu, við fiskvinnu, var í sveit á sumrin og við störf á sjó og landi til ársins 1950 er hann hóf störf sem vörubflstjóri til ársins 1957. Hann tók próf í Iðnskóla Keflavík- ur, lærði húsasmíði hjá Bjama Guðmundssyni, Austurgötu 18, Keflavík, lauk þar sveinsprófi 1961, stundaði múraranám hjá Svavari Ijörvasyni, Keflavík, 1965—1969. Hann hafði meistararéttindi í báð- um þeim iðngreinum. Hann stund- aði síðan jöfnum höndum húsasmíðar og múrverk. Hann var ritari Múrarafélagsins nokkur ár og í stjóm Múrarameistarafélagsins um tíma. Hann stofnaði ásamt Páli Þ. Jónssyni byggingarfélagið Þórs- hamar sf. Þeir byggðu og seldu raðhús og íbúðarhús. Eftir að þeir hættu rekstri stofnaði hann félag með Herði, næstelsta syni sínum, undir nafninu Hafsteinn og Hörður sf. og eftir að elsti sonur hans, Ómar, kom heim frá Bandaríkjun- um eftir tveggja ára dvöl þar, störfuðu þeir þrír feðgamir saman við að byggja og selja iðnaðarhús og íbúðarhús auk annarra verkefna í byggingariðnaði. Þeir unnu meðal annars að jámalögnum og steypu- vinnu sem undirverktakar við seinni byggingarframkvæmdir hins stóra hótels sem er í byggingu við Hafn- argötuna í Keflavík. 19. október 1955 giftist Haf- steinn eftirlifandi konu sinni, Valgerði Jónsdóttur, hinni mestu myndarkonu. Þau hafa verið sam- hent í starfi og eignast fimm mjög reglusöm og myndarlég böm. Þau em: Katrín Jóna, fædd 3. septem- ber 1955, gift Guðna Gunnarssyni, þau eiga einn son; Þór sem er fædd- ur 1. janúar 1974; Björgvin Ómar, fæddur 29. mars 1958, sambýlis- kona hans er Auður Ingimarsdóttir; Hörður, fæddur 24. október 1959, kvæntur Jónínu Stefánsdóttur. Þau eiga eina dóttur er fæddist 9. októ- ber síðastliðinn; Hafdís, fædd 21. nóvember 1968, og Þorsteinn, fæddur 29. október 1971. Hafsteinn var nærgætinn og umhyggjusamur heimilisfaðir, lifði og starfaði í nánu sambandi við konu sína og böm. Hafsteinn var mjög vandvirkur í starfi og má sjá víða í okkar byggð- arlagi glæsilegar byggingar sem hann hefur byggt, þær lofa sinn meistara. Hafsteinn naut sín í vina- hópi, var þá hrókur alls fagnaðar, hann var góður söngmaður og hafði mikla ánægju af að syngja og gleðj- ast í góðum félagsskap. Hann var mikill kapps- og afkastamaður við öll störf, jafnt vinnu sem veiðar, var heppinn áhugaveiðimaður á lax. Fyrir rúmum tveimur árum kenndi hann þess sjúkdóms er leiddi hann til dauða. Hann andaðist á Sjúkrahúsi Keflavikur að morgni 11. desember. Með Hafsteini er fallinn frá einn af mestu athafna- og dugnaðar- mönnum okkar byggðarlags. Hans er sárt saknað af fjölskyldu hans, vinum og hinum mörgu samstarfs- mönnum. Hafsteinn var vinmargur, trygglyndur og vandaður dreng- skaparmaður. Þótt fjölskyldu og vinum sé sárt að sjá á bak miklum athafnamanni og góðum dreng á miðjum aldri yfir landamæri lífs og dauða, þá látum við fylgja honum kærleiksríkar bænir til þess guð- dóms sem öllu ræður undir vernd og leiðsögn á þroskabrautum hins eilífa lífs. Ég votta konu hans, bömum og öðrum aðstandendum hjartanlega samúð. Karvel Ögmundsson t Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, TRYGGVI JÓNSSON forstjóri, Einimel 11, sem andaðist 11. desember, veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 21. desember kl. 13.30. Kristin Magnúsdóttir, Magnús Tryggvason, Guðrún Beck, Anna L. Tryggvadóttir, Heimir Sindrason og barnabörn. t Elsku litli drengurinn minn og bróöir, BJARTMAR HARRY, andaðist 10. desember. Jaröarförin hefur farið fram. Una Einarsdóttir, Ásta Lovfsa Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.