Morgunblaðið - 18.12.1987, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.12.1987, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987 Filippseyjar: Kommúnistar hafa 14 menn í gíslingu Manila, Reuter. SKÆRULIÐAR úr röðum komm- únista á Filippseyjum tóku tvo frambjóðendur í héraðskosningum í gislingu í gær i árás á ráðhús i bænum Cabugao. Skæruliðarnir hafa nú tekið 14 menn i gíslingu í herferð til að hindra sveitarkosn- ingar sem fram eiga að fara þann 18. janúar. í höfuðborginni Manila kom Greg- orio Honasan ofursti sem sakaður er um uppreisnartilraun í ágústmánuði fyrir rannsóknamefnd á vegum þings landsins. Honasan var tekinn höndum fyrir viku síðan. Grænland: Ótímabært að krefja Bandaríkjamenn um greiðslur fyrir herstöðvar - segir Jonathan Motzfeldt Jonathan Motzfeld. Kaupmannahöfn. Frá Grænlandsfréttaritara JONATHAN Motzfeldt, formað- ur grænlensku landstjórnarinn- ar, bar ekki upp óskir um greiðslur frá Bandaríkjamönn- um fyrir afnot af herstöðvum i Grænlandi þegar hann hitti Ge- Morgnnbladsins, Nils Jörgen Bruun. orge Shultz, utanríkisráðherra Bandarikjanna, í Kaupmanna- höfn í síðustu viku. Fyrir fundinn hafði Motzfeldt lýst yfir því að hann mundi krefja Bandaríkja- menn um greiðslur fyrir her- stöðvarnar. Grænlenzku stjómarflokkamir og stjómarandstöðuflokkurinn At- assut höfðu náð um það samstöðu að Bandaríkjamenn skyldu krafðir um greiðslur fyrir afnot af her- stöðvum í Grænlandi. Átti það að vera mótleikur við þeirri ákvörðun Bandaríkjamanna að stórhækka lendingagjöld fyrir aðrar flugvélar en hervélar á flugvöllum í herstöðv- unum. Auk þessa hafði samstarfsflokk- ur Siumuts í stjóminni, Inuit Ataqatigiit, krafist að rift skyldi öllum sérsamningum, sem gerðir hafa verið við Bandaríkjamenn svo sefn um lág farmgjöld, og að þeir skyldu þvingaðir til að nota ýmsa þjónustu, sem er fyrir hendi í Grænlandi, í stað þess að sækja hana til Bandaríkjanna. Motzfeldt segist nú þeirrar skoð- unar að það sé ótímabært að taka þessi mál upp við Bandaríkjamenn. Shultz hafí sagt að Bandaríkjamenn hefðu dregið úr umsvifum sínum í Syðri Straumsfírði og að framtíð herstöðvarinnar þar væri óljós. Grænlendingar nota flugvöllinn í Syðri Straumsfírði fyrir almennt flug. Er hann fjölfamasti völlur þar í landi en um 7Ó.000 manns hafa þar viðkomu árlega. Motzfeldt seg- ir það myndi hafa hinar verstu afleiðingar ef Bandaríkjamenn færu þaðan því þá legðist rekstrarkostn- aður flugvallarins, milljónir króna, á Grænlendinga sjálfa. Motzfeldt sagði í samtali við Grönlands Radio í fyrrakvöld að fjalla þyrfti um sambandið við Bandaríkin með skynsamlegum hætti og í viðræðum við þau. „Við verðum að reyna að koma Banda- ríkjamönnum í skilning um ástandið í efnahagsmálum hjá okkur,“ sagði Motzfeldt. Hann sagði að skynsam- legar viðræður við Bandaríkjamenn í fyrri tíma hefðu geflzt vel og nefndi Thulesjóðinn í því sambandi. Bandaríkjamenn féllust á að borga 30 milljónir danskra króna, nær 180 milljónir íslenzkra króna, í sjóðinn. Hann var stofnaður til að efla at- vinnulíf á Thule-svæðinu og eru greiðslumar nokkurs konar bætur til íbúanna á svæðinu, sem urðu að flytja sig um set þegar Thule- herstöðin var byggð á sjötta áratugnum. Jonathan Motzfeld sagði einnig að með bandarísku herstöðvunum væri Grænlendingum tryggðar landvamir. Ennfremur yrði að hafa hugfast að Bandaríkjamenn litu svo á að Monroe-kenningin næði yfír Grænland og það væri því á þeirra áhrífasvæði hvað öryggismál varð- HÓLMGARÐI 34, REYKJAVÍK Simar: 672400 - 672401 - 31599
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.