Morgunblaðið - 18.12.1987, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Mín upphefð kemur að utan
Bækur
Steinar J. Lúðvíksson
Arnór — bestur i Belgiu.
Höfundur: Víðir Sigurðsson.
Útgefandi: Skjaldborg. 142 bls.
„Ég hef heyrt að þú hafir selt
fyrra fótinn til útlanda. Ekki undrar
mig það. Ég hef alltaf vitað að mín
upphefð kæmi að utan."
Þannig farast Kúnstner Hansen,
einni af söguhetjum Halldórs Lax-
ness, orð í Strompleiknum, eftir að
útflytjandinn hafði komið útskomum
tréfæti hans í verð. Það er nú oft
svo með landann að hans upphefð
kemur að utan og á það ekki síst
við um íslenska íþróttamenn sem
reynt hafa fyrir sér erlendis. Með
þessum orðum er ekki verið að gera
lítið úr árangri þeirra, síður en svo.
Margir íslenskir íþróttamenn hafa
vissulega staðið sig með mikilli prýði
og verið góð landkynning. En það
fer ekki á milli mála að þeir íþróttaf-
réttamenn hafa verið býsna seigir
við að upphefja íslendinga sem kom-
ist hafa í erlend lið. Afrek þeirra eru
tíunduð nákvæmlega á íþróttasíðum
dagblaðanna og menn sem hafa jafn-
vel ekki einu sinni verið fremstir
meðal jafningja áður en þeir héldu
út í hinn stóra heim, verða allt í einu
að alheimssöngvumm þegar þeir eru
komnir utan og mega helst ekki fá
magakveisu án þess að um það sé
fjallað f íslenskum biöðum.
Amór Guðjohnsen er einn þeirra
ungu manna sem lagst hafa í knatt-
spymuvíking á undanfömum árum
og hefur tvímælalaust gert það gott.
Betur en fléstir aðrir. Hæfileikar
hans eru ótvíræðir og hann hefur
náð áð þroska þá þannig að hann
hefur komist í hóp þeirra bestu í
Belgíu. Slíkt er í raun ekki lítið afr-
ek, þar sem knattspyma er í
hávegum höfð í Belgfu og þaðan
koma margir snjallir knattspymu-
menn. Það sannaðist best í síðustu
heimsmeistarakeppni í Mexíkó.
Knattspymuferill Amórs er hinn at-
hyglisverðasti og fram kemur ber-
lega f bókinni að hann var aðeins
bam að aldri þegar farið var að huga
að atvinnumennskunni. Skólabækur
voru látnar lönd og leið og boltinn
tekinn fram yfir. Og draumar Amórs
og föður hans rættust. 17 ára fékk
hann atvinnusamning við lið f Belgfu
og þar hefur hann dvalist síðan.
Það er engan veginn vandalaust
að skrifa bók um 26 ára mann sem
hefur frá litlu öðru að segja en knatt-
spymu. Höfundur bókarinnar, Víðir
Sigurðsson, tekur greinilega þann
pól f hæðina að láta Amór ráða ferð-
inni, þótt hann noti bæði frásagnar-
form og viðtalsform. Útkoman er
læsileg blanda, enda er Víðir
tvímælalaust fær stílisti og ræður
vel við viðfangsefni sitt. Sá galli er
þó á gjöf Njarðar að frásögnin af
ferli Amórs verður á köflum fremur
ótrúverðug. Eða getur það verið að
svo margir vilji leggja stein í götu
hans? Félagar hans f Víkingi voru á
móti honum algjörlega að ástæðu-
lausu og erlendis þjálfarar hans
virðast hafa notað flest tækifæri sem
gáfust til þess að gera hann að hom-
reku. „En hann var greinilega ekki
f náðinni, aðrir voru teknir framyfir
í byijunarliðið." Slíkar eða hliðstæðar
setningar má víða sjá í bókinni. Þá
er meiðslasaga Amórs tíunduð ná-
kvæmlega í bókinni og er það langur
lestur. Kannski er það athyglisverð-
ast við hana að Amór telur að Einar
á Einarsstöðum hafi hjálpað sér
meira en margir lærðir læknar.
Nokkrar hugleiðingar eru um at-
vinnuknattspymuna í bókinni og
sagt að í hugum margra sé hún sveip-
uð dýrðarljóma en að raunveruleikinn
sé öllu jarðbundnari. Sjálfsagt er
þetta satt og rétt. Þeir sem leggja
stund á atvinnuknattspymu verða
að rækja hana eins og hveija aðra
vinnu. Og er það ekki svo með flest-
ar atvinnugreinar að þær eru ekki
alskemmtilegar? Hitt er rétt sem
Víðir bendir á að þeir sem leggja
knattspymu fyrir sig sem atvinnu
taka öllu meiri áhættu en flestir aðr-
ir og em oft illa settir þegar atvinnu-
ferlinum lýkur. Amór Guðjohnsen á
hæfíleikum sfnum og áhuga það að
þakka að hann stendur sennilega
betur að vígi að loknum ferli en
margir aðrir.
Styrkur bókarinnar um Amór
Guðjohnsen er sem fyrr segir góður
stíll höfundarins og oft skáldlegar
samlíkingar. Eðlilega ber nokkuð á
svokölluðu íþróttamáli en Víðir fer
vel með það og ofkeyrir hvergi eða
skrifar þannig að erfitt sé að skilja.
Galli bókarinnar er fyrst og fremst
sá að bæði bein og óbein frásögn er
of gagnrýnislaus. Þótt Amór Guð-
johnsen sé góður knattspymumaður
er hann engin veginn sá snillingur
sem bókin lýsir. Ef svo væri þá
myndi hann tæplega leika í Belgíu
heldur á Spáni eða Ítalíu, þar sem
bestu knattspymumönnum heims er
safnað saman. Lýsingar á knatt-
spymusnilld Amórs í bókinni gætu
átt við Pele eða Maradona.
Þess er enn ógetið að bókin er
mjög myndskreytt. Myndimar auka
gildi hennar og eru þannig uppsettar
og dreift um bókina að það er ekki
einu sinni leiðinlegt að skoða 50
myndir af einum og sama manninum.
Hvít er borg og bær:
Söngfögnr plata
Ingíbjargar Þorbergs
Hljómplötur
Ámi Johnsen
Hvít er borg og bær heitir nýút-
komin hljómplata með jólalögum
Það sem máli skiptir
Bókmenntír
Friörika Benónýs
Saga þemunnar. Höfundur: Marg-
aret Atwood. Þýðandi:
Áslaug Ragnars. Útgefandi: Al-
menna bókafélagið, 1987.
í nafnlausu ljóði í bókinni You
Are Happy (Harper & How 1974)
segir Margaret Atwood frá tveimur
strákum sem búa sér til konu úr leir.
Hún er handa-, fóta- og höfuðlaus;
„þeir héldu sig við það sem máli
skiptir". Þetta viðhorf karlmanna til
kvenna er einnig viðfangsefni skáld-
sögunnar Saga þemunnar, þótt
ýmisiegt fleira verði þar fyrir barðinu
á samfélagsgagnrýni höfundar.
Saga þemunnar gerist f framtíð-
arríkinu Gíleað, þ.e. Bandaríkjunum
eftir að strangtrúarmenn (Hinn sið-
prúði meirihluti) hafa náð þar
völdum., Þetta er 1. persónu frásögn
konu sem hefur það hlutverk að vera
útungunarvél; ganga með og fæða
böm fyrir bamlaus Liðstjórahjón. I
Gfleað ríkir „hefðbundið gildismat"
og konur eru flokkaðar eingöngu
eftir notagildi þeirra fyrir karlmenn-
ina. Siðsemi og hreinlífi er lögboðið,
en þeir sem völdin hafa eru hafnir
yfír þau lög og reka hómhús og
karlaklúbba að „gömlum" sið. Þem-
an sem segir söguna blandar saman
upplifunum sínum af Gfleað, bæði í
endurhæfingarstöðinni fyrir verðandi
þemur og úr starfi sínu hjá Liðstjór-
anum, minningum um tfmann fyrir
valdatöku strangtrúarmanna,
draumum sínum og vonum. Hún þrá-
ir náin samskipti við annað fólk, en
um slíkt getur ekki verið að ræða,
því það er engum að treysta. Stjóm-
endumir hafa eftirlitsmenn sfna á
hveiju strái og óttinn og tortryggnin
eru allsráðandi.
Samt þrífast andspymuhreyfingar
bæði meðal karla og kvenna og sögu-
konan tengist einni slíkri, en þorir
þó aldrei að verða virk, því: „Ég vil
lifa, hvemig sem vera skal. Lfkaman-
um afsala ég mér fúslega í þágu
annarra. Það má gera við mig hvað
sem vill. Ég er einskis virði. Ég finn
í fyrsta sinn hið sanna vald þeirra."
(Bls. 257.) Hún er engin hetja, bara
venjuleg kona sem þráir manninn
sem hún átti fyrrum og bamið þeirra,
sem var tekið frá henni vegna
„óæskilegra" uppeldisáhrifa hennar.
Það er vissulega ekki glæsileg
framtíðarsýn, sem Atwood dregur
upp í þessari sögu. Fyrir utan ofríki
trúarofstækismanna hefur geisla-
virkni, eyðni og annar ófögnuður
velferðarríkisins dregið úr fijósemi
og valdið stökkbreytingum á
erfðavísum fólks þannig að mikið er
um vansköpuð böm, sem auðvitað
eru ekki gjaldgeng í Gfleað. Mann-
kynið er sem sagt á góðri leið með
að útrýma sjálfu sér, bæði andlega
og líkamlega. Eitt af stjómunar-
brögðum Gíleaðs er að banna fólki
aðgang að rituðu máli, aðeins valda-
stéttinni er treystandi til þess að
umgangast orðið. Ritningunni er
breytt eftir þörfum og f endurhæfíng-
arstöðvum þeim sem búa menn undir
hlutverk sín í samfélaginu er orðum
bibliunnar beitt til heilaþvottar. Fólk.
er svipt nöfnum sfnum og persónu-
leika, hlutgert f orðsins fyllstu
merkingu, og fullkomlega rænt öllu
valdi yfir eigin lífi.
En hvemig er ástandið f okkar
vestræna frelsi um miðjan nfunda
áratug tuttugustu aldarinnar? Höf-
um við eins mikla stjóm á eigin lífí
og við kjósum að álfta? Minningabrot
þemunnar frá einmitt þessum tfma
sýna að Atwood er þeirrar skoðunar
að það höfum við ekki. Konumar í
þeim hlutum sögunnar þykjast vissu-
lega vera fijálsar en eru þó rígbundn-
ar í hefðbundnum hlutverkum
hjákonu, eiginkonu, móður. Þær
hlæja að rausi kvenréttindakerlinga
og telja þann tíma liðinn er konur
þurftu á slíkum skoðunum að halda.
Þær lesa fréttir blaðanna af vaxandi
ofbeldi, en það snertír þær ekki:
„Við lifðum, eins og vant var, af-
skiptalaust. Afskiptaleysi er ekki það
sama og fáviska, það er fyrirhöfn.
... Við lifðum okkar lífi í eyðum á
milli blaðafregna." (Bls. 55.)
Saga þemunnar er ádeila. En
hún er líka viðvömn, sérstaklega til
kvenna: Haldið vöku ykkar, barátt-
unni lýkur aldrei. En hvort sem um
er að kenna ónæmi mínu og sljóleika
eða ofskammti af svipuðum bókum,
þá finnst mér broddur sögunnar ekki
nógu beittur. Raunsæisleg frásögnin
er of átakalaus, það er ekkert sem
kemur manni á óvart f forminu sjálfu,
ekkert sjokk. Áhrifin verða svipuð
og af lestri blaðagreinar um ástand-
ið í þriðja heiminum; þetta er
hræðilegt og óðara gleymt. Sjálfsagt
hefur þessi saga mun meiri tilhöfðun
f Bandaríkjunum og mér þykir líka
sennilegt að textinn sé safameiri á
frummálinu, en því miður tókst mér
ekki að komast yfir enska útgáfu til
að sannreyna það. En þýðing Aslaug-
ar Ragnars sýnir þeim þætti verksins
litla virðingu. Þýðingin er flausturs-
leg, ensk orðaröð og setningaskipan
víðast látin halda sér og sumar máls-
greinar verða með öllu óskiljanlegar:
„En um þessar mundir var Janfn eins
og hvolpur sem er búið að sparka
of mikið í, af of mörgu fólki, út í
bláinn: að hún lægi flöt fyrir hveijum
Ingibjargar Þorbergs við ljós ýmissa
höfunda. Hér er vandaðasta plata
með fallegum lögum Ingibjargar
og einvalalið söngvara. Það er mik-
ill fengur að þvf að fá hin Ijóðrænu
og stílhreinu lög listakonunnar á
svo vandaða plötu, þar sem auð-
heyrt er að allir hafa lagt kapp á
að verkið væri vel af hendi leyst.
Ingibjörg Þorbergs hefur sett
sérstæðan svip á lagagerð síðustu
áratuga með lögum sínum sem hafa
haft sinn eigin blæ og anda, sem
minnir einna helst á ljúfþýðan sum-
arblæ sunnangolunnar.
Það er Ríkharður Öm Pálsson
sem hefur útsett lögin og ferst hon-
um það vel úr hendi, létt og leikandi
en með sfgildum svip og söngurinn
á plötunni er ákaflega góður, enda
á ferðinni söngvarar eins og Krist-
inn Sigmundsson, Ragnhildur
Gfsladóttir, Egill Ólafsson, Halla
Margrét, Björk Guðmundsdóttir,
Megas, Bamakór Kársnesskóla,
Ingibjörg Þorbergs, Hljómeyki og
Hólmfríður Karlsdóttir sem leysir
sitt hlutverk látlaust og skemmti-
lega af hendi. Þetta söngvaraval
gefur mikla breidd í plötuna, þann-
ig að hún kemur oft á óvart.
Margaret Atwood
sem væri, að hún mundi segja hvað
sem væri, allt fyrir smávegis vel-
þóknun." (Bls 117). Prófarkalestur
er sömuleiðis slakur og prentvillur
og jafnvel málvillur alltof algengar.
Stundum verða úr þessari hroðvirkni
brandarar, eins og „íran og Gíleað:
Tvö eingyðingsveldi á síðari hluta
tuttugustu aldar." (Bls. 265), en það
bætir harla lftið úr skák. Éins og
sagan birtist hér er hún hrein boðun-
arsaga, án bókmenntalegs metnaðar
og ósjálfrátt detta manni í hug þau
orð sem Hannes Sigfússon hefur eft-
ir Sigfúsi Daðasyni f Framhaldslífi
förumanns, um róttæka boðun f
skáldskap: „Ég held þetta sé ekki
aðferðin."
Ingibjörg Þorbergs á nokkur ljóð
á plötunni auk allra laganna og
má þar nefna Jólabros í jólaös og
Þrettándasöng sem Kristinn Sig-
mundsson syngur. Ljóð em m.a.
eftir Halldór Laxness, Krisfján frá
Djúpalæk, Jóhannes úr Kötlum,
Erlu Þórdísi Jónsdóttur og Jennu
Jensdóttur.
Alls eru lögin 10 á plötunni og
allir hljóðfæraleikarar eru topp-
menn. M.a. leikur blásara- og
strengjasveit úr Sinfóníuhljómsveit
íslands á plötunni. Framkvæmda-
stjóri útgáfunnar er Magnús
Guðmundsson og er vandað til allra
þátta, plötuumslags og textabókar
með nótum sem fylgir plötunni.
Hvít er borg og bær er plata sem
vinnur á við frekari kynni. Útsetn-
ingar eru ekki mjög hefðbundnar
miðað við almenna stefnu hérlend-
is, en þær eru útsjónarsamar og
fjölbreyttar. Hvít er borg og bær
er einnig gefin út á geisladisk.
15 % VERÐUEKKUN A