Morgunblaðið - 18.12.1987, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Norma E. Samúelsdóttir um nýja ljóðabók sína:
Vfl minna á aðstandend-
ur vímuefnaneytenda
Marblettir í regnbogans litum
- ljóð eiginkonu drykkjusjúks
manns er nafn nýrrar ljóða-
bókar eftir Normu E. Samúels-
dóttur. Þetta er þriðja bók
hennar, hin fyrsta, Dagbók
húsmóður í Breiðholti, kom út
árið 1979 en sú næsta kom
árið 1982 og bar nafnið Tréð
fyrir utan gluggann minn. Að
þessu sinni gefur Norma sjálf
út bók sína og í spjalli við
blaðamann Morgunblaðsins
greinir hún nánar frá atvikum:
-Ég tók það ráð fyrir fáum
vikum að ráðast sjálf í útgáfu
þessarar ljóðabókar minnar
fremur en firesta því lengur. Út-
gefandi sem ég var í sambandi
við og ætlaði að gefa bókina út
hefur í tvö ár ekki getað það af
fjárhagsástæðum svo ég geri það
á eigin kostnað og sé um dreif-
ingu.
Þetta er vissulega heilmikil
vinna fyrir þriggja bama ein-
stæða móður og hefur útheimt
andvökunætur en um leið áhuga-
verð reynslá og heimurinn er
ekkert hruninn þótt þetta verði
ekki metsölubók.
Þessi ljóðabók Normu hefur
að geyma yfir 50 ljóð og er
henni skipt í fjóra kafla. Höf-
undur reifar böl alkóhólismans
til mín - sérstaklega það sem
snýr að aðstandendum hinna
drykkjusjúku og vímuefnaneyt-
enda og ég vil minna á böl þeirra.
Menn hafa yfirleitt minni áhyggj-
ur af þeim þótt þeir séu engu
minni sjúklingar. Þeir eru oft
berskjaldaðir og vita ekki hvemig
þeir eiga að snúa sér gagnvart
þessum vanda.
Hyggstu halda áfram að
sinna skáldskap?
-Vissulega er það ætlunin þótt
tíminn til þess sé ekki sem bestur
í svipinn þar sem ég á þrjú böm.
Ég verð að skrifa við ákveðnar
aðstæður, það verður að koma
andi yfír mig, sorg eða gleði og
allt á þetta sinn meðgöngutíma.
Vonandi kemur að því að ég geti
haldið áfram og ég hef þá áhuga
á að skrifa bamasögu og leikrit.
Ég vil ekki festast í ákveðnu
formi en tel þó að mér henti bet-
ur að skrifa stuttan texta,
smásögur eða ljóð og held von-
andi áfram við það.
Hefurðu þegar ákveðinn
efnivið i huga?
-Leikritið hefur verið að mót-
ast svolítið þótt ég viti vel að ég
geti ekki skrifað það strax, ekki
fyrr en eftir 5 til 10 ár. Ég hef
áhuga á dulrænum efnum og
ætla að taka fyrir ýmis trúfélög
í þessu leikriti.
Norma E. Samúelsdóttir.
í tilfinningalífi eiginkonunnar
eða aðstandandans:
-Ég er hins vegar ekki gift
drykkjusjúkum manni og hef
aldrei verið en þetta efni höfðar
Skólavörðustíg 17a, sími 25115
Brids
Amór Ragnarsson
Bridsfélag Breidholts
Sl. þriðjudag var spiluð jólarú-
berta með Monrad-fyrirkomulagi
og einnig voru afhent verðlaun fyr-
ir aðalkeppnir haustsins. Eftirtalin
pör urðu efst:
Leifur Kristjánsson —
Tryggvi Þ. Tryggvason 39
Gísli Þ. Tryggvason —
Guðmundur Thorsteinsson 25
Kristján Jóhannsson —
Eyjólfur Bergþórsson 24
Leifur Karlsson —
Bergur Ingimundarson 22
Sigurður Karisson —
Sæmundur Jóhannsson 19
Næst verður spilað hjá félaginu
þriðjudaginn 5. janúar og þá eins
kvölds tvímenningur. Þriðjudaginn
12. janúar hefst aðalsveitakeppni
félagsins. Stjóm félagsins þakkar
spilumm og bridsfréttaritara Morg-
unblaðsins gott samstarf á líðandi
ári og óskar áðumefndum gleði-
legra jóla.
Frá Hjónaklúbbnum
Nú er hraðsveitarkeppninni lokið
og sigraði sveit Erlu Sigurjóns-
dóttur með 1396 stig, ásamt Erlu
vom Kristmundur Þorsteinsson,
Dröfn Guðmundsdóttir og Einar
Sigurðsson í sveitinni.
Úrslit urðu annars þessi:
Sv. Svövu Ásgeirsdóttur 1393
Sv. Huldu Hjálmarsdóttur 1384
Sv. Gróu Eiðsdóttur 1380
Sv. V algerðar Eiríksdóttur 1376
Sv. Guðrúnar Reynisdóttur 1340
Sv. Sigríðar Ingibergsdóttur 1331
Þann 22. des. er áætlað að spila
eins kvölds tvimenning fyrir þá sem
lokið hafa jólaönnum en annars
hefst aðaltvímenningurinn þann 5.
jan. og em félagar hvattir til að
skrá sig tímanlega (22378 Júlíus).
Gleðilega jólahátíð
Hríngbraut 92
cr að finna ótrúlega
glæsilegt úrval
af tertum -
og nýlagað
kaffi á
könnunni.
eíns og fínn frúnnar
baka sjálfar!
Aðventnkrans úr gljáðu
kríngltibrauðí.