Morgunblaðið - 17.02.1988, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988
Hallgrímskirkja:
Föstumessur að venju
NÚ FER fastan í hönd. f Hall-
grímskirkju verða föstuguðs-
þjónustur að venju á hveiju mið-
vikudagskvöld, og hefjast þær
kl. 20.30. Við þessar guðsþjón-
ustur munu prestar úr Reykjavík
og nágrenni prédika og kirkju-
kórar safnaðanna, sem þeir
þjóna oftast, syngja. Er við hæfi
að sem flestir komi í minningar-
kirkju Passíusálmaskáldsins og
annist þar þjónustu og er þetta
liður i því.
Þá verða kvöldbænir og lestur
Passíusálma í kirkjunni á hveijum
virkum degi um föstuna og hefjast
bænastundimar kl. 18.00 hvem
dag.
Listvinafélag Hallgrímskirkju
hefir haft forgöngu um það að setja
upp sýningu í anddyri kirkjunnar
af stækkuðum ljósmyndum af
nokkmm síðum úr eiginhandriti
Hallgríms Péturssonar af Passíu-
sálmunum. Þessi sýning hefir staðið
í nokkrar vikur og stendur út föst-
una.
Dr. Jónas Kristjánsson, forstöðu-
maður Stofnunar Áma Magnússon-
ar, mun flytja erindi í kvöld um
eiginhandrit Hallgríms. Verður er-
indið flutt að lokinni föstumessu
sem sr. Hjalti Guðmundsson, dóm-
kirkjuprestur, og Dómkórinn í
Reykjavík annast.
(Fréttatilkynning)
Hófí kynnir Miele eldhús
Hér sýnir Hófí nýja gerð eldhústækja.
Hólmfríður Karlsdóttir i Miele eldhúsi á sýningunni í Köln.
Hún heiUaði fjölmiðlamenn með framkomu sinni og viðmóti,
að ógleymdu útlitinu.
Hólmfríður Karlsdóttir, Hófí, kom fram á alþjoðlegri vörusyn-
ingu í Köln í Vestur Þýskalandi fyrir skömmu og kynnti þar
fyrir blaðamönnum eldhúsinnréttingar og -tæki fyrir hönd Mi-
ele fyrirtækisins. Hún heimsótti
tók þar forstjóri fyrirtækisins i
Upphaf samstarfs Hófíar og
Miele fyrirtækisins var í fyrra,
þegar umboðsaðili Miele á ís-
landi, Jóhann Olafsson & Co hf,
fékk hana til samstarfs á sýning-
unni „Heimilið ’87“. Þar var
„draumaíbúð Hófíar" með Miele
eldhúsi. I framhaldi af því tók
Hófí að sér, að kynna framleiðslu
Miele fyrirtækisins á alþjóðlegri
sýningu í Köln í janúar sl. Frétta-
mönnum var boðið að skoða sýn-
inguna daginn fyrir opnun og
einnig Miele verksmiðjurnar og
móti henni.
kjmnti þá Hófí Miele eldhúsin,
jafnframt gaf hún gestum að
bragða íslenskan reyktan lax og
líkaði fjölmiðlamönnum hann af-
bragðs vel, að sögn Jóhanns J
Ólafssonar hjá Jóhanni Ólafssyni
& Co hf. Eftir kynninguna á sýn-
ingunni, fór Hófí í boði Miele að
skoða verksmiðju fyrirtækisins í
GÚtersloh, 80.000 manna borg.
Þar heimsótti hún einnig bama-
heimili. Rudolph Miele, forstjóri
fyrirtækisins, tók á móti Hófí,
færði henni blóm og sýndi henni
verksmiðjuna. Það vakti sérstaka
athygli, bæði á sýningunni og í
GÚtersloh, hve eðlileg og alúðleg
Hófí var í allri ffamkomu og vakti
það mikla hrifningu manna, að
sögn Jóhanns.
Hófí mun halda áfram sam-
starfí við Jóhann Olafsson & Co
hf og Miele, bæði með auglýsinga-
gerð og, ef tækifæri gefst til, mun
hún verða viðstödd opnun nýrrar
verslunar fyrirtækisins í Sunda-
borg á næstunni. Hófí er nú á
ferðalagi erlendis og óvíst hvort
hún verður komin heim í tæka tíð
fyrir þann atburð.
Belinda Hughes með nokk-
ur verka sinna.
Bókasafn Kópavogs:
Grafík- og
vatnslita-
myndir
BELINDA Hughes opnar
sýningu á grafik og vatns-
litamyndum og myndum
með blandaðri tækni í List-
stofu Bókasafns Kópavogs
miðvikudaginn 17. febrúar.
Belinda er fædd 24. júní
1965 og ólst upp í Gloucest-
ershire í Englandi. Hún gekk
f skóla í Cheltenham og
stundaði listnám í The Arts
College í þeirri borg og lauk
þar „BA Fine Art Degree"
árið 1987. Hún lagði megin-
áherslu á grafík, en stundaði
einnig olíumálun og vann að
mörgum verkefnum í þeirri
grein.
Belinda hefur haldið sýn-
ingar í heimalandi sínu og
gert myndir af mönnum og
dýrum eftir pöntunum frá ein-
staklingum.
A sýningunni, sem segja
má að sé sýnishom af verkum
listamannsins, eru 20 myndir,
helmingur þeirra gerður hér
á landi undanfama mánuði
undir áhrifum af íslenskri
menningu og persónulegri
rejmslu Iistamannsins.
Sýningin er opin á sama
tíma og bókasafnið, mánu-
daga til föstudaga kl. 9—21,
laugardaga frá kl. 11—14.
Sýningin stendur frá 17.
febrúar til 11. mars nk.
Flestar myndanna eru til
sölu og aðgangur er ókeypis
og öllum heimill.
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Fjórir blásarar leika einleik
Á áskriftartónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar I Háskólabíói
nk. fimmtudag, þann 18. febrúar, munu fjórir blásturshljóðfæra-
leikarar hljómsveitarinnar Ieika einleik undir stjórn hins unga
ungverska stjómanda Thomas Koncz.
A efnisskrá verða fjögur verk, ar, skömmu áður en hann tók til
fyrst úr tónaljóðinu Föðurlandið
mitt eftir Bedrich Smetana
(1824—1884). Leikið verður lagið
Moldá, sem er þekktasti og vinsæl-
asti þátturinn úr tónaljóðinu. í
verkinu segir frá upptökum Moldár
og ánrii er fylgt eftir til sjávar.
Því næst koma blásaramir til sög-
unnar og flytja Sinfóníuna Con-
certante fyrir fjóra blásara eftir
Wolfgang Amadeus Mozart. Verk-
ið skrifaði hann í lok átjándu ald-
við Töfraflautuna. Segja má að
síðari hluti tónleikanna sé helgaður
Ungveijalandi. Fluttar verða Tvær
mjmdir eftir Bela Bartok (1881—
1945) og Dansar frá Galente eftir
Zoltán Kodalý (fæddur 1882).
Þessir Ungveijar söfnuðu báðir
ungverskum þjóðsöngvum'af mik-
illi ástríðu auk þess að semja tón-
list. Þeir voru miklir vinir og Bart-
ok samdi t.d. tónlist, sem var til-
einkuð Kodalý.
Davíð Oddsson
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Borgarstjón fundar
í Breiðholti í kvöld
DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri
mætir í kvöld á almennan borg-
arafund með Breiðhyltingum í
Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi.
Þar mun borgarstjóri ræða mál-
efni Breiðholts og borgarmálin, auk
Einleikaramir með hljómsveit-
inni á tónleikunum eru allir leið-
andi í hljómsveitinni, hver í sinni
rödd; Kristján Þ. Stephensen á
óbó, Einar Jóhannesson á klarín-
ett, Joseph Ognibene á hom og
Hans P. Franzson á fagott. Auk
þess að leika með Sinfóníuhljóm-
•sveitinni em þeir allir löngu lands-
kunnir sein einleikarar og sem
flytjendur kammertónlistar.
Eins og áður hefur komið fram,
er hljómsveitarstjórinn, Thomas
Koncz, Ungveiji. Hann er á 38.
aldursári og stundaði nám í tón-
skáldafræðum og hljómsveitar-
stjóm í Búdapest og Vínarborg.
Frá 1974—1980 var hann stjóm-
andi í Ungversku ríkisóperunni í
Búdapest en er nú aðalstjómandi
Sinfóníuhljómsveitarinnar í Bod-
ensee í Þýskalandi. Hann hefur
einnig stjómað nokkmm stómm
hljómsveitum í Evrópu.
Auk áskriftartónleikanna verða
haldnir nk. laugardag kl. 14.30 í
Háskólabíói tónleikar með rússn-
Thomas Koncz, stjómandi á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar nk. fimmtudagskvöld.
eska bassasöngvaranum Paata
Burchuladze, en eins og kunnugt
er veiktist hann hér á landi í
síðustu viku, er hann kom til tón-
leikahalds. Hann mun einnig
syngja á tónleikum á vegum Tón-
listarfélagsins í Háskólabíói kl.
19.15 ámiðvikudagþann 17. þ.m.
(Fréttatilkynning)
þess sem hann svarar fyrirspumum
fundargesta. Auk hans mætir Víl-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður
skipulagsnefndar Reykjavíkurborg-
ar, á fundinn.
Fyrir fundinum standa sjálfstæð-
isfélögin í Breiðholti. Fundurinn
hefst kl. 20.30.
JC og Bylgjan safna
fyrir Heilavernd
JC Á íslandi og útvarpsstöðin Bylgjan gangast fyrir fjársöfn-
un til styrktar Heilavernd dagana 19. og 20. febrúar næstkom-
andi. Gengið verður í hús eða fjrrirtæki, eftir því sem hvert
JC félag ákveður, og hlustendum Bylgjunnar gefst færi á því
að „kaupa sér lag“ í sérstökum þáttum.
Félagið Heilavemd er félags- til styrktar Heilavemd, er mjög
skapur til styrktar baráttunni
gegn arfgengri heilablæðingu,
en í dag teljast 250-300 íslend-
ingar til áhættuhóps hvað sjúk-
dóm þennan varðar og þegar
hafa 200-300 manns látist af
hans völdum.
Að sögn Vilhjálms Þórs Vil-
hjálmssonar, formanns nefndar
brýnt að afla fjár handa Heila-
vemd, því ijárskortur hafi haml-
að rannsóknum á arfgengri
heilablæðingu og tilfínnanlegur
skortur sé á tækjabúnaði.
Þeir sem vilja styrkja málefnið
geta greitt inn á bankareikning
nr. 1195 við Sparisjóð vélstjóra
í Síðumúla, reikningsnúmer
41000.