Morgunblaðið - 17.02.1988, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.02.1988, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Getraun Þetta var nokkuð sérstök bygg- ing. Ekki að utan, heldur voru innréttingar bláar og bleikar, úr gleri og krómi og ekkert herbergi var homrétt. Það er bara svo að heimsmenningin hefur haldið innreið sína til íslands, hugsaði ég. Á hurðun- um vom nöfn manna ásamt titlum. Eftir skamma göngu kom ég að dyrum sem á stóð Jónatan ísfeld, fréttastjóri. "" Þetta var greinilega rétti stað- urinn. Ég bankaði á dymar. Enginn svaraði. Það var greini- legt að herbergið var mann- laust. Fréttastjóri Það var því ekki um annað að ræða en að halda áfram. Við endann á ganginum kom ég að kaffistofu. Eg raeskti mig og beindi þeirri spumingu til kaffistofunnar í heild, hvort Jónatan ísfeld væri einhvers staðar á svæðinu. Fólkið leit upp, tveir menn og ein kona. Það var konan sem svaraði. „Jónatan. Athugaðu þama inni á fréttadeildinni." Viðtal Þar fyrir innan hitti ég Jónat- an. Hann var djúpt sokkinn i samræður. Ég beið og þegar hlé varð a'samræðunum kynnti ég- mig. „Blessaður Jónatan. Guðmundur hér. Útaf viðtal- inu.“ Hann leit á mig, brosti vingjamlega og uppörvandi og rétti fram höndina. „Nei, komdu blessaður. Hvað segja menn þá. Ætlar þú að bíða aðeins. Ég er rétt að klára ákveðið mál.“ Siminn hringir Skömmu síðar gengum við saman fram ganginn. Á leið- inni að skrifstofunni, u.þ.b. 20 metra, stoppaði Jónatan þrisv- ar til fjórum sinnum til að af- greiða nokkur smá mál. Að Iokum komumst við inn í skrif- stofu hans. „Fáðu þér sæti vin- ur,“ sagði Jónatan brosandi. „Jæja nú getum við talað sam- an. Hvemig vilt þú að við tök- um á málinu?" Ég var rétt byijaður að tala þegar síminn hringdi. Jónatan greip tólið, leit til mín, lyfti augnabrúnum og sökkti sér síðan ofan í símtal- ið. „Já, halló . ..“ > Aldrei friður Eftir þetta gekk samtal okkar ágætlega. Síminn hringdi á mínutu fresti og alltaf annað slagið rak einhver ágætur mað- ur inn höfuðið, með fyrirspum, rétti Jónatan blöð og fékk önn- ur, útsendingar vom ákveðnar og fundir skrifaðir inn í stóra tímabók sem var á skrifborð- inu. f einu hlénu leit Jónatan til mín og brosti. „Svona er þetta alltaf. Aldrei friður. Sum- ir halda að þetta sé skemmti- legt starf en þola það síðan ekki. Þetta á hins vegar vel við mig.“ Úreinu íannað j Að loknu samtali okkar geng- um við saman fram ganginn. „Veistu hvað mér finnst einna verst við þetta starf?“ spurði Jónatan. „Nei,“ svaraði ég. „Það er að það gefst aldrei tími til að vinna málin nógu vel ofan í kjölinn. Við þurfum að fara of mikið úr einu f annað. Það vantar tíma.“ íhvaða merki? Ég verð að segja eins og er að mér var skemmt, þegar ég sat í skrifstofu Jónatans. Það var eins og að bíða á flugstöð, fimm mínútum fyrir brottför tíu flugvéla. Þetta var bijál- æði, a.m.k. fyrir mig. Jónatan leið hins vegar vel enda í . .. merkinu. Og það er spuming dagsins. f hvaða merki er Jón- atan? Svar sendist til Stjömu- spekiþáttar, Morgunblaðið, Aðalstræti 6, 101 Rvík. Hinn heppni vinningshafí hlýtur síðan að sjálfsögðu vegleg verðlaun. Uppskurður á mánudegi? Ég er hissa á því, lækn- ir... Af hverju hefurðu alltaf þennan háttinn á? Golfvöllurinn er lokaður á mánudögum... Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Spilamennskan í spaðageim- inu hér að neðan gæti vafist fyrir góðum spilara í tvímenn- ingi. En í sveitakeppni orkar ekki tvímælis hvemig best er að spila. Suður gefur; allir á hættu. Norður ♦ 53 ¥74 ♦ ÁKDG6 ♦ 10873 Vestur Austur ♦ 64 ¥ KDG852 ♦ 94 ♦ KG9 ♦ G1092 ¥Á1093 ♦ 852 ♦ 52 Suður ♦ ÁKD87 ♦ ?073 ♦ ÁD64 Vestur Norður Austur Suður — — — 1 spaði 2 hjörtu 3 tíglar 3 hjörtu 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Útspil: hjartakóngur. Vestur átti fyrsta slaginn og hélt áfram með hjartað. Austur yfirdrap með ás og hugðist senda lauf til baka. En sagnhafi trompaði og glutraði spilinu nið- ur, strax á næsta slag. Hann tók trompásinn. Tromp- kóngurinn upplýsti 4-1-leguna, sem nú er banvæn. Sagnhafí reyndi þó að klóra í bakkann með því að spila tígli tvisyar og svína svo laufdrottningu. Ef austur hefði átt fjóra tígla eða þrjá tígla og laufkóng mætti enn vinna spilið. Því var ekki til að dreifa, og vestur gerði út um samninginn með því að spila hjarta og stytta sagnhafa enn frekar. Leiðin til að veijast slæmri tromplegu er einfaldlega sú að spila smáum spaða frá báðum höndum í þriðja slag. Þá heldur spaðahundurinn í borðinu valdi á hjartanu. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu í Wijk aan Zee í Hollandi um daginn kom þessi staða upp í B-flokki í viður- eign franska alþjóðlega meistar- ans Kouatly og Hollendingsins Douven, sem hafði svart og átti leik. 22. — Bxb5!, 23. axb5? (Hvítur hefði átt að sætta sig við að tapa peði og leika 23. a5) — d2 og hvítur gafst upp, því að hann verð- ur skiptamun undir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.