Morgunblaðið - 17.02.1988, Blaðsíða 32
AO
■\VT
/ttlf
* TO'f<fVTr\C
32
nrtrtf ir /i /fftnorrr «r nt
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988
Sverrír Stormsker
Heilagt stríð
R Hótel Borg
FIMMTUDAGINN 18. febrúar
halda frændurnir Sverrir Storm-
sker og Rúnar Þór tónleika þar
sem flutt verða lög af flestum
þeim hljómplötum sem þeir hafa
gefið út. Kallast tónleikarnir
„Heilagt stríð“.
Þeim til fulltingis verða margir
hljóðfæraleikarar og má þar nefna
Pálma Gunnarsson, Karl Sighvats-
"son, Stefán Hilmarsson, Sigurgeir
Sigmundsson, Steingrím Guð-
mundsson, Stefán Ingólfsson og
Jósef Winett, en hann er banda-
rískur saxófónleikari, sem hingað
er kominn sérstaklega vegna þess-
ara tónleika.
Húsið opnar kl. 21 og tónleikam-
ir sjálfir he§ast ki. 22 stundvíslega.
Hljóðstjóm er í höndum Paul
Bradman og kynnir er Birgir
Hrafnsson.
Geðhjálp:
Fyrirlestur um líkams-
hreyfingu og geðheilsu
GEÐHJÁLP verður með fyrir-
lestur fimmtudaginn 18. febrúar.
Anna Kristín Kristjánsdóttir
yfirsjúkraþjálfari flytur þá er-
Jmdi um lfkamshreyfingu og geð-
heilsu.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 á
geðdeild Landspítalans, í kennslu-
stofu á 3. hæð. Fyrirspumir, um-
ræður og kaffí verða eftir fyrirlest-
urinn.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
■
Krakkar sem hafa kíæðst furðufötum í tilefni dagsins.
Kötturinn sleginn úr
tunnunni í Kaupstað
SKÁTAFÉLAGIÐ Segull í er vilja uppá ókeypis förðun.
Seyahverfi og Kaupstaður í Sanítas býður ókeypis gosdrykki.
Mjódd efna til öskudagshátíðar Kötturinn verður sleginn úr tunn-
í dag, miðvikudag. unni og efnt verður til furðufatas-
amkeppni, þar sem að þrír bestu
Hátíðin hefst kl. 10 árdegis. búningamir verða verðlaunaðir.
Afgreiðslufólk í snyrtivörudeild Þá verða og tunnukóngur og
Kaupstaðar býður þeim krökkum tunnudrottning krýnd.
Fulbright stofn-
uninflytur
Fulbright-stofnunin (Mennta-
stofnun íslands og Banda-
ríkjanna) flutti í gær, þriðjudag,
í nýtt húsnæði á Laugavegi 59
(Kjörgarði) 3. hæð.
Starf Fulbright-stofnunarinnar
er tviþætt. Annars vegar veitir
stofnunin íslendingum styrki til
framhaldsnáms og rannsókna í
Bandaríkjunum og Bandaríkja-
mönnum styrki til náms og starfa
við Háskóla íslands.
Hins vegar er starfrækt upplýs-
INNLENT
ingaþjónusta og námsráðgjöf fyrir
þá sem hug hafa á námi í Banda-
ríkjunum.
Árlega berast um 2.400 fyrir-
spumir og eru námsmönnum veittar
upplýsingar um námskröfur og inn-
tökuskilyrði við bandaríska háskóla
og aðstoð við að leita að skólum
sem henta hveijum og einum.
Kenna á
Reyðarfirði
og Eskifirði
í síðasta sunnudagsblaði birtist
viðtal við Gillian Haworth og Char-
les Ro_ss tónlistarkennara á Reyðar-
firði. í viðtalinu er einnig rætt um
Eskifjörð og er ástæðan sú að þau
kenna þar einnig.
Átthagafélagið Höfði
heldur þorrablót
ÞORRABLÓT Átthagafélagsins
Höfða í Reykjavík og nágrenni
verður haldið í Félagsheimili
Seltjarnarness þann 20. febrúar
nk. Að vanda verður boðið upp
á þorramat og norðlenskt laufa-
brauð bakað af félagsmönnum.
Heiðursgestir úr átthögunum
verða Pétur Axelsson.útibússtjóri
KEA á Grenivík.og kona hans, Erla
Friðbjömsdóttir. Flytja þau blóts-
gestum annál ársins að norðan.
Allir þeir sem ættir eiga að rekja
á þessar slóðir eru velkomnir ásamt
vinum og velunnumm félagsins.
Átthagafélagið Höfði var stofnað
í nóvember 1979 af Vestur-Þingey-
ingum. Formaður félagsins er Lára
Egilsdóttir. í forsvari fyrir
skemmtinefnd eru María Kristins-
dóttir og Sigurbjörg Sigfúsdóttir.
Morgunblaðið/Eva Karlsdóttir
Ami Pétur Guðjónsson í hlut-
verki sínu sem kontrabassaleik-
arinn.
Leikhúsið
Frú Emilía:
Frumsýnir
gamanleikinn
Kontrabassann
eftir Patrick
Siiskind
LEIKHÚSIÐ Frú Emilía frum-
sýnir einleikinn Kontrabassann
eftir Patrick SUskind á morgun,
fimmtudag, á Laugavegi 55b.
Leikritið er gamanleikur og
fjallar um kontrabassaleikara í
sinfóníuhljómsveit áður en hann
fer í kjólfötin til að spila.
Kontrabassaleikarann leikur
Ami Pétur Guðjónsson, leik-
stjóri er Guðjón P. Pedersen,
leikmynd og búninga gerði
Guðný B. Richards og Hafliði
Arngrímsson og Kjartan
Óskarsson þýddu verkið.
Þjóðveijinn Patrick Siiskind
skrifaði leikritið sumarið 1980 en
það var frumsýnt í Ríkisleikhúsi
Bæjaralands í Miinchen 22. sept-
ember 1981. Þar er leikritið enn
sýnt og eru sýningamar orðnar
yfír 200. Suskind hefur einnig.
skrifað skáldsöguna Ilminn sem
gefin var _út í íslenskri þýðingu
Kristjáns Ámasonar í fyrra, segir
í fréttatilkynningu.
Landbúnaðarráðu-
neytið vann að málinu
VEGNA baksíðufréttar í Morg-
unblaðinu 16. febrúar, um inn-
flutningsleyfi laxaseiða til Nor-
egs vill landhúnaðarráðherra
upplýsa eftirfarandi:
Landbúnaðarráðuneytið á
margvísleg og góð samskipti við
norska landbúnaðarráðuneytið,
sem fer með ákvörðunarvald varð-
andi innflutning laxaseiða til Nor-
egs.
Af hálfu landbúnaðarráðuneyt-
Leiðrétting
í frásögn af fímm ættliðum í beinan
karllegg í sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins slæddist inn meinleg prent-
villa. Sá yngsti í hópnum heitir
Georg Pétursson. Velvirðingar er
beðist á mistökunum.
isins íslenska hefur verið haft
ítrekað samband við æðstu menn
norska landbúnaðarráðuneytisins
og gerð grein fyrir mikilvægi þess,
að íslenskar eldisstöðvar gætu selt
framleiðslu sína til Noregs. Sendi-
ráð íslands í Osló hefur einnig
verið að verki, að beiðni land-
búnaðarráðherra.
í viðræðum við ráðuneytið
norska kom strax fram, að yrðu
innflutningsleyfí veitt, mundi gott
heilbrigðisástand íslenskra laxa-
seiða auðvelda samkeppnisaðstöðu
við aðra, sem leituðu inn á mark-
aðinn.
Ráðuneytisstjóri norska land-
búnaðarráðuneytisins hringdi í
íslenska landbúnaðarráðuneytið
strax og ákvörðun var tekin og
tilkynnti, að ráðuneytið safíiþykkti
innflutning laxaseiða frá Islandi
til vissra svæða í Noregi. Ákvörð-
unin barst jafnframt til Félags fi-
skeldis- og hafbeitarstöðva.
Leiðrétting
Vegna mistaka féll niður ein
setning í greininni „Meðlög ennþá
dregin frá láni“ sem birtist í blaðinu
í gær. í lok greinarinnar sagði orð-
rétt: „Að lokum viljum við að það
komi fram að hingað til höfum við
staðið í þeirri trú að Vökumenn
væru að vinna að sama markmiði
í þessu máli og við, þ.e. að ná fram
fullri leiðréttingu handa einstæðum
foreldrum." Þar á eftir féll niður:
„Til að það náist þarf órofa sam-
stöðu allra námsmanna'."
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.