Morgunblaðið - 17.02.1988, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988
25
Bretland:
Bifreið springnr
nærri bústað
forsætisráðherra
Lundúnum, Reuter.
MAÐUR lést í fyrrinótt er bif-
reið hans sprakk í loft upp
skammt frá lögreglugirðingu
er lokar Downing-stræti en við
það er bústaður Margaretar
Thatcher forsætisráðherra
Breta. Ekki er talið að um
hryðjuverk hafi verið að ræða.
Lögreglan álítur, að maðurinn
hafi framið sjálfsmorð með því að
hella yfír sig bensíni og bera að
eld, þar sem hann sat í bifreið sinni
skammt frá bústað forsætisráð-
herrans. ílát undan bensíni fund-
ust í braki bifreiðarinnar.
Að sögn lögreglunnar voru at-
vik þau að maðurinn lagði bifreið-
inni framan við Downing-stræti
um kiukkan eitt eftir miðnætti
aðfaranótt þriðjudags, skömmu
síðar blossaði upp eldur í bílnum.
Forsætisráðherra var í fastasvefni
er atvikið átti sér stað og varð
ekki vör við eldinn. Ekki er talið
að maðurinn hafí ætlað að gera
Thateher mein.
Margaret Thatcher hefur einu
sinni verið hætt komin vegna
hryðjuverka frá því að hún tók við
embætti forsætisráðherra árið
1979. Var það árið 1984 þegar
sprengja sprakk á hóteli í Brighton
þar sem margir af ráðherrum
Bretlands voru staddir. írski lýð-
veldisherinn lýsti ábyrgð á hendur
sér en alls iétu fímm lífíð í spreng-
ingunni.
Reuter
Lögreglumaður breiðir yfir bifreiðina sem sprakk fyrir utan bústað Margaretar Thatchers forsætisráð-
herra, Downing-stræti í Lundúnum í gær.
Aquino forseti Filipiseyja:
Segir fásinnu að
grípatil neyðarlaga
Hvalveiðar Japana í vísindaskyni:
Kæran til Reagans forseta
hefur takmörkuð áhrif
Alþjóða hvalveiðiráðið ályktar gegn áætlun Japana
ALÞJÓÐA hvalveiðiráðið hefur
samþykkt að hvetja Japani til að
draga til baka áætlun um hval-
veiðar í suðurhöfum í vísinda-
skyni. Niðurstaða bréflegrar at-
kvæðagreiðslu þar að lútandi var
birt í gær. William Verity, við-
skiptaráðherra Bandarikjanna,
hefur lagt fram formlega stað-
festingarkæru á hendur Japön-
um vegna vísindaáætlunar þeirra
og hefur Ronald Reagan Banda-
rílyaforseti 60 daga tU að ákveða
hvemig bregðast skuli við
hrefnuveiðum Japana, sem eru
nýhafnar við suðurskautið. Tals-
maður bandaríska viðskipta-
ráðuneytisins sagði i samtali við
blaðmann Morgunblaðsins að
þessi ákvörðun WiUiams Veritys
hefði engin sjáanleg áhrif á af-
stöðu stjórnvalda til viðræðna við
fuUtrúa íslendinga um hvalveið-
ar og breytingar á starfsháttum
visindanefndar Alþjóða hvalveið-
iráðsins.
Talsmaðurinn, Brian Gorman,
sagði William Verity hafa lagt kær-
una fram á þeim forsendum að
veiðar Japana drægju úr áhrifa-
mætti vemdunaraðgerða Alþjóða
hvalveiðiráðsins. Kvað talsmaður-
inn bandaríska viðskiptaráðherrann
enn ekki hafa kynnt með formleg-
um hætti tillögu um bann við inn-
flutningi á sjávarafurðum frá Japan
til Bandaríkjanna. Hins vegar hefðu
tvenn lagaákvæði orðið virk er stað-
festingarkæran var lögð fram. Ann-
ars vegar væri um að ræða Pack-
wood-Magnuson-lögin sem skyld-
uðu stjómvöld í Bandaríkjunum til
að takmarka fískveiðiheimildir Jap-
ana innan 200 mflna lögsögu
Bandaríkjanna og hins vegar Pelly-
lögin svonefndu sem heimiluðu
stjómvöldum að grípa til efnahags-
þvingana gegn þeim ríkjum sem
ekki virða samþykktir alþjóðlegra
vemdunarsamtaka.
Talsmaðurinn benti á að Japanir
stunduðu um þessar mundir ekki
veiðar innan bandarískrar lögsögu
þannig að fyrmefnda ákvæðið hefði
augljóslega einungis pólitísk áhrif.
Varðandi refsiaðgerðir gegn Japön-
um sagði Gorman það vera undir
Bandaríkjaforseta komið hvort
gripið yrði til þeirra. Minnti hann
á að Bandaríkjamenn hefðu sjö
sinnum íhugað að leggja fram stað-
festingarkæru og beita Pelly-
ákvæðinu gegn tilteknum þjóðum
m.a. íslendingum en til þess hefði
aldrei komið þar eð viðkomandi ríki
hefðu gripið til fullnægjandi ráð-
stafana að mati bandarískra ráða-
manna.
Engir fundir með Japönum
Brian G'orman sagði að ekki
væm ráðgerðir fundir með japönsk-
um embættisniönnum vegna veiða
Japana í vísindaskyni en hann
kvaðst búast við að óformlegar við-
ræður ættu sér stað innan þeirra
tímamarka sem Bandaríkjaforseta
em sett til að ákvarða framhald
málsins. Ákveði forsetinn að setja
ekki á innflutningsbann þarf hann
að skýra sjónarmið sín á Banda-
ríkjaþingi. Á síðasta ári fluttu
Bandaríkjamenn út fiskafurðir til
Japans fyrir um einn milljarð
Bandaríkjadala (um 37 milljarða
fsl. kr.). Frá Japan keyptu Banda-
ríkjamenn hins vegar sjávarafurðir
að verðmæti um 500 milljónir dala
(rúmir 18 milljarðar ísl kr.).
Aðspurður sagði Gorman að
hvalveiðar Japana og íslendinga í
vísindaskyni væm vissulega tengd
mál en þó mjög ólík. „Hér er um
ólík ríki að ræða og áætlanir þeirra
em ósambærilegar. Ég fæ því ekki
séð að staðfestingarkæran sem lögð
hefur verið fram á hendur Japönum
snerti beint viðræður íslenskra og
bandarískra ráðamanna," sagði
Brian Gorman að lokum.
Manila. Reuter.
CORAZON Aquino, forseti
Filippseyja, sagði það fásinnu að
ætla að grípa til herlaga í barátt-
unni gegn skæruliðum kommún-
ista. Yfirmenn í stjórnarhernum
hafa hvatt til að neyðarlög verði
sett en þing landsins lýsti and-
stöðu sinni við slíkar ráðagerðir
í fyrradag.
Leiðtogar hersins reyndu í gær
að gera lítið úr ósk sinni um setn-
ingu herlaga. Honesto Isleta hers-
höfðingi, annar æðsti maður herafl-
ans, sagði að einungis væri farið
fram á takmarkaða lagaheimild til
þess að bijóta skæmliða á bak aft-
ur, s.s. heimild til að handtaka
menn, sem gmnaðir væm um aðild
að samtökum skæmliða og halda
þeim án ákæm. Fidel Ramos, vam-
armálaráðherra, vísaði á bug að
herinn væri að biðja um neyðarlög.
Ferdinand Marcos, fyrmrn forseti,
Corazon Aquino
beitti herlögum um 14 ára skeið
með þeim afleiðingum að skæmlið-
um óx ásmegin. A þeim tíma fjölg-
aði skæmliðum úr nokkrum hundr-
uðum í 16 þúsund. Talið er að nú
séu þeir 25 þúsund.
Reuter
Eldur ísovésku vísindaakademíunni
Eldur kviknaði i sovésku vísindaakademiunni í Leningrad á sunnudag og logaði langt fram á að-
fararnótt mánudags. Á myndinni má sjá slökkviliðsmenn að störfum.
Fryst grænmetí
SJÖ TEGUNDIR!