Morgunblaðið - 17.02.1988, Page 45

Morgunblaðið - 17.02.1988, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988 45 Einar G. Sturlaugs- son - Kveðjuorð Þegar mér var tilkynnt að ekki væri hægt að vekja bróður minn og sennilega vaknaði hann ekki aftur, trúði ég því ekki. Það gat bara ekki verið, hann hlaut að liggja í dái og vakna aftur eftir nokkra daga. En hann var í raun dáinn og ég sem átti eftir að segja honum leyndarmál, já, leyndarmál sem ég komst að er ég dvaldi hjá honum kvöldinu áður að var honum svo mikið hjartansmál. Þá ákvað ég að heimsækja hann næsta kvöld og segja honum leyndarmálið, því ég vissi að það myndi gleðja hann svo mikið og engin hætta var á að hann segði frá, því enginn var traustari en hann. En það var því miður of seint. Mér er það svo minnisstætt að þetta síðasta kvöld sem ég dvaldi hjá Einari var ég í hvítum og bláum kjól sem ég var nýbúin að fá mér. Er ég fór úr kápunni og Einar sá kjólinn, sagði hann: „Hanna, hvar fékkstu þennan kjól?“ Ég svaraði honum því og spurði um leið: „Hvað, fínnst þér hann ljótur?" Ég var því nefnilega alvön að bróður mínum fyndist ég oft vera furðuleg til fara. Og hann sagði þá oftast: „í hverju ertu eiginlega?" En í þetta sinn sagði hann: „Nei, Hanna, mér finnst þú vera svo fín, þetta klæðir þig svo vel.“ Þessi ummæli bróður míns glöddu hjarta mitt svo að nú er kjóllinn mín uppáhaldsflík. Fæddur 24. maí 1971 Dáinn 31. janúar 1988 Mánudagurinn fyrsti febrúar 1988 verður greyptur í hugskot okkar sem dagur mikillar sorgar. Þá bárust okkur þær hörmulegu fréttir að félagi okkar, Þorsteinn Ívarsson, hefði látist daginn áður í snjóflóði. Þorsteinn var með ákveðnar hug- myndir um framtíð sína og skyggði þar ekkert á. Hann var staðfastur, áreiðanlegur, hónum var ávallt hægt að treysta til fullnustu og var hann ætíð reiðubúinn að rétta félög- um sínum hjálparhönd. Hann var hnyttinn í orði, var ávallt hress og kátur og sá yfírleitt skoplegu hlið- amar á málunum. í kunningjahópi var hann oft hrókur alls fagnaðar og virtist sem alvarleiki ætti ekki upp á pállborðið hjá honum, en við sem þekktum hann betur vissum að baki glaðværðinni bjó alvarlegri hugsun. Vissulega vantar nú mikið þegar einn er horfínn úr hópnum. Við söknum Steina. Finnbogi, Rúnar, Ilafliði og Knútur. Kveðja frá Iðnnemasam- bandi íslands Þann.l. febrúar bárust okkur þau sorglegu tíðindi að Þorsteinn félagi okkar hefði látið lífíð með svipleg- um hætti. Við kynntumst Þorsteini fyrst í haust þar sem hann sat sitt fyrsta þing INSÍ fyrir Iðnnemafélag Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Hann vakti mikla athygli með skörulegum málflutningi og skemmtilegri framkomu. A þessu þingi var hann ásamt Þórði bróður sínum fenginn til starfa í stjóm sambandsins. Þótt Þorsteinn sé nú fallinn frá mun minningin um góðan félaga lifa innan Iðnnemasam- bandsins. „Ó hve létt er þitt skóhljóð og hve lengi ég beið þín það er vor-hret á glugga, napur vindur sem hvín, en ég veit eina stjömu, eina stjömu sem skín, og nú loks ertu kominn þú ert kominn til mín. Mikið höfðum við rabbað saman. og gantast. Stundum sagði ég við hann: „Er ég ekki besti ættingi þinn?“ Hann svaraði því yfirleitt þannig til að við ættingjar hans værum öll svo góð að hann gæti ekki gert upp á milli okkar. Þannig var hann. Hann hafði svo hlýtt og gott hjarta að hann gat engan sært, með því að taka einn fram yfír annan. Einar gleypti í sig alla þá visku sem hann gat mögulega náð sér í, enda fannst mér mjög gott að leita til hans ef mig vantaði að vita eitt og annað. Hjá honum stóð aldrei á svari, það var sama hvort spuming- in var tengd fræðum, fréttum, tóm- stundum eða öðru. Mér fannst hann vita allt milli himins og jarðar. Stundum skorti hann aðeins reynsl- una, sem hann gat oft og tíðum ekki hlotið vegna fötlunar sinnar. Þó svo að Einar berðist við vöðva- rýmunarsjúkdóm alla sína ævi, sem smám saman dró meir og meir af honum, þá er ekki á nokkum hátt hægt að líta á dauða hans sem líkn, því fáir vom eins lífsglaðir og hann var. Ég get enn heyrt hans sérstaka og smitandi hlátur klingja fyrir eyrum mér. Bróðir minn hafði mikið og gott skap, sem hann kunni að stjóma og nýta sér á réttan hátt. Það nýtt- ist honum mjög vel í baráttunni við sjúkdóminn og þær hömlur sem Það em erfíðir tímar það er atvinnuþref ég hef ekkert að bjóða ekki ögn sem ég gef, nema von mína og lif mitt hvort ég vaki eða sef, þetta eitt sem þú gafst mér það er alt sem ég hef. En í kvöld lýkur vetri sérhvers vinnandi manns og á morgun skín maísól, < Það er maísólin hans, það er maísólin okkar, okkar einingarbands, fyrir þér ber ég fána þessa framtíðarlands." (Maístjaman. Halldór Lajcness.) Iðnnemasamband íslands sendir fjölskyldu Þorsteins innilegar sam- úðarkveðjur. honum fylgdu. Hann heyrði ég aldr- ei kvarta nema síður væri. Ég man það ætíð svo vel er hann var u.þ.b. 10 ára gamall. Þá kom til okkar kona og sagði svo Einar heyrði: „Æ, auminginn, getur hann ekkert gengið?" Ég hafði ekki komið neinu svari við þessari spumingu, þar sem bróðir minn var svo snöggur til svars og sagði: „Það á ekki að vera að vorkenna mér, því það er marg- ur sem hefur það miklu verra en ég, bæði þroskaheftir, heymarlaus- ir, blindir, geðveikir og margt fleira fólk.“ Já, ég á svo sannarlega ógrynni af mjög góðum minningum um minn elskulega bróður, sem hafði svo mikinn og sterkan persónuleika, sem skilur svo mikið eftir sig. Án nokkurs efa var hann heimsins besti bróðir og vinur. Megi allar góðar vættir vaka yfír mínum ástkæra bróður. Jóhanna Þ. Sturlaugsdóttir Góðar stundir með MS sam- lokum -hvar og hvenær sem er. l Mjólkursamsalan t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og virðingu við andlát og útför BENEDIKTS JÓNSSONAR, Aðalbóll. F.h. vandamanna, Jón Benediktsson, Aðalbjörn Benediktsson, Guðrún Benediktsdóttir. Þorsteinn ívars- son - Kveðjuorð t Bróðir okkar, STEFÁN STEFÁNSSON frá VíkíMýrdal, lést í elliheimilinu Kumbaravogi, Stokkseyri, aðfaranótt 15. febrúar. Jarðarför hans verður frá Víkurkirkju laugardaginn 20. febrúar kl. 14.00. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna. Málfrfður Helgadóttir, Eyrún Helgadóttir, Einar Helgason. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ESTER KRISTJANA SÆMUNDSDÓTTIR, Ásbraut 17, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 19. febrúar kl. 15.00. Þeir sem vilja minnast hennar vinsamlegast láti Krabbameins- félagið njóta þess. Börn hinna látnu. t Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR JÓSEFSSONAR, Hátúni 4. Kristín Guðmundsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Óskar Þ. Sigurðsson, Þóra Björgvinsdóttir, Jón Haraldsson og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, KRISTÍNAR STEFÁNSDÓTTUR, Þelamörk 26, Hveragerði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Grensásdeildar Borgarspítalans. Björgvin S. Gunnarsson, Þórhildur I. Gunnarsdóttir, Sigurrós G. Gunnarsdóttir, Ingibjörg D. Gunnarsdóttir, Guðrún Erla Gunnarsdóttir, Guðný S. Gunnarsdóttir Helga B. Björnsdóttir, Þorvaröur I. Vilhjálmsson, Sigvaldi Ingimundarson, Dagbjartur R. Sveinsson, Friðrik H. Ólafsson, og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, VILBORGAR ÍVARSDÓTTUR, Furugerði 1. Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og starfsfólks á deild 14G Land- spítalanum. Leifur Björnsson, Kristin Sigurjónsdóttir, Sigrún Björnsdóttir, Helgi Hallgrímsson, Hreinn Björnsson, Margrét Pálmadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og hlýhug við andlát og útför móður okkar, ÖNNU MAGNÚSDÓTTUR frá Villingavatni. - Sérstakar þakkir til starfsfólks og lækna á Sólvangi fyrir góða umönnun á undanförnum árum. Ragnhildur Þorgeirsdóttir, Magnús Þorgeirsson, Sæmundur Helgason, Ingibjörg Þorleifsdóttir og fjölskyldur. t Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og hjálpsemi við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIGERÐAR LOFTSDÓTTUR. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á Droplaugarstöðum fyrir elskulega hjálpsemi og hjúkrun við hina látnu. Hörður Óskarsson, Þorbjörg Sigtryggsdóttir, Ingveldur Óskarsdóttir, Eínar Sveinsson, Jón Óskarsson, Katrfn Marteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.