Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 3

Morgunblaðið - 19.04.1988, Síða 3
B 3 jHotgnnÞtaMb /ÍÞRÓTTIR ÞWÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988 HANDKNATTLEIKUR / V-ÞÝSKALAND Alfreð í baráttu Alfreð Gíslason sést hér í leik með Essen. Hann átti góðan leik um helgina, en ekki dugði það Essen til sigurs. Verður Gummersbach meistarií ellefta sinn? Nú eiga liðin í NBA-deildinni einungis 3-4 leiki eftir áður en úrslitakeppnin hefst. Þessir leikir fara fram nú í vikunni og fara síðustu leikirnir fram næsta sunnudag. Nokkuð er Ijóst hvaða lið komast úr vest- urdeild í úrslitakeppnina, en í Austurdeildinni er enn hörð barátta um tvö sæti. að eru 16 lið sem komast í úrslitakeppni NBA-deildarinn- ar, átta úr hvorri svæðadeild. Leik- ið er með úrsláttarfyrirkomulagi í úrslitakeppninni og Gunnar í fyrstu umferð Valgeirsson komast þau lið skrifar áfram sem fyrr vinna þijá leiki. í Vesturdeildinni eru lið Los Ange- les Lakers, Denver, Dallas, Port- land, Houston, Utah, Seattle og San Antonio nokkuð örugg um að kom- ast í úrslit. Phoenix, sem hefur verið í baráttu um síðasta sætið við San Antonio, hefur nú tapað þrem- ur leikjum meira en San Antonio og eiga bæði þessi lið nú eftir fjóra leiki. Þarf Phoenix því að vinna alla þessa leiki, sem er mjög hæpið að þeir geri því allir eru þeir gegn efstu liðunum í Vesturdeildinni. Það er því nokkuð öruggt að Pétur Guðmundsson og félagar fái það erfíða verkefni í næstu viku að kljást við Los Angeles Lakers í fyrstu umferð keppninnar. í Austurdeildinni hafa lið Boston, Detroit, Atlanta, Chicago og Mil- waukee þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni.1 Nokkuð víst er að Cleveland komist í úrslit, en lið New York, Washington, Indiana og Fíladelfíu beijast harðri baráttu um þau tvö sæti sem eftir eru. Eiga þessi lið eftir að leika nokkra leiki innbyrðis nú í vikunni og munu úrslit í þeim leikjum eflaust ráða hver af þessum liðúm komist í úrsli- takeppnina. Ekki er ljóst hvaða lið muni keppa saman í fyrstu umferð, það ræðst væntanlega ekki fyrr en í síðustu leikjum deildarinnar um næstu helgi. Kristján, Alferð og Sigurður áttu góðan leikað vanda San Antonio Spurs nær öruggt í úrslitakeppnina Ochel var markhæstur mótheijana með 9 mörk. Tap hjá Essen Essen varð að lúta í lægra haldi fyrir Massenheim á útivelli, 26:19. Þetta var jafnframt stærsta tap Essen á tímabilinu. Alfreð var markahæstur hjá Essen með 5 mörk. Fraatz og einn leikmaður Massenheim lentu í samstuði í upp- hafí fyrri hálfleiks með þeim afleið- ingum að þeir urðu báðír að fara útaf. Fraatz fékk stóran skurð á hægri augabrú'n. Klel missti af lestinni Dormagen gerði sigurmöguleika Kielar í deildinni að engu er þeir unnu 22:20 á heimavelli. Staðan í hálfleik var 10:8 fyrir Kiel sem er nú þriðja sæti með 33 stig á móti 37 stigum Gummersbach. Diisseldorf á möguleika Diisseldorf er í öðru sæti með 36 stig eftir sigur á Schwabing, 17:18, á útivelli og er eina liðið sem getur komið í veg fyrir sigur Gummers- bach. Dusseldorf lék án Páls Ólafs- sonar, sem er meiddur, eins var Ratka hvíldur í þessum leik vegna meiðsla. En hann er markahæsti leikmaður Diisseldorf í vetur. Önnur úrslit voru þau, að Göpping- en vann Gorsswaldstad, 20:24, á útivelli og Numberg sigraði Dort- mund 17:22 á útivelli. Verður Kristján fimmti íslendingurinn sem verður vestur-þýskur meistari I handknattleik? EF Kristján Arason verður vestur-þýskur meistari í handknattleik með Gummersbach eins og margt bendir til, yrði hann fímmti íslendingurinn sem nær þeim áfanga. Ólafur H. Jónsson og Axel Axelsson urðu meistarar með Dankersen á sínum tíma, Alfreð Gíslason með Essen í fyrra og 1986 og éins Jóhann Ingi Gunnars- son sem þjálfari Essen á síðasta keppnistímabili. Til gamans má geta þess að Erik Vaje Rassmussen frá Dan- mörku er eini érlendi leikmaðurinn fyrir utan íslendingana sem unnið hefur meistaratitil í vestur-þýska handboltanum. ÞEGAR TVÆR umferðir eru eft- ir ívestur-þýsku urvalsdeild- inni í handknattleik bendir allt til þess að Gummersbach hljóti meistaratitilinn í 11. sinn. Um helgina sigraði Gummersbach lið Hofweier á útivelli og sama tíma tapaði Kiel fyrir Dorma- gen. Kristján Arason átti mjög góðan leik og skoraði 4 mörk fyrir Gummersbach gegn Hofweier. Lokatölurnar urðu 16:20 eftir að HHHIH staðan í hálfleik Frá hafði verið 9:7 fyrir Jóhanni Inga Hofweier. Um miðj- Gunnarssyni an fyrri hálfleik kom iÞyskalandi upp atvik gem líklega eftir að draga dilk á eftir sér. Einn áhorfenda gaf Heine Brand, þjálfara Gummersbach, kjaftshögg og var hann smá tíma að jafan sig á því. Við þetta kom bakslag í leik Gummersbach eftir að liðið hafði komist í 3:6. í síðari hálfleik tóku Kristján og félagar leikinn í sínar hendur og unnu ör- ugglega. Sigurður markahæstur að venju Lemgo bjargaði sér endanlega frá falli með því að gera jafntefli við Milbertshofen, 22:22. Lemgo leiddi íhálfleik, 11:9. Sigurður var marka- hæstur að vanda með 7 mörk þar af gerði hann tvö úr vítaköstum. Kristján Arason og félagar hafa tekið stefnuna á meistaratitlinn. KNATTSPYRNA Ragnar Margeirsson með þrennu Ragnar Margeirsson skoraði þijú mörk fyrir Keflvíkinga þegar þeir unnu Selfyssinga, 3:0, í Litlu-bikarkeppninni á Selfossi. Hvasst og kalt var þegar leikurinn fór fram. Skagamenn skoruðu fimm mörk, 5:0, þegar þeir fengu Breiðablik í heimsókn. Haraldur Hinriksson, Elís Víglundsson, Sigursteinn Gíslason, Sigurður Lárusson og Sigurður B. Jóns- son skoruðu mörkin. Hafnarfjarðarliðin FH og Hauk- ar gerðu jafntefli, 2:2. KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN HANDKNATTLEIKUR / NM PILTA Litlir sigurmöguleikar Norðurlandamót pilta í hand- knattleik fer fram í Osló í Noregi um helgina. Að þessu sinni taka Finnar og Færeyingar ekki þátt og verða því aðeins fjögur lið í keppninni. Að sögn Lárusar H. Lárussonar, aðstoðarþjálfara íslenska liðsins, er það bæði ungt og reynslulítið, aðeins ijórir leik- menn á eldra árinu. „Siguröguleikar okkar á mótinu eru litlir — allt fyr- ir ofan neðsta sætið yrði framar öllum vonum,“ sagði hann. Eftirtaldir leikmenn skipa íslenska liðið: Markverðir: Axel Stefánsson, Þór Akureyri, og Hallgrímur Jóns- son, ÍR. Aðrir leikmenn: Davíð Gíslason, Gróttu, Gústaf Bjamason, Selfossi, Jóhann Ásgeirsson, ÍR, Róbert Haraldsson, HK, Finnur B. Jónasson, ÍR, Magnús Eggertsson, Stjömunni, Sigurður Bjarnason, Stjömunni, Gunnar Gíslason, Gróttu, Gunnar Andrésson, Fram, Einar Guðmundsson, Selfossi, Ró- bert Rafnsson, ÍR, og Magnús Sig- urðsson, Selfossi. Magnús Teitsson er þjálfari og Ingvar Viktorsson fararstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.