Morgunblaðið - 12.05.1988, Page 16

Morgunblaðið - 12.05.1988, Page 16
4- 16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1988 Ólympíuleikvangurinn í Seoul er mjög glæsilegt mannvirki. Ólympíuleikamir í Seoul ingu eða æfíngu, sem sjónvarps- áhorfendum um heim allan mun gefast kostur á að fá heim í stofu hjá sér á næstunni. Kórea að fornu og nýju íslendingar eru gjamir ao hneykslast á fáfræði útlendinga um ísland, en hve iangt nær þekk- ing okkar sjálfra á fjarlægum löndum og þjóðum, jafnvel þótt þær séu margfalt Qölmennari og láti meira til sín taka á alþjóðavett- vangi. Kóreu-skaginn gengur í suður frá Mansjúríu og Austur-Síberíu, þar sem Gula hafíð skilur landið frá Kína í vestri en Austurhaf frá Japan í austri. Saga Kóreu er næstum helmingi lengri en ís- landssagan og geymir aldagamla menningu og fágætar fomminjar. Nafnið Kórea er dregið af einu konungdæmanna, Koryo, stofnað árið 918. í skjóli þeirrar konungs- ættar var gullöld búddismans í landinu, sem blómstraði í bygging- arlist, leirmunagerð og bókmennt- um. Þeir fundu jafnvel upp prent- letur með hreyfanlegum málm- stöfum tveimur öldum á undan Gutenberg. Byggðasafnið í Kóreu- þorpinu skammt sunnan við Seoul ber vott um snyrtimennsku og Frá Ingóifi Guðbrandssym, Seoul, Suður-Kóreu. Á sviði keppnisíþrótta em Ólympíuleikamir mesti viðburður veraldar og fara fram fjórða hvert ár. Forsaga leikanna er rakin til Fom-Grikkja, sem héldu þá Zeusi höfuðguði sínum til heiðurs. í dag er aðeins 131 dagur fram að 24. Ólympíuleikunum, sem haldnir verða í Seoul, höfuðborg Suður- Kóreu, dagana 17. september til 2. október næstkomandi. Margt bendir til að nú verði leikamir mikilfenglegri en nokkm sinni fyrr í sögunni. Um 13.000 íþróttamenn og -konur frá 161 þjóð úr víðri veröld munu keppa og sýna mestu afrek, sem mannlegt atgervi og þrek getur náð á sviði hinna 23 viðurkenndu keppnisgreina. Þátt- takan er meiri en nokkm sinni áður og eftirvæntingin að sama skapi. Búist er við 250.000 gestum að fylgjast með nýjustu afrekum og úrslitum Ólympíuleikanna. Alls munu 22.000 hlauparar skipta með sér að bera Ólympíukyndilinn til Seoul og verða 22 daga á leið- inni uns Ölympíueldurinn verður tendraður á aðalleikvanginum í Champshill kl. 10.30 að morgni 17. september að viðstöddum 100 þúsund áhorfendum. Ólympíuleikamir em ekki að- eins mesti íþróttaviðburður heims- ins heldur jafnframt ein mesta skrautsýning veraldar. Menning- ar- og listviðburðir af ýmsu tagi tengjast leikunum og heimsfrægir skemmtikraftar auka á fjölbreytn- ina. í gær var eins konar forsýning á þessu litrófí frægðar og glæsi- leika, þar sem Bob Hope, Brooke Shields, Juiio Iglesias og Silvie Varton skemmtu ásamt fjölda annars frægðarfólks og fjöl- mennra danshópa frá Rússlandi, Las Vegas og Qöllistafólks frá Kína og Kóreu í þriggja klukku- stunda sýningu á aðalleikvangin- um, sem talið er að hafí kostað 2 milljónir dollara. Kóreska sjón- varpið ásamt bandarískri sjón- varpsstöð stóðu fyrir þessari sýn- Mikill fjöldi ferðamanna mun sækja Kóreu heim í haust þegar Ólympíuleikarnir verða haldnir. Úr rótgrónum bóka- klúbbi í eigin rekstur: „Ég hefði annars endað sem fúll gamall karl“ - segir Anton Óm Kæmested eigandi bókaútgáfunnar Krydd í tilveruna NÝRRI bókaútgáfu hefur verið hleypt af stokkunum. Nefnist hún Krydd í tilveruna en eig- andi er Anton Örn Kærnested sem nýlega lét af störfum fram- kvæmdastjóra í Bókaklúbbi AJ- menna bókafélagsins. „Ég starfaði hjá Almenna bókafé- laginu í sextán ár og hafði lengi langað til að glfma sjálfur við ýmis verkefni. Þar sem ég taldi enn eitthvað eftir af mér tók ég loks þessa stóru ákvörðun,“ sagði Anton. Anton kvaðst ekki stefna að því að reka stærstu bókaútgáfu á Islandi. „Mér nægir að framfleyta mér og fjölskyldu minni. Fyrstu bækur útgáfunnar verða erlent samprent sem dreift verður með áskrift. Sala þeirra hefst í haust. Síðan er ég byrjaður að undirbúa bækur fyrir markaðinn haustið 1989. Eg geng með margar spennandi hugmyndir í maganum, en fyrst er að treysta fjárhagsleg- an grundvöll útgáfunnar." Anton vildi ekki segja hvers eðlis bæk- umar væru sem kæmu út í haust, það biði betri tíma. Á starfsferli sínum hjá Al- menna bókafélaginu hafði Anton hönd í bagga með stofnun fjög- urra bókaklúbba. Hann sagðist hafa trú á því að enn væri rúm fyrir slíka starfsemi hér á landi. „Það er ekki á hvers manns færi að stofna bókaklúbb, en ég tel mig hafa næga þekkingu á mark- aðnum til þess að geta þetta. Annars hefði ég aldrei tekið þessa Morgunblaðið/Þorkell Anton Örn Kærnested sem lét af störfum hjá AB til að gerast sjálfstæður bókaútgefandi. áhættu. Öll fjölskyldan hefur raunar tekið þátt í starfí bóka- klúbba AB og má því segja að við höfum öll þreifað á púlsinum. Það er vissulega gífurlegt átak að rífa sig upp úr öruggu starfí tæplega fimmtugur og spreyta sig sjálfur. En ég hefði aldrei fyrir- gefíð sjálfum mér að reyna ekki. Þá hefði ég bara endað sem fúll gamall karl og aljt er betra en það,“ sagði Anton Örn Kæmested bókaútgefandi. Tónlistarskóli Garðabæjar: Lokaprófs- tónleikar í Garðakirkju ANNA Margrét Kaldalóns sópr- ansöngkona (kólóratúr) heldur tónleika í Garðakirkju laugar- daginn 14. mai kl. 17.00. Anna Margrét hefur stundað nám við Tónlistarskóla Garðabæjar sl. 5 ár undir handleiðslu Snæbjarg- ar Snæbjamardóttur. Á efnis- skránni eru íslensk og erlend ljóð og óperuaríur. Undirleikari er David Knowles. Tónleikamir eru lokapróf Önnu Margrétar við skólann og er öllum heimill aðgangur. (Fréttatilkynning) Anna Margrét Kaldalóns sópran- söngkona. Ovenju mikið um útfarir GREFTRANIR eru með því mesta sem gerst hefur lengi, að sögn Ásbjörns Björnssonar, for- stjóra Kirkjugarða Reykjavíkur- prófastsdæmis. Hann sagði að útfarir væru nú 6 til 7 á dag og hefði hann orðið að fá aukamenn í vinnu. Aðallega er nú jarðsett í Foss- vogskirkjugarði, en þar hefur kirkjugarðurinn verið stækkaður. Einnig er jarðsett í Gufuneskirkju- garði. Líkbrennslur vom um 100 árið 1986 og 1987 voru þær 127. Á þessu ári virðist vera um aukningu að ræða. Hlutfall þeirra íslendinga sem óska eftir því að lík þeirra séu brennd er um 7% en til dæmis í Bretlandi er hlutfallið um 70%.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.